Tíminn - 13.04.1984, Side 2
Félag forræðis-
lausra foreldra
STOFNAÐ FORM-
LEGA14. APRÍL
■ „Þegar félagi þessu var lauslega
hleypt af stokkunum fyrir ári kom
í Ijós að þörfin fyrir félag sem þetta var
mun brýnni en menn áttu von á“, sagði
Lárus G. Guðjónsson hjá Félagi for-
ræðislausra foreldra. Formlegur stofn-
fundur félagsins hefur verið ákveðinn að
Fríkirkjuvegi 11. n.k. laugardag 14.
arpíl. Verður mörkuð stefna félagsins og
skipulag á funinum.
Að sögn Lárusar hafa fyrirspurnir um
félagið borist víðs vegar að af landinu
svo og óskir um leiðbeiningar og aðstoð
vegna margs konar tilvika. Eftir árs
reynslu og umræðu um þessi mál sé
orðið ljóst á hvaða vettvangi og með
hvaða markmiði félagið þurfi að starfa.
Lárus sagði ástæðu til að hvetja alla
þá foreldra sem ekki hafa forræði barna
sinna til að mæta á stofnfundinn. Frekari
upplýsingar býðst hann til að veita í síma
53597 eða Sigmundur H. Guðmundsson
í síma 38058. - HEl.
Fermingarbörn í
þjónustu
hjálparstarfsins
■ Á næstunni munu fermingarbörn
knýja dyra hjá landsmönnum og bjóða
merki til sölu, til stuðnings við þrjú
mismunandi málefni. heimilis fyrir mun-
aðarlaus börn í Kalkutta á Indlandi í
umsjá Maríu Theresu, fötluð börn
innanlands í samvinnu við Landssamtök-
in þroskahjálp og fatlaða á Sólheimum í
Grímsnesi, en biskupi íslands hefur
borist beiðni um aðstoð við heimilið þar^
í frétt frá Hjáiparstofnun kirkjunnar
segir að í fermingarfræðslunni hafi marg-
ir prestar frætt fermingarbörnin um
grundvöll og gildi hjálparstarfs kirkjunn-
ar og með merkjasölunni hafi fermingar-
börnin gerst virkir þátttakendur í þessu
starfi. -JGK.
Aðalfundurinn krefst þess jafnframt
að látið verði staðar numið í atlögu
stjórnvalda að afkomu heimilanna. Bog-
inn sé spenntur til hins ýtrasta og
vaxandi óánægju og óþolinmæði sé farið
að gæta hjá almenningi vegna skeyting-
arleysis stjórnvalda. Stöðugar hækkanir
á verði nauðþurfta og opinberrar þjón-
ustu ltafi dunið á launþegum ásamt
þyngdum skatta- og útsvarsbyrðum á
sama tíma og gjöld á verslunar- og
skrifstofuhúsnæði lækki svo og skattar á
atvinnurekstri og skattfríðindi hlutafjár-
eigendá séu aukin. Þá séu kaupmönnum
nú fengnar frjálsar hendur unt álagningu
á nauðsynjum ogstórgróðafyrirtæki veitt
fyrirheit um tugmilljóna gjöf úr galtóm-
um ríkissjóði um leið og ráðgert er að
lækka niðurgreiðslur og leggja söluskatt
á matvöru svo ríkissjóður géti staðið við
fyrirheit sitt um að cinstæð foreldri og
barnmargar fjölskyldur fái fyrir nauð-
þurftum sínuni.
■ Einar Ólafsson, formaður Starfs-
mannafélags ríkisstofnana.
„Þessi stefna stjórnvalda er ögrun sem
launþegar og samtök þeirra eiga aðeins
eitt svar við: Uppsögn á nýgerðum
kjarasamningum og boðun verkfalls 1.
september n.k.“ Fól aðalfundurinn
■ Aðalfundur Starfsmannafélags ríkisstofnana var vel sóttur og margar ályktanir samþykktar þar.
