Tíminn - 18.04.1986, Side 6

Tíminn - 18.04.1986, Side 6
6 Tíminn Föstudagur 18. apríl 1986 í okurmálinu Athygli hefur vakið sú ákvörðun að gæta nafnleyndar í svonefndu okurmáli. Ástæður hennar eru taldar þær helstar að margir af þeim sem þar eiga hlut að máli hafi brotið svo lítið af sér að engin ástæða sé til að sverta mannorð þeirra og nafnbirting komi niður á þeirra ættingjum. Auðvitað er það svo að nafnbirting kemur sér illa fyrir þann sem brotið hefur af sér og ástæða er til að gæta hófs í þeim. Hinu má samt ekki gleyma að okurmálið er sérstætt á margan máta. Fullyrt hefur verið að því tengist háttsettir menn, fjársterkir einstaklingar sem vissu fullkomlega um brotlegt athæfi sitt og venjulegir borgarar. Listi yfir þá sem aðild eiga að málinu er langur og brotin misjöfn. F»að hlýtur að vera kappsmál þeirra sem að ósekju eru bendlaðir við okurmálið að fá sig hreinsaða afgrun. Háttsettir einstaklingar eiga ekkert meiri rétt á nafnleynd en þeir sem lægra eru settir og á margan máta er brot þeirra mun alvarlegra. Talað er um spillingu í þjóðfélaginu og vissulega má hana finna hér sem annarsstaðar. Nafnleynd í þessu máli ýtir undir þann orðróm. Á fámennum stöðum kann nafnbirting að vera viðkvæmari en þar sem hægt er að hverfa í fjöldann. Það má þó heita undarlegt ef á fámennum stöðum er ekki þegar vitað hverjir hinu seku eru. Sagan berst hús úr húsi og ef til vill lítið brot verður að enn stærra broti sé málið ekki upplýst eftir venjuleg- um leiðum. Það er því spurning hverjum sé verið að gera greiða með nafnleynd. í okurmálinu voru brotin landslög. Margir græddu mikla fjármuni af venjulegu fólki sem sá ekki aðra leið til að bjarga fasteignum sínum eða fyrirtækjum en að ganga okrurunum á hönd. Þetta fólk svo og aðrir landsmenn eiga fullan rétt á því að vita hverjum má treysta í viðskiptum og hverjum ekki. Skattsvik hafa lengi tíðkast hér á landi og þau eru svo algeng og í reynd viðurkennd að þau þykja af mörgum sjálfsögð. Ef okurmálið og afleiðing þess á að vera feimnismál dómstóla og upplýst í leynd, kallar það á frekari brot af þessu tagi. Vera má að í framtíðinni verði okurlána- viðskipti þá talin jafn sjálfsögð og skattsvik. Feir sem þessu máli tengjast geta sjálfum sér um kennt hvernig komið er. Ekki verður öðru trúað en að þeir sem lögðu peninga til starfseminnar hafi vitað fullkomlega hvað til stóð. Full ástæða er fyrir stjórnvöld að fylgja þessu ináli eftir. Þeirra er að kveða niður orðróm um spillingu og rotið þjóðfélag. Það verður ekki gert nema ákveðið sé tekið á málum, þessu sem öðrum. Óánægja ríkir með skiptingu tekna í þjóðfélaginu og mikii umræða hefur átt sér stað um fátækt hér á landi. Vitað er að á meðan margar fjölskyldur ná ekki endum saman í rekstri heimilanna, þrátt fyrir langan vinnudag geta aðrir leyft sér að gera það sem þeir vilja. Hafi þeir hinir sömu notað til þess fjármagn sem illa er fengið og brotið landslög hvað það varðar er engin ástæða til að þeim sé hampað áfram. GARRI Hvort er það Geir eða Þorsteinn? Sverrir Hermannsson, iðnaðar- ráðherra, skrifar skondið opið bréf til Matthíasar Johannessen, rit- stjóra í Mbl. sl. sunnudag. Skal