Tíminn - 29.04.1986, Qupperneq 20
STRUWPARNIR
HRESSA
KÆTA
meÓVISA
Sigurður Sveinsson
er svo sannarlega búinn aö ná sér
eftir meiösl þau sem hann varð
fyrir í þýska handknattleiknum.
Siguröur skoraöi 12 mörk um helg-
ina er Lemgo vann stóran sigur.
Kristján Arason skoraöi 10 mörk er
Hamlen fór á toppinn I 2. deild. Af
íslendingum í knattspyrnunni er
þaö að segja aö allir léku afbragðs
vel og Lalli gerði tvö mörk.
Afturför í hönnun húsa á síðari árum:
Þolhönnun húsa bág-
borin hér á landi
Óraunhæft að treysta á að jarðskjálftar leiði ekki til stórslysa
Þölhönnun (burðarþol) húsa hef-
ur farið aftur hér á landi á síðustu
árum að mati sérfræðinga, sem segja
mörg dæmi þess að eigendur nýlegra
húsa hafi orðið fyrir verulegu tapi
vegna viðgerða, endurbóta og tak-
markaðs notagildis þeirra.
Draga þessir sérfræðingar mjög í
efa að hús hér séu almennt svo
traustbyggð sem af er látið og flestir
hafa talið. Dæmi frá öðrum jarð-
skjálftalöndum sýni og sanni að fólk
búi víða við falskt öryggi og óraun-
hæft sé að ganga út frá því sem vísu
að hér verði ekki jarðskjálftar sem
leiði til stórslysa.
„Hin síðari ár hafa komið í Ijós
gallar á byggingum hér á landi sem
rekja má tii óvandaðrar þolhönnun-
ar. Svo virðist sem löggilding til
þolhönnunar og eftirlit byggingar-
tulltrúa veiti ekki fullkomlega það
aðhald sem að var stefnt með setn-
ingu byggingarlaga 1978,“ segir m.a.
i' niðurstöðum nefndar sem félags-
málaráðherra skipaði s.l. haust til að
kanna ástand þolhönnunar bygginga
hér á landi og gera tillögur til úrbóta.
Fljótsdalshérað:
Banaslys
Banaslys varð við brúna yfir Ey-
vindará á Fljótsdalshéraði í fyrra-
dag. Nítján ára gamall maður lést er
hann missti stjórn á bifreið sinni t'
grennd við brúna. Mjög krappar
beygjur eru beggja vegna brúarinn-
ar. Maðurinn var einn á ferð þegar
slysið varð. Hann hét Erlendur
Gauti Vilbergsson. Hann var búsett-
ur á Egilsstöðum.
-ES
En ástæðu nefndarskipunarinnar
sagði ráðherra þá að aðilar innan
Rannsóknastofnunar bygginga-
iðnaðarins, félaga verkfræðinga og
tæknifræðinga og fleiri hefðu lýst
áhyggjum yfir að víða væri pottur
brotinn í þessu efni.
Þolhönnun er sú sérfræðigrein
innan byggingarverkfræðinnar sem
fj allar um burðargetu og stöðugleika
mannvirkja, þannig að öryggi og
notagildi þeirra séu tryggð.
Nefndin kveðst hafa fengið upp-
lýsingar um mörg mannvirki, sem
reist hafa verið á undanförnum
árum, þar sem þolhönnun, eftirliti
og fleiru sé ábótavant. Þessi dæmi
sýni glöggt bágborið ástand þessara
mála hér á landi. Ekki verði um villst
að full ástæða sé til að setja strangari
skilyrði fyrir löggildingu og að komið
verði á markvissara eftirliti með
framkvæmdum.
„í öllum þessum tilfellum bera
hönnuðir og viðkomandi embætti
byggingarfulitrúa mikla ábyrgð.
Eftirlit það sem eigendur þessara
mannvirkja hafa treyst á hefur
brugðist og reynst þeim dýrkeypt.
Þeir hafa orðið fyrir verulegu tapi
vegna viðgerða, endurbóta, tak-
markaðra nota og/eða lækkunar á
verðgildi eigna sinna," segir m.a. í
niðurstöðum nefndarinnar.
Nefndin leggur m.a. til aðskipuleg
könnun á ástandi bygginga með
tilliti til þolhönnunar fari fram um
allt land. Byrjað verði á könnun á
ástandi þeirra húsa sem tekin hafa
verið í notkun frá ársbyrjun 1985
eða eru í byggingu, en síðan á
atvinnuhúsnæði sem reist hefur verið
á síðustu 5-10 árum.
Einnig leggur nefndin til að gerðar
verði auknar kröfur til þeirra sem
æskja löggildingar á sviði þol-
hönnunar (burðarþols), þ.e. að þeir
hafi sérmenntun á því sviði. Kröfur
um starfsreynslu verði lengdar úr 2 í
4 ár, og að krafist verði ákveðins
prófs að lokinni tilskildri starfs-
reynslu.
Til þess að þessar og fleiri tillögur
nefndarinnar nái fram að ganga
verða til að koma breytingar bæði á
byggingarlögum og reglugerðum.
