Tíminn - 29.04.1986, Blaðsíða 12
12 Tíminn
ÍÞRÓTTIR
Þriöjudagur 29. apríl 1986
Enska knattspyrnan:
Enn getur allt gerst
- Liverpool náði tvegg ja stiga forskoti en ekki er víst að það dugi - Everton slapp á
City Ground - Gillespie og Harford með þrennur - Fallbaráttan í algleymingi
Mick Harford skorar og skorar. Núna gerði hann þrennu á gervimottunni í
Luton.
Frá Orra Ýrari Smárasyni á Selfossi:
Liverpool hristi Everton af sér um
helgina en þó ber ekki meira á milii
liðanna en svo að Everton gæti
komist í efsta sætið með sigri í leik
sem liðið á inni. Liverpool gjörsigr-
aði Birmingham 5-0 um helgina á
meðan Everton mátti þakka fyrir
jafntefli á City Ground gegn Nott-
ingham Forest. Forest spilar án efa
einhvern skemmtilegasta fótbolta í
deildinni og átti Everton í mestu
erfiðleikum með að ná 0-0 jafntefli.
Miðvörðurinn Gary Gillespie
skoraði þrennu fyrir Liverpool og
voru þetta fyrstu mörkin fyrir
Liverpool sem hann skorar. Rush og
Mölby bættu við mörkum. Mölby
skoraði úr víti og Gillespie gerði eitt
marka sinna úr víti.
West Ham á enn möguleika á sigri
í deildinni. Liðið fylgir toppliðunum
fast á eftir. Tony Cottee var kjörinn
leikmaður ársins hjá liðinu fyrir
leikinn gegn Coventry og hann þakk-
aði fyrir sig með marki sem nægði
West Ham til sigurs. Þetta var 24.
mark Cottee á keppnistímabilinu.
Tottenham, og þá sérstaklega
Glen Hoddle, lék við hvern sinn
fingur á gervimottunni hjá QPR.
Tottenham komst í 5-0 með mörkum
frá Clive Allen (2), Falco (2) og
Hoddle áður en Rosenior og Bann-
ister klóruðu í bakkann. Hoddle
sýndi í þessum leik að hann gæti
orðið lykilmaður í enska landsliðinu
í Mexíkó. Leikmaður sem lætur
„boltann tala“ en hleypur ekki um
eins og rófulaus hundur.
United átti ekki í erfiðleikum með
Leicester. Mörkin urðu fjögur áður
en flautað var til leiksloka. Daven-
port skoraði úr víti sitt fyrsta mark
fyrir United en Stapleton, Hughes
og Blackmore bættu við mörkum.
Arsenal komst í 2-0 með mörkum
Robson og Allinson í viðureigninni
við botnliðið WBA en það dugði
ekki til sigurs. Reilly skoraði tvívegis
og WBA fór heim með stig sem
kemur þeim að engum notum.
Aston Villa og Chelsea háðu
fjöruga og nokkuð grófa viðureign á
Villa Park. Norton náði forystu fyrir
heimaliðið en Spackman jafnaði úr
víti. Peir Hunt og Stainrod tryggðu
heimaliðinu síðan sigur og jafnframt
slapp Villa við fall í 2. deild.
Oxford var óheppið að tapa öllum
stigunum í Ipswich. Wilson skoraði
þriðja mark Ipswich á 92. mínútu og
tryggði liðinu sigur 3-2. Dozzell og
Butcher höfðu skorað fyrir heima-
rnenn en Aldridge og Philips jöfnuðu
fyrir Mjólkurbikarmeistarana.
Mick Hartford skoraði þrennu í
3-2 sigri Luton á Watford. Jackett og
Sinnett skoruðu fyrir strákana hans
Elton John.
Newcastle fór illa með Man. City.
Davis náði forystu fyrir Manchester-
liðið en Beardsley, Whitehurst og
Casgione skoruðu fyrir heimaliðið
og tryggðu því sigur. Þá er bara eftir
að geta hörkuleiks Southampton og
Sheffield Wed. Miðvikudagsliðið
vann 3-2 með mörkum frá Shutt,
Shelton og Marwood en Wallace og
Case gerðu mörk heimamanna.
