Tíminn - 03.06.1986, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Þriðjudagur 3. júní 1986
Mosfellshreppur
Sjálfstæðismenn bættu við sig
manni og styrktu þar með meirihluta
sinn en aðeins munaði tveim atkvæð-
um á framsóknarmanninum og 5.
sjálfstæðismanninum. Alþýðu-
bandalagið og Framsóknarflokkur-
inn buðu nú aftur fram sitt í hvoru
lagi en síðast sameinuðust þessir
flokkar um M-listann.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
A-listi: 40 1
B-listi: 194 0
D-listi: 979 5
G-listi: 357 1
L-listi:...................... 22 0
Kjörsókn var 82,5% og á kjörskrá
voru 2276. Hreppsnefndarmenn
eru:Af A-lista: Oddur Gústafsson.
Af D-lista: Magnús Sigsteinsson,
Helga Richter, Óskar Kjartansson,
Þórdís Sigurðardóttir, Þengill
Oddsson. Af G-lista; Aðalheiður
Magnúsdóttir.
Bessastaðahreppur
f síðustu kosningum var aðeins
borinn fram einn listi en nú voru þeir
þrír. 474 voru á kjörskrá og kjörsókn
var 90,3%.
Urslit:
D-listi:
F-listi:
H-listi
Atkv. Fulltr.
141 2
136 1
147 2
í hreppnefnd komust; af D-lista:
Sigurður G. Thoroddsen, Erla Sig-
urjónsdóttir. AfF-lista: Einar Ólafs-
son. Af H-lista Anna Ólafsdóttir
Björnsson, Ásgeir Sigurðsson.
Hafnir
í síðustu kosningum var kosið
milli þriggja lista en nú kom aðeins
einn listi fram og því sjálfkjörið. í
hreppsnefnd verða af H-lista: Jó-
hann G. Sigurbergsson, Þórarin St.
Sigurðsson, Valgerður H. Jóhanns-
dóttir, Björgvin Lúthersson, Hall-
grímur Jóhannesson.
Sandgerði
Framsóknarflokkurinn bauð nú
fram sér lista í Sandgerði og fékk
annan manninn sem Frjálslyndir
kjósendur höfðu áður. Á kjörskrá
voru 792 og kjörsókn var 90,1%.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
B-listi: 116 1
D-listi: 159 2
H-listi: 139 1
K-listi: 260 3
í hreppsnefnd verða: Af B-lista:
Sigurjón Jónsson. Af D-lista: Sig-
urður Jóhannsson, Sigurður
Bjarnason. Af H-lista: Elsa Krist-
jánsdóttir. Af K-lista: Ólafur Gunn-
laugsson, Grétar Már Jónsson, Pétur
Brynjarsson.
Garður
Sjálfstæðismenn og frjálslyndir
héldu meirihluta sínum í þessum
kosningum og bættu heldur við
hann, en sömu tveir listar komu
fram nú og síðast. Á kjörskrá voru
677 og kjörsókn var 90,5%
Úrslit: Atkv. Fulltr.
H-listi 362 3
I-listi 242 2
í hreppsnefnd komust af H-lista:
Finnbogi Björnsson, Sigurður Ing-
varsson, Ingimundur Guðnason. Áf
I-lista: Soffía Ólafsdóttir, Viggó
Benediktsson.
Vogar
Enginn listi kom fram að þessu
sinni og var kosning því óhlutbund-
in. Á kjörskrá voru 395 og kjörsókn
var 68,6%.
í hreppsnefnd voru kjörnir: Jón
Gunnarsson, Ómar Jónsson, Ragnar
Karl Þorgrímsson, Sæmundur Þórð-
arson, Ingi Friðþjófsson.
Borgarnes
Alþýðuflokkur og nýtt framboð
óháðra fengu sinn manninn hvor frá
Framsóknarflokki og Sjálfstæðis-
flokki, þannig að línur eru ekki
mjög skýrar í Borgarnesi eftir þessar
kosningar.
Á kjörskrá voru 1137 og kjörsókn
var 85,2%.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
A-listi: 229 2
B-listi: 237 ■ 2 ■
Úrslit sveitar-
stjórnarkosninga í
kauptúnahreppum
D-listi: 196 1
G-listi: 123 1
H-listi: 162 1
f hreppsnefnd voru kosnir: Af
A-lista. Eyjólfur Torfi Geirsson,
Eva Eðvarðsdóttir. Af B-lista: Ind-
riði Albertsson, Ragnheiður Jó-
hannsdóttir. Af D-lista: Gísli Kjart-
ansson. Af G-lista: Margrét Tryggva-
dóttir. Af H-lista: Jakob Þór
Skúlason.
Hellissandur
Meirihluti hreppsnefndar, sem
skipaður var fulltrúum B, D og
H-lista, sló saman í eitt framboð nú
og fékk öruggan meirihluta. Nýr listi
kom fram, V-listi bara óháðra en
fékk lítið af atkvæðum.
