Tíminn - 23.03.1986, Síða 17
Sunnudagur23. mars 1986
Tíminn 17
Kuldinn á rússnesku steppunum gerði leikurum og
tæknimönnum erfitt fyrir við töku myndarinnar um Pétur
mikla. Aðalleikarinn stakk af þegar tökur voru aðeins
hálfnaðar og rússnesk yfirvöld gerðu athugasemdir um
söguskoðun þá sem kemur fram í verkinu.
BANDARÍSKAR sjónvarps-
stöðvar hafa nú til sýningar
framhaldsmyndaflokk um
Pétur mikla Rússakeisara.
Myndin var að sjálfsögðu tekin að
stærstum hluta í Sovétríkjunum þar
sem um 800 sovéskir leikarar unnu
við hliðina á leikurum frá Vestur-
löndum.
Á tímabili leit þó út fyrir að þetta
fyrirtæki sem kostaði rúmar 1300
milljónir ætlaði að fara í vaskinn.
Eftir fyrstu tökurnar sem fóru fram í
Vínarborg var leikstjórinn Lawr-
ence Schiller rekinn vegna þess að
eftir aðeins fárra vikna vinnu var
hann kominn um 40 milljónum fram
úr kostnaðaráætlun.
Marvin J. Chomsky varfenginn til
að leikstýra verkinu en hann hafði
getið sér heimsfrægðar meðal annars
með myndurn sínum Holocaust, Att-
ica og Inside the Third Reich.
Erfiðleikarnir voru þó ekki að
baki. Kuldinn í Rússlandi gerði bæði
mannskap og vélum erfitt fyrir auk
þess sem Rússar gerðu athugasemdir
hvað eftir annað varðandi túlkun
Chomskys á Pétri mikla. Að vísu
fékk hann sitt fram að lokum en þá
töldu sovésk yfirvöld að verkið væri
ekki sýningarhæft þar eystra og
bannað var að það kæmi fyrir augu
sovéskra borgara.
Þegar hér var komið sögu höfðu
tökur farið langt fram úr tímaáætlun
og aðalleikarinn Maximilian Schell
stakk af frá öllu hálfköruðu. Hann
benti á að kvikmyndafyrirtækið
hefði brotið gerða samninga við sig
og hann væri bókaður í önnur verk-
efni.
Eftir gríðarlega leit að leikara sem
tekið gæti við fannst Englendingur
sem mjög líktist Schell en raddir
þeirra eru þó ólíkar og það kostaði
mikla erfiðleika þar sem Schell
fékkst ekki til að tala inn á afganginn
af myndinni.
Allt leystist þetta þó að lokum og
eftir stendur 10 tíma löng mynd sem
eins og áður segir hefur nú verið tek-
in til sýningar í sjónvarpi í Banda-
ríkjunum við góðar undirtektir.
Það eru líka margir sem hafa lagt
hönd á plóginn cn aldrei fyrr hcfur
verið unnið jafn stórt verkefni í
samvinnu austurs og vesturs á sviði
kvikmyndunar.
Sir Laurence Olivier, OmarSharif
og Vanessa Redgrave leika í mynd-
inni ásamt fjölda annarra stjarna úr
austri og vestri. Sá scm sá um kvik-
myndun var Vittario Storraro sem
meðal annars tók myndirnar Síðasti
Tango í París og Apocalypse Now.
Og nú er bara að bíða og sjá hvort
íslenska sjónvarpið lofar okkur að
fylgjast með Pétri mikla opna vest-
urgluggann.-
Verkið er umfangsmesta og
jafnframt dýrasta samvinna
austurs og vesturs á vettvangi
kvikmynda. Heildarkostnaður
við myndina er rúmar 1300 millj-
ónir ísienskra króna.
Ung sovésk leikkona bíður eftir
að komi að sér. í húfunni má
greina bandaríska og sovéska
fánann.
GULLIBETRI
Umsjón: Þórmundur Bergsson, Heimir Bergsson:
Bandaríska meistarakeppnin í kúlnaleik:
Ánægjaskínúr
hverju andliti
Krakkar frá fimm til fjórtán ára keppa
um meistaratitil í skemmtilegasta
leiknum sínum
Það er ekki víst íslenskir krakkar
kannist við kúlnaleik sem heitir á
ensku „marbles" og gæti útlagst
„marmarakúlur" á íslensku. Leikur
þessi er mjög vinsæll hjá krökkum í
Bandaríkjunum og felst hann í því
að glerkúlum, oftast marglitum, er
rúllað hverri á eftir annarri með það
markmið að komast sem næst
„markmiðskúlunni" sem rennt er út
fyrst. Leikurinn er nokkuð svipaður
leiknum bocchia sem er m.a. vinsæl
íþrótt á meðal fatlaðra. Það er afar
mikilvægt í þessum leik að veður hafi
sem minnst áhrif á ferð og feril kúln-
anna og því er óhægt um vik að spila
þennan leik á íslandi.
í Bandaríkjunum fer þó fram á
hverju ári Bandaríska meistara-
keppnin í kúlnaleik. Þar keppa
krakkarfrá fimmára aldri oguppí 14
ára frá öllum fylkjum Bandaríkj-
Sigurvegarinn í drengjaflokki, Jon Jamison frá Pennsylvaníu, vandar sig gífurlega við þetta skot.
anna um meistartitilinn í uppáhalds
leiknum sínum. Keppnin fer fram í
Wildwood í New Jersey og drcgur
alla jafna að sér fjölda áhorfenda
sem flestir eru þó feður og mæður
keppendanna. Oþarfi er að fjölyrða
mikið um þessa keppni en látum
myndirnar tala.
Hann Giang Duong sem er innflytjandi frá Víetnam reynir hér
að verja kúlu sína vindi.
„Mér sýnist þetta ætla að verða slæmt skot“ gæti hann Lantz
litli frá Pennsylvaníu verið að hugsa.
Meistarar eru krýndir með tilheyrandi kór-
ónum,