Tíminn - 18.04.1986, Qupperneq 11
Tíminn 15
Föstudagur 18. apríl 1986
ÍÞRÓTTIR
llllllllllllllll
Heimsmeistarakeppnin í íshokkí:
Hrun heimsmeistaranna
Tékkar hafa aðeins hlotið eitt stig á meðan Sovétmenn eru með fuilt hús
Nú stendur yfir í Moskvuborg í
Sovétríkjunum heimsmeistara-
keppnin í íshokkí. Margt skrýtið
hefur gerst í þessari keppni og ber
auðvitað hæst hinn hörmulegi árang-
urTékka, núverandi heimsmeistara.
Tékkar hafa aðeins hlotið eitt stig í
fyrstu fjórum leikjum sínum og það
gegn veikum andstæðingum svo sem
Pólverjum og V-Þjóðverjum. Svíar
hafa komið á óvart með góðum
leikjum. Þeir hafa aðeins tapað fyrir
Sovétmönnum sem einnig hafa kom-
ið dálítið á óvart með því að vinna
alia andstæðinga sína til þessa.
Það eru átta þjóðir sem spila á
HM í íshokkí og eftir að allir hafa
spilað við alla þá keppa fjögur efstu
liðin sín á milli um heimsmeistara-
tignina en fjögur neðstu liðin slást
um að halda sér í A-flokki. Eins og
staðan er í dag þá eru Sovétmenn
næsta vísir í úrslitakeppnina ásamt
Finnum, sem sjaldan hafa byrjað
HM betur, Svíum sem hafa m.a.
unnið Bandaríkjamenn, Kanada og
Tékka. Þá slást Kanadamenn og
Bandaríkjamenn um sæti í úrslitun-
um. Bæði þessi lið eru skipuð ungum
leikmönnum sem spila flestir með
háskólaliðum í Bandaríkjunum og
Kanada.
Áður en HM hófst voru sér-
fræðingar í íshokkí á einu máli um
að Sovétmönnum myndi ekki ganga
eins vel og oftast á HM. Voru
margar ástæður gefnar fyrir m.a. sú
að engin endurnýjun hefði átt sér
stað hjá liðinu. Sovétmenn hafa nú
hrakið allar þessar spár og byrjað
með glans.
Bandaríkjamenn eiga sókndjörf-
ustu leikmennina á mótinu og þá
markahæstu. Þeir eru Brett Hull
scm spilar með Minnesota Duluth
háskóianum og Butsy Ericson. Þegar
fjórar umferðir eru búnar á HM er
staðan þessi:
Sovótmenn........... 4400 19 68
Svíþjóð............. 43 0 1 14 96
Finnland............4 2 1 1 10 11 5
Bandaríkin ........ 4 2 0 2 22 14 4
Kanada ............. 4 2 0 2 19 13 4
V-Þýskaland......... 4 1 0 3 10 24 2
Pólland ............ 4 1 03 9 23 2
Tókkóslóvakia ......4013 7 10 1
Brett Hull heitir sá í hvíta búningnum en hann er nú markahæsti leikmaður
heimsmeistaramótsins sem fram fer í Sovétríkjunu^ ^
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu:
Fjörugt jaf ntef li
- Fylkir og Þróttur skildu jöfn 2-2
Fylkir og Þróttur skiptu með sér
stigunum í Ieik sínum á Reykjavík-
urmótinu í knattspyrnu í gærkvöldi.
Honved meistari
Honved tryggði sér sigur í 1. deild
í Ungverjalandi í gær. Liðið gerði þá
jafntefli 2-2 gegn Csepel og er fimm
stigum á undan næsta liði er aðeins
tvær umferðir eru eftir. Honved
hefur þá unnið titilinn þrjú ár í röð.
Borðtennismót
Sunnudaginn 20. apríl nk.
verður Spörtumótið í hurðtennis
haldið í fyrsta skipti. Mótið er
punktamót og jafnframt hið síð-
asta fyrir Islandsmótið. Sport-
vöruverslunin Sparta gefur öll
verðlaun til mótsins og eru þau
öll hin veglegustu.
Fyrir 1. sætið. Farand- og eign-
arbikar. Verðlaunapeningar fyrir
1.-4. sæti. Vöruúttektir fyrir 1.-4.
sæti frá Sportvöruversluninni
Spörtu.
í mótinu taka þátt allir sterk-
ustu borðtennismenn landsins.
Mótið er haldið í K.R. heimilinu
og hefst kl. 15.30 á sunnudag.
Mótsfyrirkomulag er einfaldur
útsláttur.
Islandsmót fatlaðra
íslandsmót fatlaðra í boccia, bog-
fimi, borðtennis, sundi og lyfting-
uni verða haldin í Sundhöll
Revk javíkur og íþróttahúsi Sel ja-
skóla 18.-20. apríl.
Alls eru um 190 íþróttamenn
frá 14 félögum skráðir til leiks á
mótið. Koma þeir úr röðum
hreyfíhamlaðra, blindra og sjón-
skertra, þroskahcftra og hcyrnar-
lausra. Skráningar á mótið eru
um 400 talsins.
íþróttasamband fatlaðra hvet-
ur alla þá sem áhuga hafa á að
kynnast starfsemi sambandsins
að koma og fylgjast með spenn-
andi keppni. Aðgangur á mótið
er ókeypis.
