Tíminn - 29.04.1986, Blaðsíða 1
ÓHÁÐ FRAMBOÐ er í undir-
búningi í Reykjavík fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar, og eru meginmarkmiö þess
að vægi hins almenna vegfaranda á móti
bílaumferð þyngist, strætisvagnarnir
verði studdir, tengsl hinn kjörnu fulltrúa
borgaranna við embætti og stofnanir verði
bætt, og aðstaða til útivistar verði bætt.
Ábyrgðarmaður þessa framboðs er
Sveinn Guðmundsson, verkfræðingur.
ATVINNUMIÐLUN námsmanna
tekur til starfa 2. maí en að henni standa
flest allir framhaldsskólar landsins. Mikill
fjöldi námsmanna og atvinnurekenda leita
til atvinnumiðlunarinnar árlega og i fyrra
skráðu 500 námsmenn sig hjá miðluninni.
STJÓRNARRÁÐIÐ opnar
klukkutíma fyrr á daginn eða kl. 8.00, yfir
sumarmánuóina, en lokar fyrr á daginn
eða kl. 16.00. Þetta fyrirkomulag verðurtil
30. september.
YFIRMENN Á kaupskipum hafa
boðað tveggja daga verkfall sem tekur
gildi á hádegi í dag. Sökum þessa munu
öll skip sem liggja við höfn stöðvast, en
áhrif verkfallsins munu ekki verða víðtæk
þar sem ekki er hægt að stöðva skip á
siglingu.
BROTSJÓR reið yfir togarann
Sigluvík frá Siglufirði á föstudagsmorgun-
inn, þar sem togarinn var staddur í
Víkurál. Talsverðar skemmdir urðu á
skipinu, sérstaklega í stýrishúsi og sigl-
ingatæki urðu óstarfhæf, en engan mann
sakaði. Togarinn Stálvík, sem staddur
var að sömu slóðum, fylgdi Sigluvik til
hafnar og komu togararnir til Siglufjarðar
á sunnudag.
GEGNIR 79018 var að mati
Kynbótanefndar Búnaðarfélags íslands
besta nautið sem fætt var á nautastöðinni
á Hvanneyri árið 1979, en nú liggja fyrir
upplýsingar til að afkvæmaprófa naut
sem fæddust þetta ár. Búnaðarfélagið
hefur ákveðið að heiðra árlega þann
bónda sem besta nautið í hverjum ár-
gangi er fengið frá. Gegnir fæddist á búi
Karis og Óskars Þorgrímssona á Efri-
Gegnishólum í Gaulverjabæjarhreppi í
Árnessýslu. Faðir Gegnis var Toppur
71019 frá Kastalabrekku en móðir Mús
108, sem árið 1983 var dæmd besta kýrin
i Árnessýslu á héraðssýningu. Gegnir var
sjálfur felldur árið 1981.
TVEIR SPÁNVERJAR settu
hraðamet í kjúklinga- og sniglaáti í gær.
Valentin Florentino át 2,1 kíló af kjúklingi
á 10 mínútum og 37 sekúndum. Josu
Basterretxea gleypti hins vegar 87 snigla,
er vógu samtals 1,1 kíló, á 1 mínútu og 5
sekúndum. Met þessi voru sett í borginni
Kortezubi í baskahéruðum Spánar. Sam-
kvæmt heimsmetabók Guinness áttutveir
Bretar áður heimsmetin í þessum grein-
um.
BELGÍUSTJÓRN vísaði í gær
sjö líbýskum sendiráðsstarfsmönnum úr
landi. Belgareru sjötta Evrópubandalags-
ríkið sem minnkar í sendiráðsstarfsliði
Líbýumanna í landi sínu.
EINAR BJARNASON iöq
regluvarðstjóri hefur verið kosinn formao-
ur Landssambands lögreglumanna. Fyrr-
verandi formaður, Tómas Jónsson, gaf
ekki kost á sér aftur til starfans. Einar
hefur mikið komið við sögu í kjarabaráttu
lögreglumanna. Hann var varaformaður
landssambandsins í stjórn Tómasar.
KRUMMI
Lagt til að aukatekjur bænda skerði kvóta þeirra.
„Ekki hægt að ráðskast
svona með bústofninn“
- segir Jóhannes Kristjánsson formaður félags sauðfjárbænda
Bóndi sem hefuraukatekjursem
svarar 100 ærgildum (brúttó) skal
næstliðið ár fá skertan kvóta á
aðalbúgreinina. Þetta er
tillaga svæðabúmarksnefndar
eftir að hafa gert
skoðanakönnun meðal búnaðar-
félaga og kjörmanna, um það
hversu langt megi ganga í því að
taka tillit til hlunninda, atvinnu-
tekna utan bús, annarrar búvöru-
framleiðslu, eignatekna eða eftir-
launagreiðslna þegar búmarki er
úthlutað til bænda.
