Tíminn - 18.04.1986, Blaðsíða 20

Tíminn - 18.04.1986, Blaðsíða 20
STRUNPARNIR SMUffr FftUGrmsriLLER | ferslió meÓVISA ISLENDINGAR uröu aö sætta sig viö tap fyrir Portúgölum á Evrópumótinu í körfuknattleik í Laugardalshöll í gærkvöldi. Loka- tölur leiksins uröu 77-81 en Portú- galir höföu jafnan 10-20 stiga for- skot í leiknum út í gegn. Þeir náöu snemma miklu forskoti sem islend- ingar náðu aldrei aö yfirvinna. Pálmar Sigurðsson skoraöi 31 stig í leiknum í gær en það dugöi ekki. Tíminn Félagsmálastofnun rædd í borgarstjórn: Ekki þörf á fleira fólki Minna vinnuálag næst með hagræðingu segir meirihlutinn sem felldi tillögu um fjölgun Tillaga um heimild fyrir Félags- málastofnun Reykjavíkur til að ráða þegar í stað þrjá nýja starfsmenn í hverfaskrifstofur var fclld á fundi borgarstjórnar í gær. Tillagan sem flutt var af Guðrúnu Jónsdóttur Kvennaframboði og Guðrúnu Ágústsdóttur Alþýðu- bandalagi, hlaut cinungis fylgi minnihlutaflokkanna þriggja og náði því ekki fram að ganga. í umræðum kom fram að mikið álag er á starfs- mönnum Félagsmálastofnunar og biðtími skjólstæðinga eftir fyrsta við- tali getur verið allt að sex vikur. Ástæðan fyrir því að þetta mál er tekið upp nú, ersú að félagsmálaráði hefur borist bréf frá starfsmönnum stofnunarinnar þar sem bent er á að stofnunin geti ekki sinnt hlutverki sínu vegna undirmönnunar. Yfirvinna starfsmanna stofnunar- innar á síðasta ári var sem svarar sjö og hálfu stöðugildi á ári og töldu fulltrúar minnihlutans þetta ástand óviðunandi. Fulltrúar mcirihlutans bentu hinsvegar á að vinnuálag mætti minnka með vinnuhagræðingu og að ýmsir sérfulltrúar hefðu bæst við hjá stofnuninni á síðustu árum og ættu þeir að hafa minnkað álagið, jafnvel þó þeir störfuðu ekki úti í hverfaskrifstofunum sjálfum. -BG Gleðibankastjórarnir þrír sem fara með íslenska innleggið til Bergen í maíl Evrópusöngvakeppnin " Tíma-mynd Sverrir Gleðibankinn á plötu og myndband - lagið kynnt milljónum sjónvarpsáhorfenda í Evrópu I dag, föstudag, kemur út plata þar sem söngflokkurinn Icy syngur Gleðibankann, íslenska framlagið til Evrópusöngvakeppninnar. Fað er Fálkinn sem gefur plötuna út, en hefur selt breska hljómplötufyrir- tækinu EMI útgáíurctt plötunnar í Evrópu. Söngflokkurinn Icy, sem er skipaður þeim Pálma Gunnarssyni, Eiríki Haukssyni og Helgu Möller, gerði samning við Fálkann um upp- töku og útgáfu nú um páskana, en upptökurfóru fram í London dagana 31. mars til 3. apríl. Lagið Gleðibankinn er eftir Magnús Eiríksson, en útsetningu á plötunni annaðist Gunnar Þórðar- son og stjórnaði hann jafnframt upptökunni. Á annarri hlið plötunn- Lánstími húsnæðislána í 40 ár Greiðslubyrðin úr 200 niður í 74 þús. - af 2,1 millj. króna láni fyrstu árin -Greiðslubyrðin af húsnæðislán- um ætti að léttast ntjög mikið með þeim stórbreytingum sem nú eru að verða á húsnæðislánakerfinu. Sú breyting ein að lengja lánstíma G-lána og nýbyggingarlána úr 21 og 31 ári upp í 4l) ár lækkar fasta ársgreiðslu af hverri 100 þús. króna lánsupphæð úr um kr. 7.300 af G-láni og um kr. 5.445 af F-láni niður í um 4.800 kr. framvegis. Af 1.470 þús. hámarks G-láni verð- ur fasta ársgreiðslan nú um kr. 70.560 í stað 107.300 kr. ef lánstíminn hefði áfram vcrið 21 ár. Fyrstu tvö árin þarf einungis aö borga vexti og greiðslur því lægri en hér er nefnt. En ofan á þcssar greiðslur koma hins vegar vcrðbætur á hverjum tíma. Mest mun þó greiðslubyrði flestra lækka vegnti hækkunar lána Húsnasðisstofnunar sem ætti að draga nijög úr þörf fyrir skamnt- tímalán í bönkum og önnur lán til styttri tíma og mcð hærri vöxtum en lán Byggingarsjóðs. Þannig þyrfti fyrstu 3 árin að greiða um 200 þús. á ári (auk verðbóta) af 2,1 millj. króna sem aflað væri mcð núgildandi ný- byggingarláni 1.050 þús., lífeyris- sjóðsláni upp á 500 þús. til 25 ára dg bankaláni 550 þús. til 6 ára með 5% vöxtum. Af jafnháu láni, 2,1 nrillj. frá