Tíminn - 07.01.1986, Side 12
12 Tí.minn
llllllllllllllllllllllll DAGBÓK
Afmæli
Afmælisfrétt
■ Guðmundur Magnússon,
fræðslustjóri Austurlands, Mána-
götu 14 Reyðarfirði, verður 60 ára
fimmtudaginn 9. janúar n.k. Hann
hefur gegnt fræðslustjórastarfi Aust-
urlands undafarin 9 ár, en var áður
m.a. skólastjóri Breiðholtsskóla og
Laugalækjarskóla í Reykjavík.
Guðmundur og kona hans, Anna
Frímannsdóttir, taka á móti gestum
í Félagslundi, Reyðarfirði, laugar-
daginn 11. janúar kl. 4-7.
Tímarit
FAXI-45 ára
afmælisblað
■ Faxi, tímarit sem Málfundafé-
lagið Faxi í Keflavík gefur út, er 45
ára og er jólablaðið um leið afmælis-
blað. Það hefst á Jólahugvekju eftir
séra Örn Bárð Jónsson, sóknarprest
í Grindavíkurprestakalli. í>á koma
myndir og frásögn frá formlegri opn-
un skurðstofudeildar Sjúkrahúss
Keflavíkurlæknishéraðs. Matthfas
Hallmannsson skrifar grein með frá-
sögn frá liðnum dögum, sem nefnist
Blessuð jólin. Minningargrein um
dr. Sigurð S. Magnússon prófessor
skrifar Sólveig Þórðardóttir, deildar-
stjóri Fæðingardeildar Sjúkrahúss
Keflavikur. Forsaga að byggingu
Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs
heitir grein eftir Jóhönnu Stefáns-
dóttur og Sólveigu Þórðardóttur. Að
verða gamall glaður í hjarta er heiti á
ræðu, sem flutt var í Keflavíkur-
kirkju á degi aldraðra af Ólafi Oddi
Jónssyni. Kveðjuathöfn - veglegt
hóf heitir frásaga í blaðinu um at-
höfnina í Grindavíkurkirkju er sr.
Jón Árni Sigurðsson, sem þjónað
hafði Staðarprestakalli frá 1948, var
að láta af störfum. Hann flutti
kveðjuræðu, sem einnig er birt í
blaðinu. Við þetta tækifæri var
Grindavíkurkirkju færð lágmynd af
Sigvalda Kaldalóns að gjöf.
Ingólfur Aðalsteinsson skrifar:
Hitaveita Suðurnesja á tímamótum.
.lúlíus Jónsson skrifar um sama efni.
Á Suðurnesjum kynntist ég fyrst óp-
erusöngnum heitir frásögn sr. Jóns
Thorarensen. Níels Árni Lund skrif-
ar í tilefni af alþjóðaári æskunnar.
Fyrirburðir og draumar frú Mörtu
Valgerðar Jónsdóttur í Keflavík.
Hún segir þar frá ýmsum dulrænum
fyrirbærum. Sagt er frá Niðjamóti
Húsatóftaættar í Festi í Grindavík,
en þar mættu um átta hundruð
manns.
Margt fleira efni er í blaðinu, af-
mælis- og minningargreinar, Ijóð og
fleira. Forsíðumyndin er glæsileg
mynd af Ungfrú alheimi, Hólmfríði
Karlsdóttur.
Styrkir úr Minningarsjóði
Theódórs B. Johnsons
í samræmi viö skipulagsskrá Minningarsjóðs Theódórs
B. Johnsons hefur Háskóli íslands ákveðið að úthluta
tveimur styrkjum, að upphæð kr. 60 þús. hvor.
í 4. gr. skipulagsskrár sjóðsins segir m.a.
„Þeim tekjum, sem ekki skal leggja við höfuðstól sbr. 3.
gr., skal varið til að styrkja efnilega en efnalitla stúdenta,
einn eða fleiri, til náms við Háskóla íslands eða fram-
haldsnáms erlendis að loknu námi við Háskóla íslands."
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu háskólans. Umsókn-
arfrestur er til 15. febrúar 1986.
Laus staða
Laus er til umsóknar lektorsstaöa I íþróttum og líkamsrækt viö Kennarahá-
skóla íslands. Umsækjandi skal hafa lokið prófi frá viðurkenndum háskóla
eöa sambærilegri stofnun, hann skal auk þess hafa lokið tilskildu námi í upp-
eldis- og kennslufræöi.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísinda-
störf, rannsóknir og ritsmíðar, svo og námsferil sinn og störf.
Gert er ráö fyrir aö staðan veröi veitt frá 1. ágúst 1986.
Umsóknum sé skilaö til menntamálaráðuneytisins fyrir 1. febrúar 1986.
Menntamálaráöuneytið.
31.desember1985.
Ráðskona
Ráðskona óskast í sveit.
Upplýsingar í síma 94-1596 á kvöldin
Útboð
Fjölbrautaskóli Suöurlands óskareftirtilboðum í smíði á gluggum og útihurð-
um I nýbyggingu skólans á Selfossi. Útboösgagna má vitja á skrifstofu skól-
ans Austurvegi 10, Selfossi eöa á Teiknistofu Magga Jónssonar,
Ásvallagötu 6, Reykjavík, gegn 5000,- kr. skilatryggingu.
