Tíminn - 29.04.1986, Qupperneq 14

Tíminn - 29.04.1986, Qupperneq 14
Þriðjudagur 29. apríl 1986 Efri röð frá vinstri: Kcynir Karlsson framkv.stjóri Landssamtaka, sauma- og prjónastofa, Magnús Erlingsson og Björn Valdimarsson, formaður samtakanna. Neðri röð frá vinstri: Sigurður J. Líndal, Rúnar Pétursson, Guðmundur H. Sigurðsson og Hjálmar Flosason, allir í stjórn samtakanna. Samtök prjóna og saumastofa: íhuga að flytja út sjálfir Sambandsleysi framleiðenda og seljenda í ullariðnaði hefur leitt til þess að verðlagning á ullarvörum hefur oft á tíðum ekki verið í neinu samræmi við framleiðslukostnað. Efni í flíkur hefur verið dýrara en flíkurnar sjálfar þcgar þær eru seldar á markað. Útflutningsaðilar hafa hingað til ráðið verðlagningu cin- göngu og hafa nú einnig leigt prjóna- stofuna Kötlu til framleiðslu á prjónavörum. Samtök sauma- og prjónastofueigenda íhuga því nú að standa saman að útflutningi til þess að koma framleiðslu sinni á markað. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi sem samtök prjóna- og sauma- stofueigenda efndu til fyrir skömmu. Þar kom einnig fram að samtökin telja vafasamt að einblína á markað í Sovétríkjunum, heldur vilja þau leggja meiri áherslu á Evrópumark- aðinn. Það vilja þau gera með átaki í hönnunarmálum, hanna nýja sportlínu og tískulínu en halda jafn- framt áfram með liina hefðbundnu línu sem lengi hefur verið framleidd og seld til Bandaríkjanna. Með því að þróa ullarband sem ekki stingur, væri hægt að auka sölu gífurlega og einnig væri hægt að stuðla að hag- kvæmni í framleiðslu með því að nota snið sem væru stöðluð en jafnframt auðvelt að breyta eftir tískustraumum hverju sinni. Lögð var áhersla á að með þessu móti væri hægt að dreifa framleiðsl- unni á alla mánuði ársins en hingað til hefur þessi iðnaður verði afar árstíðabundinn. 14 Tíminn Þing Málm- og skipasmíöasambandsins: Uggur um framtíð íslensks málmiðnaðar Málmiðnaðarmenn hafa sam- þykkt ályktun þar sem segir að draga beri eins og kostur er „úr innflutningi á sambærilegum tækjum og vélbún- aði og framleiddur er innanlands, eða unnt er að smíða hjá innlendum málmiðnaðarfyrirtækjum." Ályktun þessi varsamþykkt á 12. þingi Málm- og skipasmíðasambands íslands, sem lauk um síðustu helgi, en á þinginu komu fram miklar áhyggjur vegna samdráttar í bifreiðayfirbygg- ingum og skipasmíðum. Þingið lýsti þeirri skoðun sinni að skipasmíða- stöðvum verði gert kleift að halda áfram jafnri og stöðugri smíði fiski- skipa, þó þau séu ekki fyrirfram seld, þar sem endurnýjun fiski- skipaflotans sé óumflýjanleg. Þá hvatti þingið í ályktun um kjaramál, til skýrrar stefnumörkun- ar á því sviði í framtíðinni. og að verkalýðshreyfingin beiti sér fyrir langtímastefnu til að hækka kaup- mátt í áföngum. Til að ná því marki yrði farin sú leið að stofna til þríhliða samkomulags við ríkisvald og at- vinnurekendur. í fræðslumálum hvatti þingið til aukinnar félagslegrar . fræðslu innan verkalýðshreyfingarinnar, samhliða því að endurskoðun fari fram á iðnmenntun enda væri sífelld endur- menntun í takt við tækniframfarir nauðsynleg í greininni. Formaður félagsins var kjörinn Guðjón Jónsson, varaformaður Guðmundur Hilmarsson, ritari Hákon Hákonar- son, og gjaldkeri Kjartan Guð- mundsson. -BG Frá 12. þingi Málm- og skipasmíðasambandsins sem haldið var 17.