Tíminn - 13.04.1984, Síða 6
6
Auglýsing
Ibúð fræðimanns í húsi Jóns Sigurðssonar í Kaup-
mannahöfn er laustil afnota tímabilið 1. september 1984
til 31. ágúst 1985.
Listamenn eða vísindamenn, sem hyggjast stunda
rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn,
geta sótt um afnotarétt af íbúðinni. í íbúðinni eru fimm
herbergi og fylgir þeim allur nauðsynlegasti heimilisbún-
aður. Hún er látin í té endurgjaldslaust. Dvalartími í
íbúðinni skal eigi vera skemmri en 3 mánuðir en lengstur
12 mánuðir, en venjulega hefur henni verið ráðstafað til
þriggja mánaða í senn.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist stjórn húss
Jóns Sigurðssonar, Islands Ambassade, Dantes Plads
3, 1556 Köbenhavn V, eigi síðar en 20. maí n.k.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi með dvöl
sinni í Kaupmannahöfn, svo og menntun og fyrri
störfum. Þá skal tekið fram hvenær og hve lengi óskað
er eftir íbúðinni, svo og fjölskyldustærð umsækjenda.
Tekið skal fram að hússtjórn ætlast til að dvalargestir
nýti úthlutaðan tíma sinn að fullu við störf í Kaupmanna-
höfn.
Sérstök umsóknareyðublöð er hægt að fá á skrifstofu
Alþingis í Alþingishúsinu í Reykjavík og á sendiráðinu í
Kaupmannahöfn.
Stjórn Húss Jóns Sigurðssonar
Goði leggur srn a>
SíSSHÆS
» gœnme» í.tJW,
■ —iborgarhryggur
* Lambahaml
TÓNUSMRSKÓLJ
KÓPfNOGS
Frá Tónlistarskóla
Kópavogs
Seinni vortónleikar skólans veröa haldnir í Kópa-
vogskirkju laugardaginn 14. apríl kl. 14.
Skólastjóri.
BARNALEIKTÆKI
ÍÞRÓTTATÆKI
Vélaverkstæði
BERNHARÐS HANNESSONAR
Suðurlandsbraut 12. Sími 35810
■ Uthlutun Oskarverölauna 1984 er
lokiö og fór eins og margir höföu
reiknað meö, að kvikmvndin Terms
Of Endearment hlaut ilcstar viöur-
kenningar að þessu sinni. Með aðal-
hlutverk í mvndinni fara Shirley Mac-
Laine og Jack Nicholson, sem bæði
hlutu verðlaunin að þessu sinni, og
Debra Winger, sem nú varð enn einu
sinni að bíta í það súra epli að vera
tilnefnd til verðlaunanna, en þurfa að
sjá al' þcim til annarrar leikkonu.
Debra Winger þarf þó ekki að
örvænta, hún hefur tímann fyrir sér.
Hún vakti fyrst verulcga athygli 1982,
þegar hún fékk aðalhlutverk í mynd-
inni Cannery Row, en upphaflega
hafði verið áætlað að Raquel Welch
hreppti það. Síðan fór hún með aðal-
■ Dcbra Winger er ekki nema 28 ára gömul, en hefur þó tvívegis verið tilnefnd til
Óskarsverðlauna. Þessa dagana er þó sagt að hugur hennar snúist um annað fyrst og
fremst en þessi eftirsóttu verðlaun.
í spegli tímans
„Terms Of Endearment“ hlaut 5 Óskarsverðlaun:
w
DEBRAWINGERVARÐÞOENNAÐ
BITAIÞAÐ SURA EPU AÐ VERA
EKKIMEÐAL VERÐLAUNAHAFA
hlutverk í An Officer And A Gentle-
man á móti Richard Gere, en fyrir það
hlaut hún einnig tilnefningu til Óskars-
verölauna. Þá cr mörgum minnistæð
frammistaða liennar í Urban Cowboy,
þar sem hún tók þátt í mögnuðu
dansatriði með John Travolta.
Ekki blés þó byrlega fyrir Debru,
þegar hún hafði ákveðið að leggja á
leiklistarbrautina. Faðir hennar sagði
henni hreint út, að hún hefði ekki það
til að bera, sem þarf til að verða
kvikmyndastjarna, þcgar hún har
framtíðardrauma sína upp við hann.
