Tíminn - 29.04.1986, Qupperneq 13

Tíminn - 29.04.1986, Qupperneq 13
Þriðjudagur 29. apríl 1986 Tíminn 13 Þröstur Þórhallsson tekur við sigur laununum úr hendi Haraidar Her- mannssonar. Tímamynd OÞ Skák á Sauðárkróki: ÞRÖSTUR VANN GROHEMÓTIÐ Frá fréttaritara Tímans í Skagafirði, ÖÞ. Þröstur Þórhallsson vann Groheskákmótið, sem nýlega fór fram á Sauðárkróki. Þátttakendur voru alls 17, þar af 7 úr Reykjavík, og voru tefldar sjö umferðir eftir monradkerfi. Þröstur sigraði eftir harða baráttu við Sævar Bjarnason og báðir hlutu 6 vinninga en Þröstur var lítið eitt hærri á stigum. í þriðja sæti varð Þröstur Árnason með 5 vinninga og í fimmta sæti varð Pálmi Sighvatsson með 4’/á vinning. Þröstur hlaut farandbikar til varð- veislu í eitt ár og auk þess gullúr og peningaverðlaun fyrir sigurinn. Þá hlaut Pálmi farandbikar og úr fyrir bestan árangur heimamanns. Groheumboðið gaf verðlauna- gripina í mótið og er þetta í þriðja skipti sem Sauðkrækingar halda Groheskákmót. 1 fyrra sigraði Dan Hansen og 84 vann Ólafur Kristjáns- Eining Akureyri: Mótmæla gialdskrá hitaveitunnar - lækkunin aðeins 3% í Verkalýðsfélagið Eining á Akur- eyri hefur mótmælt þeirri ákvörðun stjórnar Hitaveitu Akureyrar að lækka gjaldskrá sína aðeins um 3%, þar sem kjarasamningar voru undir- ritaðir í trausti þess að lækkunin yrði 7%. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Einingar, sem haldinn var fyrir skömmu. í ályktuninni segir ennfremur, að fé- lagið telji bæjarstjórnina hafa brugð- ist því trausti sem henni var sýnt þegar verkalýðssamtökin skrifuðu undir kjarasamninga í febrúar. Þá var á aðalfundinum lýst kjöri stað 7% stjórnar félagsins sem fram fór í febrúar sl., en þá kom aðeins fram einn listi sem var sjálfkjörinn. Sævar Frímannsson er formaður, Björn Snæbjörnsson varaformaður, Úlf- hildur Ragnarsdóttir ritari, Aðal- heiður Þorleifsdóttir gjaldkeri, og meðstjórnendur eru Bjarney Svein- björnsdóttir, Guðrún Skarphéðins- dóttir og Matthildur Sigurjónsdóttir. Jóni Helgasyni fyrrverandi for- manni Einingar og Þorsteini Helga- syni fyrrverandi starfsmanni voru sérstaklega þökkuð þeirra störf í þágu félagsins. -BG MF Massey Ferguson Kynnum nýju M.F. hjólagröfurnar í dag og á morgun við nýja Verkfræðingahúsið - gegnt Hótel Esju. Kl. 17.30-18.30 þriðjudag 29. apríl. Kl. 17.30-18.30 miðvikudag 30. apríl. Mr. Richard Ghent frá Massey Ferguson sýnir vélina í notkun. Komið og kynnist MF 50 HX - 80 hestafla - 4x4. jO/uit££a>tvé4a/t ÁRMÚLA3 REYKJAVIK SlMI 38900 Framkvæmdastjóri Krossanesverksmiðjunnar: Hætti störfum vegna hagsmunaárekstra Á stjórnarfundi Síldarverksmiðj- unnar í Krossanesi við Eyjafjörð sem haldinn var 15. apríl s.l. var lagt fram bréf ífá framkvæmdastjóra verk- smiðjunnar, Pétri Antonssyni, þar sem hann segir starfi sínu lausu. Stjórn verksmiðjunnar hefur sent frá sér tilkynningu, þar sem aðdrag- andi uppsagnarinnar er rakinn. í tilkynningunni segir m.a. að á sama tíma og uppbygging og stofnun fisk- fóðurfyrirtækisins ístess hf. í Krossanesi þar sem Pétur Antonsson var stjómarformaður stóð yfír, hafi Pét- ur ásamt