Tíminn - 29.04.1986, Blaðsíða 16

Tíminn - 29.04.1986, Blaðsíða 16
16 Tíminri' 30. apríl kl. 20.30-22.30 Æskulýðsmál, íþróttamál og skólamál. Komdu og nýttu þér tækifærið. Vertu með I stefnumótun. Frambjóðendur Framsóknarflokksins. Akranes Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins að Sunnubraut 21 verður opin fyrst um sinn alla virka daga kl. 20.30-22.00, um helgar frá kl. 14-18 sími 2050. Heitt kaffi á könnunni. Allir velkomnir. Framsóknarfélögin á Akranesi Borgnesingar Almennur fundur um málefni Borgarneshrepps verður haldinn í Snorrabúð þriðjudaginn 29. apríl kl. 20.30. Fundarefni: 1. Fjárhagsáætlun Borgarneshrepps, Gísli Karlsson sveitarstjóri 2. Málefni hreppsnefndar, Georg Hermannsson hreppsnefndarmaður 3. Kynning á framboðslista framsóknarmanna til sveitarstjórnar. Umræður um stefnuskrá. Framsóknarfélagið Borgarnesi Grindavík Kosningaskrifstofa Framsóknarfélags Grindavíkur hefur verið opnuð að Suðurvör 13. Kosningasímar 8410 og 8211. Kosningastjórar: Kristinn Pórhallsson, Sími 8022 og Svavar Svavars- son, sími 8211. Aðalþjónustan verður í síma 8211 fyrst um sinp. Keflavík Skrifstofa Framsóknarflokksins að Austurgötu 26 verður opin mánu- daga til laugardaga frá kl. 16.00-18.00. Stuðningsfólk Framsóknar- flokksins er hvatt til að líta inn, ávallt heitt á könnunni. Framsóknarfél. Keflavík Selfossbuar Opið hús á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 18.00 og 19.00 að Eyrarvegi 15. Komið og ræðið málin. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Selfoss Keflvíkingar Fundur verður haldinn í dag þriðjudaginn 29. apríl kl. 20.30 í Framsóknarhúsinu. Dagskrá: Grunnskólinn Fjölbrautaskólinn Atvinnumál Garðabær Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins að Goðatúni 2, verður opin fyrst um sinn alla daga kl. 17-19, sími 46000. Margar hendur vinna létt verk, kaffi á könnunni. Framsóknarfélag Garðabæjar LATTU Tímamf EKKI FLJUGA FRA PER ÁSKRIFTARSÍMl 686300 lllllllllllllllll DAGBÓK llllllllllllll Málfundafélag félags- hyggjufólks: Sterkari verkalýðshreyfing, - hvernig? Málfundafélag félagshyggjufólks hcld- ur fund á Hótel Borg í kvöld, þriðjud. 29. apríl kl. 20.30. Fundurinn er opinn öllu félagshyggjufólki. Umræðuefni fundarins verður: Sterkari verkalýðshreyfing, - hvernig? Málshefjendur verða Guðrún Árna- dóttir, framkvæmdastjóri BSRB, Jón Karlsson formaður verkalýðsfélagsins Fram á Sauðárkróki, Tryggvi Þór Aðal- steinsson framkvæmdastjóri MFA og Ög- mundur Jónasson fréttamaður. Snæfellingafélagið í Reykjavík býður til kaffidrykkju í mörg undanfarin ár hefur skemmtinefnd Félags Snæfellinga og Hnappdæla gengist fyrir því að bjóða eldri héraðsbúum til sameiginlegrar kaffidrykkju. Hafa þessar samkomur verið mjög vel sóttar. Að þessu sinni verður kaffiveislan hald- in í hinu nýja félagsheimili Sóknar að Skipholti 50a sunnud. 