Starfsmannafélag ríkisstofnana:
BOÐAR TIL VERKFALLS
1. SEPTEMBER í HAUST
ef ríkisstjórnin lækkar nidurgreidslur
og leggur söluskatt á matvöru
■ „Sparnaður og ráðdeild eru dyggðir,
sem ekkert stjórnvald getur krafist af
þegnum sínum án þess að ganga sjálft á
undan með góðu fordæmi“, segir m.a. í
kjaramálaályktun aðalfundar Starfs-
mannafélags ríkisstofnana. Krafist er að
byrðar rótlausra og ráðalítilla stjórn-
valda verði bornar af fleirum en launa-
fólki.
stjórn SFR að hefja nú þegar undirbún-
ing kröfugerðar og baráttu sem dugi til
að brjóta á bak aftur kaupránsaðgerðir
stjórnvalda.
í SFR voru 4.468 félagar um síðustu
áramót, 1.615 karlar og 2.674 konur,
auk 269 manns í lífeyrisdeild. Sjálfkjörið
varð í stjórn félagsins fyrir fimabilið
1984-1986. í skýrslu formanns kom m.a.
fram að félagið eignaðist 10 ný sumarhús
á síðasta ári, 7 í Stóru-Skógum í Borgar-
firði og 3 að Eiðum í S-Múl. -HEI.
Nýtt happdrættisár DAS:
AFIUR HÚS í VINNING
— miklar framkvæmdir hjá
Hrafnistu í Hafnarfirði
■ Baldvin Jónsson framkvæmdastjóri Happdrættis DAS og Pétur Sigurðsson alþingismaður og formaður Sjómannadags-
ráðs á fundi með blaðamönnum þar sem þcir kynntu nýtt happdrættisár DAS og helstu framkvæmdir á vegum
Sjómannadagsráðs.
Skatar, Sjomannaf élag Reykjavíkur og sjómenn á haf i úti:
Mótmæla frestun kaupa á
þyrlu Landhelgisgæslunnar
■ Happdrætti DvaFarheimilis aldraðra
sjómanna er 30 ára og cr þrítugasta.og
fyrsta happdrættisárið að hefjast um
þessar mundir. Á þessu ári verður aftur
Verðhækkun
hollustudrykkja:
„GETURHAFT
AFDRIFARÍK
ÁHRIF Á MATAR-
VENJUR BARNA“
— segir stjórnar-
maður í Landssam-
bandi framsóknar-
kvenna
■ „Við teljum að mikil verðhækkun
hollustudrykkja geti haft afdrifarík áhrif
á matarvcnjur barna. Kakómjólkin og
ávaxtasafinn eru orðnir einn algengasti
þátturinn í nesti barna i skólum og
leikskólum. Hátt verð á þcssum vörum
keinur því verulega við pyngju barn-
niargra heimila“, sagði Ásta Kagnheiöur
Jóhannesdóttir, stjórnarmaður í Lands-
samhandi framsóknarkvenna.
Framkvæmdastjórn Landssambands-
ins samþykkti á fundi sínum í fyrrkvöld
að mótmæla frumkominni ákvörðun
fjármálaráðherra um töku vörugjalds og
söluskatts af hollum drykkjarvörum (s.s.
mjólkur- og ávaxtadrykkjum). Jafn-
Trámt lýsir framkvæmdastjórn Lands-
sambands framsóknarkvenna yfir stuðn-
ingi við bókun forsætisráðherra Steing-
ríms Hermannssonar og landbúnaðar-
ráðherra Jóns Helgasonar á ríkisstjórn-
arfundi 10. apríl s.l. þar sem þessi mál
voru rædd. -HEl.
hús á vinningaskrá en svo hefur ekki
verið nú um nokkurra ára skeið. Alis
verða 7200 vinningar á skrá þetta árið að
heildarverðmæti 57 milljónir króna.
Mánaðarverð miða verður 100 krónur
sem er það sama og hjá öðrum flokka-
happdrættum. Verðmæti vinninga er á
bilinu 2500 krónurog upp í 2,5 milljónir
sem er húseignin að Boðahlein 15 í
Garðabæ.
Hús þetta er eitt af 28 vernduðum
þjónustuhúsum sem Sjómannadagsráð
lætur byggja í samræmi við lög sem sett
voru á ári aldraðra. Hús þessi eru reist
rétt við Hrafnistu í Hafnarfirði en landa-
mörk syeitarfélaganna liggja þar á milli.