Á kjörstað á Hellissandi voru 391
og 91,8%, kusu.
Úrslit: Atk. Fulltr.
F-listi 218 4
G-listi 100 1
V-listi 34 0
í hreppsnefnd voru kjörnir af
F-lista: Ólafur Rögnvaldsson, Ómar
Lúðvíksson, Gunnar Már Kristó-
fersson, Óttar Sveinbjörnsson. Af
G-lista: Kristinn Jón Friðþjófsson.
Grundarfjörður
Sjálfstæðisflokkurinn náði hrein-
um meirihluta í hreppsnefndinni að
þessu sinni, sem flokkurinn missti í
síðustu kosningum. Alþýðubanda-
lagið missti einn fulltrúa til D-listans.
Úrslit:
A-listi:
D-listi:
G-listi:
S-listi:
Atkv. Fulltr.
117 1
394 4
114 1
114 1
í hreppsnefnd komust af A-lista:
Guðmundur Lárusson. Af D-lista:
Ellert Kristinsson, Kristín Björns-
dóttir, Pétur Ágústsson, Gunnar
Svanlaugsson. Af G-lista: Einar
Karlsson. Af S-lista: Magndís Alex-
andersdóttir.
Patreksfjörður
Sjálfstæðismenn unnu einn mann
í þessum kosningum, af S-lista sem
nú bauð ekki fram. Aðrir flokkar
héldu sínu. Á kjörskrá voru 639 og
87,3% kusu:
Úrslit:
A-listi:
B-listi:
D-listi:
Atkv. Fulltr.
164 2
166 2
191 3
í hreppsnefnd verða af A-lista:
Hjörleifur Guðmundsson, Björn
Gíslason. Af B-lista: Sigurður Vigg-
ósson, Hansína Kristjánsdóttir. Af
D-lista: Stefán Skarphéðinsson,
Gísli Ólafsson, Helga Bjarnadóttir.
Tálknafjörður
Tveir listar buðu fram nú, í stað
þriggja síðast, og báðir listarnir eru
nýir, þannig að alveg er skipt um fólk
í hreppsnefnd á Tálknafirði.
D-listi: 72 2
F-listi: 53 1
í hreppsnefnd náðu af B-lista:
Magnús Björnsson, Jakob Kristins-
son. Af D-lista: Guðmundur Sævar
Guðjónsson, Hannes Friðriksson.
Af F-lista: Jón Guðmundsson.
Þingeyri
Framsóknarflokkurinn vann einn
mann af Sjálfstæðisflokknum í þess-
um kosningum en óháðir héldu sínu.
328 voru á kjörskrá og 90,9% kusu:
Úrslit: Atkv. Fulltr.
B-listi: 117 2
D-listi: 79 1
H-listi: 87 2
f hreppsnefnd komust af B-lista:
Guðmundur Ingvarsson, Bergþóra
Annasdóttir. Af D-lista: Jónas
Ólafsson. Af H-lista: Magnús Sig-
urðsson, Sigmundur Þórðarson.
Flateyri
Sjálfstæðisflokkur var í meirihluta
á Flateyri, en missti hann nú. Áður
buðu Alþýðuflokkur, Alþýðubanda-
lag og Framsóknarflokkur og óháðir
saman einn lista, en nú komu fram
sérlistar framsóknarmanná og
óháðra, og alþýðuflokksmanna og
óháðra. Sá síðarnefndi fékk nú 2
menn en hinn listinn 1 mann.
Á kjörskrá voru 296 og 92%
þeirra kusu.
20 þúsund nýir kjósendur kusu í fyrsta sinn í sveitarstjórnarkosningunum um helgina. Hér eru tveir ungir menn á
kjörstað að neyta atkvæðisréttar í fyrsta sinn. (Tímamynd Sverrir)
534 voru á kjörskrá og kjörsókn
var 96,25%.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
B-listi: 117 1
D-listi: 206 3
F-listi: 59 0
G-listi: 122 1
í hreppsnefnd næsta kjörtímabil
verða af B-lista: Gunnar Kristjáns-
son. AfD-lista: Sigríður Þórðardótt-
ir, Kristján Guðmundsson. Af G-
lista: Ragnar Elbergsson.
Stykkishólmur
Sjálfstæðismenn halda meirihluta
sínum í Stykkishólmi þrátt fyrir að
þeir hafi tapað manni til Alþýðu-
bandalags.
Á kjörskrá voru 851 og kjörsókn
■ var 88,7%.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
D-listi: 96 3
O-listi: 75 2
f hreppsnefnd náðu kjöri af D-
lista: Guðjón Indriðason, Jón
Bjarnason, Sigrún Guðlaugsdóttir.
Af O-lista: Ævar B. Jónsson, Heiðar
I. Jóhannsson.
Bíldudalur
í síðustu kosningum buðu aðeins
tveir listar fram, D og K, en nú voru
listarnir þrír. Sjálfstæðismenn héldu
sínum mönnum en hinir skiptust
milli B og F-lista.
