Tíminn - 18.04.1986, Page 2
2 Tíminn
Föstudagur 18. apríl 1986
Fíkniefnadeild
lögreglunnar:
Eitt kíló af
amfetamíni
frá áramótum
Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík hefur lagt hald á rúmlega
eitt kíló af amfetamíni, það sem af
er árinu. Þetta er talsvert meira
magn en tekið var allt árið í fyrra.
Svo virðist vera sem amfetamín sé
vaxandi tískuefni á fíkniefna-
markaðnum á íslandi. Arnar Jens-
son yfirmaður hjá fíkniefnadeildinni
sagði í samtali við Tímann í gær að
þetta endurspeglaði markaðinn að
hluta.
Það eru sérstaklega tvö mál sem
hafa orðið til þess að svo mikið hefur
náðst af amfetamíni. Rétt eftir ára-
mótin var tekið um hálft kíló af
amfetamíni og nú fyrir skömmu
náðust 330 grömm þegar maður
gerði tilraun til þess að smygla
sígarettukartoni úttroðnu af amfet-
amíni í gegnum Keflavíkurflugvöll.
Að sögn Arnars Jenssonar hafa
hundar deildarinnar átt þátt í því að
finna hluta þess efnis sem tekið
hefur verið.
-ES
Fulltrúar lögreglumanna og dómsmála- og fjármálaráðuneytis funda í dag í deilu þessara aðila. Fundurinn hefst í Borgartúni 6, klukkan 14.00. Heldur
virðist vera að rofa til í deilunni, eftir síðasta fund. sem haldinn var á miðvikudag. Einar Bjarnason lögregluvarðstjóri, sem situr í samninganefnd
lögreglumanna sagði í samtali við Tímann í gær að ástæða væri til nokkurrar | bjartsýni eftir þann fund. Þó sagðist hann ekki eiga von á tilboði í dag.
Tímamynd-Sverrir
Tímakaupið hækkaði 2,4% umfram taxta í fyrra:
Vinnuvikan lengist
hjá öllu ASf fólki
11 n, —----------—
- upp í 52,5 stundir
á viku hjá verka- og
iðnaðarmönnum
Almennir kauptaxtar Alþýðu-
sambandsfélaga hækkuðu 9 sinnum
á einu ári - frá 4. ársfjórðungi 1984
til 4. ársfj. 1985 - um 36,43% að
meðaltali (framfærsluvísitala 36,7%
á sama tíma). Hækkun hreins tíma-
kaups á sama tíma varð 39,7% að
meðaltali, eða um 2,4% umfram
Itækkun kauptaxta, að mati Kjara-
rannsóknarnefndar.
Hækkun umfram taxta varð mest
hjá verkakörlum og iðnaðarmönn-
um unt 4,2%, skrifstofukörlum
2,7%, verkakonum 2,1% og skril'-
stofukonum 0,1%. Hreint tímakaup
afgreiðslufólks hækkaði hins vegar
ntinna en taxtarnir, vantaði 4,6%
hjá körlununt og 1,9% hjá konun-
um. Fyrir um ári var þessu öfugt
farið. Virðist mega af þessu ráða að
farið sé að draga úr þeim yfirborgun-
um sem svo mjög var rætt um hjá
verslunarfólki á síðasta ári.
Vinnuvikan var lengri hjá öllunt
þessum stéttum undir lok 1985 en á
sama tíma 1984. Mest hafði af-
greiðslufólkið bætt við 1,5-1,9 stund-
ir á viku, en verkamcnn og iðnaðar-
menn 1,3-1,4 stundir. VinnuVika
100 -
.90
80
2 3
1982
2 3
1983
2 3
1984
2 3
1985
Kaupmáttur grcidds tímakaups verkafólks og iðnaöarmanna hafði undir lok
siðasta árs þokast upp í kringuni 5-7% frá því hann var lægstur á 1.
árstjórðungi 1984, sem sjá má á þessu línuriti frá Kjararannsóknarnefnd.
Kaupináttur verkakvennanna hefur þó sem næst staðið í staö lengst af þessa
tíinabils þar til liann hcl'ur tekiö góðan kipp og náð kaupmáttaraukningu
karlanna undir lok þess.
Eyjafjörður:
Stofnað hlutafélag um
ferðamannaþjónustu
Alda h.f., nýtt hlutafélág unt
ferðamannaþjónustu var stofnað
í Eyjafirði sl. sunnudag. Undan-
farnar vikur hefur undirbúnings-
nefnd safnað hlutafjárloforðum í
hreppunum innan Akureyrar. Á
stofnfundi voru hluthafar 55, og
fyrirliggjandi hlutafjárloforð 625
þúsund krónur. Að sögn Jónasar
Vigfússonar, eins nýkjörinna
stjórnarmanna, er tilgangurinn
með stofnun félagsins að koma á
fót margvíslegri ferða-
mannaþjónustu á eyðijörðinni
Melgerði í Eyjafirði. Hugmyndin
er að koma þar upp litlum sumar-
bústöðum, og er áætlað að 2 hús
verði byggð nú í vor og tekin í
notkun í suntar.