4 maí kl. 15.00. Til skemmtunar verður m.a. að kór félagsins syngur nokkur lög undir stjórn Friðriks Kristinssonar. Kórinn mun í vor fara í söngferö á Snæfellsnes og halda tónleika 10. maí á Hellissandi og Breiðabliki. Veislukaffi Skagfirðinga- félagsins l.maí Kvennadcild Skagfirðingafélagsins í Rcykjavik veröur mcö veislukaffi og hlutaveltu í Drangey, Síöumúla 35 fimmtudaginn 1. maí n.k. kl. 14.00. Ljóðatónleikar í Norræna húsinu í kvöld, þriðjud. 29. apríl kl. 20.30 vcrða Ijóðatónleikar í Norræna húsinu. Sænska söngkonan Marianne Eklöf syng- ur við undirleik Stcfans Bojstens. Á efnisskrá eru 9 söngvar eftir Þorkel Sigur- björnsson við ljóð eftir Jón úr Vör. söngvar cftir Wilhclm Stenhammar. Wil- helm Peterson-Bergcr, Xavier Monsal- vatge og þrjú vorljóð eftir Miklos Maros við japönsk Ijóð. Stefan Bojsten leikur verk cftir Fr. Chopin á píanó. Marianne Eklöf og Stefan Bojstcn halda tónleika á vegum Norræna hússins og Norræna félagsins á Húsavík, á sunnu- daginn kl. 16.00 og á Akureyri um kvöldið, en Norræn vika verður haldin á þessum stöðum í næstu viku. Þá munu þau Eklöf og Bojsten skemmta gestum á Valborgarmessuhátíð Sænsk-íslenska félagsins á mið vikud.kvöldið 30. apríl. Vordagar Samtakanna 78 í dag, þriðjud. 29. apríl hefjast svo- nefndir Vordagar Samtakanna ’78, félags lesbía og homma á íslandi. Vordagarnir eru samfelld iista- og menningardagskrá sem stendur í fimm daga og lýkur með dansleik í Risinu, Hverfisgötu 105, laugard. 3. maí kl. 23.00-03.00. Vordagar hefjast kl. 20.00 í kvöld með opnun myndlistarsýningar. Örn Karlsson sýnir collage- og vatnslitamyndir. Síðar um kvöldið verður sýnd kvikmynd. Á miðvikud. 30. apríl er opið hús í Brautarholti 18, og er þá fjölbreytt lista- dagskrá, fimmtud. 1. maí verður verka- lýðskaffi og kökur á boðstólum frá kl. 15.00. Um kl. 17.00 verður sýnd kvik- mynd eftir Fassbinder. Föstud. 2. maí er opið hús frá kl. 20.00 og þá verður bandaríska skáldkonan Alice Walker kynnt og flutt samfelld dagskrá um les- bíska tónlist og texta. Vordögunum lýkur svo sem fyrr segir með dansleik í Risinu laugard. 3. maí. Innihurðir Norskar spjaldahurðir úr furu Verð 8.400.- kr. Habo heildverslun, s.26550 Bauganesi 28,101 Reykjavík Þriðjudagur 29. apríl 1986 Fyrirlestur á Hótel Sógu: Einkaframtak og almenningsálit Antony Fisher, formaður „Atlas Econ- omic Research Foundation" í San Fransisco er kominn hingað til íslands. Hann mun halda erindi í Átthagasal Hótel Sögu á morgun, miðvikudagsmorg- uninn 30. apríl kl. 8.15-9.30. Erindi hans nefndist Einkaframtak og almenningsálit. Fundurinn á Hótel Sögu er öllum opinn. Þátttaka tilkynnist sem fyrst í síma 83088. Morgunverður (450 kr.) verður fram borinn. Fyrirlestur þessi er fluttur á vegum Verzlunarráðs íslands. Vefjalist í Gallerí Borg Nú stendur yfir í Gallerí Borg sýning á vefnaði eftir Báru Guðmundsdóttur og Halldóru Thoroddsen. Sýningin stendur til 5. maí. A sýningunni sýnir Bára fimm verk en Halldóra sex verk. Bára og Halldóra eru báðar fæddar árið 1950. Þær luku prófi frá textíldeild Myndlista- og handíðaskóla fslands árið 1985. Þær hafa stundað kennslu um árabil. Sýningin er opin daglega kl. 10.00-18.00. Um helgar kl. 14.00-18.00. Helgarferð F.