í 2. deild eru Charlton og Wimble-
don nokkuð viss með að fylgja
Norwich upp í 1. deild. Charlton
vann Blackburn með mörkum Mel-
rose, Pearson og Reid. Portsmoth
hefur klúðrað illa að undanförnu og
missir sennilega af sæti með rútunni
í 1. deild.
Skotland:
Hearts næsta ðruggt
- Meistaratitillinn ætti að verða þeirra - Celtic á möguleika
Fallegt mark frá Gary MacKay
tryggði Hearts sigur á Clydebank 1-0
og liðið þarf nú aðeins jafntefli í
Evrópuknattspyrnan:
Juve og PSG meistarar
síðasta leik sínum gegn Dundee til
að vinna skoska meistaratitilinn.
Harts hefur ekki tapað í 31 leik í röð
í skosku deildinni. Celtic er eina
liðið sem á möguleika á að ná
Hearts. Celtic sigraði Dundee 2-0
með mörkum frá Mo Johnston og
Brian McClair. Ef Hearts klikkar
gegn Dundee þá á Celtic eftir að
spila gegn Motherwell og St. Mirren
á útivöllum.
eins og við var að búast - Sigurður skoraði - Benfica
í bikarúrslitum - PSV Eindhoven næsta víst með titil
bikarmeistarar í Portúgal en Barcelona rann á rassinn
Juventus tryggði sér sinn 22.meist-
aratitil í ítölsku knattspyrnunni með
sigri á Lecce á útivclli 3-2 um
helgina. Roma, sem um tíma hafði
forystu í deildinni, tapaði fyrir Como
1-0 og varð að láta sér nægja annað
sætið í deildinni.
Juventus þurfti að hafa ^fyrir
hlutunum í Lecce. Það var í síðari
hálflcik sem Mauro náði forystu
fyrir Juve með góðu skoti. Miceli
jafnaði fyrír Lecce sem ekki var
síðra liðið í leiknum. Cabrini og
Serena komu Juve í 3-1 áður en
Chiara minnkaði muninn fyrir botn-
liðið. Lecce er fallið í 2. deild ásamt
Barí og Pisa.
Svíinn Dan Corneliusson skoraði
eina mark Como og um leið sigur-
markið gegn Roma. Roberto
Pruzzo, framherji Roma gat þó
huggað sig við það að verða marka-
hæsti leikmaðurinn í 1. deild á Italíu
með 19 mörk. Rummenigge varð
annar með 13 stykki.
Úrslit í síðustu umferð og loka-
staða efstu liða á Ítalíu.
Avellino-Napoli . . 0-1
Como-Roma 1-0
Lecce-Juventus . . 2-3
Milan-Atalanta . . 1-1
Pisa-Fiorentina . . 1-2
Sampdoria-Inter . 0-0
Torino-Verona . . . 2-1
Udinese-Bari . . . . 2-2
Juventus . 30 18 9 3 43 17 45
Roma . 30 19 3 8 51 27 41
Napoli 14 11 5 35 21 39
Fiorentina . 30 10 13 7 29 23 33
Torino . 30 11 11 8 31 26 33
Inter . 30 12 8 10 36 33 32
Milan . 30 10 11 9 26 24 31
Atalanta . 30 7 15 8 27 26 29
Como . 30 7 15 8 32 32 29
Frakkland:
Paris Saint-Germain tryggði sér
meistaratitilinn í Frakklandi eins og
búist var við. Reyndar var búist við
að liðið hefði verið búið að tryggja
sér titilinn fyrir löngu í stað þess að
bíða fram á síðustu umferð. PSG
sigraði Bastia létt 3-1 og sendi Bastia
niður í 2. deild ásamt Strassborg.
Robert Jacques skoraði tvívegis
fyrir PSG og Fernandez bætti því
þriðja við. Liðið klikkaði í fjölda
færa f leiknum og brenndi m.a. af
víti. Þetta er fyrsti titill PSG og
aðeins sá annar sem lendir í höf-
uðborginni, París. Fyrri titillinn kom
til Parísar með Racing fyrir 50 árum.
Racing kórónaði helgina fyrir París-
arbúa með sigri í 2. deild og munu
liðin því verða keppinautar á næsta
ári.