„Búmarksnefnd er farin að fjalla
um tekjumöguleika bænda, en ekki
að skipta upp þeirri framleiðslu
sem hún átti að gera,“ segir Jó-
hannes Kristjánsson, formaður fé-
lags sauðfjárbænda um tillögu
þessa. Hún er núna til umræðu
ásamt fleiri tillögum um fram-
leiðslustjórnun á kjörmannafund-
um út um allt land. Jóhannes sagði
að þetta þýddi ekkert annað en
það að menn sem hefðu hlunnindi
eða aðrar tekjur gætu ekki nýtt sér
það því það væri þá bara tckið af
kvóta þeirra næsta ár. Bóndi sem
hefði tilfallandi tekjur eitt árið,
ætti með þessu móti á hættu að
missa kvóta næsta ár og þyrfti að fá
leiðréttingu á honum aftur þegar
hann hefur aukatekjurnar ekki
áfram. „Það er hreinlega ekki hægt
að ráðskast svona með bústofninn
eftir tilfallandi tekjurn," saðgi Jó-
hannes.
Nái þessi tillaga fram að ganga á
kjörmannafundum og hjá Stéttar-
sambandinu, fara þær áfram til
landbúnaðarráðherra, væntanlega
til framkvæmdar að sögn Jóhann-
esar. ABS
SSfH’5
Þessi Volvo fólksbifreið má muna sinn fífil fegri. í gærmorgun ók Bedford sendibifreið á framenda bifreiðarinnar og bókstaflcga „flysjaði" á
honum framendann. Einhverjir sem voru staddir á slysstaðnum í Síðumúla hvísluðu að hann hefði varla gengið heill til skógar. Tímamynd-Róbcrt
Verður frí
18. ágúst?
„Ég á ekki von á því að menn
telji skynsamlegt að fjölga
launuðum frídögum. Borgin á
oft afmæli eins og gerist með
annað og aðra. Það er alveg
fráleitt að Vinnuveitendasam-
bandið muni sérstaklega beita
sér fyrir því að vinnuveitendur
gefi frí þann 18. ágúst, það
verður hver og einn að gera upp
við sig sjálfur," sagði Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri VSÍ í samtali við Tímann
í gær er hann var spurður hvern-
ig tryggja ætti að landsmenn
ættu að geta tekið þátt í almenn-
um hátíðahöldum í tilefni af 200
ára afmæli Reykjavíkurborgar á
komandi sumri.
Það hefur vakið athygli
margra að sjálfan afmælis-
daginn, þegar mest verður um
dýrðir, ber upp á gráan mánu-
dag. 18. ágúst er ekki svokallað-
ur „rauður dagur" á dagatalinu
og því ekki lögskipaður frídag-
ur. Þeir launþegar sem getá ekki
fengið vinnuveitanda til að gefa
daginn eftir verða því að starfa
samkvæmt venju eða uppskera
minni laun og óþökk ella.
- SSl
Lögreglan leitar fullorðins manns:
Stúlkubarn
lokkað í bíl
Bæði rannsóknarlögregla og
Reykjavíkurlögregla leita nú
að ntanni, sem lokkaði fjögurra
ára gamalt stúlkubarn upp í
bifreið til sín í Vesturbæ
Reykjavíkur í gærdag.
Lögreglan hefur lýsingu á
manninum og er hans leitað.
Samkvæmt framburði stúlku-
barnsins hélt maðurinn á henni
í góða stund í bílnum, en ekki
er talið að hann hafi haft í
frammi ósæmilega tilburði.
Stúlkan var að hlaupa milli
húsa, og horfði móðir hennar á
eftir henni, þar til hún hvarf
fyrir húshorn. Þar mun hún
hafa hitt manninn og hann
lokkað hana upp í bílinn til sín.
Lögregluvarðstjóri sá sem
Tíminn ræddi við í gærkvöldi
sagði aö það væri fyllsta ástæða
fyrir foreldra að vara börn sín
við því að fara upp í bíla til
ókunnugra manna og þiggja af
þeim sælgæti eða annað þess-
háttar.
Maöurinn lokkaði stúlkuna
upp í bílinn til sín um hábjartan
dag, skömmu eftir hádegi.
- ES