Tíminn - 13.04.1984, Side 20

Tíminn - 13.04.1984, Side 20
Opið virka daga 9-19 Laugardaga 10-16 H HEDD Shemmuvegi 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval ' Sendum um land allt Ábyrgö á öllu Kaupum nýlega bila til niðurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 4' abriel íú HÖGGDEYFAR (JJvarahlutir 1 Ritstjórn 86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 Föstudagur 13. april 1984 Ibúar á Barðastödum í Staðarsveit: UNMRBÚA SKAÐABÓTAMáL A HENDUR SÝSUIMANNINUM — vegna tekjumissis búsins í heilt ár eftir aflífun alls kvikfénadar ■ Ellerl Guömundsson vinnu- maöur á Baröastöðum í Staöar- sveit og áöur bóndi þar, og Guðrún Jóna Halldórsdóttir, núverandi bóndi á Baröu- stöðum, undirbúa nú skaöabóta- inál á hendur sýslumanns- embættinu í Snæfells og Hnappadalssýslu vegna tekju- missis búsins á Barðastööum í heilt ár og um leið kröfu þess efnis aö embættiö geti ekki boðiö upp jöröina vegna vanskila eða annarra skulda þar sem þau van- skii orsakist af embættis- afglöpum embættisins. Eins og sagt hefur veriö frá í blaðinu voru á annað hundraö hænur aflífaðar þar 6. apríl samkvæmt ákvörðun lögreglustjóra sýsl- unnar. „Samkvæmt dýraverndunar- lögum má ekki framkvæma niðurskurð ef hann hefur í för með sér fjárhagslegt tjón, nema með samþykki yfirdýralæknis. Það samþykki lá ekki fyrir þegar skorið var niður, ég hef orð yfir- dýralæknis fyrir því. Og það var ckkert samband haft við bónd- ann á bænum fyrr en 28. mars s.l. og þá með kröfu um að allt yrði drepið hér, og tekið fram að það væri með samþykki yfirdýra- læknis“, sagði Ellert Guðmunds- son í samtali við Tímann. „Fuiltrúi sýslumanns hafði að vísu komið og talað við mig áður" sagði Ellert", en mér bar engin skylda til að blanda mér neitt í það, né bera í minn húsbónda það sem ég tel að komi mér ekki við. Menn geta haft samband við réttan aðila og það eru aldeilis formgallar á máli ef það á að fara að hengja bakara fyrir smið. Þá var lög- fræðingi bóndans gefinn 2ja 627 tóku þátt í skoðanakönnun Kennarafélags Reykjavíkur Um 80% lýsa sig reiðubúna að segja upp stöðum sínum ■ 627 af 711 starfandi grunn- skólakennurum í Reykjavík tóku þátt í skoðanakönnun Kennarafélags Reykjavíkur varðandi það hvort þeir væru reiðubúnir til að segja upp störf- um til að knýja fram betri kjör og endurmat á kennarastarfi. 499 svöruðu spurningunni ját- andi, eða 80.09% þeirra sem tóku þátt. 92 eða 14.77% svöruðu neit- andi, en 32 skiluðu auðu, eða 5.14%. Þessar niðurstöður voru kynntar á aðalfundi Kennarafé- lagsins í gærkvöld. - JGK. 12 konur á Alþingi ■ 12 konur sitja nú á Alþingi og hafa aldrei veriö þar jafn- margar áður. 9 konur eiga sæti á þingi og þrír varaþingmenn sem nú taka þátt í þingstörfum eru konur. í gær tók Valgerður Sverris- dóttir sæti Stefáns Valgeirssonar, en hún er 2. varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norður- landskjördæmi eystra. Svanfríður Jónasdóttir, fyrsti varamaður Alþýðubandalags- ins í Norðurlandskjördæmi eystra situr á þingi í stað Steingríms Sigfússonar og Kristín H. Tryggva- dóttir hefur tekið sæti Kjart- ans Jóhannssonar, en hún er fyrsti varamaður Alþýðuflokks- ins í Reykjaneskjördæmi. Fleiri varamenn sitja nú á þingi. NíelsÁ. Lund, 1 varamaður Framsóknarflokksins í Norður- landi eystra hefur tekið sæti Ing- vars Gíslasonar og Böðvar Bragason • situr á Alþingi í stað Þórarins Sigurjónssonar, cn Böðvar er fyrsti varamaður Framsóknarflokksins á Suður- landi. Jón Magnússon hefur tekið sæti Friðriks Sóphussonar sem situr á þingi fyrir Reykvíkinga. vikna frestur, 5. apríl, deginum áður en skorið var niður, og sama dag fluttum við lögheimili okkar á Bakkavöll í Rangár- vallasýslu, þangað sem við erum að flytja, þannig að við'vorum ekki lengur undir lögsögu Snæ- fells og Hnappadalssýslu". „Það var borið við nokkrum atriðum, m.a. vanfóðrun, sem er algerlega ósannað mál og hefur verið mótmælt. Þennan úrskurð gaf héraðsdýralæknir við mig sem vinnumann, 17. janúar s.l. án þess að hafa skoðað nokkurn fugl. Ég bað um skriflegan