Tíminn - 13.04.1984, Qupperneq 3

Tíminn - 13.04.1984, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 1984 3 fréttir Náttúruverndarnefnd Akureyrar: HYGGST SITJfl OG SEGJfl BÆNUM STRÍD A HENDUR! ■ „Því miður virðast störf nefndarinn- ar vekja litla athygli, nema þegar til árekstra kemur... og leiti nefndin eftir samstarfi er hún ekki virt svars“, segir meðal annars í nýútkominni skýrslu Náttúruverndarnefndar Akureyrarbæj- ar. í skýrslunni koma fram harðorð mótmæli vegna sinnuleysis bæjaryfir- valda og annarra framkvæmdaaðila í bænum um störf nefndarinnar. Flestum tillögum nefndarinnar hefur verið hafn- að af bæjaryfirvöldum en til annarra „hefur heldur lítið spurst." Þá segir í niðurlagi að nefndin hyggist samt ekki hóta afsögn, þar eð „slíkt yrði yfirvöld- um fremur til gleði en harms... því hyggst hún halda áfram nuddi sínu í þeirri von að svo megi brýna deigt járn að bíti." í skýrslunni eru rakin mörg dæmi þess hvernig nefndin hefur verið hunsuð eða sniðgengin við framkvæmdir í bænum þar sem umhverfisspjöll hafa verið í húfi. Við lagningu svokallaðs Leiruvegar, sem liggur að bænum var samþykkt Náttúruvemdamefndar ekki einu sinni virt svars. Við eftirgrennslan nær hálfu ári síðar var því borið við að málið væri utan verkahrings nefndarinnár. Þá hefur sorpeyðing Akureyrar verið í hinu mesta ólestri þrátt fyrir að nefndin hafi þráfald- lega ályktað um úrbætur. Til þeirra ályktana hefur lítið spurst, segir í skýrsl- unni. Tillögum um friðun Glerárgilsins var hafnað í bæjarstjórninni og fleira mætti telja. „Allt ber hér að sama brunni. Til að koma í veg fyrir óbætanleg spjöll á umhverfinu verður mun víðtækara sam- starf að takast með nefndum bæjarins og þeirn sem framkvæmdir annast," segir í niðurlagskafla skýrslunnar. -b Halldór Pálsson látinn Nýr unglinga- skemmtistaður nálægt Hlemmi ■ í kvöld kl. 10 verður opnaður nýr unglingaskemmtistaður nálægt Hlemmi. Nefnist hann Gaukurinn og tekur við af D-14 í Kópavogi, sem nú hefur verið lagður niður. Eigendur eru þeir sömu, eða Vilhjálmur Svan o.fl. Staðurinn tekur 500 manns, opið er til kl. 3 á nóttunni og er öllum ekið heim á eftir. Krafist er snyrtilegs klæðnaðar (hvað sem það táknar) og hægt er að fá miða fyrir tvö kvöld á 350 krónur, en fyrir eitt kvöld á 250. Nánar tiltekið er Gaukurinn á Laugavegi 116, og opnar eins og áður segir í kvöld. ■ Eigendur og aðstandendur Gauksins. Á bak við þá er diskóbúrið, staðsett í framenda af vörubíl. Tímamynd Sverrir Einar Viðar fannst látinn ■ Einar Viðar hæstaréttarlögmaður, sem lögreglan í Hafnarfirði lýsti eftir á mánudag, fannst látinn, skammt frá heimili sínu á miðvikudag. Hann hafði átt við vanheilsu að stríða. Einar Viðar var fæddur 6. júlí 1927. Hann útskrifaðist sem lögfræðingur frá H.í. árið 1954 og rak eigin málflutnings skrifstofu frá árinu 1958. Hann var tvíkvæntur. ■ Halldór Pálsson fyrrverandi búnað- armálastjóri lést í gærmorgun tæplega 73 ára að aldri. Halldór var einn helsti brautryðjandi á sviði sauðfjárræktar hér á landi og öðru sem laut að vísindarann- sóknum í landbúnaði. Hann varð stú- dent 1933 og fór utan og nam búvísindi í háskólanum í Cambridge og Edinborg þaðan sem hann lauk doktorsprófi að- eins 5 árum síðar. Hann varð sauðfjár- ræktarráðunautur Búnaðarfélagsins 1937 og gegndi því starfi, jafnframt því að vera forstjóri við Atvinnudeild Há- skóla íslands til ársins 1963. Frá 1963 til 1980 gegndi Halldór stöðu búnaðarmála- stjóra og var ritstjóri Búnaðarritsins á sama fíma. Þá gegndi Halldór ýmsum trúnaðarstöðum sem við komu vísinda- starfi og búfjárrækt. Halldór var l'æddur að Guðlaugs- stöðum í Svínadalshreppi 26. apríl 1911, sonur Páls bónda og hreppstjóra þar Hannessonar og konu hans Guðrúnar Björnsdóttur. Eftirlifandi kona Halldórs Pálssonar er Sigríður Klemensdóttir frá Húsavík. Húnavaka ’84 hefst í dag ■ I dag hefst menningar- og skemmti- vaka Ungmennasambands Austur-Hún- vetninga á Blönduósi, Húnavaka ’84. Margt verður þar á dagskrá og mörg félög taka þátt í dagskráratriðum, en vakan fer fram á Blönduósi. Meðal atriða á dagskránni er sýning á teikningum Sigmunds í Félagsheimilinu á Blönduósi og mun það vera þriðja einkasýning hans. í Héraðsbókasafninu á Blönduósi verður ljósmyndasýning og verða þar m.a. sýndar myndir eftir tvo Blönduósbúa, Unnar Agnarsson og Skarphéðin Ragnarsson. Leikfélag Blönduóss sýnir Spanskflug- una eftir Arnold & Bach þrívegis á vökunni undir leikstjórn ungs Skagfirð- ings, Eyþórs Árnasonar. Á morgun verður skcmmtun grunnskólanemenda á Blönduósi og þar koma fram 150 nemendur á aldrinum 6-12 ára. Á sunnudaginn verður söngskemmtun tveggja kóra, Samkórinn Björk flytur atriöi úr Gloria eftir Vivaldi og fleiri sönglög. Einhig kemur grunnskólakór- inn á Blönduósi fram. Stjórnandi beggja kóranna er Arne Korshann, en undir- leikari er Guðjón Pálsson frá Hvamms- tanga. Hann verður einnig undirleikari með bræðrunum Jóhanni Má Jóhanns- syni og Svavari Jóhannssyni, sem syngja á húsbændavöku síðasta vetrardag, en þar koma einnig frant Ómar Ragnars- son, Helgi Seljan alþingismaður, sem rabbar við samkomugesti og fleiri atriði verða þar á boðstólum. -JGK HOFÐABAKKA 9 SIMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVORUM

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.