Byggingarsjóðj er árs- greiðslan hins vegar um 73.500 þús. (auk verðbóta) fyrstu 2 árin og tæp 101 þús. úr því. Greiðslu- byrðin léttist því um nær % fyrstu tvö árin. Varðandi lán Byggingarsjóðs er reiknaö með að þau megi nenia allt að 70% af byggingarkostnaði eða kaupverði. Hámarks nýbygginga- lán miðast því við íbúð yfir 3 millj. króna og hámarks G-lán við notaða íbúð scm er metin á eða kostar yfir 2,1 millj. króna. Varðandi notaðar íbúðir dragast þegar áhvtlandi Byggingarsjóðslán frá nýja láninu. I'eim sem hyggja á byggingu eða íbúðakaup er ráðiagt að byrja á því að leita sér upplýsinga hjá Hús- næöisstofnun og h'feyrissjóðum sínum. -HEI ar er lagið flutt á íslensku en á hinni á ensku og þýddi Paul Richardson textann í samvinnu við höfundinn Magnús Eiríksson. Á ensku heitir lagið „Bank of Fun“. Samhliða plötuupptökunni var unnið myndband, en í reglum keppninnar er kveðið á um að þátt- takendur geri myndband með lagi sínu. Myndbandið er framleitt af Hugmynd hf. í samvinnu við Saga film hf. og fóru upptökur fram við Svartsengi og í upptökusal Aðstöðu, en lokavinnsla var gerð í sérstöku „tæknibrellu“ hljóðveri í London. Leikstjóri og stjórnandi upptöku var Egill Eðvarðsson og sagði hann á blaðamannafundi í gær þar sem myndbandið var kynnt, að mark- rniðið hafi verið að kynna flytjendur og lag fyrir sjálfa keppnina frekar en land og þjóð og landslagsmyndum því stillt í hóf. í myndbandinu, sem er í alla staði mjög fagmannlega unnið, kemur fram auk söngvaranna þriggja, ung Ieikkona, Svandís Þorvaldsdóttir og er hún aðeins átta ára gömul. Evrópusöngvakeppnin mun verða áberandi í dagskrá Ríkisútvarpsins á næstunni, á báðum rásum útvarps og í sjónvarpi. Myndbönd með lögum Itinna 20 þátttakenda verða kynnt í fjórum kynningarþáttum í sjónvarpi í næstu viku og verður sá fyrsti á sunnudagskvöld. Sams konar þættir verða sýndir í sjónvarpi hinna þátt- tökulandanna Nokkur fyrirtæki hafa stutt gerð myndbandsins með fjárframlögum, en þau eru Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna, Eimskipafélagið, Osta- og smjörsalan, Ferðamálaráð, Útflutn- ingsmiðstöð iðnaðarins, Landsbank- inn, Búnaðarbankinn og Samvinnu- bankinn. -BG Fyrstu nöfnin birt í okurmálinu: Átta starfs- menn Flug- leiða ákærðir Birt hefur verið ákæra í okur- málinu, sem dómtekið verður í Sakadómi Reykjavíkur á næst- unni. Átta samstarfsmönnum hjá Flugleiðum hefur verið birt ákæra, þar sem þeim er gefið að sök að hafa tekið vexti umfram það sem leyfilegt var á því tíma- bili sem peningarnir voru lánaðir. í ákærunni er mönnunum átta gefið að sök að hafa lagt Her- manni Björgvinssyni til sameigin- legan sjóð sinn sem þeir allir áttu jafna hlutdeild í, og að hafa tekið 75,5% ársvexti, þegar 18,5% vextir voru þeir hæstu lögleyfðu. Tveimur af þessum mönnum er gefið að sök að hafa lánað Hermanni Björgvinssyni fé og tekið afþviokurvexti. Málmann- anna átta verður fljótlega dóm- tekið f Sakadómi Reykjavíkur. Mennirnir heita: Sverrir Jóns- son svæðisstjóri, Karl Friðrik Schiöth skrifstofumaður, Stein- dór Reynir Jónsson flugvirki, Einar Helgason forstöðumaður, Viggó Einarsson deildarstjóri, Ásgeir Guðmundur Samúelsson deildarstjóri, Birgir Ólafsson skrifstofustjóri og Páll Þorsteins- son aðalgjaldkeri. Allir starfa mennirnir hjá Flugleiðum. í ákærunni er þeint gefið að sök að hafa alls í tuttugu og tvö skipti lánað Hermanni Björgvins- syni peningaupphæð úr sameigin- legum sjóði þeirra og haft upp úr krafsinu 663 þúsund krónur unt- fram leyfilega vexti á tímabilinu. Ásmundur Vilhjálmsson full- trúi bæjarfógeta á Ákranesi er nú að kanna hvort honum sé skylt að verða við beiðni fjölmiðla um afrit af dómnum sem kveðinn hefur verið upp í okurmálinu á Akranesi. Hann vildi ekki láta nafn mannsins uppi t' gær. _ES Sanitas SANITAS TÓMATSÓSA VELJUM ÍSLENSKT Sanitas

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.