Tíminn - 07.01.1986, Side 10
10 Tíminn
ÍÞRÓTTIR
Þriðjudagur 7. janúar 1986
K.A. sigraði Fram:
Spenna og
heimasigur
- varla hægt að biðja um meira
Frá Gylfa Kristjánssyni fréttaritara Tímans á
Akureyri:
■ K.A. nánast tryggði sæti sitt í 1.
deildarkeppninni í handknattleik er
liðið lagði Fram að velli með 26
mörkum gegn 24 hér á Akureyri um
helgina.
Leikurinn var mjög jafn, reyndar
var tuttugu sinnum jafnt á tölum, en
mikið var um mistök. Þegar lítið var
eftir var 22-22 en þá skora Jón
Kristjánsson og Guðmundur Guð-
mundsson fyrir heimamenn og tvö
mörkin náðu Framarar ekki að brúa.
Logi Einarsson var einna bestur
K.A.-inga og skoraði 6 mörk. Jón
Kristjánsson gerði 5 mörk svo og
Guðmundur Guðmundsson, en tvö
þeirra marka voru úr vítum. Jón
Árni Rúnarsson og Dagur Jónasson,
voru bestir Framara ásamt Agli
Jóhannssyni sem var markahæstur,
skoraði 8 mörk, þar af 5 úr vítum.
Jón Árni kom næstur með 6 mörk.
Markvarslan var í lágmarki hjá báð-
um liðum.
I.deildkvenna:
Stjörnusigur
' ■
■ Einn leikur var í 1. deild kvenna
um helgina. Stjarnan fór í Höllina og
sigraði KR 28-17 án teljandi erfið-
leika. Staðan í hálfleik var 13-10 fyrir
Stjörnustúlkur. Þær gerðu mörg
markanna úr hraðaupphlaupum og
voru Margrét og Erla þar fremstar í
flokki. Margrét gerði 9 mörk í leikn-
um en Erla 8. Fyrir KR skoraði Kar-
ólína 5 svo og Sigurbjörg.
Tímamynd: Sverrír
Stavangergengurvel
■ Þeim gengur vel íslend-
ingunum í norska handknatt-
leiknum. Stavanger vann um
helgina Nordstrand 25-23 og
skoruðu þeir Jakob og Sveinn
þrjú mörk hvor. Þá sigraði
Fredriksborg Ski Kristjans-
and 23-19 en Gunnar Einars-
son er þjálfari hjá Ski. Sta-
vanger er efst í norsku deild-
inni en Ski er í öðru sæti.
Í.R.-ingar töpuðu óvænt
■ Afturelding sigraði ÍR
nokkuð óvænt en sanngjarnt í
2. deild karla á íslandsmótinu
í handknattleik um helgina.
Leiknum lyktaði 23-16 fyrir þá
Mosfellssveitunga. Þá gerðu
HK og Ármann jafntefli 23-
23 í 2. deild og Haukar sigr-
uðu Gróttu örugglega 27-19.
Guðmundur Guðmundsson á hnjánum, boltinn stefnir á markið, Sverrir sýnir tilburði í markvörslunni.
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild:
Dulítil spenna en sprækir
Víkingar voru atkvæðameiri
- Sigruðu F.H.-inga í Hafnarfirði með 26 mörkum gegn 21 - Úrslit ráðast líklega á miðvikudagskvöld
Frá Leifi Garðarssyni fréttaritara Tímans:
■ Víkingar sigruðu F.H.-inga
nokkuð örugglega með 26 mörkum
gegn 21 í 1. deildinni í handknatt-
leik, en þessi virðureign fór fram í
Hafnarfirði á laugardaginn. Víking-
ar halda þar með forystu sinni í
deildinni, eru efstir með 20 stig
ásamt Valsmönnum sem einnig sigr-
uðu um helgina. Það stefnir því allt í
að úrslitaleikur deildarinnar verði í
Laugardalshöll næstkomandi mið-
vikudagskvöld en þá mætast einmitt
topplið deildarinnar.
Nokkur taugaspenna setti mark
sitt á leik Víkinga á laugardaginn en
sigur þeirra var þó aldrei í hættu.
