Tíminn - 15.08.1986, Qupperneq 12
16 Tíminn
1. kl. 16:00
2. kl. 17:00
3. kl.17:15
4. kl. 17:20
S.U.F.- þing
Sambandsþing SUF hiö 21. verður haldið í Hrafnagils-
skóla í Eyjafirði 29.-30. ágúst 1986.
Dagskrá:
Föstudagur 29. ágúst.
Mæting
Þingsetning,
Finnur Ingólfsson formaður SUF.
Kosning starfsmanna þingsins:
a. Þingforsetar(2)
b. Þingritarar (2)
c. Kjörnefnd(8)
Skýrslastjórnar
a. Formanns
b. Gjaldkera
Ávörpgesta
Framsóknarflokkurinn. Afl nýrratíma.
a. Staða Framsóknarflokksins í
íslenskum stjórnmálum.
b. Niðurstöður þjóðmálakönnunar SUF
c. Megináherslur Framsóknarflokksins
í stjórnmálum næstu árin.
Kvöldverður
Kynning á drögum að ályktunum.
a. Stjórnmálaályktun
b. Megináherslur Framsóknarflokksins
í íslenskum stjórnmálum næstu árin.
Almennarumræður
Kvöldvaka
Laugardagur 30. ágúst.
kl.17:45
kl. 18:00
kl. 19:00
kl. 20:00
9. kl. 20.30
10. kl. 22:30
1. kl. 8:00 Morgunverður
2. kl. 8.30 Nefndarstörf
a. Stjórnmálanefnd
b. Flokksmálanefnd
3. kl. 12:00 Hádegisverður
4. kl. 13:00 Knattspyrna, sund
5. kl. 14:00 Kynning á álitum nefnda, umræður og
afgreiðslamála.
6. kl. 17:30 Kosningar
7. kl. 18:00 Önnurmál
8. kl. 19:30 Þingslit
9. kl. 20:00 Kvöldskemmtun.
Sunnudagur 31. ágúst
1. kl. 10:00 Morgunverður
2. kl. 12:00 Lagtaf staðfráHrafnagilsskóla.
Stjórnin
Nýr lífsstíll
Breytt þjóðfélag
Ráðstefna í Glóðinni í Keflavík laugardaginn 13.
septembernk. Allirvelkomnir. Nánarauglýstsíðar.
Landssamband framsóknarkvenna
Vesturland
Kjördæmisþing Framsóknarfélaganna í Vestur-
landskjördæmi verður haldið í Borgarnesi dagana
5. til 6. september nk.
Stjórnin
Héraðsmót
Hið árlega héraðsmót framsóknarmanna í Skagafirði
verður haldið í Miðgarði laugardaginn 30. ágúst.
Hljómsveit Geirmundar leikur fyrir dansi. Dagskrá
nánar auglýst síðar.
Nefndin
Vestfirðir
Kjördæmaþing framsóknarmanna á Vestfjörðum verður haldið á
Reykhólum 5.-6.september n.k.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
lllllllllllllll! DAGBÓK lllllll
Útivistarferðir
Helgarferðir 15.-17. ágúst
1. Núpsstaðarskógur - Brottför föstu-
dag kl. 18.00. Gönguferðir m.a. að Tví-
litahyl ogSúlutindum. Berjalandogveiði.
Kynnist þessu tilkomumikla svæði vestan
Skeiðarárjökuls. Tjöld.
2. Þórsmörk - Gist í skálum Útivistar í
Básum á Goðalandi. Gönguferðir við
allra hæfi. Munið sumardvöl í heila cða
hálfa viku. Kynningarverð í ágúst.
3. Skógar - Fimmvörðuháls - Básar 8-9
klst. ganga yfir hálsinn. Brottför laugar-
dag kl. 08.00. Gist í Útivistarskálanum
Básum.
Sumarleyfisferð 21.-24. ágúst
Lakagigar - Holtsdalur - Leiðólfsfell
(4 dagar). Óvenju fjölbreytt ferð m.a.
farið um lítt þekktar slóðir. Ökuferð með
góðum gönguferðum. Ekki of langur
akstur. Gist við Blágil og Eldgjá. Hcim
um Eldgjá og Laugar. Upplýsingar og
farm. á skrifstofunni Grófinni 1.