nú fyrst vikið að niðurlagi bréfsins, sem hljóðar svo: „Að öllu gamni slepptu, Matthí- as, þá er óðagotið og llumbru- gangurinn í mér í máli þessu ekki vegna þess að ég viti ekki hvernig átakaminnst er að haga sér. Best er að látast vilja gera allt fyrir alla í einu og cftir þeirra óskum. Margur maðurinn hefur komist langt í okkar flokki með því móti og jafnvel á toppinn. (l.eturbr. Tímans) Menn eiga að síga settlega fram í hægðum sínuin og gerast allra vinir og gagn en ekki vera með óðagot og flumbrugang, sem getur komið illa við einhvern, svo að hann hættir að kjósa flokkinn þinn.“ (Leturbr. Tímans) Nú vita allir að „toppuriun" á Sjálfstæðisflokknum er formaður hans. Það er augljóst að Svcrrir á hér ekki við Jón Þorláksson, Ólaf Thors, Bjarna Benediktsson eða Jóhann Hafstein. Þeir voru ckki menn lítilla sanda og lítilla sæva. En þá eru bara tveir eftir. Þcir Þorstcinn og Geir. Annar hvor þcirra hlýtur að vera formaðurinn, sem sígur fram settlcga játandi óskum allra. En hvor þeirra? Á Svcrrir kannski við þá báða? Geir. Þorsteinn. Sverri Hermannssyni er tamara að tala í orðskviðum og spakmæl- um en gátum. Væri nú ekki réttara að Sverrir, sem kallaður var skelli- kjaftur hér á árum áður, héldi óbreyttum stíl sínum og upplýsti þjóðina skýrt og skorinort um hvcrjir hinir settlegu allra-vinir og hægðamcnn Sjálfstæðisflokksins eru? Þá eru athyglisverð allra síðustu niðurlagsorð opna bréfsins: „að kjósa llokkinn þinn“ segir hann við Matthías. En þetta minnir okk- ur enn á, að Sverrir er alveg í séHlokki. Flumbra Meginefni opna bréfsins til incistara Matthíasar er hins vcgar vörn Sverris í námslánamálinu í 5 tölusettum liðum. í öllum liðunum flmm eru lykilorðin: flumbrugang- ur og óðagot. Kveinkar Sverrir sér sáran yflr gagnrýni á framgöngu Sverrir. hans í málinu. Sannleikurinn er sá, að Sverrir fór offari í upphafl þessa máls. Hann skellti skollaeyrum við aðvörunum Framsóknarmanna, scm lögðust gegn málatilbúnaði Sverris en sérstaklega þó málflutn- ingi hans. Sem betur fer virðist Sverri loks Ijóst, að í þessu máli verður að sýna skilning, lagni og hógværð í málflutningi. Þetta er manninum bara ckki lagið og liann getur sjálfsagt ckkert að því gert: Þótt náttúran sé lamin með lurk leitar hún út um síðir. í þessari málsvörn sinni fyrir hástóli meistara Matthiasar kallar hann andstæðinga sína í lánasjóðs- málinu „gapuxa“. Hinu áttar hann sig sjálfsagt ekki á að grein hans, öndvert við tilganginn, er í raun beiðni til þjóðarinnar um að hún festi við hann viðurnefnið flunibra, (Flumbra: fljótfær maður: kjafta- skjóða. fsl. orðab.) Garri. VÍTTOG BREITT Flókið skattkerfi býður svikum heim 37 af hundraði sjálfstæðra at- vinnurckenda hafa ekki meiri tekj- ur en svo að þeir lenda undir fátækramörkum. Á fyrra ári var 6.7 milljörðum króna skotið undan skatti. Þjófar hirtu 11% af inn- heimtum söluskatti og nemur sú upphæð á annan milljarð króna. Tekjutap ríkissjóðs var árið 1985 3.7 til 4,2 milljarðar króna. Launaþrælum til glöggvunarskal á það bent að 1 milljarður er 1000 milljónir króna. Svona er ástatt í þjóðríkinu á íslandi á sama tíma og verið er að draga úr öllum framkvæmdum, opinberir