Tíminn - 15.08.1986, Qupperneq 5
Föstudagur 15. ágúst 1986
Tíminn 5
UTLÖND
Hlllllil
111!
Illlllllllllllllllll
Pakistan:
Bhutto handtekin
Miklar óeirðir brutust út
Lahore-Rcuter
Lögreglan handtók Benazir
Bhutto leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar, skaut þrjá stuðningsmanna
hennar til dauða og særði marga
þegar uppþot brutust út í tveimur
stærstu borgum Pakistan í gær,
Lahore og Karachi.
Lögregla skaut að mótmælendum
og notaði kylfur og táragas til að
dreifa mannfjöldanum í þessum
mestu óeirðum í landinu á síðustu
sextán mánuðum eða eftir að herlög
voru numin úr gildi og borgaraleg
stjórn tók við völdum.
Bhutto var handtekinn í Karachi
stuttu eftir að hún þurfti að flýja
í stærstu borgum Pakistan
skothríð lögreglunnar en skotunum
var beint að hópi fimm þúsund
stuðningsmanna hennar sem safnast
höfðu saman í þessari fjölmennustu
borg Pakistan.
Bhutto var sögð þurfa að dvelja
þrjátíu daga í fangelsi fyrir að hafa
óhlýðnast skipunum yfirvalda með
því að hvetja til mótmælaaðgerða á
þjóðhátíðardegi Pakistana sem var í
gær. Síðan föður hennar, Zulfikar
Ali Bhutto, var steypt af stóli árið
1977 og síðan tekinn af lífi hefur
Benazir, sem er 33 ára gömul og
menntuð frá háskólanum í Oxford á
Englandi, margoft þurft að dvelja í
fangelsi.
gær
Stjórnin lét í fyrradag handtaka
rúmlega þúsund stjórnarandstæð-
inga. Það var Mohammad Khan
Junejo forsætisráðherra sem skipaði
fyrir um handtökurnar en stjórn
hans hefur verið undir miklum þrýst-
ingi frá stjórnarandstöðunni um að
kalla til nýrra kosninga þann 20.
september. Junejo komst til valda
fyrir sextán mánuðum síðan í kosn-
ingum þar sem stjórnmálaflokkum
var meinuð þátttaka.
Mohammed Sia-Ui-Haq forseti og
valdamesti maður landsins var ekki
í landinu þegar óeirðirnar brutust
út. Hann er á ferðalagi urn Saudi-
Arabíu.
Benazir Bhutto var handtekin í gær
og stungið í fangelsi
Frakkland:
Vasaþjófar
handteknir
París-Reuter
Lögreglan í París sagðist í gær
hafa handtekið fjóra Júgóslava á
aldrinum 26 til 28 ára en þeir eru
sakaðir um að hafa stjórnað hópi
vasaþjófa sem byggði afkomu
sína á ferðamönnum í Parísar-
borg.
Fjórmcnningarnir eru taldir
hafa ráðið yfir hópi unglinga sem
voru atkvæðamiklir í að ná jap-
önskum yenum, bandarískum
dollurum og frönskum eða sviss-
neskum frönkum af ferðamönn-
um við Rue de Rivoli, Louvre-
safnið og Notre Dame dómkirkj-
una í París.
Frönsk útvarpsstöð sagði í gær
að vasaþjófar hefðu aðeins að
ráða yfir um 10% af starfsemi
þeirri er tengist ránum á fé og
munum erlendra ferðamanna.
Stöðin tók þó fram að vasaþjóf-
arnir sköruðu framúr hvað varð-
aði árangur af þeim „gætu náði í
um 40% af verðmætunum.
Swaziland:
Nafngiftin fer
i
lYfbabane-Reuter
Andalæknar í Swazilandi eru ó-
ánægðir með nafngiftina „galdra-
læknir“ sem skráð er í lög er ná aftur
til þess tíma er landið var breskt
verndarsvæði. Þeir telja nafngiftina
niðurlægjandi og vilja láta kalla sig
eitthvað annað.
Samband andalækna í Swazilandi
fór fram á við ríkisstjórn landsins,
þar sem þeir eru kallaðir galdralækn-
ar og bannað er að sýna bein þau og
skinn sem nauðsynleg eru í lækn-
ingastörfum þeirra, yrði breytt.
