Tíminn - 07.01.1986, Qupperneq 16
Ðarátta Vals oa Víkings Baráttan um sigur á íslandsmótinu
íhandknattleikernú íhámarki!valsmennogTikingarerulíklegustuliöintilaöhreppa
þennan eftirsótta titil. Stjörnumenn úr Garöabæ eiga líka möguleika á íslandsmeist-
aratitli. Valur og Víkingur leika í Laugardalshöll á morgun og mun sá leikur að öllum
líkindum ákvaröa hvar íslandsmeistaratitillinn lendir þetta áriö.
Um helgina unnu þessi lið bæði góöa sigra. Víkingar unnu íslandsmeistara FH í
Firöinum á meðan Valsmenn sendu erkifjendurna KR-inga í bullandi botnslag sem
ekki sér fyrir endann á.
T
Tíminii
Þridjudagur 7. janúar 1986
Skuldir heimilanna hafa aukist í takt við erlendu lánin:
Einstaklingar tíföldudu
skuldir sínar 1981-1984
■ Heiklarskuldir heimilanna
(einstaklinganna) í landinu
mcira en tvöfölduðust að raun-
gildi á aðeins 4
árum, þ.e. frá árslokum 1980-
1984. Á þessu tímabili rúmlega
tífaldaðist upphæðin - úr 2.724
milljónum í 27.562 milljónir
króna. Á sama tímabili hækk-
aði lánskjaravísitalan úr 206 í
1006, sem er tæplega fimmföld-
un. Hækkun heildarskuldanna
að raungildi var því 107%, þ.e.
umfram vísitöluhækkanir.
Skuldahækkun umfram vísi-
tölu varð heldur meiri á árun-
um 1981-82 heldurcn tvösíðari
ár tímabilsins.
Á sama tíma og einstakling-
ar tvöfölduðu skuldir sínar
varð aðeins rúmlega 22%
aukning að raungildi á frjálsum
sparnaði landsmanna, þ.e. úr
5.353 millj. (unt tvöföld
skuldaupphæð einstaklinga) í
31.769 milljónir króna. Virðist
þetta misræmi á aukningu
sparnaðar og skulda að nokkru
geta skýrt hinn stöðuga skort á
lánsfc sem mikið hefur verið
kvartað yfir á umliðnum árum.
Heildarsparnaður landsmanna
(að lífeyrissjóðum og öðru
meötöldu) óx um rúm 43% að
Þýsk-íslenska undir smásjánni:
Omar talar
um leið-
réttingar
■ Fyrirtækið Þýsk-íslenska er
nú undir smásjá skattrann-
sóknarstjóra. Heimildir Tt'm-
ans segja að fyrirtækið sé grun-
að um að hafa stungið undan
skattgreiðslum allt að200 millj-
ónum króna á sjö ára tímabili.
Fjallað hefur verið unt mál
fyrirtækisins í sérstakri úttekt,
sem skattrannsóknarstjóri
fyrirskipaði á bókhaldi 400
fyrirtækja, á sínum tíma.
Ómar Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Þýsk-íslenska
sagði í samtali við Tímann í
gærkvöldi að hann skildi ckki
hvers vegna fyrirtækið yrði
svona óþyrmilcga fyrir barðinu
á fjölmiðlum. „Við erunt eitt af
fjögur hundruð fyrirtækjum,
sem vorú rannsökuð sérstak-
lega af skattrannsóknarstióra á
sínum tíma,“ sagði Ómar.
Hann vildi ekki kannast við að
rannsóknarmenn hefðu verið
raungildi. Sem hlutfall af heild-
arsparnaði jukust útlán til ein-
staklinga úr rúmlega 28% upp í
tæplega41% áþessum4árum.
Sé miðað viö að skuldir ein-
staklinga hafi aðeins hækkað
sem verðlagshækkunum nemur
á árinu 1985 (ekki aukist að
raungildi) væri heildarupphæð-
in um 37.500 milljónir króna
eða yfir hálf milljón króna á
hvcrja vísitölufjölskyldu í
landinu.
Hin gífurlega aukning á
skuldum umfram aukinn
sparnað hefur verið brúuð með
erlendum lántökum.
En erlendu lánin hækkuðu
einmitt í sama hlutfalli og
skuldir einstaklinga á tímabil-
inu, þ.e. rúmlega tífölduðust í
krónutölu og rösklega tvöföld-
uðust að raungildi. Má því
segja að ráðamenn þjóðarinnar
og heimilanna hafi verið sam-
stíga í skuldasöfnuninni undan-
farin ár - enda heyrist nú mikið
kvartað um efnahagserfiðleika
bæði á þjóðarheimilinu og
heimilum landsmanna.