aðilar skera öll útgjöld við nögl og nýrra tekjuleiða er ákaft leitað. Ár eftir ár er því lofað að afnema tekjuskatt en vegna þröngrar fjárahagsstöðu ríkissjóðs er aldrei hægt að standa við það, enda auðvelt að hirða launin af þeim sem á annað borð gefa þau upp, en það eru fyrst og fremst þeir sem vinna hjá öðrum og eiga ekki annarra kosta völ en að telja heið- arlega fram til skatts. Pvlikið og lengi er búið að tala um stórfelld skattsvik og grófan sölu- skattsþjófnað, en lítið hafst að til að koma í veg fyrir ósómann. Þær tölur sem hér voru nefndar eru teknar beint frá fjármálaráðherra en hann fékk þær aftur á móti frá þingskipaðri nefnd, sem falið var að meta skattsvikin. 1 áliti nefndarinnar kcmur m.a. fram, að virkasta leiðin til að koma í veg fyrir skattsvik sé að gera skattalög einfaldari. Þetta vita allir nema skattasér- fræðingar og alþingismenn, og hafa vitað lengi. Söluskattslögin eru í sjálfu sér einföld. En með margvíslegum breytingum, undanþágum og reglugerðarákvæðum verða sölu- skattsskilin flókin og erfitt er að hafa eftirlit með, hvort skatturinn skilar sér eða ekki. Með því að einfalda skattinn og sleppa undan- þágum væri erfiðara fyrir þjófana að stinga á annan milljarð af skatt- peningum í eigin vasa. Aðrir skattar eru enn erfiðari í innheimtu, enda skattalögin svo margþvæld af margs kyns breyting- um að það er ekki á annarra færi en löggildra sérfræðinga að ganga frá skattaframtölum. Niðurstöður ncfndarinnar sem fjármálaráð- herra vitnaði til bendir á að ein helsta ástæða skattsvika sé flókið skattkerfi með óljósum mörkum milli liins löglega og ólöglega og frádráttar- og undanþáguleiðir séu margar. Það er ekki ónýtt fyrir fjármála- ráðherra að standa í ræðustóli á Alþingi og skýra frá því að 6,5 milljörðum króna sé skotið undan skatti og að 11% af söluskatti, sem er ein helsta fjáröflunarleið ríkis- sjóðs, lendi í vösum þeirra sem eiga að innheimta. Hér er svo stórfellt misferli á ferðinni að full ástæða er til að gera gangskör að því að ná inn þessum tekjum og jafnvel að endurskoða fjárlög, enda virðast þau meira og minna marklaus þar sem skatt- heimtan er í molum. Fjármálaráðherra hlýtur að sjá sóma sinn í því að vinda bráðan bug að því að koma skattalögum í nothæft horf. Það er ekki hægt fyrir sjálfstætt ríki að druslast með skattalög sem eru svo þvæld og bjöguð að umtalsverður hluti skatt- tekna lendi í ræningjahöndum. En þeim mun harðara er gengið að þeim sem enga möguleika hafa á að stela opinberu fé, eða hafa kannski engan áhuga á því. Það er á mörkunum að fjármála- ráðherra skuli standa uppá löggjaf- arsamkundu og skýri kinnroðalaust frá því að óljós mörk séu á milli hins löglega og ólöglega í flóknu skattakerfi. Skattalögin verður að einfalda og ganga svo frá hnútum að þau verði skilvís og réttlát. Skattaþjóf- um á að skipa á bekk með okrur- um. OÓ Timinn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAKVINNU OG FÉLAGSH YGG JU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Ritstjóri: Níels Árni Lund Auglýsingastjóri: Steingrímur G íslason Innblaðsstjóri: OddurÓlafsson Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.