Tíminn - 03.06.1986, Síða 7

Tíminn - 03.06.1986, Síða 7
Þriðjudagur 3. júní 1986 Tíminn 7 Davíð Oddsson borgarstjóri: Umhverfismálin höfuðmál næsta kjörtímabils „Ég er mjög sáttur við úrslitin,“ sagði Davíð Oddsson borgarstjóri og hann kvaðst aldrei hafa gert ráð fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn fengi 10. manninn inn í Reykjavík. Ég tel að staða okkar hafi verið veikari viku til 10 daga fyrir kosning- ar, en niðurstöður kosninganna sýndu. Þá skaðaði áróður sem mér fannst vera óprúttinn okkur að ég tel, einkum varðandi svokallað Ölf- usvatnsmál, þar sem var mjög hallað réttu máli. Það tókst hins vegar að snúa þessu við með mjög afgerandi hætti í sjónvarpinu kvöldið fyrir kosningar og þá skaðaði það einkum Alþýðubandalagið að sú blaðra sprakk eins og þeim er í fersku minni sem á horfðu. Þá kom það Alþýðu- bandalaginu í koll að hafa ekki nein önnur mál á takteinum." borgarstjórnarmeirihlutanum í Reykjavík. Umhverfismálin næsta kjörtímabil að sögn borgarstjórans. Þar ber hæst framkvæmdir við úti- vistarsvæði í Laugardalnum og stór- átak í holræsamálum. Þá verður gert mikið gróðursetningarátak og borg- arstjórinn gerir ráð fyrir að gróður- setja 1 og hálfa milljón trjáplantna í Reykjavík og hvetur borgarbúa til að fylgja því eftir með gróðursetn- ingu í eigin görðum. „Reykjavík verður stærsti skógur á íslandi að þessu loknu.“ Talið upp úr kjörkössunum í Reykjavík. Mikil spenna ríkti þar til fyrstu tölur fóru að berast, mjög óvænt og meirihluti féll í nokkrum kaupstöðum. og víða urðu úrslitin Tímamynd Sverrír. „Er að verða fé- lagslegt vandamál“ Þótt Hrafnkell nefni sífellt ó- ánægju vegna prófkjörs sem ástæðu til að hann bauð ekki fram með Sjálfstæðisflokknum kvaðst Skúli hafa þá trú að hann hafi aldrei ætlað með þeim í framboð, þó svo hann ■haldi því stöðugt fram að hann sé isjálfstæðismaðúrry *' A .'. .VHEI- ' Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins: Fylgi okkar er meira „Fylgi Alþýðuflokksins er meira, en tölur úr þessum sveitarstjórnar- kosningum gefa til kynna,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson formaður Al- þýðuflokksins. Hann taldi að flokk- urinn ætti góða möguleika á að ná 25% atkvæðamagns í næstu þing- kosningum. „Við erum núna með 17,5% at- kvæða á landinu í heild og yfir 22,5% úti á landi," sagði Jón. „Þá vek ég athygli á því að úrslitin í Reykjavík endurspegla bæði reynslu og skoðanakannanir fyrir kosningar, nefnilega að yfir 40% af kjósendum Alþýðuflokksins, sem gefa sig upp í þingkosningum kusu flokkinn ekki í borgarstjórn, að því er virðist af þeirri ástæðu að þeir geta ekki hugsað sér að sjá flokkinn í meiri- hlutasamstarfi við Alþýðubandalag og Framsóknarflokk í Reykjavík. Með öðrum orðum, ég á inni veru- legan kjósendafjölda í Reykjavík á banka hjá Sjálfstæðisflokknum, sem ég ætla að endurheimta með vaxta- vöxtum í næstu þingkosningum. Þetta þýðir annars það að munur- inn á Alþýðuflokknum og Alþýðu- bandalaginu, sem sagður er vera 19% á móti 17,5% erenginn. Flokk- arnir eru jafnstórir, en möguleikar okkar eru meiri, bæði vegna þess að Bandalag jafnaðarmanna er í fjör- brotum og einnig vegna þess, að það verður mikil endurnýjun í þingliði Alþýðuflokksins eftir næstu kosn- ingar.“ Jón Baldvin Hannibalsson Jón var spurður hvort hann væri að boða uppstokkun á þingliði flokksins, en hann kvaðst aðeins vera að vekja athygli á því að flokkurinn ætti ekki þingmenn á Norðurlandi, Austurlandi og Suðurlandi. „Þar er rúm fyrir nýja menn og þingmönnum okkar í hin- um kjördæmunum mun einnig fjölga." Jón var ennfremur spurður hvort flokkurinn hefði einhverja markaða stefnu um það með hverj- um hann vilji mynda meirihluta, þar sem hann á þess kost, en hann kvað svo ekki vera. „Við erum ekki flokksræðisflokkur og gefum enga línu um það. Það fer eftir aðstæðum á hverjunt stað. Ég geri ráð fyrir því að það verði vinstri meirihluti í Kópavogi, þar sem Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag eiga kost á að mynda meirihluta og fengu mikið traust, ég geri ráð fyrir að það verði myndaður vinstri meirihluti í Hafn- arfirði og á Isafirði, en einnig kann að vera að það verði viðreisnar- mynstur annars staðar. Það fer eftir mati okkar manna á málefnum og mönnum á hverjum stað. En hvað um úrslitin í Reykjavík, kjördæmi formannsins sjálfs, þar sem útkoman var lakari en víða annars staðar. Jón svaraði þessu með því að benda á þá sérstöðu, sem Reykjavík hefur þar sem valið stend- ur um Sjálfstæðisflokkinn