Tíminn - 13.04.1984, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 13. APRÍI. 19M
Leir og lín:
Ellefu lista-
konur sýna í
Listmunahúsinu
■ Niöri í Listmunahúsi viö Latkjargötu
vcröur opnuð mjög skcmmtilcg sýning á
laugardag. I’ar eru á ferðinni ellefu
myndlistarkonur sem hafa tekið sig
saman, og sýna þær annarsvegar leir-
muni og hinsvegar tcxtílvcrk. Tekur
sýningin nafn eftir því og nefnist leir og
lín.
Tíminn heimsótti þær stöllur þcgar
verið var að setja upp sýninguna og
spjallaöi viö þær allar í einu. l'ær sögðust
hafa mjög ólíkar hugmyndir um list og
ættu það eitt sameiginlcgt að hafa verið
í Myndlistar- og handíðaskólanum á
sama eða svipuðum tíma. Jú, og einnig
sögðust þær eiga það sameiginlegt að
vera að gera citthvað sem gaman væri
oft endurtckin svipað og í grafík, og
lækkar verðið eftir því. Þær vinna allar
á litlum verkstæðum, og sögöust ekki
hafa mikiö upp úr þessu, þyrftu frekar
að borga með ef eitthvaö væri.
„Textíllist er ung listgrein, hcr á landi,
og við erum kannski að reyna aö vinna
okkur nafn mcð sýningu eins og þessari,
skapa rúm á markaðnum."
Verðið sögðu þær að væri ekki ákveð-
ið, cn það yröi sanngjarnt.
Konurnar ellefu heita: Arndís Ögn
Guðmundsdóttir, Bryndís Jónsdóttir,
Heiða Björk, Herborg Auðunsdóttir,
Hildur Sigurbjörnsdóttir, Hjördís
Bergsdóttir, Hjördís Guðmundsdóttir,
Kristín ísleifsdóttir, en hún lærði í
Malcolm og Valgerður við verk sín.
Tímamynd Árni Sæberg.
■ Myndlistakonurnar ellefu + ein.
Tímamynd Árni Sæberg.
aö. Það er mismuriandi hvað þær hafa
mörg verk, tcxtíllistakonurnar hafa 2-3
en leirlistakonurnar 7-8.
Aöspuröur um notagildi vcrkanna
sögðu þær að þetta væru sjálfstæð
myndvcrk, hvert um sig. rextílverk eru
Japan, María Hauksdóttir, Ólöf Ingi-
björg Einarsdóttir og Valgcröur Torfa-
dóttir.
Sýningin er opin virka daga frá kl.
10.00 til 22.00 og um hclgar frá 14.00-
22.00 og lýkur 29. apríl. -ÁDJ
„Landslagið á íslandi
og í Nýju Mexíkó líkt“
— tveir myndlistarmenn sýna í Listasafni alþýðu
■ Þau Valgerður HauksdóttirogMalc-
olm Christhilfs eiga margt sameiginlegt.
Þau eru bæði myndlistarmenn, hafa
bæði lært í Bandaríkjunum, og mála
bæði landslag, þótt með fremur óhefð-
bundum hætti sé. Þau eru einnig með
sameiginlega sýningu í Listasafni Al-
þýðu, sem opnar á laugardag 14. apríl.
Þau sýna grafík, teikningar og myndir
unnar með blandaðri tækni. I stuttu
spjalli við þau kom fram að Valgerður
er búin að vera 5 ár við nám í Bandaríkj-
ununt, fyrst í Chicago og síðan í New
Mexico, og hefur sýnt á mörgum samsýn-
ingum í Bandaríkjunum, en aðeinseinni
hér heima. Hún var eingöngu í grafík-
námi, og hefur nú lokið námi. Malcolm
er hins vegar enn að læra, en hann hefur
lært við Tamarind Institute í Nýju Mex-
íkó, sem sérhæfir sig í að kenna litho-
grafíu.
- Hverniger listalíf í Bandaríkjunum,
Valgerður?
„Það er frekar fjörugt, sértaklega í
þremur aðal myndlistarpunktunum,
Chicago, Los Angeles og New York.
Mér líkaði bara ágætlega þarna."
- En af hverju komst þú til íslands,
Malcolm?
„Ég kom í heimsókn til Valgerðar, og
fór að búa til myndir. Svo fékk ég fleiri
myndir sendar að heiman til að hafa á
sýningunni."
- Hvernig er að vinna hér?