Hún væri hreinlcga ekki nógu falleg.
—Allt í lagi, þá verð ég bara leikkona,
segist Debra hafa sagt og þar með var
teningnum kastað. Hún hafði fram að
þeim tíma lagt stund á nám í félags-
fræði með það fyrir augum að beina
afvegaleiddum unglingum inn á réttar
brautir, en þar segist hún hafa verið að
fást við hluti, sem hún þekkti af eigin
reynslu. Hún segist hafa valdið foreldr-
um sínum ómældum sálarkvölum með
framferði sínu á unglingsárunum. Hún
hefði verið eins konar „stelpu-
strákur“, en á sama tíma haft feikileg-
an kynferðislegan áhuga á strákum.
Og enn þann dag í dag eimir eftir af
þessu „stráka-stelpu" eðli hennar.
Hún þykir ráða yfir býsna skrautlegum
oröaforða, sem hún cr óspar að nota.
Er sagt að hver liðþjálfi mætti vera
fullsæmdur af.
Þcgar til tals kom að stefna þeim
Shirley MacLaine og Debru Winger
saman í Terms Of Endearment, leist
ýmsum ekki nema iniður vel á blikuna.
Þær eru báðar þekktar að því að vera
skapríkar, og þótti einsýnt, að lítill
friður yrði á vinnustað, þar sem þær
væru báðar saman komnar. Þær leika
móður og dóttur, sem eiga í sífelldum
ástríðuþrungnum erjum, en geta þó
ekki hvor án annarrar verið, og ekki
leið á löngu, þar til út fóru að berast
sögur um að leikkonurnar væru eins og
hundur og köttur, rétt eins og persón-
urnar, sem þær túlka. Sjálfar bera þær
á móti sannlciksgildi þessara frétta. -
Ég hef aðeins gefið tveim manneskjum
kjaftshögg um ævina, segir Shirley. -
Önnur var slúðurdálkahöfundurinn í
Hollywood, sem hafði skrifað upp-
logna frétt um mig, og hin var úr sér
genginn elskhugi. En ég get alveg
lofað ykkur því, að ég gaf Debru
Winger aldrei á hann. Sambandið milli
okkar var mjög spennandi.
Ummæli leikstjórans, Jim Rrooks,
sem líka fékk Óskarsverðlaunin fyrir
sinn þátt í myndinni, eru á sömu lund.
Hann segir: - Samspilið milli þcirra
Debru og Shirley er að ýmsu leyti það
sama og milli mæðgnanna í myndinni.
Ég get ekki sagt að þær væru einlægar
vinkonur, en þegar eitthvað kom upp
á, stóðu þær saman sem einn maður.
Þó að Debra Winger þykir að sumu
leyti villt og ótamin, segist hún aldrei
hafa verið svo skyni skroppin að taka
upp ástarsamband við mótleikara sinn,
þó að hún hafi ýmislegt brallað í
ástarmálum. En nú lítur helst út fyrir
að tekist hafi að temja hana á því sviði.
Þegar starfsliðið við Terms Of Endear-
ment kom til Nebraska til myndatöku,
tók á móti því ríkisstjórinn, Bob Kerr-
ey og óðar varð neistarflug á milli hans
og Debru, sem hafa verið óaðskiljan-
leg síðan. Nú er fólk farið að gera því
skóna, að ríkisstjórinn, sem orðinn er
39 ára gamali, muni innan skamms
leiða brúði sína, hina 28 ára gömlu
leikkonu, upp að altarinu. Sjálf gerir
Debra Winger hvorki að játa né neita
þessum bollaleggingum, en hefur þó
látið það uppskátt að karlmenn um
fertugt höfði einna mest til sín. Þar að
auki segist hún ekki frábitin því að
eignast heimili og börn, og eiginlega sé
rétti tíminn til þess nú runninn upp.
Kannski eru það ekki eingöngu
Óskarsverðlaunin, sem Debru Winger
finnst eftirsóknarverð þessa dagana.
I ■ Shirley MacLaine og Debra Winger
fara með hlutverk móður og dóttur, sem
bæði hata og elska hvor aðra, í „Terms
Of Endearment", og þykja gera það
frábærlega vel.