Tíminn - 18.04.1986, Blaðsíða 5
Tíminn 5
Föstudagur 18. apríl 1986
llllllllllllllllllllllll ÚTLÖND ... ... ~
Hryðjuverkaalda
beinist að Bretum
Beirut, Nicusia, London-Reuter
Eldflaugaárás var gerð í gær á
bústað breska sendiherrans í Beirut.
Þá var breskum sjónvarpsfrétta-
manni rænt þar í borg og kennsl
borin á lík þriggja breskra borgara
sem fundust rétt fyrir utan borgina.
Tveir menn sáust skjóta fjórum
eldflaugum að bústað breska sendi-
herrans í Beirut og efsta hæð hússins
varð fyrir nokkrum skemmdum án
þess þó að nokkur meiddist. Sendi-
herrann sjálfur var fjarstaddur.
Sjónvarpsfréttamaðurinn John
MaCarthy var dreginn út úr leigu-
bifreið af fjórum vopnuðum mönn-
um er hann var á leið til flugvallarins
Ueffe Elleman-Jensen, utanríkis-
ráðherra Dana, hefur lýst því yfir að
danska ríkisstjórnin verði ekki aðili
að yfirlýsingum um kjarnorku-
vopnalaust svæði á Norðurlöndum
nema með samþykki Bandaríkjam-
anna. Hann sagði í viðtali við dag-
blaðið Jyllands Posten sem birtist í
gær að önnur framvinda mála myndi
brjóta í bága við þær skuldbindingar
sem fylgdu aðild Dana að Atlantshafs-
bandalaginu.
Viðtal þetta birtist í kjölfar þess
að Lasse Budta, sem er talsmaður
danskra jafnaðarmanna í varnarmál-
Tölur frá Sameinuðu þjóðunum
sýna að 21 af 33 meðlinum SÞ frá
Suður-Ameríku hafa ekki getað
borgað gjöld sín til samtakanna fyrir
þetta ár, þar meðtalið er Perú þaðan
sem Javier Perez de Cuellar aðalrit-
ari samtakanna er ættaður.
Tölulisti þessi var sendur ríkjum
rómönsku Ameríku þann 11. mars
síðastliðinn og kom í Ijós að sum
ríkjanna skulduðu svo mikið að þau
áttu á hættu að fyrirgera rétti sínum
til að greiða atkvæði á aðalþingi
samtakanna sjálfra.
Samkvæmt reglugerð getur það
ríki sem skuldar tvö ár aftur í tímann
misst atkvæðisrétt sinn á aðalþingi
í Beirut. MaCarthy, sem er rétt
rúmlega þrítugur. hafði dvalið um
mánaðartíma í Líbanon er honum
var rænt. Enn hefur ekkert heyrst
um afdrif hans.
Þrjú lík sem fundust á yfirráða-
svæði Drúsa austur af Beirut eru
talin vera af breskum borgurum sem
hafa um skeið verið í höndum
líbanskra hermdarverkamanna.
írskur stjórnarerindreki, sem var
fenginn til að skoða líkin í gær, kvaðst
telja víst að um fyrrnefnda einstak-
linga væri að ræða.
Fregnir frá Kýpur herma að hugs-
anlegt sé að allir breskir borgarar
um, lýsti því yfir að Danir ættu að
vera aðilar að kjarnorkuvopnalausu
svæði á Norðurlöndum með eða án
fyrra samþykkis Bandaríkjamanna.
Hingað til hafa þær ályktanir sem
danskir jafnaðarmenn hafa staðið
að í þinginu um þetta efni byggst á
því að tryggingar fengjust frá Banda-
ríkjamönnum og Sovétmönnum.
Uffe Elleman-Jensen lét þess get-
ið að ef stæði til að koma í gegnum
þingið nýjum ályktunum sem stöng-
uðust á við aðildina að Atlantshafs-
bandalaginu, þá yrði að gera ráð
fyrir nýjum þingkosningum.
samtakanna sem næst kemur saman
þann 28. apríl næstkomandi til að
ræða um efnahagsvandamálin í
heiminum.
