Tíminn - 03.06.1986, Side 5
Þriðjudagur 3. júní 1986
UTLÖND
Tíminn 5
Ekkert virðist benda til þess að Felipe Gonzalez forsætisráðherra Spánar missi starf sitt eftir kosningar þann 22.
júní næstkoniandi. Sósíalistum er spáð öruggum sigri.
Spánn:
Sósíalistasigur
Noregur:
Gríðarmikill
gassamningur
Norðmenn ætla að selja evrópskum fyrirtækjum
mikið af jarðgasi - Góðar fréttir fyrir efnahag
frænda vorra
Stavangur-Reuter
Norsk stjórnvöld gengu í gær frá
samningi við nokkur vestræn stórfyr-
irtæki um að selja þeim jarðgas næstu
27 árin. Þetta var haft eftirtalsmanni
ríkisolíufyrirtækisins norska, Stat-
oil, sem sagði samninginn hljóða
upp á 68 milljarði bandaríska dala.
Willy Olsen, talsmaður Statoil
sagði á blaðamannafundi í Stavangri:
„Samkomulagið tryggir Norðmönn-
um aukinn hlut í Evrópumarkaðin-
um næstu árin.“
Byrjað verður að flytja gasið árið
1993 og verður það unnið á Trölla-
og Sleipnissvæðunum í Norðursjó.
Stærsti kaupandinn er vestur-þýska
fyrirtækjasamsteypan Ruhrgas.
Kaupendurnir koma þó ekki ein-
ungis frá V-Þýskalandi heldur einnig
frá Hollandi, Frakklandi og Belgíu.
Norðmenn selja nú þegar um 24%
af því jarðgasi sem notað er í
Vestur-Evrópu en hafa átt í vaxandi
samkeppni við Sovétríkin og Alsír
sem vinna gas sitt bæði ódýrara og
búa yfir mörgum jarðgaslindum.
Samkvæmt heimildum innan gasiðn-
aðarins mun þó staða Norðmanna í
bandalagi vestrænna ríkja hafa ráðið
miklu um að samningurinn varð
þeirra.
Að sögn talsmanns Statoil eru
umræður um enn meiri jarðgassölu
til annarra evrópska fyrirtækja nú
þegar hafnar.
Arne Áien olíu- og orkumálaráð-
herra Noregs sagði fréttamönnum
að hann fagnaði samkomulaginu
sem myndi hafa geysigóðar af-
leiðingar fyrir efnahagslífið og ýtti
einnig undir viðræður um enn meiri
gassölu.
Skoðanakannanir benda til að flokkur Felipe Gonzalez muni
bera sigur úr býtum í komandi þingkosningum
Viltu lifa eins
lengi og Lalic?:
Settuþááfengi,
sígarettur og
svín á bannlista
Belgrad-Reuter.
Margir hinna erlendu stúdenta í Kína segja heimamenn vera þjóðernissinn-
aða í meira lagi og hafa þröngsýnar skoðanir á útlendingum.
Fréttaskýring:
Madríd-Rcuter
Spánski Sósíalistaflokkurinn
(PSOE) mun halda meirihlutafylgi
sínu í þingkosningunum þann 22.
júní næstkomandi. Þetta kom fram í
skoðanakönnun sem dagblaðið E1
Pais birti um helgina.
Niðurstöður skoðanakönnunar-
innar kom heim og saman við fyrri
kannanir sem allar gefa til kynna að
Felipe Gozalez forsætisráðherra og
ráðuneyti hans mundi halda í stjórn-
artaumana næstu fjögur árin. Sam-
kvæmt skoðanakönnuninni mun
PSOE fá 46% atkvæða en helsti
stjórnarandstöðuflokkurinn,
Bandalag hægrimanna (CP) sem
Manuel Fraga er í forsæti fyrir, mun
fá 24% atkvæða.
PSOE mun fá að minnsta kosti
194 þingmenn kjörna en alls eru 350
þingsæti á spánska þinginu.
Kommúnistar munu samkvæmt
könnuninni aðeins fá um 3,9% at-
kvæða en voru árið 1982 með 6%.
Hinsvegar mun Adolfo Suaraz fyrr-
um forsætisráðherra og flokkur
hans, Miðjuflokkurinn (CDS) fá
helmingi fleiri atkvæði en fyrir fjór-
um árum eða 8%.
Stjórnmálaskýrendur telja at-
kvæðamagn CDS benda til þess að
hægrisinnaðir kjósendur vilji annan
foringja í stað Fraga, sem nú er
líklegastur til að leiða hægrimenn til
annars kosningaósigurs í röð.
Kosningabaráttan hófst formlega
um helgina en Gonzalez forsætisráð-
herra hélt ræðu í Valencíu þar sem
saman voru komnir 25 þúsund stuðn-
ingsmenn sósíalista.
Atvinnuleysi verður líklega eitt
helsta deilumál kosninganna. Nú er
um 22% atvinnuleysi í landinu sem
er það mesta í Vestur-Evrópu.
Vestur-Þýskaland:
Bændum er í nöp
við kjarnaofna
- sérstaklega þá sem leka
Hamm, V-Þýskalandi-Reutcr
Vestur-þýskir bændur lokuðu
vegum er liggja til tilraunakjarn-
orkuofns í gær. Að sögn lögregl-
unnar settu bændurnir vegatálman-
ir upp eftir að fréttir höfðu borist
um að ofninn hefði lekið og geisla-
virk efni sloppið út í andrúmsloftið
í síðasta mánuði.