Er reiknað með að þau fyrstu verði
fullbúin í desember. Húsin verða tengd
allri þeirri þjónustu sem er boðið upp á
í dvalarheimilinu og fylgja þeim engar
kvaðir aðrar en þær að í þeim verða
alltaf að búa annaðhvort aldraðir eða
öryrkjar. Það sögn Péturs Sigurðssonar
á fundi með fréttamönnum var ekki
stætt á að tryggja ráðinu forkaupsrétt á
húsunum þar eð ekkert fjármagn væri
fyrir hcndi til slíkra hluta.
Þá kom fram hjá þeint Pétri og
Baldvini Jónssyni framkvæmdastjóra
happdrættisins að miklar framkvæmdir
hefðu verið við Hrafnistu í Hafnarfirði
að undanförnu. Þar var nýlega’ opnað
bókasafn fyrir vistmenn og sú þjónusta
sem dvalarheimili Sjómannadagsráðs
getur veitt er sífellt fjölbreyttari. Á
Hrafnistu í Reykjavík er nú á döfinni að
opna heimili fyrir gamalt fólk sem á við
geðræn vandamál að stríða. Þá verða
hinar nýju þjónustuíbúðirvið Boðahlein
nýbreytni sem ekki hefur þekkst fyrr hér
á landi og er Sjómannadagsráð fyrst til
að fylgja eftir lagasetningu frá ári aldr-
aðra, 1982.
-b
■ „Við teljum það nánast ósvífni að í
viðbót við mikla kjaraskerðingu sjó-
manna eigi líka að ræna þá þeim mögu-
leika að komast undir læknishendur ef
slys ber að hönduny. Við teljum að
björgunarþyrla sem rekin er af landhelg-
isgæslu íslands sé búin að sanna svo
rækilega gildi sitt að það sé óverjandi að
láta þennan þátt björgunarmála falla
niður". Svo segir í símsendri ályktun frá
áhöfnum tuttugu og tveggja skipa á hafi
úti þar sem fyrirhuguðum áforntum um
að fresta kaupum á björgunarþyrlu til
handa Landhelgisgæslunni er mótmælt
harðlega. Þá hafa Sjómannafélag
Reykjavíkur og Landssamband hjálpar-
sveita skáta sent frá sér ályktanir þar
sem stjórnvöld eru hvött til að nýta sér
nú þegar þá heimild sem er í fjárlögum
til þyrlukaupanna. í ályktun hjálpar-
sveitarinnar segir meðal annars:
„Það væri að dómi stjórnar hjálpar-
sveitarinnar óskynsamlegt að stöðva eða
fresta áframhaldandi þróun íslensks
þyrluflugs og tæplega viðeigandi fyrir
fullvalda þjóð að ætla að treysta á aðstoð
erlendrar þjóðar, umfram það sem nauð-
synlegt er í þessum efnum... Þá er það
skoðun stjórnarinnar að gera eigi Land-
helgisgæslunni kleyft að annast stjórn og
milligöngu alls björgunarflugs með þyrl-
um hér á landi." í ályktun Sjómannafé-
lagsins sem samþykkt var á almennum
farmannafundi í Lindarbæ er þess meðal
annars óskað að stjórnvöid kanni hvort
ekki geti reynst hagkvæmara að kaupa
tvær þyrlur, nteð tilliti til öryggis og
rekstrar þó sú síðari verði ekki afgreidd
fyrr en síðar á árinu.
Þyrla sú sem fyrirhugað er að kaupa
verður keypt í stað þyrlu gæslunnar, TF
Rán sem fórst í Jökulfjörðum síðastliðið
haust með fjögurra manna áhöfn. Sú
þyrla sem helst hefur verið rætt um er
svokölluð Dauphin 2 þyrla framleidd af
franska fyrirtækinu Aerospatiale.
Ákvörðun um þyrlukaupin var frestað á
ríkisstjórnarfundi fyrir tveimur vikum
og uppi eru hugmyndir um að fresta
kaupununt.
-b