Útivistarferðir
á laugardag 16. ágúst
Kl 1)9.00: Gamla þjóðleiðin yfir Hcllis-
heiði til Reykjavíkur Reykjakot (í Ölfusi)
- Hellisheiði - Kolviðarhóll - Lækjar-
botnar. Gengið með gömlu vörðunuleið-
inni yfir Hellisheiði. Að við Hellukofann.
Möguleiki cr að fara með rútunni frá
Kolviðarhól kl. 13.30 í bæinn, en annars
halda áfram í Lækjarbotna.
Kl. 13.00: Kolviðarhóll - Lækjarbotn-
ar. Gengið milli þessara göntlu áningar-
staða.
Útivistarferðir
ásunnudag 17. ágúst
Kl. 10.30 : Lækjarbotnar - Ártún -
Elliðaárdalur - Grófín. Gamla Þjóðleiðin
lá um Reiðskarð hjá Ártúni. Hægt er að
stytta leiðina til 13.30 við Elliðaárstöðina
en þá fer rúta þaðan.
Kl. 13.00: Gamla þjóðleiðin um
Reykjavík. Gengið frá Elliðaánum neðan
Ártúns um Bústaðaholt, Öskjuhlíð,
Skólavöruholt og Arnarhól í Grófina.
Frítt fyrir börn með fullorðnum. Brottför
frá BS(, bensínsölu, 10 mín. fyrir auglýst-
an tíma úr Grófinni (Grófartorgi). Geng-
ið elstu þjóðleið landsins í tilefni 200 ára
afmælis Reykjavíkurborgar.
Ganga Hana nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Frístunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi verður á
morgun, laugardaginn 16. ágúst. Lagt af
stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.00.
Við röltum um bæinn í klukkutíma.
Allir aldurshópar velkomnir. Nýlagað
molakaffi. Markmið göngunnar er: Sam-
vera, súrefni, hreyfing.
Sumarferð Átthagasamtaka
Héraðsmanna
Átthagasamtök Héraðsmanna efna til
hópferðar að Veiðivötnum laugardaginn
30. ágúst n.k. Væntanlegir þátttakendur
eru beðnir að hafa samband við Hrcin
Kristinsson í síma 84134 sem fyrst.
Torfhleðslunámskeið
í Vatnsmýrinni
um helgina
Torfltleðslunámskeið verður haldið í
Vatnsmýrinni um næstu helgi, laugardag
og sunnudag 16.-17. ágúst kl. 10.00-18.00
báða dagana. Hleðslumenn Sveinn Ein-
arsson og Tryggvi Hansen leiðbeina í
Vatnsmýrinni. Þeir hafa saknað að ekki
skuli fleiri garðyrkjumenn og garðarki-
tektar koma og kynna sér torfhleðslu
þeirra, því hún kemur að miklum notum
við uppbyggingu og skipulagningu garða.
Sveppanámskeið,
sveppatínsluferð
Eins og undanfarin ár ntun hið íslenska
Náttúrufræijúfélag halda námskeið í
greiningu sveppa. Aðaláherslan verður
lögð á greiningu sveppa til matar, en
einnig verða kynntir sveppir sem ber að
varast. Námskeiðið verður haldið mið-
vikudagskvöldið 20. þessa mánaðar í húsi
Líffræðistofnunar að Grensásvegi 12 (3.
hæð). Þeir sem hafa áhuga á námskeiðinu
eru beðnir að skrá sig í síma Náttúru-
fræðistofnunar (29822) fyrir 19. ágúst.
í tengslum við námskeiðið verður farin
sveppatínsluferð í Skorradal sunnudag-
inn 24. ágúst. Lagt verður af stað í ferðina
frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10 árdegis.
Leiðbeinandi verður Eiríkur Jensson.
Kjartan Árnason.