Perez de Cuellar sagði SÞ eiga á
hættu að ná ekki inn um 100 milljón-
um bandaríska dala á þessu ári en
heildarvelta samtakanna er alls um
880 milljónir dala á ári.
Hann hvatti starfsfólk og starfs-
nefndir samtakanna til að skera
niður útgjöld sín því 75% af fjár-
magni SÞ ku fara í greiðslur til
þeirra. Einnig varaði Cuellar sendi-
fulltrúa hjá samtökunum við því að
hætta þyrfti jafnvel við sumar ráð-
stefnur og annað slíkt þetta árið.
sem dvelja í Líbanon verði fluttir
þaðan. Mjög hefurboriðá viðtækum
öryggisráðstöfunum í breskum her-
stöðvum á Kýpur.
írsk kona var handtekin á Heat-
hrow-flugvelli í gær er hún hugðist
fara um borð í Boeing 747 þotu
ísraelska flugfélagsins El A1 með
sprengju sem vóg um 5 kg. Dráps-
tækið var falið undir fölskum botni í
ferðatösku. Konunni fylgdi maður
að nafni Nezar Hindawi sem forðaði
sér á hlaupum er öryggisverðir urðu
sprengjunnar varir. Konan hefur að
sögn verið í vinfengi við Hindawi í
um eitt ár og ekki er enn Ijóst hvort
að hún vissi um sprengjuna í tösk-
unni eða hvort félagi hennar hugðist
beita brögðum til að ná markmiði
sínu. Lögregluyfirvöld í Bretlandi
hafa staðfest að um tímasprengju
var að ræða og líklega hefði hún
sprungið er flugvélin var í lofti.
Líbýa:
Gífurleg
vatnsveita
í smíðum
Stjórnvöld í Líbýu eru nú að
láta byggja geysilegt áveitukerfi
sem tilbúiö mun koma til með að
flytju tæplega 600 milljónir lítra
af vatni á dag. Þctta vatnsmagn
mun verða flutt frá eyðimörkum
Suður-Líbýu til Iandbúnaðarhér-
aðanna í norðri. Verkefni þetta
er stærsti hlutinn í áætlunum
Gaddafis forseta og stjórnar h;ins
cr miða að því að breyta Líbýu í
gróðri þakta eyðimerkurparadís.
Fyrir rúmlega áratug síðan
fundu jarðfræðingar út að eyði-
rnerkur Suður-Líbýu geyntdu í
sér gífurlegt magn af vatni -
magn sem samsvarar heildarflæði
Nílarfljóts yfir tvö hundruð ár.
Gert er ráð fyrir að vatnspípur.
er hver vegur um 80 tonn, muni
verða tengdar saman til að flytja
eitthvað af þessu vatni til svæða
við Sidraflóinn í Norður-Líbýu.
Fyrirtæki frá Suður-Kórcu
vinnur nú að fyrsta hluta þessa
vcrkefnis sem reyndar er stærsta
byggingaverkefni sem einkafyrir-
tæki hefur fengið.
Hætt er við að verkefni þetta
eigi langt í land, sérstaklega eftir
að bandarísk stjórnvöld fóru að
beita sér fyrir efnahagsþvingun-
um í garð Líbýu vegna gruns um
stuðning Líbýustjórnar við
hefndarverkamenn. Þá gætu nú-
verandi átök ríkjanna tvcggja átt
eftir að hafa áhrif á þessa
framkvæmd.
Kjarnorkuvopn
í kosningum?
Kaupmannahöfn-Reuter
Ríki Suður-Ameríku hjá SÞ:
Standa flest
ekki í skilum
Sameinuöu þjööirnar-Reuter
Bandarísk blöð
gagnrýna gagnrýni
New York-Reuter
Reagan, forseti Bandaríkjanna,
mun að öllum líkindum gera lítinn
stuðning ýmissa Evrópuríkja við
loftárásina á Líbýu að umtalsefni á
fundi sjö leiðtoga iðnríkja í Tókýó í
næsta mánuði. Að sögn háttsetts
embættismanns í Hvíta húsinu mun
Reagan leggja áherslu á að baráttan
gegn hryðjuverkum eigi ekki að
koma einvörðungu í hlut Banda-
ríkjamanna.
