Tíminn - 03.06.1986, Side 11
10 Tíminn
Þriðjudagur 3. júní 1986
Þriðjudagur 3. júní 1986
Tíminn 11
HM í knattspyrnu 1986 í Mexíkó:
Dauf byrjun
- Spánverjar skoruðu gegn Brössum en fengu ekki
markið- ítalir fóru illa að ráði sínu -
Frakkar í vandræðum með Kanada
Heimsmeistarakeppnin í knatt-
spyrnu, sú 13-í röðinnni varsett með
uppákomum á Aztec-leikvanginum
í Mexíkóborg á laugardaginn. Lita-
dýrð og óvinsældir forseta landsins
settu svip á setningarathöfnina.
Áhorfendur púuðu á forsetann er
hann hólt setningarræðu sína en
ástandið í landinu er víða skammar-
legt vegna óstjórnar auk náttúru-
hamfara sem flestir muna eftir.
Þegar setningarathöfninni lauk
var fyrsti leikurinn háður. Þar léku
ítalir og Búlgarar á allt of loðnum
leikvanginum og lauk hægri viður-
eign þeirra með jafntefli 1-1. ítalir
skoruðu fyrst og var Altobelli þar að
verki eftir aukaspyrnu. ítalir fengu
síðan tækifæri í síðari hálfleik til að
auka við forskot sitt en Búlgarar
voru ansi þreyttir og slæptir að sjá.
Þeir fóru alltaf upp á miðjuna þar
sem ítalir voru sterkastir nema í eitt
skipti rétt fyrir leikslok þá var bolt-
inn gefinn fyrir. Þar beið Sirakov og
skallaði boltann í netið á glæsilegan
hátt. Jafntefli í leik sem ítalir áttu að
vinna.
Þessi mesta íþróttahátíð hélt síðan
áfram á sunnudag er Brasilíumenn
og Spánverjar áttust við í Guadal-
ajara. Brasilíumenn voru með bolt-
ann í leiknum en Spánverjar vörðust
með kjafti og klóm. Brassar spiluðu
fallegan en árangursríkan fótbolta.
Mjög umdeilt atvik átti sér stað á 54.
mínútu en þá skaut Spánverjinn
Michel þrumuskoti í slá og niður.
Dómarinn sá ekki hvort boltinn fór
innfyrir línuna og línuvörðurinn gat
heldur ekki tekið ákvörðun um það.
Boltinn fór hinsvegar innfyrir, það
sýndu sjónvarpsvélar. Dómarinn
hefur hinsvegar ekki sjónvarp á
hendi sér og dæmdi ekki mark.
Spánverjar trylltust þótt fáir þeirra
hafi séð hvort boltinn fór inn eða
ekki. Við þetta færðist fjör í leikinn
og Brassarnir fóru að sýna meiri
takta. Careca skaut í slá og niður við
mark Spánverja og Socrates kom
aðvífandi og skallaði boltann inn 1-0
og þar við sat.
Á sunnudagskvöldið léku síðan
Frakkar og Kanadamenn og var
búist við auðveldum sigri Frakka.
Svo varð þó ekki. Frakkar björguðu
á línu á 11. mínútu og Kanadamenn
vörðust vel öllum sóknaraðgerðum
frönsku stjarnanna. Loks á 79. mín-
útu skoraði Jean-Pierre Papin sigur-
markið með skalla. Hann hafði fyrr
í leiknum klúðrað ótal marktækifær-
um. Frakkar voru með yfirburði í
seinni hálfleik en tókst ekki að skora
mörk úr þeim færum sem þeir sköp-
uðu sér.
íslandsmótið í knattspyrnu 2. deild:
Selfoss á toppnum
Þrír leikir voru um helgina í 2.
deild á fslandsmótinu og eftir þá er
þremur umferðum lokið. Selfyssing-
ar eru einir efstir í deildinni og
Skallar eru eina liðið án stiga.
Selfoss-Víkingur R...........1-0
Magnús Jónatansson kom með
Víkingana til liðsins sem hann kom
uppúr3. deild í fyrra. Einsog vaninn
er á Selfossi þá er alltaf tekið sérlega
vel á móti fyrri þjálfurum og þeirra
liðum. Niðurstaðan er vanalega sig-
ur og svo var uppá teningnum að
þessu sinni. Víkingarnir byrjuðu
bctur en fljótlega jafnaðist leikurinn
sem fram fór á mölinni á Selfossi.