Ný Ijóðbók:
Dagbók Lasarusar
Ný Ijóöabók cr komin út. Höfundur
hennar er Kjartan Árnason og er þetta
fyrsta bók hans. Bókin heitir „Dagbók
Lasarusar" og er luin öll lögö í munn þess
merka Betaníumanns og rckur hann í
hcnni hugrenningar sínar í ellefu köflum
á tæpum hundrað síðum," segir í kynn-
ingu á bókinni.
( sambandi viö útkomu bókarinnar
hefur verið stofnað nýtt útgáfufélag. Nafn
þess er útgáfuíélagið ÖRLAGIÐ og hefur
það aðsetur í Reykjavík.
Dagbók Lasarusar er sett hjá Örlag-
inu, en prentuð og bundin í prentstofu ö.
Benediktssonar. Bókin fæst hjá höfundi,
í Bókabúð Máls og menningar, hjá Ey-
mundssy.ii og í Laxdalshúsi á Akureyri.
Ættarmót í Njálsbúð
Afkomendur Sigríðar Oddsdóttur og '
Þorsteins Ólafssonar frá Álfhólahjáleigu
í Vestur-Landeyjum, halda ættarmót í
Njálsbúð, Vestur-Landeyjum, föstudag-
inn 15. ágúst. Mótið hefst kl. 20.00 og
stendur til laugardagskvölds 16. ágúst.
Happdrætti Hjartaverndar 1986
Árlegt happdrætti hefur um langt skeið
verið einn af styrkustu tekjustofnum
Hjartaverndar. Aðeins eitt happdrætti á
ári er á vegum samtakanna og dregið í því
að haustinu, í þetta sinn 10. október.
Aðalverkefni Hjartaverndar er tvenns-
konar: Fræðslustarfsemi og rekstur rann-
sóknarstöðvar. Samtökin efna árlega til
fræðslufunda þar sem þekktir sérfræðing-
ar fjalla um hjarta- og æðasjúkdóma,
þróun þeirra og varnir gegn þeim.
Skýrslur, bæklingar og tímarit konta út á
vegum samtakanna til að fræða aimenn-
ing um helstu áhættuþætti þessara mann-
skæðustu sjúkdóma hér á landi og hvað
fyrirbyggjandi aðgerðir komi helst að
gagni.
Hjartavernd hefur rekið rannsóknar-
stöð í 19 ár. Árangur af rannsóknum
Rannsóknarstöðva Hjartaverndar er sí-
fellt að koma í Ijós eins og lesa má í
skýrslum og greinum. Kemur þetta að
gagni fyrir heilbrigðisþjónustuna í land-
inu í bráð og lengd.
Forvarnir eru haldkvæmsta heilsugæsl-
an eins og Hjartavernd hefur bent á frá
upphafi.
Happdrættið hefur árlega lagt drjúgan
skerf til Rannsóknarstöðvar Hjartavernd-
ar. ( þetta sinn eru vinningar óvenju
glæsilegir, alls 20 talsins að verðmæti
tæpar 4 milljónir króna. Hæsti vinningur
er 1 milljón krónur til íbúðarkaupa og
annar vinningur er Audi bifreið árgerð
1987 að verðmæti kr. 850.000.- Aðrir
vinningar eru 2 greiðslur til íbúðakaupa.
11 ferðavinningar og 5 tölvur. Verð miða
er það sama og síðstliðið ár, kr. 150,-
Happdrætti Hjartaverndar hefur jafn-
an átt góða hauka í horni sem keypt hafa
miða og hvatt aðra til að gera það. Þannig
hefur almenningur lagt hönd á plóginn.
Föstudagur 15. ágúst 1986
SAMUEL í ágúst
Nýtt blaö af Samúcl er komiö út.