-19. apríl sl. Páll Kr. Pálsson, Félagi íslenskra iðnrekenda, er hér í ræðustól og flytur erindi um stöðu atvinnugreinarinnar og framtíð hennar. (Tímamynd: Sverrir) Framboðslisti Framsóknarflokks Ákveðinn hefur verið framboðs- listi Framsóknarflokksins á Húsavík fyrir bæjarstjórnarkosningarnar. Listann skipa eftirtaldir einstakling- ar: 1. Tryggvi Finnsson, forstjóri 2. Hjördís Árnadóttir, verslunarmaður 3. Lilja Skarphéðinsdóttir, ljósmóðir 4. Stefán Haraldsson, tannlæknir 5. Sigurgeir Aðalgeirsson, framkv.stj. ó. Egill Olgeirsson, rafmagnstæknifr. 7. Hafliði Jósteinsson, kirkjugarðsv. 8. Kristrún Sigtryggsdóttir. húsmóðir 9. Jón Hclgason, yfirfiskmatsmaður 10. Ragna Valdemarsdóttir. húsmóðir 11. Börkur Emilsson, matreiðslunemi 12. Sigrún Hauksdóttir, verkstjóri 13. Sigtryggur Albertsson, deildarstjóri 14. Sóley Þórðardóttir, húsmóðir 15. Bcnedikt Kristjánsson, húsasmiður 16. Ingibjörg Magnúsdóttir, blaðamaður 17. Aðalsteinn P. Karlsson, skipstjóri 18. Jónína Hallgrímsdóttir, hússtjórnark. Framboðslisti Flokks mannsins á Hvammstanga Bæjarráð Flokks mannsins á Hvammstanga hefur ákveðið fram- boð í Hvammstangahreppi í bæjar- og sveitarstjórnarkosningunum 31. maí 1986. Framboðslistann skipa eftirtaldir: 1. Ágúst F. Sigurðsson, línumaður 2. Laufey M. Jóhannesdóttir, sjúkraliði 3. Guústav. J. Daníelsson, línumaður 4. Anna M. Bragadóttir, húsmóðir 5. Þuríður Þorleifsdóttir, húsmóðir 6. Ingi R. Sigurðsson. verkamaður 7. Linda Finnbogadóttir, húsmóðir 8. Þóra B. Guðjónsdóttir, húsmóðir 9. Sóley Haraldsdóttir, starfsstúlka 10. Laufey Siguðrardóttir, verkamaður. á Húsavík Á meðfylgjandi mynd eru þeir Víkverjar, sem bjóða sig fram, talið frá vinstri: Bjarni Boga, Sigurjón Ben., Guðm. Guðjóns., Hólmfríð- ur, Anna Karlsd., Guðm. Örn, Pálmi, Birgir, Sigríður, Sólveig Skúla, Anna Þormar, Sigrún, Árni Vil., Ingimar, Gísli Har., Bárður og Magnús. Á myndina vantar Sigurð Þrastarson. Framboðslisti Alþýdubandalags í Kópavogi Framboðslisti Alþýðubandalags- ins í Kópavogi vegna bæjarstjórnar- kosninganna 31. maí hefur verið ákveðinn. Listann skipa eftirtaldir. 1. Ileimir Pálsson, menntaskólakcnnari 2. Heiðrún Sverrisdóttir, fóstra 3. Valþór Hlöðversson, blaðamaður 4. Kristján Sveinbjörnsson, rafvirki 5. Elsa S. Þorkelsdóttir, lögfr. 6. Unnur S. Björnsdóttir, skrifstofustj. 7. Ásgeir Matthíasson, tæknifræðingur 8. Pctur Már Ólafsson, háskólanemi 9. Þórunn Theódórsdóttir, bókavörður 10. Halldóra Níelsdóttir. afgreiðslum. 11. SnorriS. Konráðsson, starfsm. MFA 12. Hildur Einarsdóttir, starfsm. íþróttamannvirkja 13. Steinþór Jóhannsson, húsasmiður 14. María Hauksdóttir. húsmóðir 15. Ólafur Karvel Pálsson. fiskifræðingur 16. Elísabet Sveinsdóltir. skrifstofum. 17. Eggert GauturGunnarsson, tæknifr. 18. Heiður Gestsdóttir, húsmóðir 19. Þórunn Björnsdóttir, tónmenntak. 