í. 2.-4. maí Ferðafélag íslands fer í skíöagönguferd á Mýrdalsjökli helgina 2.-4. maí. Gist verð- ur í Skagfjörösskála. Nýstárleg ferö í stórbrotnu umhverfi. Farmiðasala og upplýsingar á skrifstofunni Öldugötu 3. Ferðafélag íslands. Laust prestakall Biskup íslands hefur auglýst Sauöanes- prestakall í Þingeyjarprófastsdæmi laust tii umsóknarogerfrestur til 17. maí n.k. Sr. Ingimar Ingimarsson hefur þjónaö prestakallinu undanfariö sem settur prestur. Tvær sóknir tilheyra Sauöanes- prestakalli, Svalbarössókn og Sauðanes- sókn. Prestssetur er nú á Þórshöfn. Teiknisamkeppni Æskunnar og Ábyrgðar hf. f tilefni 25 ára afmælis Ábyrgðar hf., Tryggingafélags bindindismanna. efnir félagið til teiknisamkeppni í samvinnu við barnablaðið Æskuna. Ábyrgð hf. hefur á afmælisárinu lagt áherslu á að kynna svonefndan „nýjan lífsstíl“ sem nýtur nú mikillar hylli. Tilgangur sam- keppninnar er að vekja athygli á að hin síðustu misseri hefur fólk - cinkum ungt fólk - víða um heim tamið sér heilbrigðari lífsvenjur en það hafði áður gert. Þær byggjast á hollu mataræði, alhliða líkams- þjálfun og bindindissemi. Myndirnar eiga að sýna í hverju já- kvæður lífsmáti og heilbrigðar lífsvenjur felast. Stærð þeirra skal vera 21X30 sm eða 32X42 sm. Keppt er í þremur flokkum, 7-10 ára, 11-13 ára og 14-16 ára, og verða 10 verðlaun veitt í hverjum flokki - plata og bók. Aðalverðlaun eru Electron tölva. Allir þátttakendur fá viðurkenningar- skjal. Bestu myndirnar verða birtar í Æskunni. Skilafrestur cr til 1. maí 1986 og skal senda myndirnar til Æskunnar, pósthólf 523, 121 Reykjavík. Námskeið I akstri og meðferð dráttarvéla Eins og undanfarin ár verður haldið námskeið í akstri og meðferð dráttarvéla að Dugguvogi 2, í Reykjavík dagana 7.-12. maí nk. Námskeiðið er tvíþætt: Fornámskeið fyrir 14 og 15 ára nem- endur, og dráttarvélanámskeið fyrir 16 ára og eldri. Fornámskeiðið stendur yfir í 6 kennslustundir, og kostar kr. 800.-. Námskeið hinna eldri verður 11 stundir og kostar með öllu (vottorðum, mynd, prófgjaldi ofl.) kr. 3.000.-. Það eru 7 aðilar sem standa fyrir námskeiðshaldinu. Innritun fer fram á námskeiðsstað Dugguvogi 2 (við Elliðavog), mánudag- inn 5. maí og þriðjudaginn 6. maí kl. 16.00-18.00 og miðvikudaginn 7. maí frá kl. 16.00-17.30. Þátttökugjald greiðist við innritun. Tilgangur námskeiðsins er fyrst og fremst sá að auka öryggi og aksturshæfni unglinganna, en einnig að stuðla að hagkvæmari vinnubrögðum og bættri meðferð þeirra á vélunum. Þessi námskeið hafa verið haldin með líku sniði undanfarin ár, og hafa margir bændur látið í Ijós ánægju sína með þá unglinga sem hafa sótt þau. Sumir setja það orðið sem skilyrði fyrir sveitadvöl að unglingar hafi sótt slíkt dráttarvélanám- skeið. