Tíminn - 23.03.1986, Qupperneq 11
Tíminn 11
Sunnudagur 23. mars 1986
Af leiklistarþingi:
Eigumvið að halda,
áfram að leika á
L
ig |
listamcnn úr ölluni listgreinum auknum mæli.
lcikhúsa komu saman nú í vikunni á En þann verðmun verðum við að hreinir þiegjendur."
leiklistarþingi sem haklið er í Þjóð-
leikhúsin u.
greiða el viðeigtim ekki að enila sem
JÁl*
Þinghaldið hófst sl. sunnudag með
fjórum framsöguerindum auk þess
sem menntamálaráðherra ávarpaði
þingið. Það voru þau Sveinn Einars-
son, Helga Bachmann. Þörunn Sig-
urðardóttir og Gísli Rúnar Jónsson
sem fluttu erindi en síðan hófust um-
ræður sem nteðal annars fóru fratn í
smærri vinnuhópum.
Upphaflega stóð til að þinginu lyki
á mánudag en listamennirnir töldu þr
að svo margt væri órætt að ákveðið
var að frcsta þinglokum fram yfir
þessa hclgi og er nú ætlunin að þing-
inu Ijúki mánudaginn 24. mars.
Leiklistarþing hafa ekki verið
haldin með rcglulegu millibili heldur
til þeirra efnt þegar tími hefur þótt
til. Nú eru fimm ár síðan síðast var
efnt til slíkrar ráðstefnu sent er
óvanalcga langt hlé.
„Eigum við að halda áfram að
leika á íslensku?" var yfirskrift
þingsins að þessu sinni.
Helgar-Tíminn spurði tvo þeirra
listamanna sem þingiðsitjii, þau Svc-
in Einarsson og Þórunni Sigurðar-
dóttur, hvernig menn hefðu svarað
þessari spurningu.
Þórunn sagði að hún teldi spurn-
inguna þarfa. Hér er ekki eingöngu
átt við móðurmál okkar íslenskuna
heldureinnig hvaða áhrifþað hefurá
menningu okkar að taka við öllu því
efni sem dembist yfir okkur í gegn-
um fjölmiðlun í víðustu mcrkingu
þess orðs.
„Við höfum verið að skoða stöðu
íslensks efnis gagnvart crlendu efni
og möguleika íslenskrar tungu að lifa
þessar brcytingar af. Hvað yfirskrift
þingsins snertir þá verðum við vör
við mikinn áhuga á því að styrkja
stöðu íslensks efnis í samkeppninni
við hið svokallaða fjölþjóðaefni. Jú
við ætlum að halda áfram að leika á
íslensku."
Sveinn Einarsson sagði að menn
hefðu verið að skoða hug sinn hvort
íslensk frumsköpun væri ekki og yröi
ekki að vera undirstaða sjálfstæðrar
menningar. „Hið eina rökrétta svar
okkar við vaxandi áhrifum að utan er
að efla eigin listsköpun en þar þarf
meðal annars að koma til opinber
stjórnárstefna til að styðja við bakið
á því sem íslenskt er.“
Þau Þórunn og Sveinn vildu þó
undirstrika að hér væri ekki verið að
boða neina einangrunarstefnu. „Viö
viljum ekki útiloka þau áhrjf scm nú-
tíma fjölmiðlun býr yfir heldur
styrkja menningu okkar þannig að
áhrifin að utan vcrði til að auðga
hana í staö þcss aö kæfa."
Ótal mál hafa veriö tekin fyrir á
þinginu og einnig hefur mikið verið
rætt um þaö hvernig bcst verði aö
korna niðurstöðum umræðunnar til
skila. Þau Þórunn og Sveinn sögðu
að töluverðum tíma hefði verið varið
í að ræða málefni sem tcngjast út-
varpi og sjónvarpi og hvaða áhrif
nýju útvarpslögin komi til mcð að
hafa. Málefni leiklistarskólans hafa
einnig verið rædd auk fjölda annarra
mála.
Hin svokölluðu fjölþjóðaáhrif
með tilkomu gervihnattasjónvarps
voru m.a. í brennidcpli á leiklistar-
þingi að þessu sinni og skal engan
furða.
Viðmælendur okkar sögðu þó að
sú umræða hefði ekki einkennst af
neinni uppgjöf eða vonleysi.
„Staðreyndin er sú að íslensk
sköpun er dýrari en það efni sem
-okkur kemur til með að bjóðast í
„Eina rökrétta svarið við vaxandi áhrifum að utan er að eíla eigin listsköpun
segja þau Þonmn Sigurðardóttir og Sveinn Einarsson.
Forseli Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, sat þingið ásaint rúnilega eitt
hundrað listamónnum úr öllum listgreinum leikhúsanna. 'rmia-iiivndir Hóiitri
Leiklistarþing hafa ekki verið haldin með reglulegu millibili heldur til þeirra Ásamt framsöguerindum og almennum umræöum var fólki skipt upp í minni
efnt þegar tími hefur þótt til. hópa á þinginu til að vinna að sérstökum afmörkuöum verkefnum.
LÁUSÍ LDKSINS
FÉKKST GJALDSVÆÐI
OKKAR ÚTFÆRJ
Allir í rétta röð.
Nýtt og fullkomið tölvustýrt símaborð tryggir snögga sím-
svörun og afgreiðslu eftir réttri röð. Þegar þú hringir í Hreyfil
og heyrir lagstúf, veistu að þú hefur náð sambandi við
skiptiborðið oc færð afgreiðslu von bráðar.
Hafnarfjörður, Garðabær og Mosfellssveit.
Höfum opnað nýjar biðstöðvar við Ásgarð í Garðabæ,
Esso-stöðina við Reykjavikurveg i Hafnarfirði og við Þverholt
í Mosfellssveit. Þetta tryggir enn betri þjónustu.
Höfuðborgarsvæðið er nú eitt gjaldsvæði.
Nú getur Hreyfill ekið þér frá Laxnesi
að Bessastöðum eða frá Austurvelli í Straumsvík
á innanbæjartaxta Reykjavíkur
UREMF/LL
68 55 22