Frestur til aö skila tilboðum er til 21. janúar kl. 11.00.
Bygginganefnd F.S.U.
Þriðjudagur 7. janúar 1986
nám og Sigurgeir Tryggvason, sem
brautskráðist af eðlisfræðibraut eftir
7 anna nám.
39 stúdentar
frá Flensborg
■ Föstudaginn 20. des. s.l. voru 39
stúdentar brautskráðir frá Flens-
borgarskólanum í Hafnarfirði. Best-
um árangri á stúdentsprófi náðu:
Bryndís Eysteinsdóttir, sem braut-
skráðist af náttúrufræðibraut eftir 7
anna nám, cn hún er jafnframt fyrsti
stúdentinn, sem hefur stundað nær
allt námið í öldungadeild skólans,
sem tók til starfa haustið 1982. Hild-
ur Kristinsdóttir, sem brautskráðist
af náttúrufræðibraut eftir 7 anna
Sögubúðin opnar deild
með þýskar bækur
■ Sögubúðin Laufásvegi 2 hefur
opnað sérstaka deild í verslun sinni
með þýskar bækur. Þar er að finna
skáldsögur í vasabroti eftir viður-
kennda höfunda, bækur í fallegu
bandi, hentugar til tækifærisgjafa,
barnabækur og ýmiss konar hand-
bækur. úrval þýskra orðabóka auk
kennslubóka í þýskri tungu.
Verslunin fær jafnan nýjustu upp-
lýsingarit um þýskar bækur og tekur
að sér að panta þær eftir beiðni ein-
staklinga eða fyrirtækja. Bókaskrár
er hægt að fá ókeypis.
Verkstæðið Þingholtsstræti 7 B:
Nýstárlegarvörurúr
ull og lambsskinni
■ Nýlega var opnað Verkstæðið
Þingholtsstræti 7 B. Þar eru til sölu
nýstárlegar vörur úr íslenskri ull og
lambsskinni í ýmsum litum, unnar á
Verkstæðinu eftir eigin hönnun og
hugmyndum. Á boðstólum eru ýms-
ar gerðir af flíkum: jakkar, hattar,
húfur, treflar, múffur, barnaföt o.fl.
unnar úr skinnum. Verkstæðið Þing-
holtsstræti 7 B er opið alla virka daga
kl. 13.00-18.00 en sýningargluggi erá
horni Bankastrætis og Þingholts-
strætis. Eigendur eru Edda og Iðunn
Óskarsdætur.
Við brautskráninguna söng kór
Flensborgarskólans undir stjórn
Hrafnhildar Blomsterberg og
Kristján Bersi Ólafsson, skólameist-
ari, flutti ræðu og afhenti prófskírt-
eini og bækur í viðurkenningar-
skyni fyrir góðan námsárangur. Þá
færði hann Þorgerði M. Gísladóttur
íþróttakennara málverk að gjöf frá
skólanum og Fræðsluráði Hafnar-
fjarðar, en hún lét á þessu ári af störf-
um við skólann eftir fjögurra áratuga
starfsferil.
Eigandi verslunarinnar er Ferða-
skrifstofan Land og saga hf. Verslun-
arstjóri er Karin Hartjenstein, en af-
greiðslustúlka Soffía Sæmundsdótt-
ir.
Fræðslufundur
Fuglaverndar-
félagsins
■ Næsti fræðslufundur Fugla-
verndarfélags íslands verður haldinn
miðvikudaginn 8. janúar kl. 20.30 í
Norræna húsinu. Efni:
1. Um íslenska hafarnarstofninn.
Kristinn Haukur Skarphéðinsson
Iíffræðingur.
2. Kvikmyndin Arnarstapar eftir
Magnús Jóhannesson. Öllum heimill
aðgangur. Stjórnin.
Kvennaráðgjöfin
Kvennahúsið
við Hallærisplan
Opið á þriðjudagskvöldum kl.
20.00-22.00. Sími 21500.
Slökkvilið-Lögregla
Reykjavik: Lögreglan sími 11166, slökkvilið og
sjúkrabifreiö sími 11100.
Seltjarnarnes: Lögreglan sími 18455, slökkvilið
og sjúkrabifreið simi 11100.
Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreið sími 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan sími51166, slökkvilið
og sjúkrabifreið sími 51100.
Keflavik: Lögreglan sími 3333, slökkvilið sími
2222 og sjúkrabifreið simi 3333 og í simum
sjúkrahússins 1400,1401 og 1138.
Vestmannaeyjar: Lögreglan sími 1666, slök-
kvilið sími 2222 og sjúkrahúsið sími 1955.
Akureyri: Lögreglan símar 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 22222.
ísafjörður: Lögreglan sími 4222, slökkvilið simi
3300, brunasími og sjúkrabifreið sími 3333.