annars vegar og alla aðra flokka hins vegar, sem enginn veit hvernig gengur að konia sér saman um hlutina. „Auk þess hef égekki sinnt ntínu kjördæmi mjög mikið í minni formannstíð. Hundrað fundirnir voru haldnir úti á landi, aðaláherslan hefur verið að byggja upp fylgið þar. Ég vona að úrslitin nú séu að einhverju leyti afrakstur þessarar herferðar og nú er komið að Reykjavík. Ég hugsa mér gott til glóðarinnar að endur- heimta með Þorsteinsvöxtum það fylgi, sem ég á hjá honum þar. „Nöturlegt að vinna tvennar kosningar en vera svo ýtt til hliðar,“ segir Hrafnkell á Eskifirði „Ég er að verða félagslegt vanda- mál hérna á Eskifirði. Mér hefur ekki tekist að lúta neinum þeim lögmálum sem menn eiga að beygja sig undir í pólitík. Ég á alveg von á Davíð Oddsson Davíð sagði að það væri ekki vafi á því að sjónvarpsþátturinn hefði haft mikið að segja í því að snúa kosningabaráttunni aftur meirihluta Sjálfstæðisflokksins í hag.“ Það virð- ist vera að Alþýðubandalagið hafi gert alvarlega kórvillu, þegar Þjóð- viljaritstjórinn, sem ekki kunni fót- jrm sínum forráð var sendur þangað þsn ekki oddviti listans, Sigurjón ^Þétursson." En. hvað .er. nú. á. döfinni _ hjá. því að næsta skrefið verði að fá einhvern sprenglærðan félagsfræðing til að kanna þetta vandamálnánar," sagði Hrafnkell Jónsson sem varð hinn stóri sigurvegari kosninganna á Eskifirði, sem nú komst þar í bæjar- stjórn við annan mann af óháðum lista. í síðustu kosningum hjálpaði hann Sjálfstæðisflokknum inn með 3 menn og þar áður hafði hann unnið með Alþýðubandalagi. Spurður um meirihlutamyndun sagði Hrafnkell það ekkert launung- armál að hans listi hafi óskað eftir viðræðum við Alþýðuflokk og Al- en ekki fengið neitt svar við því enn. Kvaðst hann hafa það á tilfinning- unni að A-flokkarnir ásamt Fram- sókn væru með einhverjar þreifingar í gangi að standa áfram að meirihluta þrátt fyrir tap í kosningunum. „Sjálf- um finnst mér það nöturlegt að eiga þátt í því að vinna tvennar kosningar í röð á tiltölulega afgerandi hátt - en vera síðan ýtt til hliðar, þ.e. ef það gerist aftur nú eins og síðast. Þetta tel ég kannski hluta af skýringunni á hinum góða árangri' þessa framboðs okkar núna, þ.e.a.s.. að þeir aðilar sem ráða ferðinni hjá stjórnmálaflokkunum sætta sig ekki við dóm almennra kjósenda og telja sig ekki þurfa að draga neinn lærdóm af honum,“ sagði Hrafnkell. „Við erum auðvitað frekaróhress- .þýðubandalag.með það fyriraugum, - - ir- með-bvað -við -töpuðum -miklu af - atkvæðum - en reyndar töpuðu allir flokkarnir nú atkvæðum yfir til Hrafnkels - enda er hann tvímæla- laust stóri sigurvegarinn," sagði Skúli Sigurðsson, sem nú komst einn inn af lista sjálfstæðismanna. Eina af skýringunum á tapi síns flokks og raunar annarra líka taldi Skúli kannski þá að á listum allra flokkanna væru nýir menn sem ekki hefðu verið í bæjarstjórn áður. Fólk hafi því kannski treyst Hrafnkeli betur en þessum óþekktu stærðum. Þá sagði hann Hrafnkel hafa notað þá taktik að hann væri ekki öruggur um að ná kjöri. „Kannski vildu margir endilega koma honum inn og þar með fleiri atkvæði farið yfir til hans heldur en kannski hefðu kosið það sjálf eftir á að hyggja,“ sagði Skúli. Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins: Fyrirheit um tímamót „Alþýðubandalagið er í þessum kosningum með um 24000 atkvæði á þeim stöðum þar sem um er að ræða flokksframboð samkvæmt út- reikningum útvarpsins og höfurn bætt við okkur 4000 atkvæðum. Við erum þar með afgerandi næst stærsti flokkurinn í kaupstöðum landsins. Framsókn verður hins vegar sá minnsti í þessum kosning- um. Viðbót Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins samanlagt er um 11000 atkvæði og þessi kosn- ingaúrslit geta boðað mikil tíðindi í íslenskum stjórnmálum. Þar á ég við samstöðu félagshyggjuafla og vinstri manna, sem eiga auðvitað að setja sér það mark í næstu alþingiskosningum að ná meiri- hluta og geta myndað nýja ríkis- stjórn eftir næstu kosningar." Þetta sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins er hann var spurður um hvernig hann mæti kosningaúrslitin. Svavar sagði að hann hefði oft Svavar Gestsson lýst þessari skoðun sinni áður, en margir hefðu verið efins um að raunsætt væri að setja sér þetta mark. Kosningaúrslitin sýndu hins vegar, að svo væri. „Hægri bylgjan er gengin yfir, íhaldssjónarmiðin eru á niðurleið og ég túlka kosn- ingaúrslitin hiklaust sem fyrirheit um pólitísk tímamót á íslandi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.