Sem dæmi um skemmdir voru
nefnd bæði sig í undirstöðum og
sigin gólf m.a. Dæmi var nefnt um
nýlegt hús svo lélegt að setja þurfti
sérstakar styrkingar til að það væri
nothæft fyrir þá atvinnugrein sem
það var hannað fyrir.
Gallana sögðu nefndarmann oft-
ast stafa af því að hönnunin hafi
brugðist en einnig séu dæmi um að
ekki hafi verið farið eftirteikningun-
um. Fram kom að einingahús eru
meðal þeirra bygginga sem þurfi
nánari athugunar við að þessu leyti.
-HEI
Foreldra-
dagur
í Foldaskóla
Laugardaginn 27. apríl var op-
inn dagur í Foldaskóla í tilefni
200 ára afmælis Reykjavíkur-
borgar.
Sýndu nemendur ýmisleg verk-
efni sem þau höfðu unnið fyrir
þennan dag. Sýndu þau hverfið
eins og það er í dag og eins og það
var áður en byggingar hófust.
Einnig voru sýnd unnin verkefni
eftir heimsóknir á ýmsa staði t.d.
Fjarskiptastöðina í Gufunesi,
Vog, rannsóknarstofnanir
Keldnaholts o.s.frv. Stóð einnig
foreldrafélagið fyrir leikjum og
kaffisölu allan daginn.
Foldaskóli er nýr skóli í Graf-
arvogi og hefur hann 170 nem-
endur og 13 kennara. Skólastjóri
er Arnfinnur U. Jónsson og kvað
hann þennan dag vel heppnaða
hátíð.
Pokahlaup. Einn af mörgum leikjum sem Foreldrafélag Foldaskóla stóð fyrir. rímamjnd Pétur
Afengisvandi
hjá gæslunni?
Rannsokn fari fram segir forsætisráöherra
„Ég held að það sé langbest að
sú skoðun sem forsætisráðherra
hefur talað um, fari fram og þá
kemur þetta vonandi allt í ljós. Ég
held að það verði best sem fyrst,“
sagði Gunnar Bergsteinsson for-
stjóri Landhelgisgæslunnar í sam-
tali við Tímann í gær.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra, sem einnig gegnir
embætti dómsmálaráðherra þessa
dagana í fjarveru Jóns Helgasonar
hefur sagt að hann teldi æskilegt að
fram fari rannsókn á málefnum
Landhelgisgæslunnar.
Jón Sveinsson fyrrverandi sjó-
liðsforingi í norska sjóhernum hef-
ur gagnrýnt Landhelgisgæsluna og
yfirstjórn hennar í blaðaskrifum.
Jón starfaði hjá Landhelgisgæsl-
unni um nokkurn tíma. Hann segir
í grein sinni að áfengisneysla sé
mikil og skipulagsleysi og ýmislegt
fleira nefndir hann í grein sinni um
málefni Landhelgisgæslunnar.
Týr, skipið sem Jón skrifar um,
er ekki væntanlegt til hafnar í
Reykjavík, fyrr en áttunda maí og
verður þá krafist skýringa frá skip-
herranum og áhöfn. Jón Helgason
dómsmálaráðherra er væntanlegur
til landsins næstkomandi sunnu-
dag.
Jón Sveinsson hefur sagt að
hann muni geta staðið við allt sem
hann hefur skrifað um Landhelgis-
gæsluna fyrir rétti.
-ES
Samband fiskvinnslustöðva
Forsendum kjarasamninga
ógnað af falli dollarans
- segir í ályktun framhaldsaðalfundar
í ályktun frá framhalds-
aðalfundi Sambands fisk-
vinnslustöðva, sem haldinn
var í gær er varað við því að
forsendum fyrir febrúar-
kjarasamningunum sé stefnt í
voða, haldi gengi dollarans
áfram að lækka. Bent er á að
þegar kjarasamningarnir voru
gerðir hafi gengi dollarans ver-
ið 42,30 kr. en hafi síðan
lækkað um 4-5% (var í gær
40,62 kr.) og að fiskvinnslan,
sem hafi mest af sínum tekjum
í dollurum, geti ekki starfað
við slík skilyrði.
Knútur Óskarsson fram-
kvæmdastjóri Sambands fisk-
vinnslustöðva sagði í samtali
við Tímann í gær að með
þessari ályktun vildi fisk-
vinnslan vekja athygli á þeim
erfiðleikum sem greinin hefði
tekið á sig, þ.e. að greiða
hærra kaup samfara því sem
tekjurnar minnkuðu. Knútur
sagði jafnframt að fiskvinnsl-
an hafi gengið út frá því við
kjarasamningana að ákveðið
gólf yrði sett varðandi það
hversu mikið dollarinn félli,
og ef þessi þróun héldi áfram
og ekkert yrði að gert væri
ljóst að efnahagsstefna ríkis-
stjórnarinnar og forsendur
kjarasamninganna brystu.
í ályktun Sambands fisk-
vinnslustöðva kveður þó jafn-
framt við bjartari tón og er
bent á að ytri skilyrði séu um
margt hagstæð fiskvinnslunni,
verð afurða hátt, afskipanir
örar, og að fjármagnskostnað-
ur fari lækkandi.
- BG