Tíminn - 18.04.1986, Page 7

Tíminn - 18.04.1986, Page 7
Tíminn 7 Föstudagur 18. apríl 1986 Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri: I tilef ni greinar Harðar í Holti, vandinn séður úr sveitum Höröur Sigurgrímsson bóndi í Holti skrifar í Tírnann 10. þessa mánaðar og gerir athugasemdir viö grein Hákonar Sigurgrímssonar framkvæmdastjóra Stéttarsam- bands bænda, er birtist fyrir pásk- ana. Ekki fer cg að svara ásökunum í garð Stéttarsambandsins og Fram- leiðsluráðs og þeirra manna er hjá þeint vinna, til þess eru þeir sjálfir færastir. Það er einkum síðasta málsgreinin í máli Harðar sem er umhugsunarefni fyrir alla sem vinnum fyrir bændasamtokin, en þar stendur: „Það hættulegasta sem ég hef orðið var við á síðustu vikum er vantraust manna á starfinu í „Hús- inu" Stéttarsambandi, Framleiðslu- ráði og Búnaðarfélagi íslands, sem þenst út og gengur illa að vera okkur samstíga. bar liggur mikil hætta, sem þið verðið að bregðast rétt við." Parna kemur Hörður að mikil- vægu atriði sem varðar öll samtök bænda og alla bændur. Ef þeir, sem vinna fyrir bændur og er stjórnað af kjörnum fulltrú- um bænda. njóta almennt ekki trausts bændanna þá er illa komið. Ef kjörin forysta bændasamtak- anna scm markar stefnuna og stjórnar framkvæmd hennar nýtur ekki trausts bændanna þá cr mikið að. Nú gctur vantraust það sem Hörður telur sig finna fyrir stafað af vanþekkingu- og vanþekkingin stafað af því að málin og störfln hafa ckki verið kynnt nægilega vel. Það er vissulega umhugsunarefni bæði fyrir bændasamtökin og ein- staka bændur, hvern og einn sem lætur sig mál stéttarinnar varða. Búnaðarfélag íslands þenst ekki út Jafnvel Hörður í Holti, sem Þó að vissulega kreppi að hinum hefðbundnu búgreinum, má ekki slaka í því starfi sem unnið hefur verið að um áratugi, að bættri og tryggari ræktun, að bættri fóðuröflun, að skynsamlegri fóðrun og betri og meiri afurð- um eftirgripo.s.frv. Allt stefnir þetta að hag- kvæmari framleiðslu. þekktur er að áhuga og glögg- skyggni þekkir ekki bctur en það til starfa Búnaðarfélags íslands að hann fullyröir að það þenjist út. En það er alrangt. I ljá Búnaðarfélagi íslands hefur ekki orðið fjölgun á starfsfólki, hvorki ráðunautum cða öðrum starfsmönnum hin síðari ár. Tala ráðunauta er því nær sú sama og fyrir 10 árum. En verkcfnum hefur fjölgað með þeim breytingum, sem hafa orðið og eru að verða á landbúnaðinum. Megin vcrkefni Búnaðarfélags ís- lands er að vinna að leiðbeiningum og með þeim að hvers konar fram- þróun í búskap. Að þessu er unniö í samvinnu við búnaðarsambönd- in. önnur félög bænda og einstaka bændur. Síðustu áratugina het'ur hlutur búnaðarsambandanna í leiðbeiningaþjónustunni farið verulega vaxandi. Pað er í sam- ræmi við stefnu sem ntörkuð er af Búnaðarþingi og Búnaðarfélag Is- lands hefur fylgt. Búfjárrækktin er mjög gildur þáttur í starfsemi leiðbeininga- þjónustunnar. Grunnur hennar er skýrsluhald einstakra bænda. án þess væri ekki um neina starfsemi að kynbótum og öðrum framförum að ræða. Þó að vissulega kreppi að hinuni heíöbundnu búgreinum. má ekki slaka á því starfi sem unnið hefur verið að um áratugi, að bættri og tryggari ræktun, að bættri fóðuröfl- un, -aö skynsamlegri fóðrun og betri og meiri afurðum eftir grip. o.s.frv. Allt stcfnir þetta að hag- kvæmari framleiðslu. Sent betur fer hefur tekist að hagræða mjög störfum að lciðbcin- ingaþjónustunni, einkum nteð mjög víðtækri notkun á tölvum við hvers konar skráningu og vinnslu gagna, að þrátt fyrir nær óbrcyttan mannafla hefur tekist að sinna Að sjálfsögðu á ekki að kveinka sér undan gagnrýni á störf þeirra forystumanna sem bændastéttin hefur valið sér - og að sjálf- sögðu hljóta störf þeirra sem til þess eru ráðnir að vinna fyrir bændasamtökin að geta sætt gagnrýni. vcrulega nýjum verkefnum, án þess að vanrækja cldri verkefni. Loðdýraræktin er gleggsla dæm- iö um þetta. Tveir af ráöunáutum Búnaðarfélags íslands sinna loð- dýraræktinni nú alfarið og tveir aörir að verulegum hluta. Með samvinnu B.