Tíminn - 22.05.1986, Síða 6
6 Tíminn
í Suður-Mjódd
Framsóknarflokkurinn leggur mikla áherslu á skipu-
lagsmál í komandi borgarstjórnarkosningum.
Ber þar hæst skipulag úthverfa borgarinnar austan
Elliðaáa. Frambjóðendur flokksins hafa þegar kynnt
ákveðnar hugmyndir sínar sem gera ráð fyrir að í
Suður-Mjódd rísi nýr miðbær sem veiti íbúum þessa
svæðis sem fjölbreytilegasta þjónustu. Þessar tillögur
Framsóknarflokksins hafa vakið verulega athygli borgar-
búa sem ekki er undarlegt þar sem um verulegt hagsmuna-
mál er að ræða fyrir um 40% íbúa borgarinnar.
Fái Framsóknarflokkurinn stuðning kjósenda við þetta
stefnumál sitt munu fulltrúar hans í borgarstjórn vinna að
þessu máli á næsta kjörtímabili.
Skipulag þessa svæðis hefur dregist á langinn og engar
líkur eru á að sjálfstæðismenn leggi áherslu á að ljúka því.
A.m.k. vekur það athygli hve lítið frambjóðendur
flokksins vilja ræða það eða fjalla um þessar tillögur á
annan máta. Fögnin segir til um hug þeirra.
Þörfin fyrir þjónustu- og verslunarhverfi í austur-miðbæ
er brýn. Óeðlilegt er að íbúar Breiðholts, Árbæjar,
Ártúnsholts og Grafarvogshverfa þurfi að sækja nauðsyn-
lega þjónustu langan veg.
Ljóst er að sú starfsemi sem nú er komin í Mjóddina og
væntanleg starfsemi þar getur á engan hátt þjónað þessum
úthverfum svo vel sé. Því er nauðsynlegt að byggja
Suður-Mjóddina upp sem þjónustu- og verslunarhverfi í
tengslum við Mjóddina. Fessi svæði myndu með samteng-
ingu mynda sameiginlega heild, austur-miðbæ Reykjavík-
ur.
Álagið í gamla miðbænum er allt of mikið. Erfitt er um
bílastæði og þröngt um húsnæði. Full þörf er á að létta á
álaginu og gera þessar skipulagstillögur ráð fyrir því.
Gamli miðbærinn yrði áfram hjarta borgarinnar, svipmik-
ill og fallegur.
í skipulagstillögum sínum leggur Framsóknarflokkur-
inn ríka áherslu á aukið samstarf og samvinnu sveitarfé-
laganna á höfuðborgarsvæðinu.
Framsóknarflokkurinn telur að samfara útfærslu byggð-
ar beri að athuga enn frekari þéttingu hennar vestan
Elliðaánna. Þess verður jafnframt að gæta að ekki sé
gengið um of á útivistarsvæði borgarinnar.
Framsóknarflokkurinn hafnar lagningu Fossvogs-
brautar og telur að með nýju skipulagi í Mjóddinni sé
engin þörf fyrir hana. Þess í stað leggur flokkurinn áherslu
á að gera eigi Fossvogsdal að útivistarsvæði sem yrði
eftirsótt af höfuðborgarbúum og nágrönnum Reykjavík-
ur.
í viðtali við Tímann fyrir skömmu var dr. Þór
Jakobsson veðurfræðingur spurður álits á þessum tillög-
um.
„Það eru margar ástæður fyrir því að ég tel að leggja
eigi áform um lagningu Fossvogsbrautar á hilluna. Ég tel
að ef farið verður eftir hugmyndum framsóknarmanna um
miðbæjarstarfsemi í Mjóddinni dragi verulega úr þörfinni
fyrir þessa hraðbraut. Fossvogsdalurinn er mjög ákjósan-
legt útivistarsvæði og ég tel að eigi að nýta þá möguleika.
Ennfremur vil ég benda á veðurfarslegar ástæður. Foss-
vogsdalurinn liggur lágt og þar er staðviðrasamt og
hraðbraut þar í gegn með þeirri miklu bílaumferð sem
henni fylgir myndi óumflýjanlega valda mikilli loftmeng-
un. “
Atlagan að Miklagarði
Þeir voru ekkert að skafa utan af
hlutunum fulltrúar Daviðs Odds-
sonar á vinnustaðafundi hjá Sam-
vinnutryggingum, þegar þeir voru
spurðir um framtíð Mildagarðs,
stórmarkaðs samvinnumanna í
Holtagörðum. Hann skal i burtu
eftir 2 ár, sagði Páll Gislason
læknir og borgarfulltrúi sjálfstæð-
ismanna, og hvessti brýnnar. Það
er agi á liðinu hans Davíös, og
enginn vafi á því að Sjálfstæð-
isflokkurinn meinar það fullkom-
lega að hrekja Miklagarö úr Holfa-.
görðum, úr því að Páll Gislason er
látinn gefa þessa yfirlýsingu. Páll
er síðasti uppreisnarmaðurinn í
borgarstjómarÚði sjálfstæðismanna
og reyndi eftir mætti að sporna
gegn Davíð vegna sölunnar á Hafn-
arbúðum á sínum tíma, en varð að
láta í minni pokann. Nú hefur hann
verið barinn cndanlega til hlýðni,
og er þá enginn maður með sjálf-
stæða hugsun eftir í borgar-
stjórnarliði sjálfstæðismanna. AI-
bert Guðmundsson var sá eini, auk
Páls, sem þorði að standa uppi í
hárinu á Davíð í þessum hópi, en
til að losa sig við hann, var próf-
kjörsreglunum breytt á þann veg,
að vitað var, að Albert myndi
aldrei sætta sig við þær og myndi
hætta.
