Tíminn - 13.04.1984, Page 1

Tíminn - 13.04.1984, Page 1
Dagskrá ríkisfjölmiðlanna næstu viku - Sjá bls. 13 FlðLBREYTTARA OG BETRA BLAD! Föstudagur 13. apríl 1984 89. tölublað 68. árgangur Síðumúla 15—Posthólf 370 Reykjavik—Ritstjorn86300—Auglysingar 18300— Afgreidsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 Matvörukaupmenn áhyggjufullir: GREffiSUIKORHH SflGT UPP EFT1R PftSKA AD ÓBREYTTU — Matvörukaup með greiðslukortum nær óþekkt á hinum Norðurlöndunum ■ „Menn lýstu áhyggjum sín- um yfir því að viðbrögð korta- fyrirtækjanna við samningsum- leitunum matvörukaupmanna hafa ekki verið eins góð og vænta mátti. Mín spá er sú að ef þetta verður óbreytt til páska þá muni þeir aðilar sem komið hafa saman - og eru með mikinn hlut af matvörumarkaðinum - segja samningunum við kortafyrirtæk- in upp eftir páska", sagði Gunn- ar Snorrason, kaupmaður eftir fund matvörukaupmanna um kreditkortamálin. Eftir kannanir á vegum Kaup- mannasamtakanna hefur komið í Ijós að á hinum Norðurlöndun- um heyrir frekar til undantekn- inga að tekið sé við kreditkortum sem greiðslu fyrir matvæli, t.d. alls ekki í Danmörku, og ástæð- urnar sagðar of há gjaldtaka kreditkortafyrirtækjanna. Menn vilja heldur ná verðinu niður. Einu upplýsingarnar sem fengust um þóknunina voru frá Finnlandi þar sem hún er sögð 1.85% af úttekt. Hér á landi er þessu þver öfugt farið, þar sem talið er að meirihluti kredit- kortaviðskipta séu vegna sölu á matvöru. Gunnar sagði menn hér marga hverja einnig mjög áhugasama um að hætt verði að taka við kreditkortum vegna matvöru- kaupa, þannig að það gæti alveg farið svo að því yrði hætt þó svo að einhverjum reglum fáist breytt. Hann kvaðst þó vona að afstaða kortafyrirtækjanna muni eitthvað breytast fyrir 20. apríl. Hlutfall kortaviðskiptanna af heildarsölu kvað Gunnar stefna mjög hátt og hlut kortanna í viðskiptunum sífellt fara vax- andi. Hjá sumum væri þetta hlutfal! jafnvel komið í 20-25% af viðskiptunum. Jafnframt sagði hann það sína reynslu að kortin komi ekki í staðinn fyrir mánað- arviðskipti fólks, lieldur verði viðbót. við fyrri lán. Að vísu kvaðst hann ekki hafa reynt að ýta sínum mánaðarviðskipta- mönnum út í kortin, því bæði fengi hann uppgert fyrr hjá því fólki og þau viðskipti kosti engar beinar greiðslur. Lánsviðskipti eru því orðin verulegur hluti af veltunni hjá mörgum kaup- mönnum „þegar maður telur lít- ið annað upp úr kassanum en reikninga og plastpeninga", eins og Gunnar orðaði það. Siglufjörður: ÓVENJU MIKIL ÖLVUN í BÆN- UM Á MIÐVIKU- DAGSKVÖLDI í kjölfar útvarpsfréttar ■ „I'að var frétt í útvarpinu í vikunni um^ að áfengissala hefði dregist saman á Siglufirði undanfarna þrjá mánuði. Ég hcld barasta að menn hafi xtlaö sér að bæta úr þessu á miðvikudagskvöldið, þetta hcfur ckki gerst hér síðan á síldarárununi, sagði Ólafur Jóhannsson lögrcglumaður á Siglufirði í samtali við Tímann en óvcnju mikil ójvun var í bænum á miövikudagskvöld. ólafur sagði að