Tíminn - 03.06.1986, Blaðsíða 13

Tíminn - 03.06.1986, Blaðsíða 13
Tíminn 13 Þriðjudagur 3. júní 1986 Lögreglumenn sjá hvarvetna um flutning á kjörkössum frá kjörstað þangað sem þeir eru tæmdir og seðlarnir taldir. (Tímamynd Sverrir) Salómonsson (A), Guðrún K. Jó- hannsdóttir (A), Tryggvi Finnsson (B), Hjördís Árnadóttir (B), Katrín Eyrmundsdóttir (D), Kristján Ás- geirsson (G), Valgerður Gunnars- dóttir (G), Örn Jóhannsson (G), Pálmi Pálmason (Þ). SEYÐISFJÖRÐUR Á Seyðisfirði urðu þær breyt- ingar að S-listi Alþýðubandalags- manna og óháðra náði inn einum manni, en Sjálfstæðisflokkurinn tap- aði manni. Því má e.t.v. segja að Alþýðubandalagsmenn í víðum skilningi hafi unnið á því framboð Alþýðubandalags hélt sínum eina manni. Kjörsókn var 90% en á kjörskrá voru 680 og atkvæði greiddu 612. 1986 atkv. fulltr. 1982 atkv. fulltr. 110 183 147 69 86 110 157 185 84 Úrslit A-listi B-listi D-listi G-listi S-listi í bæjarstjórn Seyðisfjarðar næsta kjörtímabil verða því þessir: Magn- ús Guðmundsson (A), Hallsteinn Friðþjófsson (A), Jónas Hallgríms- son (B), Birgir Hallvarðsson (B), Valgerður Pálsdóttir (B), Guð- mundur I. Sverrisson (D), Arnbjörg Sveinsdóttir (D), Hermann V. Guðmundsson (G), Þóra Guð- mundsdóttir (S). NESKAUPSTADUR Alþýðubandalagið hélt meirihluta sínum í gamla höfuðvíginu á Nes- kaupsstað, með naumindum þó, og munaði þar um utankjörstaðarat- kvæðin sem flest fóru til G-listans. Fram kom listi óháðra og náði hann manni kjörnum á kostnað Fram- sóknarflokksins. Kjörsókn ar 92,17% en á kjörskrá voru 1174 og atkvæði greiddu 1082. Úrslit 1986 1982 atkv. fulltr. atkv. fulltr. B-Iisti 190 1 208 2 D-listi 199 2 185 2 G-listi 524 5 530 5 H-listi 142 1 Bæjarfulltrúar á Neskaupsstað næstu fjögur árin verða þessir: Gísli Sighvatsson (B), Frímann Sveinsson (D), Stella Stefánsdóttir (D), Krist- inn V. Jóhannsson (G), Sigrún Geirsdóttir (G), Smári Geirsson (G), Elma Guðmundsdóttir (G), Þórður Þórðarson (G), Brynja Garðarsdóttir (H). ESKIFJORÐUR Persónufylgi Hrafnkels A. Jóns- sonar setti svip sinn á kosningarnar á Eskifirði, en E-listi óháðra þar sem hann er efsti maður fékk tvo menn kjörna. Þennan fulltrúa virðist hann hafa tekið frá Sjálfstæðisflokknum, sem tapar tveimur fulltrúum. Kjör- sókn var 85,75%, en á kjörskrá voru 730 og 626 greiddu atkvæði. Úrslit 1986 1982 atkv. fulltr. A-listi B-listi D-listi E-listi G-listi M-listi 75 128 117 170 100 21 atkv. 69 152 199 129 fulltr. 1 2 3 1 Bæjarstjórn á Eskifirði næsta kjörtímabil skipa þessir: Guðmund- ur Svavarsson (A), Jón I. Einarsson (B), Gísli Benediktsson (B), Skúli Sigurðsson (D), Hrafnkell A. Jóns- son (E), Þórhallur Þorvaldsson (E), Hjalti Sigurðsson (G). VESTMANNAEYJAR Meirihluti sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum féll á laugardag- inn, en flokkurinn tapaði tveimur fulltrúum, einum til Álþýðuflokks og öðrum til Alþýðubandalags. Framsókn heldur sínum fulltrúa. Kjörsókn í Eyjum var 85,1% en á kjörskrá voru 3194 og atkvæði greiddu 2720. Úrslit 1986 1982 atkv. fulltr. atkv. fulltr. A-listi 479 2 349 1 B-listi 368 1 283 1 D-listi 1158 4 1453 6 G-listi 581 2 383 1 V-listi 49 0 í bæjarstjórn Vestmannaeyja verða næstu fjögur árin þessir: Guð- mundur Þ.B. Ólafsson (A), Þor- björn Pálsson (A), Andrés Sig- mundsson (B), Sigurður Einarsson (D), Sigurður Jónsson (D), Bragi 1. Ólafsson (D), Helga Jónsdóttir (D), Ragnár Óskarsson (G), Guðmunda Steingrímsdóttir (G). SELFOSS Á Selfossi kom fram nýtt framboð, listi kvenna, og náðu þær inn einum manni. Sjálfstæðisflokk- urinn tapaði hins vegar einum full- trúa en aðrir héldu óbreyttri fulltrúa- tölu. Kjörsókn á Selfossi var 86,55% en á kjörskrá voru 2527 og þar af greiddu atkvæði 2187. Urslit 1986 atkv. fulltr. 