Tíminn - 03.06.1986, Page 20
SOVÉTMENN skoruöu sex sinnum [
fyrsta leik sínum í HM í knattspyrnu i Mexíkó
í gærkvöldi. Það voru Ungverjar sem fengu að
finna fyrir klóm rússnesk'a bjarnarins. Argent-
ínumenn unnu S-Kóreu létt 3-1 og skoraði
Valdano tvö af mörkum þeirra í leiknum.
Maradona lagði öll þrjú upp. Pólland og Mar-
okkó gerðu síðan markalaust jafntefli.
Þrtðjudagur 3. júní 1986
Freyr Ófeigsson á Akureyri:
„Adalatriðið var
að ná völdum"
Úrslitin eru auðvitað áfall fyrir
okkur og neyðarlegt að það skilja
ekki nema örfá atkvæði á milli okkar
3. manns og 3. alþvðuflokksmanns-
ins sem fór inn. Eg tel að margir
samverkandi þættir hafi orðið til
þess að svona fór þó kannski fyrst og
fremst óréttlát gagnrýni andstæðinga
okkar varðandi atvinnuástandið í
bænum, sem þeir vildu kenna meiri-
hluta bæjarstjórnar um. En þetta
mótlæti hlýtur að stappa í okkur
stálinu og þjappa okkur sarnan,"
sagði Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á
Akureyri. En flokkurinn missti þar
I bæjarfulltrúa.
Varðandi nýjan meirihluta sagði
Úlfhildur að sér fyndist eðlilegt að
sigurvegararnir - Alþýðuflokkurinn
- hefðu frumkvæðið í því máli.
Henni heyrðist liggja í loftinu að
þeir mundu fara í samstarf með
sjálfstæðismönnum.
En hverju þakka sigurvegararnir?
„Við þökkum fyrst og fremst kjós-
endum þennan góða árangur.Það
tókst mjög góð vinna hjá okkur
innbyrðis í flokknum og mikil sam-
staða um listann og við virðumst
hafa náð til fólksins með okkar
málflutningi," sagði Freyr Ófeigs-
son, efsti maður á lista Alþýðu-
flokksins á Akureyri. Áhersluatriðið
hjá flokknum sagði hann fyrst og
fremst hafa verið „að ná völdum".
Önnur áhersluatriði hafi verið af-
skaplega lík hjá öllum flokkum.
„Við skárum okkur í sjálfu sér
ekkert úr í sambandi við bæjarmál-
in,“ sagði Freyr.
Fyrirhugaður var fundur hjá
flokksmönnum í gærkvöldi þar sem
Freyr sagði þá taka afstöðu til hvort
þeir reyndu meirihlutamyndun með
Sjálfstæðisflokknum, eða hins vegar
Framsókn og Alþýðubandalagi.
„Við eigum um þá tvo möguleika að
velja.“
-HEI
Reikningar Granda
lagðir fram í dag
Á fundi borgarráðs í dag, þeim
fyrsta eftir kosningarnar verða hinir
umræddu reikningar Granda hf.
lagði fram og skýrðir af fram-
kvæmdastjóranum, Brynjólfi Bjarna-
syni.
Eins og menn muna óskaði Kristj-
án Benediktsson eftir því s.l. þriðju-
dag að fá reikningana í hendur.
Honum var synjað um það, en því
lýst yfir af borgarstjóra, Davíð
Oddssyni að reikningarnir yrðu lagð-
ir fram á fyrsta borgarráðsfundi eftir
kosningar.
KALLAÐ Á KJÓSENDUR: „Ein mínúta eftir af kjörfundi“ kallar Bergsteinn Árnason fyrir framan Austurbæjarskólann í Reykjavík á laugardagskvöldið.
Samt varð kjörsókn í borgarstjómarkosningunum heldur minni en oftast áður. (Tímam.vnd-Sverrir)
Eldsvoði á Ketilsstöðum á Héraði:
24 skepnur
brunnu inni
Slökkviliðinu tókst að hindra að
eldurinn breiddist út
Mikið tjón varð er eldur kom
upp í fjósi við bæinn Ketilsstaði á
Héraði aðfaranótt síðastliðins
laugardags. Fjósið brann til kaldra
kola og 17 kýr og 7 geldneyti
brunnu inni.