Gengisskráning
31. desember 1985 kl.09.15
Kaup Sala
Bandaríkjadollar ...42,000 42,120
Sterlingspund ...60,449 60,621
Kanadadollar ...30,051 30,137
Dönsk króna ... 4,6823 4,6957
Norsk króna ... 5,5413 5,5571
Sænsk króna ... 5Í5446 5^5604
Flnnskt mark ... 7,7491 7,7712
Franskur franki ... 5^5731 5Í5890
Belgískur frankl BEC. ... 0,8351 0,8375
Svissneskurfranki ...20,2458 20,3037
Hollensk gyllini ...15,1666 15,2099
Vestur-þýskt mark ...17,0923 17,1411
ftölsk líra ... 0.02503 0.02510
Austurrískur sch ... 2,4291 2,4361
Portúg. escudo ... 0,2667 0,2674
Spánskur peseti ... 0,2732 0,2740
Japanskt yen ... 0,20919 0,20979
írsktpund ...52,206 52,355
SDR (Sérstök dráttarr. ..46,0249 46,1564
Helstu vextir banka og sparisjóða (Allir vextir merktir X eru breyttirfrá siöustu skrá og gilda irá og með dagsetningu þessarar skrár) I. Vextir ákveðnir af Seðlabanka sem gilda fyrir allar innlánsstofnanir: Dagsetning siðustu breytingar: 2/9 1985 Sparisjóðsbækur 22.0 Afurða- og rekstrarlán v/ framleiðslu fyrir innlendan markað 27.5 Afurðalán, tengd SDR 9.5 Verðtryggð lán m.v. lánskjaravisitölu, allt að 2,5 ár 4.0 Verðtryggð lán m.v. lánskjaravísitölu, minnst 2.5 ár 5.0 Óverðtryggð skuldabréf, útgefin fyrir 11/8 1984 32.0 (þ.a. grunnvextir 9.0) Dagvextir vanskila, ársvextir 45.0 Vanskilavextir (dráttarvextir) á mánuði, fyrir hvern byrjaðan mánuð 3.75 II Aðrir vextir ákveðnir af bönkum og sparisjóðum að fengnu samþykki Seðlabanka:
Lands- Útvegs- Búnaðar- Iðnaðar- Verzl- Samvinnu- Alþýðu- Spari- Daasetnina banki banki banki banki banki banki banki sjóðir
Siðustubrevt. 1/12 1/12 1/12 21/11 21/7 11/8 1/10 11/11
Innlánsvextir: Óbundiðsparifé 7-36.0 22.-34.6 36.0 22.-31.0 22.-31.6 27.-33.0 3.0”
Hlaupareikninqar 10.0 8.0 8.0 8.0 10.0 8.0 10.0 10.0
Ávisanareikn. 10.0 8.0 8.0 8.0 10.0 8.0 17.0 10.0
Uppsaqnarr. 3 mán. 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0 25.0 25.0
Uppsagnarr. 6mán. 29.0 28.0 28.0 31.0 30.0 30.0 28.021
Uppsaqnarr. 12 mán. 31.0 320 32.0
Uppsagnar. 18man. 39.0 36.031
Safnreikn. 5. mán. 23.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0
Safnreikn.6.man. 23.0 29.0 26.0 28.0
Innlánsskirteini. 28.0 28.0
Verðtr. reikn.3mán. 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 1.5 1.0
Verðtr. reikn.6mán. 3.5 3.0 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0
Ýmsirreikningar Sérstakar verðb.ámán 1.83 7.0 1.83 2.0 2.0 2.0 2.0 8-9.0 2.0 1.83
Innlendir gjaldeyrisr. Bandaríkjadollar 7.5 7.5 7.5 7.0 7.5 7.5 8.0 8.0
Sterlinqspund 11.5 11.0 11.5 11.0 11.5 11.5 11.5 11.5
V-þyskmörk 4.5 4.5 4.5 4.0 5.0 4,5 4.5 4.5
Danskarkrónur 9.0 9.0 8.00 8.0 10.0 9.0 9.5 9.0 ,
Útlánsvextir: Víxlar (forvextir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0
Viðsk.víxlar (forvextir) 32.5 4| 34.0 4, 4) 4, 4, 34
Hlaupareikninqar 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5
Þ.a. qrunnvextir 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0
Almennskuldabréf 32.051 32.0SI 32.051 32.051 32.0 32.051 32.0 32.051
Þ.a. qrunnvextir 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0
Viðskiptaskuldabréf 33.5 4) 35.U 4) ...4| 4) 3531
1) Trompreikn. sparisj. er verðtryggður og ber 3.0% grunnvexti. 2) Sp. Hafnarfjarðar er með 32.0% vexti. 3) Eingöngu hjá Sp. Hafnarfj. 4) Útvegs-, Iðnaðar-, Verzlunar-, Samvinnu- og Alþýðubanka, Sp. Hafnarfj., Kópavogs, Reykjavikur, Vélstjóra og í Keflavík eru viðsk.vixlar og skuldabréf keypt m.v. ákveðið kaupgengi. 5) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilaláns er 2% á ári og á það einnig við um verðtryggð skuldabréf.