Tíminn - 19.08.1986, Blaðsíða 3

Tíminn - 19.08.1986, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 19. ágúst 1986 Tíminn 3 Reykvíkingar skulda stórfé fyrir rafmagn og hita: Skuldirnar hlóðust upp Samtök sauðfjár- bænda funda á Hólum í Hjaltadal: MARKAÐS- MÁLOG /r þegar hætt - sumir hafa safnað skuldum í allt að 2 ár ’Rafmagns- og hitaveituskuldir Stór-Reykvíkinga námu hundruðum milljóna (ekki miklu lægri upphæð- um en um er rætt í sambandi við Hafskipsgjaldþrot) um síðustu ára- mót og höfðu hækkað gífurlega frá árinu áður. Samkvæmt ársreikningum Raf- magnsveitu Reykjavíkur átti hún 395 milljónir útistandandi í ógreidd- um rafmagnsreikningum um ára- mótin, sem var um 183 millj. króna hærri upphæð en næstu áramót á undan. Miðað við að heildarorku- sala R.R. á árinu var 1.125 millj. króna er ljóst að þarna er um hlutfallslega mjög háa skuld að ræða. Þar sem Rafmagnsveitan inn- heimtir reikninga fyrir Hitaveitu Reykjavíkur samhliða sínum reikn- ingum má ætla að álíka hlutfall rúmlega 800 millj. króna hitaveitu- reikninga á árinu hafi einnig verið ógreiu um áramót, eða gróflega áætlað kannski um 600 milljónir króná samtals hjá báðum fyrirtækj- unum. Tekið skal fram að þarna er þó ekki eingöngu um vanskil að ræða að hluta er um að ræða reikninga sem sendir hafa verið út síðast á árinu og hafa því jafnvel ekki verið á eindaga fyrr en í janúar. f yfirliti Aðalsteins Guðjohnsen raf- magnsstjóra segir m.a. að innheimta orkugjalda hafi verið erfið á árinu. Notendur hafi naumast áttað sig á þeim erfiðleikum sem greiðsludrátt- ur getur valdið. Þeim aukna greiðsludrætti notenda hefði verið æskilegra að mæta með hraðvirkari og markvissari innheimtuaðgerðum. Þessi mikla skuldasöfnun hófst að marki eftir að Rafmagnsveitan breytti um innheimtutækni árið 1984. í stað þess áð loka ef reikning- ar voru ekki greiddir á tilskildum tíma eins og áður tíðkaðist, var farið að reikna dráttarvexti á ógr ádda reikninga. Að sögn Þorsteins Ragnarssonar, deildarstjóra viðskiptadeildar virk- uðu dráttarvextirnir alls ekki sem innheimtutæki, eins og búist hafði verið við. Skuldirnar fóru að hlaðast upp. Um síðustu áramót blasti svo við hjá Rafmagnsveitunni, að ef þróunin hefði orðið sú sama nú árið 1986, stefndi í vandræðaástand hjá fyrirtækinu. var að Rafmagnsveitan tók því upp hert- ar innheimtuaðgerðir, m.a. auglýs- ingaherferð og lokanir að nýju til að snúa ninni ískyggilegu þróun við - sem Þorsteinn sagði þegar farið að sýna mikinn árangur. Skuldirnar verði þó ekki lækkaðar í snatri. Erfitt sé að beita lokunum hjá þeim sem safnað hafi upp langtíma orku- skuldum, jafnvel upp í 2 ár. Þá sé þetta orðið illviðráðanlegt. „Við erum því með smá dempara á þessu - gefum fólki kost á að semja við okkur um að smá borga skuld- irnar niður,“ sagði Þorsteinn. Orkukaupendur hafa enn svigrúm loka með 1 eða 2 reikninga í skuld - en 'fari reikningar að hlaðast uprp þannig að greinilegt sé að þeir séu farnir að safna upp skuldum sendir Raf- magnsveitan út viðvaranir um lokun, sem framfylgt er sé ekki er greitt. Spurður sagði Þorsteinn orku- reikninga frá fleiri hundruðum ef ekki þúsundum orkukaupenda komna í lögfræðiinnheimtu. En þar sé sérstaklega um að ræða aðila sem hættir eru viðskiptum - þ.e. orku- kaupum af Rafmagnsveitunni, t.d. vegna brottflutnings, en skilið eftir skuldir. -HEI NYTT KJÖTMAT Aðalfundur samtaka sauðfjár- bænda verður haldinn að Hólum í Hjaltadal dagana 23.