Lög þessi voru sett á síðustu öld
þegar Swaziland var bresk nýlenda.
Hinir fimm þúsund skráðu „Sang-
omas“, en svo kallast andalæknarnir
á tungumáli innfæddra, hafa þó haft
lögin að engu í mörg ár.
Nhlavana Maseko formaður sam-
bands sangomasa sagði að þótt ekki
væri farið að lögunum væru þau
móðgun við starfandi andalækna og
ætti að fella þau úr gildi.
Flestir íbúar Swazilands, um 750
þúsund að tölu, fara reglulega til
andalækna.
Vestræn læknavísindi hafa í raun-
inni ætíð verið nokkuð ófullkomin
fyrir mörgum Afríkubúanum. Með
þeint er, jú, hægt að lækna ýntsa
sjúkdóma en þau segja ósköp lítið
um hvaða ásatæður aðrar en líffræði-
legar liggja að baki því að einn fær
sjúkdóminn en ckki hinn. Þarstanda
hinir afrísku andalæknar vestrænum
læknum mun framar.
Kúba:
Viðameiri
verslun við
vestræn ríki
Havana-Reutcr
Stjórnvöld á Kúbu hafa í hyggju
að auka verslun sína við vestræn ríki
til að geta keypt meira af iðnaðarvör-
um í hágæðaflokki sem ekki fást í
austantjaldsríkjunum. Þetta var
haft eftir háttsettum kúbönskum
embættismanni í gær.
„Við höfum ekki í hyggju að
hætta verslun við ríki þar sem mark-
aðshyggjan ræður lögum. í rauninni
erunt við að hugsa um að auka hana,
jafnvel um tuttugu prósent,“ sagði
Julio Fernandez de Cossio banka-
stjóri Aðalbankans á Kúbu í samtali
við fréttamann Reuters.
Kúbanir hafa dregið verulega úr
verslun sinni við vestræn markaðs-
hyggjuríki á síðustu tíu árum eða frá
41% heildarviðskiptanna árið 1975
niður í aðeins 15% á síðasta ári.
Þessar tölur þykja sýna aukin tengsl
stjórnarinnar í Havana við Sovét-
stjórnina.
Helsta vandamál Kúbana í við-
skiptum sínum við vestræn ríki er að
hinn gríðarlega umfangsmikil
Bandaríkjamarkaður er þeim lokað-
ur og hefur verið síðan á sjötta
áratugnum er Bandaríkjastjórn setti
viðskiptabann í Kúbu. Stjórnvöld í
Havana verða því að versla við aðrar
vestrænar þjóðir til að ná í varahluti
og tækni til að halda iðnaði landsins
gangandi.
Efnahagslífið á Kúbu byggir aðal-
lega á framleiðslu sykurs.
Utanríkisráðherrafundur Norðurlandanna:
Ráðstafanir gegn
aðskilnaðarstefnu
Kaupmannahöfn-Reuter
Utanríkisráðherrar Norðurland-
anna fimm samþykktu í gær eftir
tveggja daga viðræður aðgerðir sem
ætlað er að hjálpa til við að binda
enda á aðskilnaðarstefnu Suður-
Afríkustjórnar. Bindandi refsiað-
gerðir að hálfu Sameinuðu Þjóðanna
voru settar á oddinn í samþykkt
ráðherranna.
Ráðherrarnir, sem vanalega halda
með sér fundi á ári hverju, skipuðu
nefnd sem kanna á möguleika á
frekari aðgerðum að hálfu Norður-
landanna m.a. hugsanlegt við-
skiptabann af hálfu þeirra.
Þá var samþykkt að auki hjálpar-
aðstoð við ríki í sunnanverðri Afríku
og aðstoða sérstaklega hin svokölluðu
„framvarðarríki" þ.e. nágrannaríki
Suður-Afríku.
