Tíminn - 29.04.1986, Page 4

Tíminn - 29.04.1986, Page 4
4 Tíminn Þegar renni- lásinn sprakk — fannFaith Brown sinn rétta stíl! Faith Brown hafði veriðað rcyna að komast áfram sem söngkona í mörg ár og gengið misjafnlega. Svo var það eitt kvöld, að Faith var uppi á leiksviði og söng af öllum lífs og sálar kröftum, að rennilás- inn á kjólnum hennar sprakk og opnaðist að altan niður á mjaðmir. - Ég varð að halda kjólnum upp um mig, svo ég stæði ekki á nærklæðunum, sagði söngkonan. Ég reyndi að bjarga mcr cinhvern veginn, svo ég skellti mér í það að herma eftir þckktri lcikkonu og hrópaði á aðstoð og öryggisnælur, um leið og ég fór með glelsur úr nýjasta hlutvcrki hennar. Áhorfendur héldu að þetta væri allt sett á svið sem skemmtiatriði og vcltust um af hlátri. Eftir þetta fann ég að þarna var ég komin á rétta hillu og síðan hafa eftirhcrm- ur vcrið aðalatriðið í skemmtunum mínum, sagði Faith Brown nýlega í viðtali, cn hún var þá að rifja upp ýmsttr minningar frá 25 ára fcrli sínum sem söng- og gamanlcik- kona. Þegar Faith Brown var ung stúlka olli það henni mikils angurs livað hún hafði stór brjóst. Hún segist hafa orðið að þola stríðni og glósur um „sinn fagra barm", eins og það var stundum orðað, en sjálf reyndi hún að láta sem minnst bcra á brjóstunum. Hún var í víðum „mussum" og rcyndi jafnvel að reyra sig innanundir. „Það var eins og karlmenn fengju alltaf einhverjar rangar hugmyndir um mig, - að ég væri til í tuskið, eða að minnsta kosti hefði gaman af tvíræðum bröndurum. En það var nú eitthvað annað, því ég hafði fengið strangt írskt-kaþólst upp- eldi og varð bara hrædd við allt þess háttar og flýtti mér jafnan á burt," segir Faith í áðurnefndu viðtali. Nú segist hún hafa sætt sig við brjóstastærðina, og láta sérsauma lyrir sig föt við hæli, og hún fær hól fyrir skemmtilega 'sviðsframkomu og glæsilegan vöxt. Málin eru 42- 24-35 (þuml). Faith er 39 ára og eignaðist sitt fyrsta barn 33 ára, en hún trúlofaðist Len, manninum sínum þegar hún var 16 ára, og kom lyrst fram 14 ára. „Ég er hætt að hafa minnimáttarkennd...“ segir Faith Brown. Afhending verðlauna í „Denna spurningakeppninni“ á Hótel Borg Spurningakeppni hefur verið í gangi að undanförnu á milli fram- haldsskóla á Suðurlandi. Keppnin hefur verið kölluð „Denna spurn- ingakeppnin" og verið haldin á Borginni. Henni lauk miðvikudag- inn 9. apríl. Sigurvegarar urðu MH með 24 stig, en í öðru sæti varð Fjölbrautaskóli Suðurnesja með 22 stig, og í þriðja sæti Fjölbrautaskóli Suðurlands með 20 stig. Sigurliðið frá MH var skipað þeim Sigmundi Halldórssyni, Frið- geiri Trausta Helgasyni og Birni Gunnlaugssyni. Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra kom og fylgdist með úrslitum keppninnar og afhenti verðlaunin í lokin. Verðlaunin voru 2ja vikna ferð til frönsku Rívíerunnar, sem þetr Sigmundur, Friðgeir og Björn hljóta. Alls tóku 12 skólar þátt í keppn- inni, sem stóð yfir í 4 kvöld og kepptu því 3 lið í einu. Stjórnendur voru: Ásgeir Tómasson og Stein- grímur Sævar Ólafsson. Um 250 manns komu og fylgdust með úr- slitum keppninnar, og að keppninni lokinni spilaði hljómsveitin Poss- ibillies til miðnættis. Possibillies búa sig undir spilamennskuna með vatnskúr. Á myndinni eru (f.v.): Stefán Hjörleifsson, Jón Ólafsson og Haraldur Þorsteinsson (Tímamyndir-Pélur) Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra afhendir sigurvegur- unum úr IVIH verðlaunin, en þeir eru f.v.: Sigmundur Halldórsson, Björn Gunnlaugsson og Friðgeir Trausti Helgason. Þriöjudagur 29. apríl 1986 UTLÖND PARÍS — Mitterrand forseti sagði Frakka vera reiðubúna til að styðja alþjóðleg lögreglu- samtök og leyniþjónustur í baráttu gegn hryðjuverkum. Embættismenn sögou Mitter- rand ekki vera að leggja til að stofnuð yrðu ný samtök heldur væri hann að hvetja til meiri samvinnu þeirra sem berjast gegn stjórnmálalegu ofbeldi. JERÚSALEM - Teddy Kollek borgarstjóri tók sér ferð á hendur um Jerúsalem i gær til að sannfæra ferðamenn um að öruggt væri að ferðast þar þrátt fyrir drápið á 28 ára gömlum Breta um helgina og tvær aðrar skotárásir á útlend- inga. BEIRÚT — Hollensk stjórn- völd ætla að loka sendiráði sínu í Vestur-Beirút þar sem múhameðstrúarmenn hafa völdin. Starfsmenn sendiráðs- ins munu yfirgefa landið. BEIRÚT — Skothríð braust út milli kristinna manna í Aust- ur-Beirút og múhameðstrú- armanna í vesturhluta borgar- innar og voru fimm manns sagðir hafa særst. MOSKVA — Yfirmaður rússn- eskudeildar útvarpsstöðvar- innar „Frjálst útvarp“ (Radio Liberty) sem Bandaríkjamenn fjármagna, birtist í Moskvu í gær. Hann sagði stöðina vera notaða af CIA í áróðursstríðinu gegn Sovétríkjunum. JÓHANNESARBORG - Skotbardagi braust út í hverfi svartra í Alexandríu milli svert- ingja og lögreglu. Tveir svartir menn létu lífið og einn særðist. ABU DABI — Mohamed Ali Sharaf 'upplýsingamálaráð- herra Líbýu sagði stjórnvöld sín vera reiðubúin að mæta til fundar Arabaríkjanna en ekki væri nauðsyn á að Khadafy Líbýuleiðtogi yrði þar viðstadd- NÝJA JÓRVÍK — Lögregla tæmdi gang bandaríska flugfélagsins „Pan American World Airways" á Kennedy- flugvelli af fólki í gær. Ráð- stöfunin var gerð eftir að hringt hafði verið og tilkynnt um sprengju. Símhringjandinn sagðist tilheyra hægrisinnuö- um gyöingahópi. STOKKHÓLMUR - Um sex hundruð verkamenn voru fluttir á brott frá sænsku kjarn- orkuveri í gær vegna ótta um geislavirkan leka. Almenningur var ekki sagður vera í neinni hættu. AMMAN — Ali Lofti forsætis- ráðherra Egyptalands kom til Jórdaníu í gær til viðræðna við þarlend stjórnvöld um viðskipti og ferðamannaiðnað. Hann hafði með sér orðsendingu frá Hosni Mubarak forseta og er líklegt talið að þar séu friðar- viðræðurnar í Mið-Austurlönd- um reifaðar en engin hreyfing virðist nú vera á þeim viðræð- um.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.