Tíminn - 31.01.1986, Page 1
I HLIÐARFJALLI fyrir ofan Akureyri biast á
suö-vestan bálviöri rétt fyrir klukkan 18 í gær. Skall
veöriö svo skyndilega á og var svo ofsafengið aö 100
börnum sem voru á skíðum í fjallinu var af því bráö
hætta búin. Lögreglan og 15-20 björgunarsveitar-
menn úrHjálparsveitskátaog Flugbjörgunarsveitinni
brugöu skjótt viö og tókst aö smala saman börnunum
og koma þeim í bæinn.
ÓLAFUR ÁRNASON,fulltrúifyrrverandi
meirihluta SHÍ í stjórn Lánasjóös íslenskra náms-
manna, hefur lýst því yfir að hann muni víkja fyrir ný-
kjörnum fulltrúa núverandi meirihluta þann 6. febrúar
n.k. Þessi yfirlýsing fylgir í kjölfar fjölda vantraustsá-
lyktana stjórnar Stúdentaráösins og þess aö um
1000 stúdentar undirrituðu áskorun til hans um að
víkja.
SAMNINGAFUNDI ASI, vmnu.ea-
endasambandsins og Vinnumálasambandsins.sem
haldinn var í gær. lauk án að til verulegra tíöinda
drægi. Mest var rætt um efnahagsmál og hvernig hin-
ir ýmsu þættir komi til með að hafa áhrif á þróunina út
áriö. Ákveðið var aö næsti samningafundur skyldi
haldinn á þriöjudag, en undirnefndir um efnahagsmál
og lífeyrismál munu komasaman í dag og undirnefnd
um húsnæöismál á morgun.
ÓEINKENNISKLÆDDIR lögreglu-
jDjónar voru meðal þinggesta í gærdag. Mikiö safnaö-
ist saman af námsmönnum og taldi lögreglan vissara
að hafa vaðið fyrir neöan sig og voru nokkrir óein-
kennisklæddir lögregluþjónar sendir til þess aö fylgj-
ast meö. Allt fór þetta þó friðsamlega fram og ekki
kom til óeirða.
FJÁRHAGSÁÆTLUN Hafnarfjarðar-
bæjar var afgreidd í vikunni. Þar er gert ráö fyrir 686
milljóna króna heildartekjum, þar af eru útsvör stærsti
tekjustofninn. Helstu gjaldaliöirnir eru rekstur og fjár-
festingar vegna félagsmála, 119 milljónir og
fræöslumál 110 milljónir. Til gatnageröar og viðhalds
er áformað aö verja 83 milljónum og 38 milljónum til
æskulýðsmála.
TVEIR KÓPAVOGSBÚAR hafa sent
bæjarstjóra Kópavogs bréf þar sem þeir segjast hafa
ástæðu til aö halda að öndvegissúlur þær reykvískar,
sem ætlaö hafi verið aö standa viö mörk lögsagnar-
umdæma Reykjavíkur og Kópavogs séu viö Hafnar-
fjaröarveg ( Kópavogi. „Eigi þetta við rök aö styðjast
skal á þaö minnt að leita verður heimildar a.m.k.
bygginganefndar, svo ekki sé minnst á æðri máttar-
völd í Kópavogi til aö reisa mannvirki af þessu tagi,“
segir í bréfinu.
ELDURKOMUPPÁ heimili Alexanders
Stefánssonarfélagsmálaráðherra í gærdag. Slökkvi-
liö var kallað til, þar sem kviknað haföi í þvottavélinni
á heimilinu. Aö sögn slökkviliðsmanna var brugðist
skjótt viö á heimilinu og var búið aö slökkva eldinn
þegar þeir mættu. Lítið tjón hlaust af eldinum sem
kom upp í vindumótor í þvottavélinni. Alexander vará
þingi þegar eldurinn kom upp.
ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL í Was-
hington DC hefur staðfest þann dóm undirréttar að
útboö Bandaríkjastjórnar á flutningum fyrir varnarliö-
ið á Keflavíkurflugvelli hafi ekki verið lögum
samkvæmt. Rainbow Navigation hefur áfram einka-
rétt á flutningunum samkvæmt bandarísku einokun-
arlögunum. Stjórnvöld beggja vegna Atlantshafsins
íhuga nú hvernig bregöast skuli viö.
KRUMMI
og nú er að
vita hvort Ingv-
ari Gísla lánist
að kveða niður
afturhalds-
drauginn. “ *
Draugagangur í nýlegu steinhúsi í Reykjavík:
Fjölskyldan flúði
megna draugaásókn
Miklir reimleikar í húsi í
virðulegu hverfi í Reykjavík
urðu til þess að fjölskylda
hrökklaðist þaðan út. Magnað-
ur draugur, sem sótti einkum á
yngstu heimasætuna reið
húsum. öskraði og einu sinni sló
draugsi stúlkuna í lærið af
mikilli bræði. Það var eftir að
miðill hafði verið fenginn til
þess að særa út ófögnuðinn.