Nantes átti möguleika á að ná
PSG en varð að sætta sig við jafntefli
gegn Toulon 1-1. Toulouse náði sér
í UEFA sæti á næsta ári og Lens á
einnig möguleika á UEFA sæti ef
Bordeaux vinnur bikarkeppnina á
morgun er liðið mætir Marseilles í
úrslitum.
Spánn:
Deildarkeppninni er lokið en um
helgina léku Barcelona og Real
Zaragoza til úrslita um spænska
bikarinn. Zaragoza sigraði 1-0 með
marki frá Uruguay-manninum unga
Ruben Sosa. Sosa, sem er aðeins
tvítugur skoraði beint úr aukaspyrnu
af 30m færi á 34. mínútu.
Portúgal
Benfica sem rétt missti af meist-
aratitli um síðustu helgi í Portúgal
bætti það tap að nokkru er liðið
sigraði í portúgölsku bikarkeppninni
með sigri á Beleneses 2-0 fyrir fram-
an um 45 þúsund áhorfendur í
Lissabon. Þeir Nunes og Aguas
skoruðu mörkin bæði með skalla.
Þetta er annað árið í röð sem
Benfica vinnur bikarmeistaratitil-
inn.
Belgía:
Nágrannaliðin CS Brugge og Club
Brugge munu mætast í úrslitaleikn-
um í belgísku bikarkeppninni. Clug
sigraði 3. deildarliðið Borains 5-0 og
samtals 7-0 en CS vann Mechelen
3-0 og samanlagt 3-2. Club á einnig
að spila við Anderlecht um meistara-
titilinn í Belgíu og verður fyrri leikur
liðanna á morgun.
Holland:
PSV Eindhoven þarf nú aðeins
tvö stig úr síðustu leikjum sínum til
að tryggja sér hollenska meistara-
titilinn. Liðið sigraði Heracles 5-0 og
gerði Gullit þrennu fyrir tilvonandi
meistara. Ajax sigraði auðveldlega
og er næsta víst um annað sætið en
á jafnframt mikla möguleika á að
vinna hollenska bikarinn.
Sviss:
Lucern með þá Sigurð Grétarsson
og Ómar Torfason í fararbroddi
náði sér í 2-2 jafntefli í St. Gallen og
gerði Siggi annað markið. Liðið er í
4.-5. sæti í deildinni. Sjö umferðir
eru eftir og á Luzern smá möguleika
á að hreppa titilinn. Young Boys eru
í efsta sæti með 34 stig en Luzern
hefur 28 stig. Baden, lið Guðmundar
Þorbjörnssonar, er fallið og tapaði
nú fyrir Neuchatel 0-2 á heimavelli.
Grikkland:
Deildarkeppninni er lokið. Pant-
hinaikos varð meistari með 43 stig úr
30 leikjum en OFI varð í öðru sæti
með 38 stig. Iraklis, sem Sigurður
Grétarsson spilaði með á sínum
tíma, endaði í fjórða sæti.
Pólland:
Gomik Zabrze varð meistari í
Póllandi. Liðið fékk 46 stig úr 30
leikjum en Legia Varsjá varð í öðru
sæti með 42 stig.
Ungverjaland:
Honved varð meistari og það
nokkuð auðveldlega. Liðið fékk 45
stig úr 30 leikjum en PECS varð í
öðru sæti með 39 stig.
Búlgaría:
Úrslitaleikur bikarkeppninnar var
í Búlgaríu um helgina. Vitosha náði
sigri á Sredets 2-1 í hörkuleik.
Vitosha mun því leika í Evrópu-
keppni bikarhafa næsta vetur.
Lineker skorar
Gary Lineker er enn sem fyrr
marltahæstur á Englandi. Hann
hefur gert 34 mörk á þessu
keppnistímabili. Rush og AJdrídge
koma honum næstir með 30 mörk
en McAvennie er með 27. Tveir
Luton leikmenn hafa skorað 25
stykki. Þeir Harford og Newell.
Falco frá Tottenham er kominn í
toppsætin með 24 mörk en Dixon
er með 23.