1982 atkv. fulltr. Úrslitin á Dalvík: Réðust ekki af lands- málapólitík „Mér finnst ástæða til að leggja áherslu á það að svona miklar sveifl- ur á litlum stöðum hljóta að taka mið af málum sem hæst ber í sveitar- félaginu, en ekki af landsmála- pólitík. Það má líka benda á að nú voru aðeins 3 framboð í stað fjögurra lista síðast og hvorki hjá okkur sjálfstæðismönnum né Alþýðu- bandalagi var um hrein flokksfram- boð að ræða. Það er því ýmislegt sem gerir að svona mikil hreyfing varð,“ sagði Trausti Þorsteinsson efsti maður á D-lista á Dalvík. En öfugt við flesta aðra staði á lands- byggðinni vann D-listinn þar mikið á. Trausti sagði ekki farið að ræða myndun nýs meirihluta ennþá, en honum þætti eðlilegt að þeir sjálf- stæðismenn hefðu þar forgöngu. Fundur um það mál var fyrirhugaður A-listi 341 1 203 1 1 gærkvöldi. B-listi 588 3 559 3 „Við erum að sjálfsögðu sár yfir D-listi 571 3 677 4 þessum úrslitum," sagði Guðbjörg G-listi 371 1 249 1 Björnsdóttir efsti maður á lista fram- M-listi 30 0 sóknarmanna á Dalvík, en flokkur- V-listi 232 1 inn tapaði þar 2 mönnum og hreinum Bæjarfulltrúar á Selfossi næstu meirihluta í bæjarstjórn. fjögur árin verða þessir: Steingrímur Ingvarsson (A), Guðmundur K. Jónsson (B), Grétar H. Jónsson (B), Ingibjörg S. Guðmundsdóttir (B), Brynleifur H. Steingrímsson (D), Bryndís Brynjólfsdóttir (D), Hauk- ur Gíslason (D), Þorvarður Hjalta- son (G), Sigríður Jensdóttir (V). -BG/gse Guðbjörg sagði andstæðingana mikið hafa rætt um það að ekki væri gott að meirihluti eins flokks réði - og það virðist hafa dugað til. „í þessum kosningum, sem við teljum raunar ekkert koma inn á landsmála- pólitík, virðist fólkið hafa viljað breyta til og við sættum okkur við vilja fólksins." Myndun nýs meiri- hluta sagði Guðbjörg ekki farið að ræða, en henni þætti mjög eðlilegt að framsóknarmenn yrðu þar utan- við, eftir svona höfnun. -HEI Sauðárkrókur: Meirihlutinn féll Meirihlutinn frá 78 ræðir saman Meirihluti Framsóknar og Al- þýðubandalags á Sauðárkróki féll í kosningunum um helgina. Gamli meirihlutinn á Króknum hefur hafið viðræður um meirihlutasamstarf. Sjálfstæðisflokkur, með þrjá menn, Alþýðuflokkur, með einn mann og einn maður af lista óháðra voru á fundum í gær. Alþýðuflokkur fékk einn mann kjörinn, eftir að hafa misst hann f kosningunum ’82. „Við unnum mjög vel fyrir þessar kosningar. Við hóf- um starfið þegar í janúar og það hefur skilað sér,“ sagði Björn Sigurbjörns- son kjörinn fulltrúi A-listans í bæjar- stjórn á Sauðárkróki. Anna K. Gunnarsdóttir er fulltrúi Alþýðubandalags í bæjarstjórn. Hún sagðist hafa búist við meiru fylgi, en þrátt fyrir allt sagðist hún vera ánægð með útkomuna, þar sem hinn meirihluta flokkurinn frá síð- asta kjörtímabili, Framsókn, hefði tapað manni. „Við bættum þó við fylgi okkar,“ sagði Anna. Framsóknarflokkurinn missti einn mann, og hann tók Alþýðuflokkur- inn. -ES Bolungarvík: Óvistummeiri- hlutasamstarf „Okkarfólkgeröi samsæri" segir Benedikt Kristjánsson Úrslit kosninganna á Bolungarvík komu nokkuð á óvart. Framsókn missti einn ntann, og annan til vegna fækkunar bæjarfulltrúa úr níu f sjö. Alþýðubandalag jók fylgi sitt veru- lega mikið og fékk tvo menn kjörna. Það er samt ekki útséð um hverjir mynda meirihluta og með hverjum. Möguleikarnir eru margir. Alþýðu- bandalag var á fundi í gærkvöidi og ræddi þá möguleika á samstarfi við Óháða og Alþýðuflokk. Einnig er talað um Sjálfstæðisflokk og Al- þýðuflokk. Framsóknarmenn, sem misstu fulltrúa sína úr bæjarstjórn telja að illa hafi verið að sér vegið. „Hluti af okkar eigin fólki gerð samsæri og það á engar þakkir skildar fyrir það. Það er allt í lagi með mína æru í þessum kosningum en fólkið sem er í flokknum og fólkið sem hefur stutt okkur og Framsóknarflokkurinn í landinu átti þetta ekki skilið. Ef ég átti að fjúka vegna óvinsælda sem efsti maður á lista, þá hefði það átt að gerast í prófkjöri en ekki í kosningunum," sagði Benedikt Kristjánsson fyrsti maður á B-lista. -ES aóeins einn banki býóur ^VAXTA REIKNING SAMVINNUBANKI ISLANDS HF.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.