Færi voru fá í fyrri hálfleik og
barátta mikil. f síðari hálfleik komst
Jón „Rambo“ Bergs í gegnum vörn
Vikinga en var felldur illilega og
Þrír leikir voru í SV-riðli 3. deildar
í knattspyrnu um helgina og einn var
í gærkvöldi (sjá annarsstaðar á síð-
unni).
ÍK-ÍR 0-2
Þrátt fyrir tveggja marka sigur þá
voru Kópavogsbúar ekki verri í
leiknum heldur en Breiðhyltingar.
Þó er hinsvegar mikilvægt að skora.
Leikurinn var opinn og þokkalegur.
Karl Þorgeirsson skoraði fyrir ÍR
undir lok fyrri hálfleiks og síðan
bætti Heimir Karlsson, þjálfari, við
marki uppúr nánast engu. ÍR hefur
þá unnið báðar sínar viðureignir í
riðlinum.
Reynir-Grindavík ............1-0
Suðurnesjaliðin áttust við á renn-
blautu grasinu í Sandgerði og það
var markaþefurinn Ómar Björnsson
sem skoraði eina mark leiksins með
skalla í fyrri hálfleik.
HV-Fylkir....................0-1
Þessi leikur var á föstudagskvöldið
á Akranesi og unnu Árbæingarsann-
gjarnan sigur. Óskar Theódórsson
skoraði eina mark þeirra í fyrri
hálfleik og þar við sat.
NA-riðill:
Nokkrir leikir fóru fram í þessum
riðli um helgina og sýnt er að
Leifturs-menn frá Ólafsfirði byrja
vel.
Leiftur-Valur R..............4-0
Þjálfari þeirra Ólafsfirðinga, Ósk-
ar Ingimundarson, sýndi gott for-
dæmi í þessum örugga sigri á Val.
vildu heimamenn fá víti. Dómarinn
dæmdi hinsvegar aðeins horn en
uppúr horninu hrökk knötturinn í
hendi Andra Marteinssonar og víti
varð ekki umflúið. Tómas Pálsson
skoraði úr því af öryggi. Barátta
einkenndi það sem eftir var leiks en
Selfyssingar héldu öllum stigunum.
Jón Gunnar, Sævar Sverrisson (sem
passaði Andra) og Gylfi Birgisson
voru snjallir hjá Selfossi en Víkings-
liðið var jafnt en skorti baráttu í
einstaka menn.
ÍBÍ-Einherji..................2-2
Það voru heimamenri sem náðu
forystu í þessum lcik cr Jón
Oddsson, þjálfari, komst í gegnum
vörn Vopnfirðinga og skoraði af
öryggi. Austanmenn jöfnuðu
skömmu síðar er Njáll Eiðsson,
Hann skoraði tvívegis en þeir bræð-
ur Sigurbjörn Jakobsson og Haf-
steinn Jakobsson bættu við mörkum
áður en yfir lauk. Valsarar brenndu
síðan af víti undir lok leiksins en það
breytti engu um stóran sigur Ólafs-
firðinga.
Þróttur N-Austri E ..........1-1
Þarna áttust við erkifjendurnir á
Fjörðunum. Þróttarar undir stjórn
Magnúsar Jónssonar fyrrum KR-
ings og Víkings náðu forystu er
Guðbjartur Magnason skoraði
mark. Það var síðan nokkuð vafa-
söm vítaspyrna að dómi margra sem
færði Austra stig. Grétar Ævarsson
tók hana fyrir Eskfirðinga og skoraði
létt.
Tindastóll-Reynir A..........2-2
Það voru Árskógsstrendingar sem
náðu forystu í þessum lcik er Tómas
Karlsson skoraði fyrir þá. Þannig
var staðan í leikhléi. Tindstælingar
skoruðu strax eftir hlé og var Eyjólf-
ur Sverrisson þar að verki. Svanlaug-
ur Þorsteinsson náði forystu fyrir
Reynismenn um miðbik seinni hálf-
leiks en Guðbrandur Guðbrandsson
náði að jafna metin fyrir Sauðkræk-
inga rétt fyrir leikslok.
Leiknir F-Magni..............1-2
„Þetta átti að vera jafntefli" sagði
einn stjórnarmanna Fáskrúðsfirð-
inga. Magnamenn voru hinsvegar
atkvæðameiri við markið. Hringur
Hreinsson og Sverrir Heimisson
skoruðu fyrir aðkomumennina sem
höfðu yfir 1-0 í hléi. þb/öþ
þjálfari, skoraði úrvíti. Fyrir leikhlé
bættu Einherjar við marki er Baldur
Kjartansson kom tuðrunni í netið.