ENGLAND
ÚRSLIT
1. deild:
Arsenal-West Brom................ 2-2
Aston Villa-Chelsea.............. 3-1
Ipswich-Oxíord .................. 3-2
Liverpool-Birmingham............. 5-0
Luton-Watford.................... 3-2
Man. United-Leicester............ 4-0
Newcastle-Man. City.............. 3-1
Nott. Forest-Everton.............jO-O
Q.P.R.-Tottenham ................ 2-5
Southampton-Sheff. Wed........... 2-3
West Ham-Coventry ............... 1-0
2. deild:
Barnsley-Chrystal Pal............ 2-4
Bradford-Shrewsbury.............. 3-1
Brighton-Sunderland.............. 3-1
Charlton-Blackburn............... 3-0
Fulham-Huddersfield ............. 2-1
Grimsby-Norwich ................. 1-0
Leeds-Carlisle................... 2-0
Middlesbr.-Millwall.............. 3-0
Sheff. United-Portsmouth......... 0-0
Stoke-Oldham..................... 2-0
Wimbledon-Hull................... 31
Skotland:
Aberdeen-Rangers................ 1-1
Celtic-Dundee.................... 2-0
Dundee United-St. Mirren ........ 1-2
Hearts-Clydebank................. 1-0
Motherwell- Hiberian............. 3-1
Stadan:
Hearts ....... 35 20 10 5 39 31 50
Celtic........ 34 18 10 6 60 38 46
Dundee United
................. 35 17 11 7 57 30 45
Aberdden .... 35 15 12 8 56 31 42
Rangers...... 35 12 9 14 51 45 33
Dundee....... 35 13 7 15 43 51 33
St. Mirren .... 35 13 5 17 42 58 31
Hibernian .... 35 11 6 18 48 61 28
Motherwell ... 34 7 6 21 33 62 20
Clydebank .... 35 6 8 21 29 71 20
ENGLAND STAÐAN
1. deild: Liverpool ... . .. 40 24 10 6 86 37 82 2. doild: Norwich . 40 24 9 7 80 36 81
Everton .... .. . 39 24 8 7 78 38 80 Charlton . 39 20 10 9 73 43 70
Man. United. . 41 22 9 10 69 35 75 Portsm . 41 21 7 13 65 41 70
West Ham. . .f. 38 23 6 9 67 34 75 Wimbledon . . . . 38 19 11 8 55 36 68
Chelsea .... ...39 20 11 8 56 48 71 C. Palace . 41 19 8 14 56 51 65
Sheff. Wed. . ... 41 20 10 11 62 54 70 Sheff. United. . . 41 17 10 14 63 62 61
Luton . .. 41 18 11 12 60 43 65 Hull . 40 15 13 12 62 55 58
Nott. Forest. .. . 41 18 11 12 67 52 65 Stoke . 40 14 15 11 48 47 57
Arsenal .... . . . 39 18 9 12 46 44 63 Brighton . 40 16 8 16 64 60 56
Newcastle .. . .. 41 17 12 12 67 70 63 Millwall . 40 16 7 17 60 63 55
Tottonh ... 40 17 8 15 65 47 59 Barnsley . 41 14 13 14 45 48 55
Watford .... . .. 39 15 9 15 62 59 54 Oldham . 40 15 9 16 58 59 54
Q.P.R ... 41 15 7 19 52 62 52 Bradford . 39 16 5 18 50 56 53
Southampt. . ... 39 12 9 18 46 50 45 Leeds . 41 15 8 18 56 68 53
Man. City .. ...40 11 11 18 42 55 44 Grimsby . 41 14 10 17 57 59 52
Aston Villa . .. . 41 10 14 17 49 63 44 Huddersf . 41 14 10 17 51 66 52
Ipswich .... ...40 11 8 21 31 52 41 Shrews^ury .. . 40 13 9 18 50 61 48
Coventry ... ... 41 10 10 21 46 70 40 Blackbum . — . 41 11 13 17 50 61 46
Leicester ...40 9 12 19 52 74 39 Middlesb . 41 12 9 20 43 51 45
Oxford ...39 8 12 19 57 78 36 Sundorl . 40 11 11 18 43 61 44
Birmingham .. . 41 8 5 28 30 72 29 Carlisle . 39 12 7 20 42 66 43
West Brom. . . .. 41 4 12 26 33 86 24 Fulham . 40 10 6 24 44 65 36