Á kjörskrá voru 474 og 88,6%
kusu.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
B-lfefc-. 7« r?
Úrslit: Atkv. Fulltr.
D-listi: 108 2
F-listi: 73 1
L-listi: 87 2
I hreppsnefnd verða af D-lista:
Eiríkur Finnur Greipsson, Guð-
mundur Finnbogason. Af F-lista:
Guðmundur Jónas Kristjánsson. Af
L-lista: Ægir Hafberg, Björk Krist-
insdóttir.
Suðureyri
Síðast voru fjórir flokkslistar í
framboði á Suðureyri en nú skelltu
A-flokkarnir, sjálfstæðimenn og
óháðir, sér saman og mynduðu einn
lista, L-listann, sem náði meirihluta
í þessum kosningum.
278 voru á kjörskrá á Suðureyri og
kjö^sókn.var 91,7%- . . i
Úrslit: Atkv. Fulltr.
B-listi: 107 2
D-listi: 139 3
f hreppsnefnd voru kjörnir af
B-lista: Eðvarð Sturluson, Karl
Guðmundsson. Af L-lista: Halldór
Bernódusson, Arna Skúladóttir,
Ingibjörg Sigfúsdóttir.
Súðavík
Kosning var óhlutbundin á Súða-
vík 1982 en nú komu fram 3 listar.
Óháðir, Umbótasinnar og Samein-
aðir kjósendur. Þeir síðastnefndu
náðu meirihluta í hreppsnefnd.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
A-listi: ....................57 2
B-listi:.....................19 0
S-listi:.....................77 3
Hreppsnefndarmenn verða:
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir, Barði
Ingibjartsson, Hálfdán Kristjáns-
son, Sigríður Hrönn Elíasdóttir,
Auðunn Karlsson.
Hólmavík
Eins og í Súðavík var kosning á
Hólmavík óhlutbundin 1982. Nú
komu 4 listar fram án flokksfor-
merkja. 278 voru á kjörskrá og
86,6% kusu:
Úrslit: Atkv. Fulltr.
H-listi: ....................21 0
I-listi: ....................41 1
J-listi:......................98 2
K-listi: .....................72 2
í hreppsnefnd verða af I-lista:
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir. Af J-
lista: Magnús Magnússon, Guðrún
Guðmundsdóttir. Af K-lista: Brynj-
ólfur Sæmundsson, Kjartan
Jónsson.
Hvammstangi
Listi félagshyggjufólks kom í þess-
um kosningum í staðinn fyrir lista
Framsóknarflokks. Flokkur manns-
ins bauð einnig fram nú. G-listinn
bætti við manni á kostnað Óháðra.
452 voru á kjörskrá og kjörsókn var
80,3%.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
G-listi: ..................101 2
H-listi: ..................143 2
L-listi:.....................91 1
M-listi: ...................21 0
í hreppsnefnd fóru af G-lista:
Matthías Halldórsson, Elísabet
Bjarnadóttir. Af H-lista: Hilmar
Hjartarson, Eðvald Daníelsson. L-
lista: Kristján Björnsson.
Blönduós
Tveir fulltrúar bættust í hrepps-
nefnd að þessu sinni og einn listi. í
síðustu kosningum buðu fram tveir
listar, Sjálfstæðis- og vinstri manna,
en nú voru tveir vinstri listar, og þeir
hirtu báða nýju fulltrúana.
Kjörsókn var 87,4% af 720 sem
voru á kjörskrá:
Úrslit: Atkv. Fulltr.
D-listi: .................185 2
H-listi: .................279 3
K-listi: .................143 2
í hreppsnefnd komust af D-lista:
Jón Sigurðsson, Sigríður Friðriks-
dóttir. Af H-lista: Sigmar H.
Jónsson, Sigfríður Angantýsdóttir,
Hilmar Kristjánsson. K-lista: Guð-
mundur Theodórsson, Kristín Mog-
ensen.
Skagaströnd
Skagstrendingar kusu um fleira en
hreppsnefnd. Þeir kusu einnig um
hvort breyta ætti formlega nafni
sveitarfélagsins úr Höfðahreppi í
Skagaströnd og samþykktu það með
talsverðum meirihluta.
Framboð á Skagaströnd er hefð-
bundið fjórflokkaframboð og úrslit
nú voru þau sömu og í síðustu
kosningum. 457 voru á kjörskrá og
kjörsókn var 87,7%
Úrslit: Atkv. Fulltr.
A-listi: ...................65 1
B-listi:.....................74 1
D-listi: ..................162 2
G-listi: ...................86 1
f hreppsnefnd verða af A-lista:
Axel J. Hallgrímsson. Af B-lista:
Magnús B. Jónsson. Af D-lista:
Adolf J. Berndsen, Heimir L.
Fjeldsted. G-listi: Guðmundur
Haukur Sigurðsson.