Staðan 1-2 í leikhléi. í síðari hálfleik
voru heimamenn atkvæðameiri og
náðu að jafna úr víti sem Guðmund-
ur Jóhannsson skoraði úr. Þar við
sat og geta bæði lið vel við unað.
Skallagrímur-Njarðvík ..........0-3
Skallar eru enn án stiga og voru
ekki nálægt þeim í viðureigninni við
Njarðvíkinga sem hafa byrjað betur
í deildinni en menn áttu von á.
Rúnar Jónsson skoraði fyrir að-
komuliðið í fyrri hálfleik og þeir Jón
Ólafsson og Hermann Hermannsson
bættu við mörkum í þeim síðari.
Erfitt sumar framundan hjá Sköllun-
um.
Staðan í 2. deild:
Selfoss............... 3 2 1 0 6-2 7
KA ................... 3 1 2 0 7-3 5
Njarðvik.............. 3 1 2 0 7-4 5
Völsungur............. 3 1 2 0 4-1 5
KS.................... 3 1 2 0 5-4 5
Víkingar ............. 3 1115-4 4
ÍBÍ .................. 3 0 2 1 7-9 2
Þróttur............... 3 0 1 2 4-6 1
Skallagrímur........... 3 0 0 3 1-10 0
Jón Gunnar Bergs og Tryggvi
Gunnarsson eru markahæstir í deild-
inni með fjögur mörk hvor.
þb/os
íslandsmótið í knattspyrnu 3. deild:
ÍR-ingarósigraðir
BMVAIIÁ
Ólafur Hafsteinsson FH-ingur í dauðafæri en hann hitti boltann illa og Stefán varði einu sinni sem oftar.
Tímamynd Pétur.
Islandsmótið í knattspyrnu 1. deild:
Valsmenn sluppu vel
- FH-ingar klúðruðu mörgum góðum færum og Valur vann á sjálfsmarki strax á 2. mínútu
FH-ingar geta nagað sig í handarbökin og
fæturna einnig eftir að hafa klúðrað mörgum
frábærum færum í lok leiksins gegn Val á
laugardaginn. Vegna þess og sjálfsmarks
Kristjáns Gíslasonar þá fóru Valsarar heim
í Hlíðarenda með öll þrjú stigin eftir 1-0
sigur.
Kristján vippaði yfir Halldór í markinu
strax á 2. mínútu og eftir það voru Valsmenn
Mark Freys Svcrrissonar tveimur mínút-
um fyrir leikslok í viðureign Fram og ÍBK
færði Keflvíkingum sigur 1-0 á Laugardals-
velli á sunnudaginn. Þetta var nokkuð gegn
gangi leiksins sem hefði eins getað endað 5-3
fyrir Fram. Þetta var opnasti leikur deildar-
innar til þessa en leikmenn skorti öryggi
uppvið markið og því var ekkert skorað fyrr
en undir lokin.
Framarar voru atkvæðameiri í leiknum og
þá sérstaklega í seinni hálfleik þegar þeir
fengu mýgrút af færum. Strax á fimmtu
mínútu leiksins skaut Guðmundur Torfason
í stöng af stuttu færi er allt var galopið.
Stuttu seinna komst ÓIi Þór í gegn og lék á
Friðrik en Jón Sveinsson komst fyrir skot
hans á línunni. Keflvíkingar áttu síðan
Ekki tókst K.R.-ingum að leggja Skaga-
menn að velli í leik þessara 1. deildarliða á
K.R. vellinum síðastliðinn laugardag. Leik-
ar fóru 1-1, sanngjörn úrslit í hörðum leik
þar sem lítið var um opin marktækifæri.
Skagamenn voru betri í fyrri hálfleik.
Árni Sveinsson var hættulegur á vinstri
vængnum þar sem hann naut aðstoðar
Heimis Guðmundssonar bakvarðar er átti
góðan leik.
Mark Skagamanna kom í fyrri hálfleik,
nánara sagt á 35. mínútu. Árni átti þá góða
fyrirgjöf á Jakob Halldórsson sem skallaði í
sterkari í fyrri hálfleik. Ekki fengu þeir þó
afgerandi færi utan að Sigurjón Kristjánsson
stóð einn á vítapunkti en skaut framhjá.