Þessum háhitaofni, sem tilraunir
voru hafnar með í janúar síðast-
liðnum, var lokað um óákveðinn
tíma í fyrradag. Það var héraðs-
stjórnin í Norður Rínar- og West-
fallshéraði sem lét loka ofninum á
meðan rannsókn fer frant á lekan-
um sem varð þann 4. maí síðastlið-
inn.
Alls söfnuðust um 40 bændur
saman á traktorum sínum og kröfð-
ust þess að kjarnaofninum yrði
lokað í eitt skipti fyrir öll.
Sérfræðingar segja geislun þá
sem slapp út í andrúmsloftið þegar
ofninn lak ekki vera hættulega.
Reimut Jochimsen efnahags-
málaráðherra í hérðasstjórninni
hefur sakað fyrirtækið sem með
kjarnaofninn hafði að gera um að
hafa ekki skýrt yfirvöldum frá
slysinu í tíma. Fyrirtækið hefur
neitað ásökununum.
Japan:
Lélegur þjófur
Tokyo-Reuter.
Bílþjófi urðu á tvenn örlagarík
mistök eftir að hafa stolið feitum og
fallegum Mercedes Benz í miðborg
Tokyo í síðustu viku.
f fyrsta lagi gleymdi hann að
athuga bensínmælinn til að sjá hve
mikið af eldsneyti væri á bifreiðinni
og í öðru lagi gat hann ekki gert sér
grein fyrir hvernig sætisbeltin virk-
uðu f fína bílnum.
Nú, þjófurinn hinn þrítugi Hide-
haru Tsujimoto, fór eftir öllurn lög-
um og reglum í sambandi við öryggi
í akstri, festi sætisbeltið og renndi
hljóðlega á Benzinum út úr miðborg-
inni. Hinsvegar varð bíllinn bensín-
laus á hraðbraut í einu úthverfi
Tokyoborgar.
Lögreglan kom stuttu síðar að
Tsujimoto þar sem hann barðist eins
og óður við að losa sig úr sætisbeltinu
en án árangurs. Hann hefur verið
ákærður fyrir þjófnað.
Stúdentaslagur í Kína
Þar hefur enn komiö til árekstra milli erlendra stúdenta og kínverskra skólafélaga þeirra
Peking-Reuter.
Ef þú drekkur ekki, reykir ekki og
ég étur ekki svínakjöt áttu mögu-
leika á að lifa eins lengi og Ilija Lalic
sagði í frétt dagblaðsins Vecernje
Novosti í Belgrad í gær. Lalic varð
124 ára gamall en hann lést í síðustu
viku í heimahéraði sínu Kosovo f
Júgóslavíu.
Lalic, sem aldrei fór til læknis,
byrjaði alltaf daginn með því að fá
sér grænt te frá Georgíu. Einnig
drakk hann dulítið af mjólk og át
ostbita ellegar pylsu. Að kvöldlagi
drakk hann kaffi og ekkert annað.
Blaðið sagði Lalic hafa fengið 16
sár í Balkanstríðinu og heimsstyrj-
öldunum báðum, kvænst tvívegis,
átt fjögur börn og unnið á jörð sinni
fram á síðasta dag lífs síns.
Nágrannar Lalic lýstu honum sem
friðsælum manni sem vildi vera í sátt
við alla.
Árekstrar þeir sem orðið hafa á
milli erlendra stúdenta í Kína og
þarlendra stúdenta og komist hafa í
heimspressuna á síðustu dögum, má
rekja til mismunandi menningarvið-
horfa. Þetta var haft eftir vestrænum
stjórnarerindrekum í Kína sem
bættu við að árekstramir gætu orðið
að ofbeldisfullum aðgerðum.
Erlendir stúdentar segja höfuðá-
stæðu átakanna vera mikla kynþátta-
fordóma kínverskra skólafélaga
sinna. Slíkir kynþáttfordómar hefðu
t.d. komið vel í ljós þann 24. maí
síðastliðinn þegar 500 stúdentar við
Tianjin háskólann lokuðu 28 erlenda
stúdenta, flesta frá Afríku, inni í
einum heimavistarsalnum eftir dans-
leik sem þar var haldinn.
Háskólayfirvöld sögðu sjö kín-
verska stúdenta hafa meiðst eftir að
hafa orðið fyrir árás frá afrískum
stúdentum en því hefur verið neitað
af Afríkubúunum og öðrum erlend-
um stúdentum í Tianjin.
Á síðustu árum hefur þó nokkuð
verið um árekstra milli erlendra
stúdenta og þeirra kínversku. Sumir
segja helstu ástæðuna vera hávaða-
sama hljómlist sem hinir erlendu
stúdentar leggja sig í líma við að
hlusta á og einnig ásækni þeirra í
kínverskt kvenfólk.
Stjómarerindrekar segja að marg-
ir hinna erlendu stúdenta eigi erfitt
með að aðlagast kínverskum menn-
ingarheimi og verði smátt og smátt í
aöp við allt sem kínverskt er á
meðan á námi þeirra stendur.
Átökin við Tianjin háskólann eru
ekki þau fyrstu og varla þau síðustu,
milli erlendra stúdenta og heima-
manna. Hinsvegar mun atvikið hafa
valdið kínverskum yfirvöldum
nokkrum áhyggjum, sem óttast að
átök þessi geti orðið öfgafyllri.