einkaaðilum og fyrirtækjum stofnað fyrirtækið Fóðureiningar hf. í Grindavík og tekið að sér stjórnar- formannsembætti þar. Taldi stjórn Krossanesverksmiðjunnar að störf Péturs fyrir þessa samkeppnisaðila gætu alls ekki samrýmst og stefndu framtíð ístess hf. í hættu. Stjórn verksmiðjunnar kynnti Pétri þessi sjónarmið, og í kjölfar þess sagði hann starfi sínu lausu, þar sem hann taldi sig ekki geta dregið sig út úr staríi sínu í Grindavík. Stjórnin samþykkti uppsögnina, og fól Jó- hanni Andersen skrifstofustjóra fyrirtækisins framkvæmdastjóra- stöðuna um sinn, en starfið verður auglýst laust til umsóknar innan skamms. ístess hf. er í eigu Krossanesverk- smiðjunnar, ýmissa aðila á Norður- landi, en stærsti hluthafi erT. Skrett- ing A/S í Noregi sem er stærsti framleiðandi fiskifóðurs þarlendis, og ntjög ráðandi á mörkuðum. Á þessu ári verður byggt verksmiðju- húsnæði fyrir ístess hf. áfast Krossa- nesverksmiðjunni. Ýmsir rekstrar- þættir, svo sem geymslur og verk- stæði verða nýttir sameiginlega, auk þess sem 80% hráefnis ístess hf. verða mjöl og lýsi sem framleitt er í Krossanesi. Stefnt er að því að verksmiðjan taki til starfa í október og munu um 10 manns fá þar atvinnu. Áætlað er að 60-70% fram- leiðslunnar fari á erlendan markað aðallega í Færeyjum. -HIÁ MF50HX ELITE Kynning: Heilsað upp á ráðherra. F.v. Hjalti Þórarinsson, Margrét Margeirsdóttir deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu, Sigurður Ingi Hilaríusson forstöðumaður Bræðratungu, Guðmundur Þórarinsson, Alexander Stefánsson og Bjarni Guðmundsson. (Timamynd: Sverrir) Sambýlingar frá Bræðratungu: I menningar- og f ræðsluferð Guðmundur Þórarinsson, Hjalti Þórarinsson og Bjarni Guðmunds- son, sem eru sambýlingar á nýju sambýli sem tengist Bræðratungu á ísafirði voru í Reykjavík fyrir skömmu, í menningar- og kynnis- ferð. Bræðratunga er þjónustumið- stöð fyrir þroskahefta og á tveggja ára afmæli um þessar mundir. Að sögn Sigurðar Inga Hilaríussonar forstöðumanns hefur stofnunin ótví- rætt sannað gildi þess að starfsemi sem þessi sé að hluta til færð út í kjördæmin. Sigurður, sem var með þeim þremenningum Guðmundi, Hjalta og Bjarna, í menningarferð- inni, benti á að þessir skjólstæðingar sínir væru til dæmis allir að vestan og hefðu nú tækifæri til að vera mun nær ættingjum sínum en áður. Þess utan væru þeir allir í fullu starfi hjá Norðurtanganum á ísafirði, og gætu að mestu séð um sig sjálfir í hinu nýja sambýli. Næsta skrefið væri að þeir flyttu alveg frá Bræðratungu og hæfu sameiginlegan búskap út af fyrir sig. í ferð sinni gerðu þeir félagar sér ýmislegt til fróðleiks og skemmtun- ar, fóru á ball, versluðu, og skoðuðu ýmislegt. Heimsóttu þeir Reykja- lund og Tjaldanes, en á Tjaldanesi eiga þeir Guðmundur og Þórarinn gamla kunningja því þeir dvöldust þar um 19 ára skeið áður en þeir fluttu að Bræðratungu, en Bjarni þekkir hins vegar til á Reykjalundi. -BG FRAMTÆKNI s/f Skemmuveg 34 N Vélsmiðja 200 Kópavogur Járnsmíði - Viðgerðir lceland TpI 91-641055 Vélaviðgerðir - Nýsmíði

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.