þrátt fyrir það hefðu engin vandræði hlot- ist af. Þetta væri aöcins óvenju- legt, sérstaklcga þar sem ckk- ert var serstakt unt að vcra í bænum þctta kvöld. -GSH FUNDADMEÐ UMBOÐSMÖNN- UMTÍMANS ■ Umboðsmenn Tímans frá nokkrum stxrstu og mikilvæg- ustu byggðarlögum landsins hafa að undanförnu setið á fundum með starfsmönnum blaðsins i Reykjavík. Tilgangur fundar- haldanna hefur verið að ræða hugmyndir um endurbætur á núverandi dreifingakerfi blaðsins, sem eiga að leiða til stórbættrar þjónustu við kaup- endur blaðsins utan höfuðborg- arsvæðisins. Fundarhöld þessi eru aðeins einn liður af fjölmörg- um, er tengjast þeim miklu breytingum á Tímanum, sem væntanlegar eru síðar í mánuðin- um. Mikill baráttuhugur er nú í umboðsmönnunum, enda stór og skemmtilcgur slagur fram- undan. Meðfylgjandi mynd var tekin við skrifstofur Tímans í Reykjavík af umboðsmönnun- um og þeim Kjartani Ásmunds- syni dreiFingastjóra (t.v.) og Sig- urði Skagijörð Sigurðssyni fram- kvæmdastjóri (t.h.) í gær. Tímamynd G.E. Flug- freyjur sömdu ■ í gærkvöldi tókust samningar hjá Sáttasemjara ríkisins um kjör flugfreyja með venjulegum fyrirvara um samþykkt félags- fundar. Þar með var afstýrt því verkfalli flugfreyja á N-Atlants- hafsleiðinni sem boðað hafði verið á miðnætti í nótt. Niðurstaða könnunar SÁÁ: VARANLEG LÆKNING HJÁ ÞRIÐJA HVERJUM SJUKUNGI ■ SÁÁ hefur látið gera könnun á árangri sínum í baráttunni við áfengisvanda- máliö. Þar kemur fram að þriðji hver sjúklingur sem komið hefur til meðfcrðar á Sogni í Ölfusi drekkur ekki áfengi cða neytir annarra vímucfna næstu 2-3 árin. Scndur var spurningalisti til 334 sjúklinga sem dvöldust að Sogni árið 1980. Af þeirn svöruðu 210 og af þeim voru 107 í varanlegu bindindi. Auk þess höfðu 11 komið til annarr- ar meðferðar og náðþví að vera frá áfengi í 18 mánuði til 3 ár. Árangur þessi er svipaður og náðst hefur erlendis. t.d. í Hazcldene Foundation í Minnesota í Bandaríkjunum. Alls hafa nú um 4000-5000 einstaklingar lagst inn á með- ferðarstofnanir SÁÁ, og viku- lcga cru um 400 manns í einhverskonar meðferð hjá samtökunum. Það voru þeir Þórarinn Tyrf- ingsson yfirlæknir að Vogi og Sigurður Gunnsteinsson með- ferðarstjóri sem sáu um undir- búning og vinnslu könnunar- innar. -ÁDJ Bjarni Benediktsson leigður til Bíldudals: Ahöfnin fylgir ■ í gær tók í gildi samningur milli Bæjarútgerðar Reykjavík- ur og Rækjuvers á Bíldudal um leigu á togaranum Bjarna Ben- ediktssyni með áhöfn og gildir samningurinn til 15. september. Að sögn Brynjólfs Bjarnason- ar framkvæmdastjóra BÚR sér Rækjuver um allan rekstur togarans meðan á leigutímanum með stendur en að öðru leyti greiðir fyrirtækið hlutfall af afla í leigu. „Þetta eru svipaðir samningar og gerðir voru um leigu Hafþórs á sínum tírna," sagði Brynjólfur, „leigusamningar eru annars heldur fátíðir hérlendis og Haf- þórssamningurinn hefur helst verið notaður sem fordæmi."t -JGK.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.