Forsíöuna prýöir nakin stúlka í sól og
sumaryl. A 2. og 3. síöu eru ýmsar
smáfréttir um: Porsche bíla, Campari,
Svala o.fl. Pá kemur myndskreytt grein
um sjóskíða-sýningarfólk. Munaöarsegg-
ir háloftanna heitir frásögn af lúxusþotum
ríkustu manna heims, svo sem Khasoggis
olíukóngs o.fl. nokkrar myndir fylgja
frásögninni. Sagt er frá nýjum veitinga-
staö: „Úlfar og Ljón“ Nafniö er tilkomið
vegna veitingamannstns Úlfars Eysteins-
sonar og mcöeiganda hans í fyrirtækinu,
Leó Löve (Ljón). Eftir frásögn af staön-
um cr þetta upplagöur fjölskyldustaöur,
þar sem gott leikpláss er fyrir börn og
veröi haldið í hófi. Myndfrásögn er af
Pingvallaferö „Kremlarklúbbsins‘\ þar
sem gengiö hefur á ýmsu. Ýmislegt er um
kvikmyndastjörnur og sagt frá Playboy-
kónginum Hefner, sem sé nú á föstu!
Ýmislegt fleira er í Samúel: Bílamyndir
og stúlkumyndir o.fl. Ólafur Hauksson er
HÚSBYGGJANDINN
Tímaritið Húsbyggjandinn kemur út
tvisvar á ári. vor og haust. Ritið er ætlað
aðilum tengdum byggingariðnaðinum og
er prentað í 10.000 cintökum og dreift
ókeypis til allra sem fengið hafa úthlutað
lóðum síðustu tvö árin, og á fleiri staði
sem tengjast byggingariðnaðinum. I
þessu vor-hefti er m.a. skrifað um Hljóð-
einangrun, Svona búunt við er frásögn af
húsi á Hávallagötu, sagt frá í máli og
myndum heimili Hilmars Jónssonar og
Elínar Káradóttur, scm gefa út tímaritið
Gestgjafann sem þau segja að hafi til
orðið á eldhúsboröinu hjá þeim. Ýmsir
sérfræðingar skrifa um sitt fag í bygging-
ariðnaðinum, svo sem Haraldur Ásgeirs-
son, framkvæmdastjóri Rannsóknastofn-
unar Byggingariðnaðarins sem skrifar um
nýja steypu: Ný-steypa. Fyrir utan allt um
byggingar, er líka ýmsar leiðbeiningar
um hönnun garðao.fl. Forsíðuteikninger
eftir Brian Pilkington.
Nú eru um finint ár liðin síðan blaðið
Húsbyggjandinn kom fyrst út og cru af
því tilefni fleiri litprentaðar síður í nýjasta
blaðinu cn áður, eða á sjöunda tug. Á
þessum tímamótum hefur einnig sá háttur
verið tekinn upp að blaðið kemur nú út
tvisvar á ári, í stað einu sinni áður.
Húsbyggjandanum hefur verið dreift á
blaðsölustaði um land allt, auk þess sem
blaðið er fáanlegt í flestum byggingar-
vöruverslunum. í ár hefur þeirri ný-
breytni verið komið á, að blaðið er nú
einnig boðið f áskrift. Eru þeir sem áhuga
hafa á áskrift beðnir að snúa sér til
afgreiðslu blaðsins í Bolholti 6, eins er
hægt að panta áskrift í síma 687085. Efni
blaðsins hefur tekið töluverðum brcyting-
um, efni blaðsins er fjölbrcyttara en áður,
og munu flciri breytingar eiga sér stað
með næstu blöðuni. Þjónustulisti Hús-
byggjandans „Hvað fæst hvar?" hefur frá
uppahafi vcrið hluti blaðsins. Það er að
finna vel sundurliðaða skrá yfir hvar hægt
er að fá vörur og þjónustu í og tengdum
byggingariðnaðinum. Fjöldi bygginga-
lausna meðal annars: Frágangur timbur-
þaks og steypts útveggjar, einangrun utan
á steyptan útvegg. fróðleg grein um
hljóðeinangrun húsa. hvað cr X-steypa?,
Hvernig á að lcggja korkflísar?. Reykja-
vík 300 ára!!!. teikningasafn. innrétting-
ar. eldvarnir. fasteignamarkaðurinn,
kynning á ýmsum nýjungum i byggingar-
iðnaðinunt og margt fleira.