FH-ingar komu ákveðnari til leiks í síðari
hálfleik með Leif Garðarsson í bakvarðar-
stöðu fyrir Viðar Halldórsson sem á við
meiðsl að stríða. Leifur stóð fyrir sínu og
undir lok leiksins átti hann margar mjög
góðar fyrirgjafir sem sköpuðu usla í vörn
næstu færi en Kristinn Jónsson átti það
síðasta er hann fékk fyrirgjöf Þórðar Marels-
sonar beint á „kassann" en missti boltann of
langt frá sér og Þorsteinn bjargaði.
Framarar voru síðan iðnir inní teig Kefl-
víkinga til að byrja með í seinni hálfleik en
inn vildi boltinn ekki. Loks er tvær mínútur
voru eftir stal Freyr sigrinum með skoti af
stuttu færi eftir fyrirgjöf Sigurðar Björgvins-
sonar.
Freyr átti góðan leik með ÍBK en Valþór
lék líka vel og hélt Guðmundi Torfasyni
alveg niðri. Sigurður barðist vel en hafði oft
ekki erindi sem erfiði. Hjá Fram var Þórður
Marelsson ódrepandi. Einn okkar besti
sóknarbakvörður. Duglegur og með góðar
fyrirgjafir. Viðar Þorkelsson kom einnig vel
út.
netið af stuttu færi einn og óvaldaður.
K.R.-ingar komu tvíefldir til leiks í síðari
hálfleik og pressuðu stíft á Skagamenn án
þess þó að skapa sér afgerandi marktækifæri.
Júlíus Þorfinnsson skoraði þó á 22. mínútu
eftir fyrirgjöf Lofts Ólafssonar. Júlíus skhll-
aði boltann í bláhornið úr erfiðri aðstöðu,
gott hjá honum.
Erfitt er að tína út einstaka leikmenn úr
þessari viðureign. Flestir börðust vel en
dulítið vantaði upp á samspilið og samvinn-
una hjá báðum liðum.
Vals. Ingi Björn komst einn í gegn en lét
Stefán, sem átti mjög góðan leik, verja frá
sér. Ingi átti síðan skalla í dauðafæri eftir
sendingu Leifs en enn varði Stefán. Ólafur
Hafsteinsson var dauðafrír innan markteigs
en Stefán varði enn. Pálmi komst aleinn í
gegn eftir samleik við Óla Dan. en enn varði
Stefán. Jafntefli hefðu orðiðsanngjörn úrslit
en lið verða að nýta færi sín til sigurs.
Athygli vakti grófur leikur Ársæls Kristjáns-
sonar. Hann tók Inga fimm sinnum f röð
með manndrápstæklingum en afspyrnuléleg-
ur dómari leiksins Þóroddur Hjaltalín spjall-
aði ekki við hann. Reyndar veitti Þóroddur
eitt gultspjald íleiknum. Það varfyriropinn
munn en ekki opnar tæklingar. Þá stoppaði
hann leikinn í tíma og ótíma þegar nær hefði
verið að halda áfram. Þetta er mjög pirrandi
fyrir leikmenn sem og áhorfendur.
íslandsmótið 1. deild:
Slakur leikur
í Garðinum
Frá Frímanni Ólafssyni á Sudurncsjum:
Hann var ekkert fyrir augað leikur
Víðis og Þórs frá Akureyri í 1. deild á
Garðsvelli á laugardaginn. Það var
hvasst og kalsasamt með rigningu á
köflum. Leikmenn óðu því í vatni en
ekki mörkum. Lokaniðurstaða varð
0-0. Það voru á fjórða hundruð áhorf-
enda í Garðinum og varð mörgurukalt.
Þórsarar lentu á móti vindi í fyrri
hálfleik og komust lítt áleiðis. Víðis-
menn náðu ekki að brjóta sterka vörn
Þórs og góðan markvörð á bak aftur og
því varð úr miðjuþvaga.
í síðari hálfleik byrjuðu Þórsarar
betur og átti Halldór skalla í slá áður
en Víðismenn komust aftur inní leik-
inn. Fátt verulega markvert gerðist.
Þórsarar sóttu meira en Daníel Einars-
son í vörn Víðis stoppaði allt. Undir
lok leiksins var Helgi Bentsson allt í
einu dauðafrír og stefndi í markátt.