í. SÍL búnaðarsam- bandanna og bændaskólanna hefur verið unniö mjög öfluglega að fræðslu og leiðbciningum um loð- dýrarækt. Héraðsráöunautar hafa margir hlotið þjálfun’og kynnt sér loðdýrarækt rækilega og komið hefur verið upp kerfisbundinni leiöbeiningaþjónustu lyrir loð- dýrabændur á vegum allra búnað- arsambanda, þar sem loðdýrarækt er stunduð að einhverju marki. Tölvuvæðingin í leiöbeininga- þjónustunni er annað þróunar- verkefni sem Búnaöarfélag íslands hefur leitast við að styðja og bún- aðarsamböndin vinna nú ötullega að. Þá mætti nefna starfsemi á sviði bættrar nýtingar hlunninda stuðn- ing viö íerðaþjónustu o.fl.. þar scnt verið er að leita nýrra leiða. Ekki þarf að taka það fram að allir ráöunautar B.í. hafa mikil og fjölþætt samskipti við bændur. Þau samskipti, sem nær undantekning- arlaust eru hin ánægjulegustu, eru ráöunautunum bráðnauðsynlcgur aflgjafi til starfa. Samskipti B.l. við bændur. búnaðarfélög og bún- aðarsambönd eru svo margþætt að erfitt er að átta sig á aö menn séu ekki samstiga. Skal þá ekki farið fleiri orðum um þaö sem lokaorðin í grein Haröar kölluðu fram í hugann, cn ekki er því að leyna að tónninn í grein lians finnst mér um margt u m h ugsu na rve rð u r. Aö sjálfsögðu á ekki að kveinka sér undan gagnrýni á störf þeirra lórystumanna sem bændastéttin hel'ur valið sér - og að sjálfsögðu hljóta störf þeirra sem til þess eru ráðnir að vinna fyrir bændasamtök- in að geta sætt gagnrýni. En þar sem nefnd eru nöfn ntanna eins og Gunnars Guðbjartssonar og Árna Jónassonar og jafnframt rætt um að skort liafi yfirsýn og látið að því liggja að ekki hafi verið unnið að lullri trúmennsku að framkvæmd þeirra stefnu sem samtökin hafa mötað, þá er tæplega hægt að láta orða bundist. Hægt er að fullyrða að vandfundnir væru þeir menn sem hefðu meiri yfirsýn yfir hag bænda og aðstæöur um allt land, í öllum svcilum og héruðum landsins, en þcssir tveir starfsmenn bændasamtakanna. Um trú- mennskú þeirra elast cnginn. Spyrja mætti: Er sá hættulegi trúnaðarbrestur, sent Höröurtelur sig finna fyrir hcndi? Eöíi er Hörð- ur nteö niörandi orðalagi um slarl- semina í „Húsinu". að sá Iræjum tortryggni, sem leitt gætu til trún- aðarbrests? Vonandi ekki. Jónas Jónsson. 1111111111 TÓNLIST 1! Illlllllllllllllllllllll! lllllll ílilr: llil Tvennir kammertónleikar Kammersveit Reykjavíkur stóð fyrir tónleikum í Áskirkju í Laugar- ási 23. mars þar sem fluttur var blásarakvintett og tveir strengja- kvartettar. Kvintett skipaður þeint Martial Nardeau (flauta), Kristjáni Þ. Stephensen (óbó), Sigurði I. Snorrasyni (klarinetta), Birni Árnasyni (fagott) og Þorkeli Jóels- syni (horn) flutti „Kleine Kammermusik fur funf Blaser" nr. 2, op. 24eftir Paul Hindemith (1895- 1963) af mikilli íþrótt. Stundum finnst mönnum Hindemith ekki sér- lega skemmtilegur, en svo er ekki um þetta verk. Þeir Kristján og Sigurður eru þegar fyrir löngu komn- ir í hóp meiri háttar blásara þjóðar- innar, en hinir þrír eru mismunandi nýlega komnir til starfa: Þorkell hefur verið þeirra mest áberandi og er orðinn jafnbesti hornleikari þjóð- arinnar, Martial Nardau er mjög fínn flautuleikari sem hefur tekið allmikinn þátt í kammertónlist hér undanfarin ár, auk þess að spila í hljómseit íslensku óperunnar og e.t.v. fleiri hljónisveitum - hann reyndi sig meira að segja í jazzi á tónleikum í haust, en hefur full „heitan“ tón til að mér líki hann alls kostar á þeim vettvangi. Björn Árnason er tiltölulega nýkominn til starfa, og lofar mjög góðu sem