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Um- ferðarráði í síma 27666 eða Búnaðarfélagi íslands í síma 19200. Nýtt lceland Review Afmæli Reykjavíkur og sérstæðar Vestfjarðarmyndir meðal efnis í ritinu í fyrsta tölublaði lceland Review á þessu ári er 200 ára afmæli Reykjavíkur- borgar stórt atriði í blaðinu. Davíð Odds- son borgarstjóri ritar ávarpsorð og Sól- veig K. Jónsdóttir, aðstoðarritstjóri skrif- ar um Reykjavíkurborg grein með mörg- um myndum. Aðalsteinn Ingólfsson skrif- ar grein um líf og list Svavars Guðnasonar málara. Myndir af nokkrum málverkum hans fylgja greininni. Byggðasafnið að Skógum er heimsótt og fjallað um safnið með Þórði safnverði á Skógum. Birtar eru myndir af lömpum eftir Ósk Þorgrímsdóttur og mann hennar Hollend- inginn Rob van Beek og sagt frá fram- leiðslu þeirra. Dorgveiði á Mývatni er kynnt í blaðinu og fylgja frásögn margar myndir teknar af Páli Stefánssyni. Sagt er frá Hólmfríði Karlsdóttur „Ungfrú al- heimi'' og Hilmar B. Jónsson mat- rciðslum. og útgefandi Gestgjafans sóttur heim. Margt fleira efni er í þessu hefti Iceland Review, svo sem bókakynningar, pistill um kvennafrídaginn. nýja skákdrottn- ingu, ferð Vigdísar Finnbogadóttur forseta til Holiands og Spánar á síðasta ári o.fl. Ritstjóri og útgefandi Iceland Review er Haraidur J. Hamar. Sólveig K. Jóns- dóttir og Bernard Seudder gegna nú störfum aðstoðarritstjóra og Páll Stefáns- son ljósmyndari er orðinn ritstjóri mynd- efnis í ritinu. Ársrit Sögufélags ísfirðinga 1985 Ársrít Sógufélags ísfirðinga 1985 Jón Páll Halldórsson skrifar grein um Vélsmiðjur á ísafirði fyrstu fimm áratugi þessarar aldar og margar myndir fylgja. Bolsarnir byltast fram heitir grein Sigurð- ar Pcturssonar, en þar segir frá uppgangi verkalýðshreyfingar og valdatöku Al- þýðuflokksins í bæjarstjórn ísafjarðar. Hulda Sigmundsdóttir skrifar um Upphaf skólahalds í Mýrahreppi í Dýrafirði. - og forsíðumynd ritsins er vetrarmynd frá Dýrafirði, sem Hjálmar R. Bárðarson tók. Þórður J. Magnússon segir frá Sjón- leikafélagi á Flateyri 1895, Björn Guð- mundsson skrifar: Úr endurminningum Björns Guðmundssonar vélstjóra og skip- stjóra á ísafirði. Margt fleira fróðlegt og sögulegt er í ritinu, en ritstjóri er Jón Þ. Þór. Heimilispósturinn Heimilispósturinn er blað sem er heim- ilisblað Elliheimilisins Grundar og rit- stjóri þess er Gísli Sigurbjörnsson. Þetta jan.-mars blað 1986 er byrjun á 22. árgangi ritsins. Forystugrein blaðsins er rituð af rit- stjóra og heitir Hvað er framundan? Þá er birt Útvarpspredikun, sem sr. Guð- mundur Þorsteinsson flutti 1. sunnud. í föstu í ár. Næst segir frá Ráðstefnu, sem haldin var á vegum Öldrunarfræðafélags íslands og verkefnið var: Stofnanaþjón- usta aldraðra á Stór-Reykjavíkursvæðinu 1985. Sagt er frá samkomum sem haldnar voru á Grund, en því næst er birt grein Sigurdórs Sigurdórssonar blaðamanns á Þjóðviljanum, sem var í blaðinu 22. febr. sl. ognefnist: Ánægjulegt ævikvöld eða... Birtir eru sálmar og annar kveðskapur og viðtöl og frásagnir aldraðs fólks. Bjarni E. Sigurðsson skólastj. í Þorlákshöfn skrifar þarna grein: Fordæmið og áfeng- isneyslan. Blaðið er prentað í Prentsmiðjunni Leiftur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.