lista frá dýralækni um hvað hann krefðist til úrbóta og þann lista hef ég aldrei fengið. Ég hef líka bent á að nágrannar mínir hafa verið yfirheyrðir vegna þessa máls og vitnisburður þeirra bendir ekki til vanfóðrunar". „Þá var því einnig borið við að ekki væri hægt að koma fuglun- um í fóstur meðan nauðsynlegar úrbætur væru gerðar á húsakynn- um. Hreppstjórinn athugaði það mál 4. apríl og varð vel ágengt, þannig að þessi aðför var alger- lega óþörf ofan á allt saman". sagði Ellert að lokum,- - GSH. ■ Valgerður Sverrisdóttir tók sæti á Alþingi í gær fyrir Stefán Valgeirsson, og þar með voru kvenþingmenn orðnir 12. Tímamynd Arni Sæberg. Lögreglan á Hvolsvelli LEITAÐ AÐ ÖNDUM FRÁ SNÆFELLS- NESI ■ Grunur lék á að endur þær, sem komið vur undan á Barðastöðum á Snæfellsnesi, þegar niðurskuröurinn á ali- fugluni þar fór fram í síðustu viku, gætu verið komnar i Hvolhrepp. Heimilisfólkiö á Baröastööum hyggst setjast að á Bakkavelli í Hvolhrepp og hefur þegar flutt lögheimiíi sitt þangað. Lögreglan á Hvolsvelli kannaöi máliö að ósk sýslu- mannsembættisins í Snæfells og Hnappadalssýslu, en grun- urinn reyndist ekki á rökum reystur. Akureyri SEX ÁREKSTRAR ■ Sex árekstrar höföu oröið á Akureyri seinni part gærdags- ins, en fljúgandi hálka var á götum bæjarins vegna snjó- komu. Enginn árekstranna var ulvarlegur og slys uröu ekki á fólki. Að sögn lögreglu hefur verið mjög gott veður fyrir noröan undanfariö og því voru margir bifreiðaeigendur búnir að setja sumarhjólbaröa undir bíla sína, og því ekki viöbúnir þegar skyndilega fór að snjóa aftur. _ GSH. Ungur piltur HANDTEKINN MEÐ GRUNSAM- LEGAÁVÍSUN ■ Llngur piltur var handtek- inn í versluninni Þingholt í gær þegar hann reyndi að skipta þar ávísun sem þótti grunsam- leg. Að sögn lögreglu var þarna ckki uin stóra upphæð að ræöa og var piltinum sleppt að lok- inni yflrheyrslu. - GSH. dropar Seinheppnir Olsarar... ■ Fyrir nokkru var auglýst laus til umsóknar staöa liygg- ingarfulltrúa hjá Ólafsvíkur- kaupstaö. Máliö fékk hálf snubbóttan cndi, að því er segir í Ólsaranum sem er gefíð út af áhugafólki um frjálsa fjölmiölun á Ólafsvík, því loks- ins þcgar bæjarfulltrúar voru , búnir að koma sér saman um hvern ætti aö ráða var viðkom- andi umsækjandi búinn að ráða sig annaö. Staöan veröur því auglýst að nýju. Halda íslendingar Campari-gullinu? ■ Björn Thors, umhoös- og lilaðamaður, innflytjandi Campari, þakkar tilskrifín í Dropum á miövikudag meö þessum orðum: „Það er nú einu sinni svo, aö öll skrif um Campari hljóta aö vera af því góða, þegar ekki má auglýsa þann guöaveig. Tvennt langar mig að benda á í samhandi við tilskrifln. í fyrsta lagi töpum við ekki aö- cins bronzinu, ef svo fer sem horfír, heldur gullinu. íslcnd- ingar voru í þriðja sæti í Camp- ari-drykkju áriö 1980, en náðu fyrsta sætinu áriö 1982. Þetta var mér tilkynnt við hátíðlega athöfn er ég heimsótti Camp- ari-Milano í fyrsta sinn í ágúst í fyrra. Og ég get staðhæft að sætinu töpuðum við ekki á árinu ’83. Þér (þ.e. Dropa- höfundur) til fróðleiks get ég skýrt frá heildarsölu hér á landi síðustu fjögur árin hjá ATVR og Fríhöfninni, en sal- an var sem hér segir í lítrum talin: 1980: 103.206 Itr. 1981: 109.689 Itr. 1982: 131.897 Itr. og 1983: 150.411 Itr. Annað atriði er styrkleikinn á Campari, sem er 28.5%. Það er rétt að um tíma var á boðstólum léttara Campari, og voru kannaðir möguleikar á að flytja það hingaö, meðal annars fyrir Stúdentakjallar- ann og fleiri „léttvínsstaði“. En eins og þú sérð á hjálögðu Ijósriti dags. 8. júlí 1982, var brugghúsið þá að hætta við þenna létta drykk, því talið var að vatnsblöndun fyrirfram gæti dregið úr gæðum Camp- ari. Campari-neytendur hér- lendis verða því annað hvort að snúa sér að öðrum veigum, rm ■ eða að greiða Ríki og skipafé- lögum þessar kr. 502.80 sem teknar eru af hverri flösku í flutning, álagningu og áfengis- skatt.“ Krummi ... ... var að slá á að umboðslaun- in losuðu líklega milljónina og trúir því að þau geti vcrið notaleg.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.