Hollusta við húsbóndann
Það er vissulega illa farið með
jafn ágætan mann og Páll Gíslason
annars er, með því að láta hann
gangast undir próf af þessu tagi.
Páll tilheyrir ekki í eðli sínu jáhjörð-
inni kringum borgarstjórann. En
PállG.
Albert
Jón Sig.
Davíð
hann á pólitiskt líf sitt undir því að
segja já og amen, eins og málum er
nú komið. Þess vegna er hann
sendur á vinnustaðafundi hjá sam-
vinnufyrirtæki og talar þvert um
hug sinn til að sanna hollustuna við
húsbóndann. Það verður lagleg
hjörð, sem stjórnar borginni næsta
kjörtímabil vinni sjálfstæðismenn
sigur, eins og allar skoðanakannan-
ir benda til. Og andstæðingar Dav-
íðs mega vara sig. Það verður
engin miskunn sýnd eins og kom-
andi hefndarráðstafanir gegn sam-
vinnuhreyfingunni sýna.
Vonbrigði Jóns
Hætt er við, að Jón Sigurösson,
framkvæmdastjóri Miklagarðs,
eigi eftir að verða fyrir miklum
vonbrigðum með flokksbræður
sína í Sjálfstæðisflokknum. Hann
hefur marglýst því yfir, að aldrei
komi til þess, að Sjálfstæðisflokk-
urinn hrekji Miklagarð í burtu úr
Hoitagörðum. Yfirlýsing Páls
Gíslasonar, rétt fyrir kosningar,
kemur þvert á þessa skoðun Jóns.
Og eins og allir vita, og Davíð
hefur margoft sagt, þá stendur
Sjálfstæðisflokkurinn alltaf við
kosningaloforð sín.
Á sama tíma og Sjálfstæðisflokk-
urinn lýsir yfir heilögu stríði gegn
stórmarkaði samvinnumanna, er
hann að grafa göng undir Miklu-
braut fyrir litlar 50 miiljónir króna
að kröfu Hagkaups, helsta keppi-
nautar Miklagarðs. Og ekki nóg
með það. Til að þóknast þessum
aðalkeppinauti samvinnumanna
um þessa „nauðsyn!egu“
framkvæmd, neyðist Reykjavíkur-
borg til að skerða íþróttasvæði
Knattspyrnufélagsins Fram við
Miklubraut og verður að greiða
félaginu milljónir króna í skaða-
bætur!
Þetta er smásýnishorn af því
hvernig félögum er mismunað í
Davíðsborg. Þessi mismunun kem-
ur einnig fram gagnvart einstakl-
ingum, þegar verið er að úthluta
lóðum til flokksgæðinga, án aug-
lýsinga, á cftirsóttum stöðum í
borginni, sbr. úthlutunina á horni
Háaleitisbrautar og Kringlumýr-
arbrautar og í Hvassaleiti. Þau
vinnubrögð minna á spillingu í
suður-amerískum stíl.
Garri.
VÍTTOG BREITT
Stórfelld afbrot
eða ný vinnubrögð?
Lögreglan gerði sex mönnum
rúmrusk eldsnemma á þriðjudags-
morgni s.l.,. sá sjöundi svaf vært
erlendis. Aðfarirnar voru harka-
legar. Mennirnir drifnir volgir upp
úr rúmum sínum, færðir umsvifa-
laust í varðhald og sættu þar
ströngum yfirheyrslunt. Svona at-
burðir eiga sér ekki stað í réttarríki
nema að sakir séu alvarlegar og
ákæruvaldið hafi þau gögn undir
höndum að það sé réttlætanlegt að
beita aðgerðum sem þessum til að
brjóta múl til mergjar.
Fyrir um ári síðan fór að kvisást
að ekki væri allt með felldu í
fjárreiðum Hafskips hf. Forráða-
menn félagsins neituðu staðfast-
lega að nokkuð væri hæft í þeim
orðrómi og hlutafé var aukið að
mun. Á haustmánuðum varfélagið
lýst gjaldþrota.
Innlendar og erlendar kröfur í
þrotabúið nema svimandi upphæð-
um og einn ríkisbankanna hlýtur
skell sem hann á erfitt með að
standa af sér.