Banaslys
við Vestur-
landsveg
■ Banaslys varð við
Vesturlandsveg, á gatna-
mótum Þverholts og
Reykjavegar laust eftir
miðnætti á sunnudag. Talið
er að ökumaður hafi misst
stjórn á bifreið sinni við áö-
urnefnd gatnamót, og kast-
ast upp á umferðareyju og
þaðan á ljósastaur. Bíl-
stjóri bifreiðarinnar var
ekki í bílbelti og kastaðist
úr bifreiðinni. Talið er að
hann hafi látist samstundis.
Bifreiðin sem er af Volvo
gerð er talin gerónýt eftir
áreksturinn.
ustu vikur, og sagðist sann-
færður um að rannsóknin væri
skammt á veg komin.
Ómar bent: á að vel gæti
komið upp úr dúrnum að ein-
hverjar leiðréttingar þyrfti að
gera, en vildi ekkert tjá sig um
hugsanlega stærðargráðu
þeirra. Þegar blaðamaður
spurði Ómar hvort þetta væri
stærsta leiðréttingarmál sem
upp hefur komið á landinu,
sagði hann að sannleikurinn
myndi konta í Ijós seinna meir.
„Við ætlum ekki að gefa út
neinar yfirlýsingar á þessari
stundu, en viö munurn láta frá
okkur heyra þegar sannleikur-
inn verður kontinn í Ijós,"
sagði Óntar.
Ekki náðist í Garðar Valdi-
marsson skattrannsóknarstjóra
í gærkvöldi, en hann hefur áður
sagt, í samtali við Tímann, að
hann vilji ekki tjá sig unt málið.
Kanada:
Vestur-lslendingur
f ær Kanada orðuna
- fyrir rannsóknir sem skapað hafa verðmæti upp á
milljónir dollara
inni á gafli hjá fyrirtækinu síð-
■ Dr. Baldur Stefánsson,
Vestur-íslendingur búsettur í
Winnipeg í Kanada, hefur ver-
ið sæmdur „The Order of Can-
ada“, en það er æðsta viður-
kenning sem kanadísk stjórn-
völd veita og jafngildir því að
vera aðlaður í Bretlandi.
„The Order of Canada"
skiptist í þrjár deildir og eru
tvær þær virðulegri „tifficer
deild" og „companion deild".
Sú síðarnefnda er einkum veitt
stórmennum af sviði stjórnmál-
anna en hin fyrri stórmennum
af öðrunt sviðum. Baldur var
gerður að „Officer of the Order
of Canada".Til gamans má geta
þess að Pierre Trudeau fyrrum
forsætisráðherra var við sama
tækifæri gerður að „Compan-
ion of the Order of Canada."
Þessi mikla sæmd hlotnaðist
Baldri Stefánssyni fyrir vís-
indastörf, einkum fyrir umbæt-
ur á gæðum sykurrófa, en hann
hefur átt mestan þátt í að skapa
sérstakt afbrigði þeirrar jurtar
sem kallast „canola-sykurróf-
ur“.
Úr hinu endurbætta afbrigði
canola-rófnanna er unnin mat-
arolía, svokölluð canola-olía.
Framleiða Kanadamenn nú
canola-olíu fyrir um milljarð
kanadískra dollara á ári, og um
hclmingur af allri matarolíu á
markaði í Kanada er af þessari
gerð auk þess sem hún er flutt
út til Japan og fleiri landa.
Dr. Baldur sagði í samtali
við Tímann, að vissulega hcfði
hann verið ánægður með að fá
þessa viðurkenningu og sagði
fjölntiðla þar vestra hafa verið
mjög vingjarnlega í sinn garð
og kallað sig föður canola-
olíunnar.
Óhætt er að segja að þá nafn-
gift beri dr. Baldur með rentu,
því canola afbrigðið er afurð
rannsókna hans og var fyrstu
árin eingöngu ræktað á til-
raunastöðvum sem Baldur
stjórnaði.
Baldur er kvæntur Sigríði
(Westdal) Stefánsson, sem
einnig er vestur-íslensk, en
börn þeirra eru Björgvin,
Helga og Páll.
■ Glæsihöll fyrirtækisins Þýsk-íslenska.