Tíminn - 13.04.1984, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 1984
fréttir
Ráðstefna um
byggðasögu
■ Um helgina efnir Félagið Ingólfur til ráðstefnu um byggðasögurannsóknir á
íslandi þar sem fluttir verða fyrirlestrar fræðimanna víðs vegar að og unnið í
starfshópum þar sem fjallað verður um hin ýmsu mál sem upp koma á ráðstefnunni.
Ráðstefnan verður haldin í I.ögbergi, húsi lagadeildar Háskóla íslands og hefst
klukkan 13:00 á laugardag og lýkur síðdegis á sunnudag. Samhliða ráðstefnunni
heldur Ingólfur aðalfund sinn.
Meðal umræðuefna á ráðstefnunni
verður; þéttbýlið sem aldrei varð,
byggðasöfn og byggðasaga, gildi byggða-
sögurannsókna, hvernig skal rita
byggðasögu og byggðasaga í skólum. í
fyrirlestrum verður fjallað um byggða-
söguna í víðu samhengi, allt frá af-
mörkuðum landbúnaðarsvæðum til þétt-
býlissvæða og rakin tengsl hennar við
skyldar greinar. Fyrirhugað er að gefa
fyrirlestra út að ráðstefnunni lokinni
Dagskrá laugardagsins verður svo-
hljóðandi: Setning klukkan 1.00 eftir
hádegi en síðan fjallar Steingrímur Jóns-
son um þátt alþýðufræðimanna í byggða-
söguritun. Hálf tvö flytur Björn Teitsson
stuttan fyrirlestur um byggðasögurann-
sóknir háskólamanna og eyðibýlarann-
sóknir á íslandi en næstur er Gunnar
Karlsson um hlutverk og takmarkanir
byggðasögu. 14.00 Nanna Hermanns-
son fjallar um þátt byggðasafna í
faginu og 14.15 tekur Árni Björnsson
fyrir þátt munnlegrar geymdar í byggða-
sögurannsóknumn. 14.30 flytur Lilja
Árnadóttir erindi um verndun gamalla
húsa og þvínæst Inga Lára Baldvinsdótt-
ir um ljósmyndir í byggðasögu en síðasta
erindið á laugardeginum er um þátt
héraðsskjalasafna i ritun byggðasögu,
flutt af Ármanni Halldórssyni. Að loknu
kaffihléi taka vinnuhópar til starfa til
klukkan 17.15 en þá hefst aðalfundur
Félagsins Ingólfs
Ráðstefnan hefst að nýju á sunnudags-
morgun klukkan 10.00 með erindum
Björns Þorsteinssonar og Gísla Gunn-
arssonar um orsakir þéttbýlisleysis á
íslandi en klukkan 10.30 fjallar Helgi
Þorláksson um rannsóknir á þéttbýli
Reykjavíkur og eftir honum Þórður
Tómasson um byggðasögu sveitanna
undir Eyjafjöllum. Klukkan 11.00 taka
vinnuhópar til starfa en eftir hádegi
flytur Sölvi Sveinsson erindi um Skag-
firðingabók. 13.45 ræðir Ingólfur Á.
Jóhannsson um tengsl grunnskólans við
byggðasöguna en þvínæst Jón Þ. Þór um
það hvernig skrifa skuli byggðasögu.
Síðasta erindi ráðstefnunnar er svo Ás-
geir Guðmundssonar um það hvernig
unnið var að ritun sögu Hafnarfjarðar.
Því næst starfa vinnuhópar og kynna
niðurstöður sínar í ráðstefnulok en
henni verður slitið klukkan 17.00.
Jörn Sanders prófessor í Þrándheimi
mun flytja erindi á ráðstefnunni sem ber
heitið „Lokal historie“ en ekki er enn
ákveðið hvar það kemur inn í dagskrána.
Þátttakendum utan af landi er bent á
að hafa samband við einhvern eftirtal-
inna stjórnarmanna í Ingólfi upp á
hugsanlega lækkun fargjalda til Reykja-
víkur; Guðrúnu Ásu (s. 23821), Magnús
(s. 66863) eða Mjöll (s. 21848). -b
ísfirðingar safna fyrir
tónlistarskólahúsi
■ (sfirðingar huga nú að byggingu
tónlistarskólahúss. í skólanum eru nú
tæplega tvö hundruð manns, en kennsla
fer fram á 12-15 stöðum í bænum.
Unnið: er að því að teikna skólann og
vonast er til að framkvæmdir geti hafist
í vor.
Félag um byggingu fyrir tónlistarskóla
hefur verið stofnað og unnið að ýmiss
konar frjásöfnun, s.s. kabarettsýning-
um, kökubasar, kaffisölu og torgsölu, en
ísfirðingar telja að stærri fjársafnanir
þurfi að koma til. Því er nú leitað um
stuðning til brottfluttra ísfirðinga, og er
hægt að senda peninga á ávísunarreikn-
ing við útibú Landsbanka Islands á
ísafirði nr. 21550 á nafn Byggingarsjóðs
Tónlistarskóla ísafjarðar c/o Pósthólf,
149, ísafirði.
Afmælishóf
Helgarpóstsins
■ í kvöld verður haldin á Hótel Borg
vegleg afmælisveisla Helgarpóstsins en í
þessum mánuði eru liðin 5 ár frá því að
blaðið hóf göngu sína. Meðal atriða á
dagskrá kvöldsins verður söngur norsku
skemmtikraftanna Jan Teigen og Anita
Skorgran, en sá fyrrnefndi er m.a.
frægur fyrir að hafa orðið neðstur í
Eurovision söngkeppninni 2 ár í röð.
Auk þess að vera frægir skemmtikraftar
eru þau Jan og Anita nýbökuð hjón.
Fjölmargir íslenskir skemmtikraftar
koma fram á afmælishátíðinni, en kynn-
ar og dagskrárstjórar verða Edda Björg-
vinsdóttir og Helga Torberg í gervum
Rósamundu og Henríettu. Heiðursgest-
ur verður borgarstjórinn í Reykjavík,
Davíð Oddsson. Húsið verður opnað kl.
21.30 en skemmtunin hefst kl. 22.00.
-JGK.,
■ Elfar Guðni opnar málverkasýningu í Barnaskólahúsinu á Stokkseyri í dag og er það 9. einkasýning hans. Myndefnið er
aðallega Stokkseyri og umhverfi hennar. 30 verk eru á sýningunni og eru myndirnar aðallega unnar með acryl og pastellitum.
Opið verður virka daga kl. 20-22 og helgidaga kl. 14-22. Sýningunni lýkur á annan í páskum.
m nr SYKUR 2KG
Juvel HVEITI 2KG
LENI SALERNIS PAPPIR
SMJÖRLÍKI
KARTÖFLU
SKRUFUR
PÁSKAEGG Xg/móna NO. 8
...vöruverð í lágmarki