fagottleikari nteð þéttan og fallegan tón og örugga spilamennsku. Tvö síðari verkin voru strengja- kvartettar, op. 51 í c-moll eftir Brahms og op. 7 eftir Bartók. Kvart- ettinn skipuðu Rut Ingólfsdóttir og Charles Berthon (fiðlur), Helga Þórarinsdóttir (lágfiðla) og Arnþór Jónsson (knéfiðla). Öll eru þau í Sinfóníuhljómsveit íslands, og a.m.k. þær Ruý og Helga meðal reyndust og ágætustu kammerspilara vorra; þeir Charles Berthon og Arn- þór eru ýmist ungir eða óþekktir, en ekki verri listamenn fyrir það. Flutningur þessara tveggja kvart- etta, sem báðir eru meiri háttar, var mjög fullkominn og ánægjulegur. Eins og aldrei verður of oft endur- tekið er strengjakvartettinn eitt hið fullkomnasta form kammertónlistar, og þátttaka í flutningi sem þessum allt að því trygging listamannsins fyrir því að vaxa í list sinni, þannig að á tónleikum sem þessum „græða allir" í listrænum skilningi, bæði flytjendur og hlustendur. Þrjú tríó Kammermúsíkklúbburinn hefur um hríð snúið athygli sinni að tríóinu í ýmsum myndum þess, og raunar unnið að því að koma upp föstu tríói. Fyrr í vetur lék strengjatríó fyrir félaga klúbbsins, en 7. apríl var það píanótríó, skipað Halldóri Haralds- syni (píanó), Guðnýju Guömunds- dóttur (fiðla) og Gunnari Kvaran (knéfiðla), sem skemmti félögum klúbbsins fyrir fullu húsi á Kjarvals- stöðum. Hvað sveiflum í aðsókn veldur væri vafalaust mjög verðugt rannsóknarefni fyrir félagsfræðinga, ef draga mætti af því lærdóm um skipulagningu tónleika. Hér kann það að hafa valdið, að ofangreindir listamenn eru yfirleitt taldir hvað fremstir í sinni grein hér á landi. Er því mikils af tríóinu að vænta, haldi félagar þess áfram að leika saman. Sem þau ættu endilega að gera. Á efnisskrá voru þrjú píanótríó, op. 1. í Es-dúr eftir Beethoven, op. 67 í e-moll eftir Sjostakóvits, og op. 8 í H-.dúr cftir Brahms. Píanótríóin þrjú op. 1 samdi Beethoven þegar hann var 23-25 ára, og var í tímum hjá Haydn. Haydn var sjálfur að hrista píanótríó fram úr erminni um þessar mundir, og samdi 10 slík, ásamt með ýmsu öðru, á þeim tíma sem það tók Beethoven að semja þessi þrjú. Haydn leist síðan ekkert á tríó nemandans, sérstaklega c-moll tríóið sem hann ráðlagði honum að gefa ekki út, Beethoven til mikillar hneykslunar, því hann vissi sem var að það var best hinna þriggja. Haydn þóttu verk nemandans of framúr- stefnuleg og tilfinningarík, að því er sagan segir. En hafi honunt þótt þessi tríó „ódönnuö" - Es-dúr tríóið minnir raunar talsvert á Mozart - hefði honum sjálfsagt orðið álíka bumbult af 3. sinfóníunni og Goethe varð, en hann var studdur út í táraflóði cftir þrjá fyrstu taktana. Sjostakóvits er vafalítið eitt helsta tónskáld þessarar aldar, og þetta tríó hans (frá 1944) er sérkennilegt og áhrifamikið, hefst á undarlegu yfirtónaspili í knéfiðlunni, og yfir- lcitt er verkið með sorgarhljómi, enda samið í minningu vinar tón- skáldsins. Síðast kom H-dúr tríó Brahms op. 8, samið 1854. Brahms var ákaflega vandlátt og vandað tón- skáld sem lcit á sig sem eftirmann Beethovens, en þó ekki jafnoka, og tók þá stöðu afar alvarlega sem vonlegt var. Sumum þykir hann þungur og leiðinlegur; aðrir finna í tónlist hans hin fegurstu stef, sorg og gleði, dansog drauma. Brahms reyn- ir líklega meira á flytjendur en flest önnur tónskáld, vcgna þess hve dásamleg tónlist hans getur verið þegar vel tekst til, en hve leiðinleg hún gctur líka verið þegar illa tekst til. Án þess ég geti skilgreint það frekar, þótti mér tríó þeirra Halldórs, Guðnýjar og Gunnars spija mjög vel og vandað, en samt vanta herslumun á að þetta væru stórkostlegir tónleikar - en slíkt fer að sjálfsögðu eftir hverjum áheyr- anda ekki síður en flytjendum. Sig.St.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.