Þjálfaranámskeið
Almennt knattspyrnuþjálfara-
námskeið verður haldið á Akra-
nesi helgina 26.-27. apríl. Aðal-
kennari verður Jim Barron þjálf-
ari Akraness en auk þess verða
fluttir fyrirlestrar um íslenska
knattspyrnu og íþróttameiðsl.
Námskeiðið hefst kl. 12.00 á
laugardag en kl. 14. 00 á sunnu-
dag. Þá verður væntanlega innan-
hússknattspyrnumót fyrir þjálfar-
ana. Þátttökugjald er 3000
krónur og verða tilkynningar að
berast til Harðar Helgasonar eða
Jóns Gunnlaugssonar í síma 93-
2243 eða 2326.
Hvort lið skoraði tvívegis, 2-2. Það
voru Óskar Theódórsson og Brynjar
Jóhannesson sem skoruðu fyrir Ár-
bæ'inga en Ásmundur og Sigurður
Hallvarðsson sáu um að stigin færu
í báðar áttir.
Tekinn með eitur
Langbesti tennisleikari Norð-
manna, Morten Rönneberg, var í
fyrradag handtekinn fyrir að vera
með um 10 grömm af amfetamíni á
sér. Rönneberg hefur orðið Noregs-
meistari í tennis mörgum sinnum en
hefur að undanförnu spilað á al-
þjóðamótum Alþjóðatennissam-
bandsins. Hann erekki hátt skrifað-
ur á styrkleikalistanum í tennis en
þó vel kunnur í Noregi og vekur
málið umtal mikið þar.
Bremen missti stig
Efsta liðið í I. deild knattspyrn-
unnar í V-Þýskalandi, Werder
Bremen, missti stig í gærkvöldi.
Liðið gerði þá jafntefli gegn
„Gladbach" á sínum eigin heimavelli
1-1. Bremen átti allan leikinn og
Frank Neubart skoraði sitt 20. mark
á keppnistímabilinu með góðum
skalla í síðari hálfleik. Þegar um 20
mínútur voru til leiksloka komst
„Gladbach" í sjaldgæfa sókn og
Hochstátter skoraði stöng og inn.
Bremen er nú aðeins stigi á undan
Bayern Múnchen og liðin mætast
næsta þriðjudag í mikilvægum leik.
Einn annar leikur var í deildinni.
Hannover og Frankfurt skildu jöfn
án marka og fer Hannover því niður
í 2. deild á ný.
Símon Ólafsson reynir hér einbeittur á svið að klóra í bakkann fyrir íslenska liðið í lciknuni í gær. Tímamynd-l'étur
Evrópumótið í körfuknattleik - C-riðill:
Islendingar rassskelltir
- Portúgalar unnu of auðveldan sigur á „köldum" íslendingum - hræðileg dómgæsla
„Byrjunin varð okkur að falli“
sagði Einar Bollason landsliösþjálf-
ari í körfuknattleik eftir að íslcnd-
ingar höfðu tapað illa fyrir Portúgöl-
um á Evrópumótinu í körfuknattleik
í gærkvöldi. Leikurinn endaði 77-81
en sigur Portúgala var mun öruggari
en tölur gefa til kynna. Þeir leiddu í
hálfleik 44-32.
Eins og Einar segir réttilega þá
var það hræðileg byrjun sem varð
íslenska liðinu að falli í leiknum.
Portúgalar hittu eins og brjálaðir á
meðan hvorki gekk né rak hjá ís-
lendingunum. Staðan varð fljótlega
17-4 fyrir Portarana og síðan 41-21
er hálfleikurinn var að verða búinn.
Varnarleikur íslenska liðsins var
ekki góður og sóknin enn verri. Þá
var hittnin afleit. Portúgalarnir
höfðu og mjög svo slaka dómara
leiksins á sínu bandi til að byrja með
svo ekki hálpaði það. Staðan í
leikhléi var 32-44.
Portúgalar héldu uppteknum
hætti fram í miðjan seinni hálfleik en
þá fóru fslendingar loks að saxa á
forskotið. Það var hinsvegar of seint
og ekkert fékkst að gert. Lokatölur
urðu því 77-81 og verða það að
teljast vonbrigði.
„Ég hef aldrei séð aðra eins dóm-
arasendingu" lét Einar hafa eftir sér
eftir leikinn og víst er það rétt að
þeir voru hryllilegir. Það hefur oft
verið fárast yfir smámunasemi ís-
lenskra dómara en þetta var furðu-
legt. Þeir flautuðu á 10 sekúndna
flestir. „Því má og bæta við að annar
dómaranna var norskur en fyrir
Norðmenn var mikilvægt að við
töpuðum þessum leik,“ bætti lands-
liðsþjálfarinn við.
Pálmar Sigurðsson fór á kostum í
síðari hálfleik er fslendingar voru að
berjast við að ná Portúgölunum.
Hann skoraði 31 stig í leiknum þar
af fimm þriggja stiga kröfur. Símon
Ólafsson gerði 15 stig og Matthías
gerði 8. Valur Ingimundarson skor-
aði aðeins 6 stig og öll úr vítaskotum
sem segir töluvert um frammistöðu
hans. Maður sem venjulega raðar
niður skotunum.
í síðari leiknum í gær unnu Norð-
menn Skota 76-73.