Tíminn - 23.01.1986, Page 5
Tíminn 5
Fimmtudagur 23. janúar 1986
ÚTLÖND
Illllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!
Frá flóttamannabúðum í Sómalíu þar sem fjöldi Eþíópumanna búa. Mikill
fjöldi flóttamanna gerir fæðuskortinn í Sómalíu ennþá tilfinnanlegri.
Neyðaróp
frá Sómalíu
Belgar f inna 11
tonn fílabeina
Brusscl-Reutcr:
Mogbadishu-Rcutcr:
Stjórnvöld í Sómalíu segja hættu á
því að hungursneyð nái til rúmlega
2,5 milljóna manna þar í landi á
næstunni nema aðstoð berist erlend-
is frá.
Ahmed Suleiman Abdulle innan-
ríkisráðherra segir að langvarandi
þurrkar hafi drepið búfénað á stór-
um svæðum. Mikill fjöldi flótta-
manna frá Eþíópíu hafi aukið mjög á
neyðina og vatn og matvæli séu nú
mjög af skornum skammti.
Lögreglan í Túnis hefur tekið
aðalskrifstofur stærsta verkalýðs-
sambands Túnis af sambandinu og
afhent þær andstöðuhópi sem vinnur
að skipulagningu nýs verkalýðs-
sambands.
Samkvæmt heimildum innan
Verkamannasambands Túnis lagði
lögreglan aðalskrifstofur sambands-
ins undir sig á mánudagskvöld og
daginn eftir flutti svokölluð sam-
hæfingarnefnd inn í þær.
Verkalýðshópar tengdir þessari
samhæfingarnefnd hafa að undan-
förnu Iagt undir sig skrifstofur ein-
stakra aðildarfélaga Verkamanna-
sambandsins með aðstoð yfirvalda
sem eiga í útistöðum við Verka-
mannasambandið.
Aðalritari Verkamannasam-
bandsins, Habib Achor, afplánar nú
eins árs fangelsi fyrir innbrot í skrif-
stofur fiskveiðasamvinnufélags.
Honum var vikið úr forystu sam-
bandsins um tíma á seinasta ári að
kröfu stjórnvalda sem lofuðu í stað-
inn að láta lausa um hundrað verk-
fallsmenn og endurráða mörg hundr-
Sómalíustjórn sagði í seinustu
viku að undanfarna tvo mánuði
hefðu daglega komið um 500 flótta-
menn frá Eþíópíu á hverjum degi en
íbúar í Sómalíu eru samtals um 6,3
milljónir.
Abdulle bað erlend ríki og hjálp-
arstofnanir um að bregðast skjótt við
og senda sem fyrst matvæli til Sómal-
íu áður en ástandið á hungursvæðun-
um versnaði enn meira.
uð menn sem höfðu verið reknir úr
starfi vegna ólöglegra verkfalla.
Verkamannasantbandið ásakar
Tollyfirvöld í Belgíu skýrðu frá
því á blaðamannafundi í fyrradag að
tollverðir þar í landi hefðu lagt hald á
tæplega ellefu tonn af fílabeinum í
seinustu viku sem senda hafi átt til Mið-
austurlanda. Þetta er mesta magn af
fílabeinum sem löggæslumenn utan
Afríku hafa fundið í einu lagi.
Paul De Keersmaeker landbúnað-
arráðherra Belgíu segir að fílabeinin
komi af um þúsund fílum sem flestir
hafi verið drepnir nýlega. Hann segir
að venjulega reyni ftlabeinskaup-
menn að láta líta svo út sem fíla-
beinsfarmar séu löglegir með því að
falsa tollskjöl og flytja fílabeinin á
Ástralska stjórnin skýrði frá því í
gær að hún myndi leyfa að rúmlega
2,5 milljón kengúrur yrðu skotnar á
þessu ári.
Náttúruverndarmenn brugðust
þegar í stað við þessari tilkynningu
stjórnvalda með því að lýsa yfir að nú
á föstudag yrðu skipulagðar mót-
mælaaðgerðir út um allan heim gegn
þessu gegndarlausa kengúrudrápi
sem er einhver stórfelldasta slátrun
villtra dýra í auðgunarskyni sem við-
gengst nokkurstaðar.