í kjölfar loftárásarinnar hafa flest
dagblöð í Bandaríkjunum gagnrýnt
harkalega viðbrögð flestra v-evr-
ópskra ríkisstjórna við atburðunum.
í New York Times í gær var bent
á að árásin á Líbýu væri ekki síst
afleiðing af því að einstök Evrópu-
riki hefðu ekki viljað taka á vandan-
um með öðrum hætti. Varað er við
því að hin neikvæðu viðbrögð gætu
orðið þess valdandi að frækornum
sundurlyndis yrði sáð í samstarfið
innan Atlantshafsbandalagsins.
í Washington Post var aðstoð
Breta við árásina sérstaklega þökk-
uð og hún borin saman við afstöðu
Frakka.
í The Los Angeles Daily News
voru Frakkar atyrtir fyrir að hafa
ekki leyft bandarísku flugvélunum
að fljúga í franskri lofthelgi og sagt
að það væru litlar þakkir fyrir það
bandaríska blóð sem úthellt var í
Frakklandi í síðari heimsstyrjöld-
inni.
Nú skulu íranskar konur grípa til vopna og æfa sig í stríðsbrölti. Það vill
Khomeini.
Konur grípa
til vopna
Konur hvattar til að skrá sig til herþjónustu
- þurfa þó samþykki karla sinna
Teheran-Rculcr
Iranskar konur geta nú skráð sig
til herþjónustu en þó einungis með
samþykki karlmanna innan fjöl-
skyldna sinna.
Dagblöð í Teheran skýrðu frá því
í gær að um milljón unisóknar-
eyðublöð lægju nú frammi og búist
væri við að um hálf milljón kvenna
myndi skrá sig í „hreyfisveitir“ bylt-
ingahersins.
„Samkvæmt trúarreglum verður
hluti umsóknarinnar að verða fylltur
út af eiginmanni ellegar umráða-
manni viðkomandi konu,“ sagði í
einu blaðanna.
Heræfingar munu hefjast strax á
laugardag í sumum af hinum tvö
þúsund „Zahrastöðvum". Zahra er
titill sá er Fatima, dóttir
Múhammeðs sjálfs, hafði.
Reyndar hafa margar konur þegar
gengið í gegnum hernaðarþjálfun en
sá fjöldi á eftir að aukast verulega á
næstu vikum. Ástæðan er ræða
Khomeinis trúarleiðtoga í síðasta
mánuði þar sem hann hvatti konur
til að skrá sig í herþjálfun í því skyni
að geta varið land sitt. Ekkert hefur
enn verið minnst á að senda konurn-
ar á vígstöðvarnar við Persaflóann
þar sem stríðsátök írana og fraka
eru hvað hörðust.
Herþjálfunin mun taka viku fyrir
konur er gista í búðunum en tvær
vikur fyrir þær sem koma frá heimil-
um sínum. Vopnameðferð- og
skyndihjálp verða helstu þættirnir í
þjálfuninni.
Kartöflu- og
grænmetis ráðstefna
á Hótel Sögu þriöjudaginn 22. apríl kl. 9.30 til
17.00. Ráðstefnan er haldin á vegum Búnaðarfé-
lags íslands og Stéttarsambands bænda. Flutt
verða erindi um flokkun og mat garðávaxta,
geymslu, meðferð og innflutning þeirra.
Skipst verður á skoðunum og kynnt viðhorf
hagsmunahópa. Öllum er frjálst að taka þátt í
ráðstefnunni en óskað er eftir að þátttaka sé
tilkynnt í síma 19200 hjá bændasamtökunum fyrir
22. apríl.
Bændasamtökin
t
María Guðmundsdóttir,
frá Mýrarkoti i Grímsnesi,
Ártúni 13, Selfossi,
lést 13. apríl. Útförin ferfram frá Selfosskirkju laugardaginn 19. apríl
kl. 11.00 árdegis.
Fyrir hönd aðstendenda.
Kristjana Sigmundsdóttir.