Fólk á bæ hinum megin við
fljótið varð vart við reyk á Ketils-
stöðum og lét slökkviliðið á Egils-
stöðum vita. Þegar það kom á
staðinn var fjósið orðið alelda og
skepnurnar dauðar. Slökkviliðinu
tókst að varna því að eldurinn
bærist í hlöðu sem var samtengd
fjósinu og björguðu átta kálfum
sem þar voru. Fólk var aldrei í
hættu þar sem íbúðarhúsið á bæn-
um er í um 60 metra fjarlægð frá
fjósinu. Þakið á fjósinu féll niður
og eftir standa tóftir einar.
Fjósið og gripirnir voru tryggðir
að hluta. Eldsupptök eru enn óljós,
en grunur leikur á að kviknað hafi
í út frá rafmagni. -gse
Starfsemi Rafafls og Stálafls lögö niður:
Búa sig undir
verkefnaleysi
Stjórn Framleiðslusamvinnufé-
lags iðnaðarmanna hefur samþykkt
að leggja tímabundið niður starf-
semi Rafafls og Stálafls vegna verk-
efnaskorts. Þessi fyrirtæki hafa sér-
hæft sig í stærri verkefnum og hafa
aðallega unnið að verkefnum við
virkjanir á hálendinu. Eins og kunn-
ugt er hefur verið mikill samdráttur
á þessu sviði og ekki búist við að úr
rætist fyrr en framkvæmdir við
Blönduvirkjun hefjast.
Sökum þessa ákvað stjórn Fram-
leiðslusamvinnufélags iðnaðar-
manna að leggja starfsemi fyrirtækj-
anna niður en félagið er eigandi
þeirra ásamt nokkrum öðrum fyrir-
tækjum. Stefnt er að því að hraða
samdrættinum og hafa þeir rafvirkj-
ar er unnu á vegum Rafafls í þéttbýli
þegar tekið yfir starfsemi þess þar.
Stjórnir fyrirtækjanna eiga nú í
viðræðum við erlenda aðila um verk-
efni. Einnig stendur til að Rafafl
bjóði í raflagnir í Kísilmálmverk-
smiðjunni á Reyðarfirði þegar á-
kvörðun verður tekin um að reisa
hana.
Að sögn Sigurðar Magnússonar,
stjórnarformanns Rafafls og
Stálafls, eru fyrirtækin það stöndug
að þau ættu að þola verkefnaleysi í
tvö ár án þess að þurfa að selja
fasteignir sínar. Hjá Rafafli vinna
nú um 20 manns en ekki hefur enn
verið tekin ákvörðun um hvort þeim
verði sagt upp.
Tvöfaldur bílaþjófur á ferð á Akureyri:
Stal tveimur bílum
og ók þeim báðum útaf
Var gripinn í Skagafirði og látinn sofa úr sér
á lögreglustöðinni
Ungum manni sem staddur var á
Akureyri á sunnudagskvöldið lá
reiðinnar býsn á því að komst til
Skagafjarðar og lét bílleysi sitt
ekki aftra sér enda orðinn hreifur
af víndrykkju. Hann tók Opel-
bifreið traustataki og ók henni sem
leið lá útúr bænum. En sökum
ástands síns komst hann ekki
lengra á henni en að Moldhaugum
þar sem hann lenti útí móa. Opel-
inn gereyðilagðist en ökumaðurinn
slapp með skrekkinn. Ekki fékk
þetta hann til að hætta við ferð sína
heldur brá hann sér á næsta bæ og
fékk sér þar nýjan bíl. Honum ók
hann síðan útaf á Öxnadalsheiði,
en bíllinn sem var af Subarugerð
skemmdist mikið þó hann hafi
farið betur en Opelinn. Þar sem
engir bílar voru í nágrenni staðar-
ins sem Subaruinn fór útaf varð
maðurinn að sætta sig við að fara á
puttanum til Skagafjarðar. Þegar
þangað kom tók lögreglan á móti
honum og færði hann í fanga-
geymslurnar svo hann gæti sofið úr
sér. Er maðurinn vaknaði aftur til
lífsins gekkst hann við öllu en gat
ómögulega skýrt hvers vegna hon-
um lá svo á til Skagafjarðar.
-gse
-gse