„Það er mjög gaman. Island hefur
svipað landslag og Nýja Mexíkó, opin
svið. mikil vídd. Mér kom það á óvart
hve löndin eru lík. Ég mála aðallega
landslag."
- En þú Vaigerður?
„Ég mála líka landslag, en myndirnar
mínar eru meira huglægs eðlis.aðlands-
lagið er notað sem tjáningarmáti frekar
en að verið sé að ná fram staðareinkenn-
um.“
- Og verðið þið hér áfram?
„Malcolm þarf að fara til náms í
haust", segir Valgerður, „og við verðum
til haustsins. Síðan getur verið að égfari
líka út.“
Sýningin er opin virka daga nema
mánudaga frá kl. 16.00-22.00. Sýning-
unni lýkur 1. maí.
■ Jón Þór Gíslason opnar málvcrkasýningu i Hafnarborg, Strandgötu 34 í Hafnarfirði á laugardaginn. Þetta er önnur
einkasýning hans en hann hel'ur tckið þátt í fjölda samsýninga. Allar myndirnar eru unnar með olíulitum á striga.
Sýningunni lýkur 29. apríl og verður opin alla daga þangað til frá kl. 14-19.
Héraðsvaka á Fljótsdalshéraði
Skáldakynning í kvöld
— og kabarett annaðkvöld
■ Héraðsvaka Menningarsamtaka
Héraðsbúa stendur yftr um þessar mund-
ir og lýkur á sunnudag. I kvöld efna
héraðsskáld og hagyrðingar til skálda-
kynningar þar sem kynntar verða afurðir
skáldagyðjunnar í héraðinu í ljóðum,
tónum og lausu máli. Þá mun hinn nýi
Karlakór Fljótsdalshéraðs koma fram í
fyrsta sinn og veitt verða verðlaun fyrir
bestu umgengni og snyrtimennsku við
frágang á lóð eða landi.
Hápunktur vökunnar verður svo ann-
aðkvöld með Héraðskabarett og dans-
leik í Valaskjálf. Þar verður flutt efni úr
öllum hreppum héraðsins, svo sem inn-
legg í kvennréttindin úr Skriðdal og
upprifjun frá ástandstímanum á Egils-
stöðum. Úr Hjaltastaðaþinghá verða
fluttar gamanvísur, samlestur, skrítlur
og þessháttar. Dans hefst svo að
skemmtiatriðum loknum og leikur
hljómsveitin Aþena til klukkan 2:00.
Aðgangur á dansleik er krónur 300 en
400 fyrir þá sem mæta á kabarettinn.
Þeir sem fara að loknum skemmtiat-
riðum fá helming aðgangseyris endur-
greiddan.
í Vökulok á sunnudaginn verða svo
valin atriði úr héraðsvökunni endurflutt
og er sú samkoma ekki hvað síst ætluð
þeim sem óhægt eiga um sókn kvöld-
skemmtana. Skemmtumn Vökulok
verða í Valaskjálf og hefjst klukkan
14:00.
Héraðsvökur Héraðsbúa hafa nú verið
haldnar um hver sumarmál nú um árabil
og er ætlunin að þær verði að fastri
hefð . Markmiðið er að fram kom sem
best mynd af menningarlífi á Fljótsdals-
héraði og hvetja fólk til þess að taka
virkan þátt í menningunni. -b.
Tónlistarfél. Akureyrar
Stórtónleikar
á sunnudag
■ Á sunnudaginn. 15. apríl kl. 18.00
verða haldnir tónleikar á vegum Tónlist-
arfélagsins á Akureyri í íþróttaskemm-
unni. Þar koma fram Sinfóníuhljómsveit
Tónlistarskólans á Akureyri undir stjórn
Michaels J. Clarke og Ásgeir H. Stein-
grímsson trompettleikari sem leikurein-
leik í Trompettkonsert Haydns. Einnig
flytur hljómsveitin verk eftir Bach, Off-
enbach og Sibelius.
Tónlistarfélagið á Akureyri er 40 ára
um þessar mundir og því til heiðurs
gefur hljómsveitin sinn hlut í tónleikun-
um. -JGK.
Hlífðorfatnaóur
frá SjóklcBöagerdinnl:
t>róaður lil að mæta kröfum íslenskra
sjjómanna við erílðustu aðstæður.
POLYVINYL GLÓFINN
SEXTÍU OG SEX NORÐUR með sérstökum gripíleti sem gefur gott tak. Skúlagötu 51 Sími 11520