Sigurbjörn Viðarsson skellti honum
flötum og fékk fyrir rautt spjald.
Tíminn fjaraði síðan út.
Daníel og Grétar Einarssyni voru
góðir hjá Víði og Duffield barðist
grimmt. Þórsliðið var jafnara en lið
Víðis en vörnin og markvörðurinn
betri hluti liðs Þórs.
íslandsmótið 1. deild:
Freyrstalsigrinum
-Skoraði eina mark viðureignar Fram og ÍBK- Fyrstu stig ÍBK
íslandsmótið 1. deild:
Þriðja jaf ntef li KR
LétthjáArgentínu
Argentínumenn unnu S-Kóreu
3-1 í A-riðli á HM í knattspyrnu
í gærkvöldi. Valdano skoraði eft-
ir sex mínútur er Maradona lagði
boltann til hans. Varnarmaður-
inn Ruggeri bætti öðru við eftir
sendingu Maradona og Valdano
skoraði hið þriðja í upphafí síðari
hálfleiks áður en Chang-Sun
skoraði á 72. mínútu fyrir Kóreu-
búa. Maradona átti þátt í öllum
mörkum Argentínu en hans var
vel gætt og síbrotið á honum í
leiknum. Tveir leikmenn Kóreu
voru bókaðir fyrir brot á Valdano
og Maradona.
Rockets náðu sigri
Houston Rockets sigruðu Boston
Celtics 106-104 í þriðju viðureign
liðanna um bandaríska meistaratitil-
inn í körfuknattleik á sunnudaginn.
Leikið var í The Summit í Houston
og eftir þennan sigur er staðan 2-1
fyrir Boston en það lið sem fyrr
vinnur fjóra leiki sigrar. Þegar að-
eins þrjár mínútur voru eftir höfðu
Celtics örugga forystu. Rockets
skoruðu hinsvegar 12 stig gegn 2 á
stuttum tíma og komust yfir í leikn-
um 105-104 þegar Boston fékk
boltann. Þeir geiguðu í skoti en Bird
virtist hafa frákastið. Dómararnir
dæmdu hinsvegar uppkast og Ak-
eem hirti það. Brotið var á honum
og hann bætti við einu stigi og sigri
fyrir Houston. Sampson skoraði 24
stig fyrir Houston en Akeem 23.
McHale gerði 28 en Bird 25 fyrir
Boston. Næstu tveir leikir eru einnig
í Houston.
Stjarnan vann
Stjarnan vann Ármann 2-0
með mörkum Arnars Jónssonar
og Jónasar Skúlasonar í 3. deild
SV-riðli í gærkvöldi á gervigras-
inu.
SexhjáSovétmönnum
Sovétmenn fóru á kostum í
fyrsta leik sínum á HM í knatt-
spyrnu. Sovéfmenn lögðu nágr-
anna sína Ungverja 6-0 í C-riðli.
Sovétmenn skoruðu tvö mörk á
fyrstu fimm mínútunum og eftir
það var aldrei spurning um úrslit-
in. Mörk Sovétmanna, sem voru
þrjú í hvorum hálfleik, gerðu
Yakovenko, Aleinikov, Belanov,
Yaremchuk og Rodionov en eitt
markanna var sjálfsmark Ung-
verja. Sovétmenn spiluðu eins og
vel smurð vél enda flestir leik-
menn liðsins úr Dynamo Kiev
liðinu og þekkja því hver annan
mjögvel. Sovétmenn verða nú að
teljast sigiirstranglegir í C-riðli.
Á laugardaginn efnir Landsbanki íslands til 100 ára afmælishlaups í samvinnu við
Frjálsíþróttasamband íslands. Hlaupið er ætlað öllum krökkum sem fæddir eru 1975 og 1976.
Keppnin fer fram víðsvegar um landið þar sem bankinn hefur afgreiðslur og útibú.
Sigurvegariá hverjum stað, fær verðlaunapeningog þátttökurétt í úrslitahlaupinu sem fer fram I
Reykjavik í haust. Allir þátttakendur fá viðurkenningu fyrir
þátttökuna og dregið verður um aukaverðlaun
á hverjum stað, Kjörbók með 2.000,-króna innstæðu. Lðl^ClSl3dr^ kÍ
Skráning fer fram í öllum útibuum og afgreiðslum ' _
og þar fást einnig nánari upplýsingar. |Q|QO
Banki allra landsmanna í 100 ár