í Mclgerði. eða á svonefndum
Melgerðismelum, hafa hesta-
mannafélögin Funi. Léttir og
Þráinn byggt upp veglega aðstöðu
til mótahalds. Þessi aðstaða
myndi nýtast hlutafélaginu vel,
þar sem fyrirhugað er að reka
þarna hestaleigu, untboðssölu á
hestum, og jafnvel hafa tiltæk
hross fyrir lengri ferðir. Haglendi
til að taka á móti ferðamönnum
á hestum, skjólgóð tjaldsvæði og
hreinlætisaðstaða er fyrir hendi,
svo og rúmgott þjónustuhús sem
hýsa mun verslun með nauð-
synjavörur. íþróttafélagið Vor-
boðinn er að ljúka uppbyggingu
íþróttavallar, og við stefnum að
því að koma upp ýmis konar
leiktækjum fyrir yngri kynslóð-
ina. Ýmislegt fleira er á döfinni,
sem of snemmt cr að geta um en
við stefnum að því að gera þetta
að „sumarleyfisparadís", sagði
Jónas Visfússon að lokum.
Bifreiöaíþróttaklúbbur Reykjavíkur og Skeljungur gangast fyrir
Sparaksturskeppni
verkantanna og iðnaðarmanna var
orðin um 52,5 stundir á viku. Og
afgreiðslufólkið er að nálgast 50
tímana (48,6-49,4). Skrit'stofu-
stúlkurnar eru lægstar með 42 stund-
ir en karlarnir 43,4.
Með lengri vinnutíma m.a. hækk-
uðu vikutekjurnar líka nteira en
tímakaupið, eða um 43,7% að með-
altali, mest ntilli 46 og 47% hjá
verkafólki en minnst 36,4% hjá
afgreiðslukörlum. Heildar mánaðar-
tekjur iðnaðarmanna að meðaltali á
4. ársfjórðungi 1985 eru taldar um
53 þús. og hjá skrifstofukörlum um
52 þús., en þeir eru líka með um 9
stundum styttri vinnuviku. Tekjur
verkakarla og afgreiðslukarla eru
svipaðar um 40,800 kr. Tekjur
verkakvenna um 32.500 og af-
greiðslukonurnar um 1 þús. krónum
lægri, þó þær vinni 3 stundum lengur
á viku. Skrifstofukonur hafa um
35.900, en líka með lang stystu
vinnuvikuna. -HEI
Laugardaginn 26. apríl n.k. gang-
ast Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykja-
víkur og Skeljungur hl'. fyrir spar-
aksturskeppni og hefst Inin að
Laugavegi 180 (bensínstöð Skelj-
ungs) kl. 13.00. Af þessu tilefni tók
blaðið framkvæmdastjóra Bifreiða-
íþróttaklúbbs Reykjavíkur Steingrím
Ingason tali og bað hann að segja frá
keppninni.
„Bifreiðaumboðunum er ein-
göngu heimiluð þátttaka. Ef þau
hins vegar senda ekki bifreið, er
keppnishaldara heimilt að senda bíl
í þess stað. Eknir verða 300 km, þar
af 100 km innanbæjar og verður leið
keppninnar skráð í leiðabók og
landakort seni kcppcndur fá afhent
í byrjun keppni, eða þegar bifreið
viðkomandi keppanda hefur verið
yfirfarin og gengið hefur verið úr
skugga um að hún uppfylli skilyrði
keppnisreglnanna."
En hvernig geta stórir og þungir
bílar keppt við smábílana í spar-
aksturskeppni?
„Jú, það er ncfniiega enginn einn
sigurvcgari keppninnar. Bílunum er
skipt í 9 flokka allt eftir rúmtaki
vélar (slagrými) og tegund eldsneyt-
is. Síðan er sigurvegari innan hvers
flokks, og cf fleiri en 10 bílar taka
þátt í hverjum flokki. þá verða veitt
verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin."
Er ekki hættulegt að halda slíka
keppni hér innanbæjar?
„Keppendur verða að virða al-
mennar umferðarreglur og reglur
þær sent keppnisstjórn setur og til
þess að þeim verði örugglega fylgt.
munu lögregla og leynilegar eftirlits-
stöðvar keppnisstjórnar fylgjast með
keppehdum."
Hvenær var síðast haldin spar-
aksturskeppni?
„í júní á síðasta ári. Þá tóku 15
bílar þátt í keppninni, en við von-
umst til að fá 30-40 bíla í keppnina í
ár. Ég hvet því þá sem ætla að taka
þátt í keppninni að hafa samband
Steingrímur Ingason, framkvæmda-
stjóri Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykja-
víkur.
fyrir kl. 16.00 þann 22. apríl, því þá
rennur skráningarfrestur út."
Hver er tilgangur keppninnar?
„Höfuðáhersla er lögð á eyðslu-
magn bifreiða miðað við eðlilegan
aksturshraða. Fyrir keppni eru bíl-
arnir yfirfarnir. athuguð loftþyngd í
hjólbörðum, vifta, rafall, loftsíur
o.s.frv. Auk þess er upprunalegi
eldsneytisgeymirinn aftengdur. en
þess í stað komið fyrir aukageymi,
en hann er vigtaður með eldsneyti
fyrir og eftir keppni. Niðurstöður
keppninnar gefa fólki raunhæfa
niðurstöðu um hversu lítið bifreið
getur eytt undir eðlilegum kringum-
stæðum, ef hugsað er um að eyða
sem minnstu eldsneyti".
Hvar endar keppnin?
„Að Skemmuvegi 22, Kópavogi
við félagsheimili BIKR."
ABS