Þeir voru yfir 14-9 í hálfleik og kom-
ust síðan í 21-13 en F.H.-ingar náðu
að laga stöðuna aðeins fyrir leikslok.
■ Þorbjörn J ensson er góður vamarmaður. Á my ndinni að ofan er hann þó í
sókn og skoraði sjálfsagt. Það gerði hann einnig nokkuð oft gegnK.R.-ingum
um helgina. Tímwnynd: Ini BJuu.
Páll Björgvinsson skoraði 10 mörk
fyrir Víking, þar af sex úr vítum.
Guðmundur Albertsson kom næstur
með 7 mörk en báðir þessir leikmenn
áttu góðan dag. Kristján Sigmunds-
son var góður í Víkingsmarkinu,
varði m.a. tvö vítaskot.
Óskar Ármannsson var atkvæða-
mestur heimamanna með 9 mörk,
þar af fjögur úr vítum. Þorgils Óttar
skoraði 5 mörk og Jón Erling Ragn-
arsson var með 4 mörk.
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild:
Engin spurning
- Valsmenn sigldu framúr og sigruðu K.R. með níu marka mun
- Valur mætir Víkingi annað kvöld
■ Valsmenn styrktu stöðu sína við
hlið Víkinga á toppi 1. deildarinnar í
handknattleik á sunnudaginn er þeir
sigruðu KR-inga 31-22 í Höllinni.
Valsmenn mæta Víkingum ámorgun
í Höllinni og verður þar um svo til
hreinan úrslitaleik að ræða í deild-
Leikur Vals og KR var jafn til að
byrja með og rétt undir lok fyrri hálf-
leiks var staðan 10-10. Fram að því
höfðu KR-ingar spilað af mikilli bar-
áttu og ætluðu sér greinilega ekkert
minna en stig í þessari viðureign.
Sérstaklega gekk sókn þeirra vel.
Valsmenn voru lengi að átta sig í
leiknum og var það helst Þorbjörn
Jensson sem ávallt fann glufur hægra
meginn í KR-vörninni og nýtti hann
það sér til fullnustu. Skoraði hann
fjögur mörk í upphafi leiksins auk
þess sem hann fiskaði víti. Þegar svo
um sex til sjö mínútur voru eftir af
fyrri hálfleik þá hrukku Valsarar í
gang og höfðu fjögur mörk yfir í hléi
16-12.
Eftir þetta var aldrei spurning um
úrslit og Valsmenn litu aldrei til
baka. Munurinn hélst þetta sex til
átta mörk f seinni hálfleik en lokatöl-
ur urðu 31-22 eins og fyrr sagði.
Vörn Valsmanna var áberandi góð
í seinni hálfleik og Ellert átti þokka-
legan leik fyrir aftan hana. Gekk
KR-ingum illa að finna varanlegar
glufur á veggnum.
Jakob og Júlíus skoruðu 8 rnörk
fyrir Val og það gerði Valdimar
einnig. Jóhannes skoraði 8 sinnum
fyrir KR en Stefán Arnarson skoraði
5 mörk.
þb
Þrótturum skellt í Höllinni:
Stjarnan nærri
því án mótherja
■ Þróttararfenguenneinnskellinn
í 1. deild íslandsmótsins í hand-
knattleik um helgina er þeir mættu
Stjörnumönnum í Laugardalshöll.
Lokatölur leiksins urðu 39-16 fyrir
Stjörnuna og segir það sitt. Staðan í
leikhléi var 23-6 fyrir Garðbæinga en
þeir spiluðu nánast einleik allan
tímann.
Eins og fyrri daginn þá áttu Þrótt-
arar ekki möguleika í leiknum. Lið
þeirra er sem meðalgott firmalið og
ekki við miklu að búast. Stjörnu-
menn voru iðnir við að skora og áttu
mörg falleg upphlaup enda mótstað-
an engin.
Gylfi Birgisson skoraði 13 mörk
fyrir Stjörnumenn en Hannes gerði 8
(3). Hjá Þrótti skoraði Konráð 8.
Dómarar voru Gunnar og Rögnvald
og áttu náðugan dag.
þb