Gjaldþrot eru algeng á íslandi
og að öllu jöfnu vekjá fréttir af
þeim ekki mikla athygli, og eru
útgerðarfyrirtæki síst undantekn-
ing frá því. Skipin skipta bara um
eigendur. En gjaldþrot Hafskips
og aðdragandinn að því var með
öllu dramatískari hætti en við eig-
um að venjast. Stærðargráða gjald-
þrotsins er einnig með ólíkindum.
Engin ákæra hefur verið lögð
fram og engin sök sönnuð í þessu
máli, en rannsóknarlögreglustjóri
hefur gefið vísbendingu um hvers
eðlis grunsemdirnar eru með því
að vísa til tiltekinna greina hegn-
ingarlaganna. Ljóst er að rann-
sóknin beinist að auðgunarbrotum,
skjalafalsi og ranglega gefnum
upplýsingum.
Þá hefur ákæruvaldið látið í
veðri vaka að einhverjir af starfs-
mönnum Útvegsbankans kunni að
vera flæktir í málin.
Farið er fram á fimm vikna
gæsluvarðhald þeirra sem hand-
teknir eru og bendir sá langi tími
til að málið sé viðamikið og ákæru-
efnin stór í sniðum.
Það sem einkum kemur á óvart
í máli þessu er hve rösklega er að
verki staðið af hálfu ákæruvaldsins.
Það er óvenjulegt að þrotamenn
séu látnir standa fyrir máli sínu
með þessum hætti á íslandi. Enn
hefur ekkert verið opinberað um
efnisatriði málsins en mann býður
í grun að grunsemdir ákæruvalds-
ins um misferli séu ærnar. En
jafnframt vaknar sú spurning hvort
áður hafi ekki oft verið ástæða til
að kanna gjaldþrot fyrirtækja og
hugsanlegt misferli í sambandi við
þau. Eða yfirleitt um vafasama
meðferð fj ár sem fengið er að láni.
Varla hefur nokkru sinni áður
heyrst að tilefni væri til að rannsaka
viðskipti bankamanna við stór-
skuldug fyrirtæki sem fé er mokað
í úr bönkum og aðskiljanlegum
sjóðum.
DV skýrir svo frá í gær að einn
hinna handteknu sé fyrrverandi
endurskoðandi Hafskips. Það er
nýmæli að sjálfstæður endurskoð-
andi, sem tekur að sér að fara yfir
bókhald fyrirtækja og veita því
blessun sína og undirskrift, sé kraf-
inn ábyrgðar á því verki sínu og að
hann þurfi að svara til saka fyrir
brot á landslögum. Löggiltur
endurskoðandi þarf sem sagt að
athuga fleira en að skila af sér
sléttu og rétt stemmdu bókhaldi.
Vel má vera að Hafskipsmálið
hafi algjöra sérstöðu í langri sögu
misferlis innan fyrirtækja og hrap-
allegra gjaldþrota, þar seih bankar
og sjóðir hafa ausið út fé löngu
eftir að fyrirsjáanlegt var hvert
stefndi og eignir námu ekki nema
broti af skuldum.
Ef til vill er hér aðeins um ný
vinnubrögð að ræða af hálfu
ákæruvalds og rannsóknaraðila.
Stjórnendur fyrirtækja eru krafnir
ábyrgðar og bankamenn og endur-
skoðendur eiga að vita hvað þeir
eru að skrifa upp á þegar þeir mæla
með lánveitingum eða skrifa upp á
ársreikninga, eða gefa yfirlit um
stöðu fyrirtækis fyrir hluthafa-
fundi.
Þeir Hafskipsmenn hafa enn
ekki verið ákærðir og enn er margt
óljóst í málinu öllu. Réttvísin mun
rannsaka mál þeirra og kveða upp
sinn dóm. Ljóst er að misfellur
voru á stjórn fyrirtækisins og ör-
væntingarfullar tilraunir voru gerð-
ir til að rétta hag þess, en gerðu
aðeins illt verra. Óskhyggja og trú
á kraftaverk réði ferðinni, eða þá
hreinn og beinn barnaskapur. Mál
þetta kemur ekki aðeins við þá sem
nú sitja í varðhaldi, heldur og
fjölskyldur þeirra og fjölmarga
aðra svo sem fyrrum starfsmenn
Hafskips, sem skiptu hundruðum.
Dómharka að órannsökuðu máli á
hér ekki við og enn síður meinfýsi
í garð þeirra aðila sem nú er krafist
að standi fyrir máli sínu.
Aðalatriðið er að sá tími er upp
runninn, að þeir sem stunda vafa-
söm fjármálaumsvif eru látnir
svara til saka. OÓ
Tímirm
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvæmdastjóri Kristinn Finnbogason
Ritstjóri: NíelsÁrni Lund
Aðstoðarritstjóri: OddurÓlafsson
Fréttastjóri: Guðmundur Hermannsson
Aðstoöarfréttastjóri: Eggert Skúlason
Auglýsingastjóri: Steingrímur G íslason
Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og
686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT.
Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306
Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.-