Ekki var samþykkt neitt sameigin-
legt viðskiptabann eins og sumir
höfðu búist við, en Ingvar Carlsson
forsætisráðherra Svíþjóðar sagði á
fundi forsætisráðherra Norðurland-
anna nú fyrir skömmu að stjórn sín
myndi hugleiða harðari aðgerðir
Nei takk
ég er á
bílnum
||UMFEROAR
kæmist öryggisráð SÞ ekki að sam-
eiginlegri niðurstöðu um efnahags-
legar refsiaðgerðir gagnvart stjórn
Suður-Afríku fyrir áramót.
Svíar eiga mestra hagsmuna að
gæta af Norðurlandaríkjunum hvað
varðar viðskipti við Suður-Afríku.
Útflutningur þeirra til landsins nem-
ur sem samsvarar tæpum sex milljörð-
um íslenskra króna á ári. Viðskipti
íslendinga við Suður-Afríku eru
mjög óveruleg.
Irland:
„Gestirnir“
óvelkomnir
Hópur mótmælenda fylgdi einum leiötoga
sinna til Dundalk í gær -
barist á götum úti
Frá frcttarrituru Tímans í Lundúnum,
David Keys:
Harðlínumönnum úr hópum
mótmælenda og kaþólikka laust
saman í gær í bænum Dundalk á
Irlandi sem er um tíu kílómetra
suður af landamærum við Norður-
írland.
Þó nokkur fjöldi mótmælenda
hafði komið yfir landamæri í gær
til að sýna samstöðu með einum
leiðtoga sinna Peter Robinson sem
mætti fyrir rétti í Dundalk. Robin-
son var handtekinn í síðustu viku
er hann ásamt um 150 öðrum
mótmælendum fór yfir landamærin
til að sýna fram á slaka öryggis-
gæslu við þau.
Robinson var látinn laus gegn
tryggingu en þarf að mæta fyrir
rétti aftur í október.
Á strætum bæjarins var hinsveg-
ar meira um að vera. Kaþólikkar
hentu bcnsínsprengjum að „gest-
unum“ og slógust við þá á götum
úti. Var atgangurinn svo harður að
kalla þurfti til að aukalið lögreglu-
manna.
Hópur mótmælenda ruddust yfir
landamærin í síðustu viku, flestir
með klúta fyrir andlitum sínum, og
gerði mikinn usla í írska smábæn-
um Clontibret sem aðallega er
byggður kaþólikkum. Þar réðust
þeir á ómannaða lögreglustöð um
hánótt og börðu síðan tvo lögreglu-
foringja sem komu á staðinn.
Robinson er þingmaður á breska
þinginu og varaformaður annars
stærsta stjórnmálaflokksins á
Norður-írlandi, Lýðræðisbanda-
lagsins, sem leitt er af prestinum
Ian Paisley. Hann sagðist hafa
farið yfir landamærin einungis sem
áhorfandi.
Á timabilinu 1. mai til 30. sept.
Á timabilinu 1. juni til 31. agust
w
Mánudaga: Frá Stykkishólmi kl 09.00 Frá Brjánslæk kl 14.00 Til Stykkishólms kl. 18.00 fyrir brottför rututil Rvk Priðjudaga Frá Stykkisholmi kl 14.00 eftir komu rútu. Fra Brjánslæk kl. 18.00 Til Stykkishólms kl. 21 -30
Fimmtudaga Fostudaga: Sama timataflaog mánudaga Frá Stykkishólmi kl 14 00, eftir komu rútu. Laugardaga: Fra Stykkishólmi kl. 09.00 Sigling um suðureyjar. Fra Brjánslæk kl. 15.00 Til Stykkishólms kl 19.00
Viðkoma í inneyjum A timabilinu 1. júli til 31. aqust
Frá Brjánslæk kl. 19 30 Til Stykkishólms kl. 23.00 Miðvikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Frá Brjánslæk kl. 14.00 Til Stykkishólms kl. 18 00. fyrir brottfor rútu.
Viðkoma er ávallt i Flatey á báðum leiðum.
Bilaflutninga er nauðsynlegt að panta með fyrirvara.
Frá Stykkisholmi:
Hjá afgreiðslu Baldurs
Stykkishólmi, s.: 93-8120
Fra Brjánslæk:
Hja Ragnari Guðmundssynu*
Brjanslæk, s.: 94-2020.
-V