Tíminn - 13.04.1984, Blaðsíða 18

Tíminn - 13.04.1984, Blaðsíða 18
FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 19M Kvikmyndir Mikil tonlistarha- tíð barna og ungl- inga í Reykjavík: VORTÓNAR SKÓLANNA ■ „Vorlónar skólanna" nefnist röð tónleika sem haldnir verða í Reykjavík á nxstunni og koma þar fram nemendur grunnskóla og fjölbrautaskóla borgar- innar undir stjórn tónmenntakennara skólanna. Vortónarnir voru kynntir á blaða- mannafundi á Kjarvalsstöðum í vikunni og söng kór Fjölbrautaskólans í Breið- holti þar nokkur lög. Upphaf þessa máls er að Markús Örn Antonsson flutti snemma í vetur tillögu í fræðsluráði, en Markús er formaður þess. um að efnt skyldi til tónlistarhátíðar skólanna í vor. Þetta er nú orðið að veruleika, fyrstu tónleikarnir verða á Kjarvalsstöðum n.k. sunnudag, og munu þar koma fram kórar fjölbrautaskólanna. Síðan munu ncmendur margra grunnskóla koma frant að kvöldi þriðja maí í nýlegum sal Hvassaleitisskóla við Stóragerði. Síðan lýkur þessari hátíð skólanna laugardag- inn 5. maí með fjölbreyttum tónleikum í Háskólabíói. Alls munu koma fram um 500skólanemenduráþessum tónleikum. ■ Jónas Þórir stjórnar kór Fjölbrautaskólans í Breiðholti á Kjarvalsstöðum. Hér er ekki eingöngu um að ræða kóra, þeir eru sjö, því einnig munu koma fram sönghópar, lúðrasveitir og ýmis- konar hljóðfærahópar, blokkflautu- og ásláttahljóðfærahópar. A fundinum, þar sem nokkrir tón- menntakennarar voru viðstaddir kom fram að tónlistaráhugi væri mjög á 'uppleið á öllu landinu. „Krakkar gera fleira en vera njótend- ur og horfa á Skonrokk og hlusta á Bubba, þau hafa mjög gaman af því að spila klassíska tónlist, t.d. fúgur eftir Bach", sagði einn kennarinn. Annar sagði að oft þyrfti hann að berjast gegn fordómum sem krakkarnir hefðu heiman í frá í garð klassískrar tónlistar, en þegar því væri lokið, þá væri mjög gaman að Tímamynd Árni Sæberg vinna með krökkunum. Kórar og hljóðfærahópar sem þessir koma yfirleitt ekki fram utan skólanna, en syngja þar á ýmiskonar innanskóla- hátíðum. Því gefst hér gott og einstakt tækifæri á að hlusta á hvað er að gerast í tónmenntamálum Reykjavíkurbarna og -unglinga. -ÁDJ ENSKUR DRENGIAKÓR Á ÍSLANEN Vivaldi í Kópavogs- kirkju ■ Á sunnudaginn kemur kl. 20.30 verða Vivaldi-tónleikar í Kópavogs- kirkju, þar sem Kór Menntaskólans í Kópavogi ásamt strengjasveit, einleikur- um og einsöngvurum flytja tónlist eftir Antonio Vivaldi, Beatus vir, fyrir messó- sópran, tvær sópranraddir, strengjasveit og blandaðan kór, Magnificat fyrir tvær sópranraddir, altrödd, tenór, blandaðan kór, sembal og orgel, Konsert í a-inoll fyrir strengi og sembal og Konsert fyrir strengi sembal og flautu í g-moll. Einsöngvarar verða Elín Óskarsdótt- ir, Þórunn Guðmundsdóttir, Guðný Árnadóttir, Ingibjörg Marteinsdóttir og Þorgeir Andrésson. Guðrún S. Birgis- dóttir lcikur á flautu en konsertmeistari er Þórhallur Birgisson. Stjórnandi Kórs Menntaskólans í Kópavogi er Martial Nardeau. -JGK ■ Þessa dagana er staddur hér á landi enskur drengjakór, Hampton School choral society. Hann er hér í boði Skólakórs Garðabæjar. í kórnum eru 38 drengir á aldrinum 11-18 ára. Þeir munu syngja víðsvegar. Aðaltónleikar þeirra verða í Kópavogskirkju flmmtudaginn 12. apríl kl. 20.30 og í kirkju Fíladclfíu- ■ Ólafur Kristjánsson frá Akureyri bar sigur úr býtum á Grohe-skákmótinu sem Skákfélag Sauðárkróks gekkst fyrir í Sæluvikunni og lauk s.l. laugardag. Ólafur hlaut 5 V: vinning af 7 mögu- legum. Annar varð Jóhann Hjartarson, sem var jafn Ólafl að vinningum, en úrslitin réðust af stigum. Skákmótið var mjög myndarlega safnaðarins laugardaginn 14. apríl kl. 17.00. Á efnisskrá kórsins eru mörg glæsileg verk, s.s. fyrsti hluti óratóriunnar Mess- ías eftir Hándel. Rejoice in the Lanb, eftir Benjamin Britten, Magnificat