Ásóknir draugsins hófust á
árinu 1984 og stóðu allt þar til
fjölskyldan hrökklaðist út af
heimiíinu seinnipart árs 1985.
Þá hafði yngsta heimasætan lið-
ið angistarkvalir á hverri nóttu.
„Eitt skiptið stóð hann yfir
mér, og hélt á einhverjunt odd-
hvössum hlut. Ég held það hafi
verið rýtingur. Eg varð sturluö
af hræðslu og forðaði mér út,"
sagði heimasætan í samtali við
Tímann. Hún og fjölskylda
hennar vilja ekki láta uppi nöfn
sín, né hvar í bænum húsið er.
„Hér vildi ég ekki búa,"
sagði miðillinn, sem kom í
heimsókn til fjölskyldunnar.
Að sögn heimasætunnar eru
fleiri „íbúar" í húsinu, sem
ekki allir verða varir við.
Móðir heimasætunnar vildi í
fyrstu ekki trúa því að á heimil-
inu væri draugur. „Einhverju
sinni vaknaði ég við það að
geysimikill kraftur skall á
bringunni á mér. Krafturinn
var það mikill að ég varð að
halda mér," sagði móðirin.
Ytarleg lýsing er á viðskipt-
uni draugsins við fjölskylduna í
helgarblaði Tímans á morgun.
- ES
Framsóknarmenn á móti breytingum á lögum um LÍN:
„Mun beita mér gegn þeim“
Arangurslaus leit
Leitin að flugvélinni sem nauðlenti í sjónum suðvestur af Reykjanesi í fyrrakvöld, hefur enn engan árangur borið og eru flug-
mennirnir tveir nú taldir af. Á myndinni sést Þröstur Sigtryggsson skiphcrra hjá Landhelgisgæslunni stíga út úr Fokkervél gæsl-
unnar þegar vélin kom Úr leitarflugi. Tímamynd: Árni Bjarna
- segir Ingvar Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra
Ljóst er að Sverrir Her-
mannsson menntamálaráð-
herra mun eiga mjög erfitt með
að fá þingflokk Framsóknar-
flokksins til að samþykkja
nokkrar breytingar á lögum um
Lánasjóð íslenskra náms-
manna frá því sem nú er. Sam-
kvæmt heimild Tímans ríkir
mikil andstaða innan þing-
flokksinsviðþær hugmyndir
að breytingum sem ráðherra
hefur viðrað í fjölmiðlum að
undanförnu. Andstaðan kom
m.a. fram í máli Ingvars Gísla-
sonar, fyrrverandi mennta-
málaráðherra í umræðum utan
dagskrár á Alþingi í gær.
„Ég fullyrði það að í stjórn-
arsáttmála Framsóknarflokks-
ins og Sjálfstæðisflokksins er
ekki að finna stafkrók um það
að þessi ríkisstjórn eigi að beita
sér fyrir byltingu á félagslegri
löggjöf eða jafnréttismálum í
afturhaidsátt. Og engin heim-
ild er til um það í stjórnarsátt-
málanum að vinna skuli að
breytingum á lögum um náms-
lán og námsstyrki, enda eru
það tiltölulega ný samþykkt
heildarlög og naumast að þau
séu að fullu komin til fram-
kvæmda, eða a.m.k. er ekki
enn farið að reyna á ýmis
ákvæði laganna, t.d. endur-
greiðslureglurnar," sagði
Ingvar.
Þingmaðurinn benti á að
Ijóst væri að menntamálaráð-
herra hefði sett á laggirnar
endurskoðunarnefnd til höfuðs
Lánasjóðnum og starfsemi
hans, án þess að nokkuð sam-
ráð hefði verið haft við Fram-
sóknarflokkinn. Hér væri því
beinlínis verið að fara á bak við
samstarfsaðila í ríkisstjórn í
mjög stóru máli sem Fram-
sóknarflokkurinn hefði látið
sig sérstaklega varða í meira en
30 ár.
Ingvar nefndi í stuttu máli
þau atriði í átt til breytinga sem
menntamálaráðherra hefur
helst verið orðaður við og sagði
síðan: „Ef hæstvirtur ráðherra
stefnir að lagabreytingum í
þessa átt, þá vil ég biðja hann
að gá vel að sér og kasta slíkum
hugmyndum fyrir róða. En ef
það ber ekki árangur, þá ítreka
ég það sent ég hef áður sagt að
ég mun ekki styðja slíka breyt-
ingu og mun beita mér gegn
henni í mínum flokki."
Að sögn Sverris Hermanns-
sonar mun tillagna hans uin LÍN
að vænta í komandi viku.
Heyrst hefur að svo kunni að
fara að menntamálaráðherra
dragi í land með þær áherslu-
breytingar sem við hann eru
kenndar, ekki síst vegna and-
• stöðu margra samflokks-
manna. Sjá nánar bls. 2. , - SS