Mest var kengúrudrápið í Ástralíu
árið 1983 þegar um 3,14 ntilljón
kengúrur voru drepnar en í fyrra var
„aðeins" gefið leyfi til að skjóta tæp-
lega tvær milljónir þeirra þar sem
kengúrum hafði fækkað mikið vegna
þurrka.
Kengúrukvótinn er ákveðinn á
grundvelli upplýsinga frá eftirlits-
stjórnvöld fyrir að standa ekki við
samkomulagið og skipaði Achor aft-
ur aðalritara fyrir hálfum mánuði.
milli landa en í þetta skipti hafi mjög
greinilega verið um smygl að ræða.
Ráðherrann sagði meira eftirlit
með fílabeinsverslun nú en fyrir
nokkrum árum þar sem Afríkuríki
með fílahjarðir hefðu komið sér
saman um samræmda kvóta og heild-
areftirlit með fílabeinsviðskiptum.
Nú væru aðeins tæplega helmingur
allra fílabeinsviðskipta ólöglegur
samanborið við 80% fyrir tveimur
árum.
Heimsviðskipti meðfílabein nenta
samtals um 50 milljónum dollara
(rúml. tveimur milljörðum ísl. kr. á
ári).
mönnum með villidýrum í Ástralíu
en þeir segja að kcngúrum hafi fjölg-
að um 30 til 40% upp í um þaö bil 17
milljónir.
Áströlsk stjórnvöld segja
kengúrudrápið nauðsynlcgt vegna
skemmda sem kengúrurnar vinni á
gróðri en talsmenn náttúruverndar-
samtaka segja kengúrunum slátrað í
gróðaskyni. Tekjur ástralska útflytj-
enda á kengúruafurðum námu um
átta milljón bandarískra dollara (340
milljónir ísl. kr.) á seinasta ári.
Talsmenn náttúruverndarsamtak-
anna, Grænfriðunga, segja að sam-
tökin muni berjast fyrir því að inn-
flutningi á kengúruafurðum verði
hætt í Evrópu. Talsmenn annarra
náttúruverndarsamtaka taka í sama
streng og segja baráttuna gegn
kengúruslátruninni verða eitt helsta
„dýravelferðarmál" ársins.
í skjól undir verndarvæng Grænfrið-
unga?
Lestunar-
áætlun
Hull:
Dísarfell . 27/1
Jan . 2/2
Dísarfell . 10/2
Jan . 16/2
Dísarfell . 24/2
Jan . 2/3
Dísarfell . 10/3
Rotterdam:
Dísarfell , 28/1
Dísarfell 11/2
Dísarfell 25/2
Dísarfell 11/3
Antwerpen:
Dísarfell 29/1
Dísarfell 12/2
Dísarfell 26/2
Dísarfell 12/3
Hamborg:
Disarfell 31/1
Dísarfell 14/2
Dísarfell 28/2
Dísarfell 14/3
Helsinki:
Hvassafell 7/2
Larvik:
Jan 20/1
Jan 3/2
Jan 17/2
Jan 3/3
Gautaborg:
Jan 4/2
Jan 18/2
Jan 4/3
Kaupmannahöfn:
Jan 5/2
Jan 19/2
Jan 5/3
Svendborg:
Jan 6/2
Jan 20/2
Jan 6/3
Aarhus:
Jan 6/2
Jan 20/2
Jan 6/3
Gloucester, Mass.:
Jökulfell 20/2
New York:
Jökulfell 21/2
Portsmourh:
Jökulfell 22/2
TCk SKJFWDEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth 180 121 Reykjavik
Simi 28200 Telex 2101
SNJÓHJÓLBARÐAR
Sólaðir og nýir snjóhjólbarðar af öllum stærðum og
ýmsum tegundum, bæði radial og venjulegir, sterkir
og með góðu gripmunstri.
Einnig lítið slitnir snjóhjólbarðar
á gjafverði.
Snöggar hjólbarðaskiptingar. Vanir menn - Ailir
bílar teknir inn - Setustofa, alltaf heitt á könnunni
meðan hinkrað er við.
Komið, skoðið, gerið góð kaup
BARÐINN
Skútuvogi 2, símar: 30501 og 84844
Túnis:
Verkalýðssamband
tapar skrifstofum
Túnis-Reuter
Kengúruslátrun
veldur deilum
Dýravelferðarmál ársins?
Sydney-Reuter