eftir Pergolesi og fleira. í kórnum eru margir efnilegir hljóðfæraleikarar og munu þeir leika einleik og samleik á hljóðfæri sín. styrkt af Þýsk-íslenska verslunarfélag- inu, sem gaf góð verðlaun til þriggja efstu manna á mótinu. Einnig gaf félagið verðlaun til efsta heimamanns á mótinu, og var það Bragi Halldórsson, sem hlaut þau verðlaun. Bæjarsjóður Sauðárkróks og Búnaðarbankinn styrktu mótið einn- 'g- Grohe-skákmótið á Sauðárkróki: ÓLAFUR KRtSTJÁNS- S0N SIGURVEGAR1NN Skandinavia today Yfirlits- sýning á Egils- stöðum ■ Yfirlitssýning í máli og myndum um þátt Islands í norrænu menningar- kynningunni, Skandinavia today, í Bandaríkjunum stendur nú yfir á Egilsstnðum. Það eru menntamála- ráðuneytið og Menningarstofnun Bandaríkjanna á Islandi sem standa að sýningunni. Henni lýkur á sunnudag. Þessi sýning hefur verið á ferð víða um land að undanförnu og á cftir að vcrð sett upp á Höfn í Hornafirði, Vík í Mýrdal, Selfossi og t Vestmanna- eyjum. -JGK. Hjólreiðadagur í Grindavík ■ JC Grindavík gengst fyrir hjól- reiðadegi n.k. laugardag 14. apríl í samvinnu við lögreglu og foreldra- og kennarafélag grunnskólans í Grinda- vík. Tilgangurinn er að efla öryggi barna og unglinga í umferðinni. Hjól- reiðadagurinn hcfst kl. 10.00 með skoðun rciðhjóla og skráningu. Kl. 13.00 hefjast síðan hjólreiðaþrautir og góðakstur um götur bæjarins. Stiga- hæstu einstaklingarnir hljóta vegleg verðlaun, sem gefin eru af klúbbnum Öruggur akstur á Suðurnesjum. -HEI Náttúru- verndarþing haldið um helgina ■ Náttúruverndarþing, hið fimmta í röðinni, verður haldið að Hótel Esju dagana 13. til 15. aprfl næst komandi. Um 130 fulltrúar víðs vegar af landinu ciga rétt til setu á þinginu. Þingið hefst með ávarpi menntamálaráðhgrra og eftir kosning- ar í embætti fylgja formaður og fram- kvæmdastjóri ráðsins skýrslu þess úr lilaði. Á laugardaginn, 14. apríl.verða flutt fjögur framsöguerindi undir yfir- skriftinni; landnotkun á hálendinu og umhverfisfræðsla. Eftir hádegi taka síðan við nefndarstörf. Á sunnudáginn verða almennar ut)iræðurog kosningar í Náttúruverndarráð. Stefnt er að þingslitum klukkan 16 á stinnudag. t - -7.ssu SALUR 1 Heiðurs-konsúllinn (TheHonoraryConsul) luiouAd rftiMr RICI-iARD GERE Splunkuný og margumtöluð stór- mynd með úmalsleikurum. Micha- el Caine sem konsúllinn og Ric- hard Core sem læknirinn hafa fengið lofsamlega dóma fyrir túlk-- un sína I þessum hlutverkum, enda samleikur þeirra frábær. Aðalhlutverk: Michael Caine, Ric- hard Gere, Bob Hoskins, Elphi- da Carrillo. Leikstjóri: John Mackenzie. Bönnuð börnum innan 14 ára. Sýnd kl. 5,7, 9 og 11. Hækkað verð. SALUR2 Stórmyndin Maraþon maðurinn (Marathon Man) Þegar svo margir frábærir kvik- myndagerðarmenn og leikarar leiða saman hesta sina I einni ,mynd getur útkoman ekki orðið önnur en sfðrkostleg. Marathon man hefur farið sigurför um allan heim, enda með betri myndum sem gerðar hafa verið. Aðalhlut- verk: Dustin Hoffman, Laurence Olivier, Roy Scheider, Marthe Keller. Framleiðandi: RobertEv- ans (Godfather) Leikstjóri: John Schlesinger (Midnight Cowboy) Bonnuð börnum innan 14 ára Sýnd kl. 5,7.30 og 10. SALUR 3-J Porkys II sem allstaðar sló aðsóknarmet, og var talin grínmynd ársins 1982. Nú er það framhaldið Porkys II daginn eftir sem ekki er siður smellin, og kítlar hláturtaugarnar. Aðalhlutverk: Dan Monahan, Wy- att Mark Herrier. Leikstjóri: Bob Clark. Hækkað verð Bönnuð börnum innan 12 ára Sýnd kl. 5,7 og 9. Palli leiftur (ChuChu and Philly Flash) Sýndkl.11_ SALUR4 . Goldfinger Byggð á sögu eftir lan Fleming. Leikstjóri: Guy Hamilton Sýnd kl. 5,7 og 9. Óþokkarnir New York búar fá aldeilis að kenna á því þegar rafmagnið fer af. Aðalhlutv: Jim Mitchum, Robert Carradine Bönnuð innan 16 ára Sýndkl. 11

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.