20. Ólöf P. Hraunfjörð, ritari 21. Guðsteinn Þengilsson, læknir 22. Björn Ólafsson. verkfræðingur Sameiginlegur framboðslisti félags hyggjufólks í Hveragerði Framboðslisti Víkverja Framboðið er skipað Húsvíkingum, er Icggja áherslu á atvinnumáls s.s. smáiðnað, ferðaiðnað, matvælaiðnað o.fl. einnig skólamál, heilbrigðis, íþrótta og menningarmál. Síðast en ekki síst vilja Víkverjar eyða dofa og deyfð og árétta tækifæri byggðarinnar og efla bjartsýni bæjarbúa til nýrra átaka og betra mannlífs. Framboðið tekur ekki afstöðu til stjórnmála á landsvísu, Víkvcrjar munu beita sér af krafti í bæjarmálum. Framboðið er skipað eftirtöldum: 1. Pálmi Pálmason, íþróttakennari, 10. Anna Karlsdóttir, húsmóðir 2. Sigurjón Benediktsson, tannlæknir 11. Magnús Pétur Magnússon, kennari 3. HólmfríðurSigurðardóttir, verkstjóri 12. Sigríður Hulda Richardsd., verzl.m. 4. Sólveig Jóna Skúladóttir, yfirkennari 5. Guðmundur Örn Ragnarss, kerfisfr. 6. Sigrún R. Snædal, fóstra 7. Guðmundur B. Guðjónsson, forritari 8. Ingimar S. Hjálmarsson, læknir 9. Árni Vilhjálmsson, rafvirkjameistari 13. Bjarni Bogason, skrifstofustjóri 14. Anna Þormar, verkstjóri 15. Birgir Steingrímsson, húsgagnasm. 16. Bárður Guðmundsson, dýralæknir 17. Gísli Haraldsson, kennari 18. Sigurður R. Þrastarson, skrifstofum. Framsóknar - Alþýöubandalags - og Alþýðuflokksfélögin í Hvera- gerði hafa ákveðið að standa saman að framboði til sveitarstjórnar og sýslunefndar við kosningarnar í vor og hefur listinn verið samþykktur í öllum félögunum. Listinn er þannig skipaður 1. Gísli Garðarsson, kjötiðnaðarm. 2. Ingibjörg Sigmundsd., garðyrkjub. 3. Valdimarl. Guðmundss.garðyrkjum. 4. Sigríður Kristjánsdóttir, hjúkrunarfr. 5. Bjötn Pálsson, skrifstofustj. 6. Stefán Þórisson, vélfræðingur 7. Runólfur Þór Jónsson, húsasm. 8. Magnús Ágúst Ágústsson, líffr. 9. Þórdís Jónsdóttir, húsmóðir 10. Guðríður Austmann, húsmóðir 11. Halídór Höskuldsson, skipasmiður 12. Gestur Eyjólfsson, garðyrkjubóndi 13. Sigurður Jakobsson, tæknifræðingur 14. Auður Guðbrandsdóttir, framkv.stj. Til sýslunefndar 1. Garðar Hannesson, símstöðvarstjóri 2. Björn Pálsson, skrifstofustjóri Framboðslisti Alþýðubandalagsins Að undangengnu opnu prófkjöri var íramboðslisti Alþýðubandalags- ins við bæjarstjórnarkosningarnar i Garðabæ í vor einróma samþykktur á félagsfundi. Hann er þannig skipaður: 1. Hilmar Ingólfsson, skólastjóri 2. Albína Thordarson, arkitekt 3. Vilborg Guðnadóttir, háskólanemi 4. Hallgrímur Sæmundsson, yfirkennari 5. Hafsteinn Hafsteinsson, tannsmiður 6. Saga Jónsdóttir, leikari 7. Ingólfur Freysson, íþróttakennari 8. Ragnheiður Jónsdóttir, sjúkraliði 9. Hafsteinn Árnason, vélfræðingur 10. Anna Valdimarsdóttir, kennari 11. Þorkell Jóhannsson, kennari 12. Ástríður Karlsdóttir, hjúkrunarfr. 13. Guðmundur H. Þórðarson, læknir 14. Þór Runólfsdóttir, verkakona Hilmar Ingólfsson er núverandi bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins í Garðabæ og Álbína Thordarson varabæjarfulltrúi. Hallgrímur Sæ- mundsson var fyrsti sveitarstjórnar- maður Alþýðubandalagsins í byggð- inni,sat í hreppsnefnd 1970-74. Þau Vilborg og Hafsteinn hafa ekki verið í framboði áður.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.