-24. ágúst næstkomandi. Fundurinn hefst á laugardagsmorguninn 23. ágúst og stendur fram á sunnudags- kvöld. Að sögn Jóhannesar Kristjáns- sonar formanns samtaka sauð- fjárbænda verða markaðsmál og staða samtakanna innan félags- kerfisins á dagskrá fundarins. Ennfremur mun fundurinn fjalla um nýútkomna reglugerð um kjötmat. Að sögn Jóhannesar telja margir sauðfjárbændur að hún sé lítið breytt frá því sem hún var og ekki í samræmi við þær óskir sem samtök sauðfjárbænda höfðu komið með, þ.e.a.s. að nýja að nýja kjötmatið tæki meira mið af óskum neytenda. ABS Margfalt afmæli ísafjaröarkaupstaðar: Veðurguðirnir slógust í lið með heimamönnum Lögreglan kom fljótt á vettvang og bjargaði mönnunum og bátnum. Timamjnd: Sverrir Skerjafjöröur: Bátnum hvolfdi - er hann var aö draga fallhlíf á loft Bát hvolfdi í Skerjafirði á laugar- dagskvöldið, þegar hann var að draga mann í fallhlíf á loft. Bátur- inn hafði sigit upp í vindinn þegar slaki kom á bandið á milli báts og fallhlífar og þá tókst báturinn á loft og fþr aftur yfir sig og á hvolf. Lögreglan bjargaði mönnunum tveimur sem báðir voru í blautbún- ingum og varð þeim ekki meint af volkinu og fóru báðir heim til sín. Báturinn mun ekki hafa skemmst við þetta og var dreginn á land. ABS - 2. bindi af Sögu ísafjarðar komiö út lsfirðingar .hcldu upp á margfalt afmæli kaupstaðarins með pomp og prakt á sunnudaginn, þar sem bæjar- búar með margháttuðu framlagi sínu og veðurguðirnir með því að gefa þeim dýrlegasta veður sumarsins, lögðust á eitt við að gera daginn skemmtilegan og eftirminnilegan. Auk 200 ára kaupstaðarafmælis halda fsfirðingar í ár upp á 120 ára afmæli formlegrar bæjarstjórnar á ísafirði. Jafnframt eru í ár (3. okt. n.k.) 15 ár frá sameiningu ísafjarðar- kaupstaðar og Eyrarhrepps í eitt sveitarfélag. Að sögn Magnúsar Reynis Guð- mundssonar, bæjarritara var ákveð- ið að halda fyrst og fremst upp á afmælið fyrir ísfirðinga sjálfa og ekki síst fyrir yngstu kynslóðina. Fjöldi brottfluttra ísfirðinga og gesta úr nágrannabyggðunum komu og fögnuðu með heimamönnum, sem flestir eða allir skemmtu sér af hjartans lyst. Hátíðarhöldin hófust raunar á laugardagskvöldið nteð tónleikum Kristins Sigmundssonar óperu- söngvara og undirleikara hans Jón- asar Ingimundarsonar. Þá voru og opnaðar myndlistarsýningar. Forscti bæjarstjórnar setti síðan hátíðina formlega með ræðu á . sunnudag.Þá fór fram söguleg kynning á bænum og bæjarlífinu, þar sem Litli leikklúbburinn flutti efni sem Jón Þ. Þór sagnfræðingur hefur tekið saman um þessi tímamót - þegar verslunin var gefin frjáls. Hestamenn komu í hópreið á hátrðarsvæðið og gáfu börnum og unglingum tækifæri til að reyna gæð- Fjöldi gjafa til Reykjavíkur Afmælisgjafir voru teknar að streyma til Reykjavíkur strax fyrir síðustu helgi, þó afmælisdagurinn væri ekki fyrr en í gær. Föstudaginn 15. ágúst komu fulltrúar eftirtalinna aðila á fund borgarstjóra og afmælisnefndar í Höfða og afhentu gjaf- irnar: Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar gaf málverk frá Þingvöllum eftir Kristján Magnússon. Eimskipafélag íslands gaf málverk af Ingólfi Arnarsyni með öndvegissúlurnar, málað af danska málaranum Johan Peter Raadsig (1806-1882). Málverkið var mál- að 1850. Vörubílstjórafélagið Þróttar gaf ágraf- innskjöld unninn af Friðriki Friðleifssyni. Hörður Bjarnason afhcnti fyrir hönd 58 fyrirtækja og stofnana tilkynningu um að þeir myndu samcinast um að gefa borginni eirafsteypu af „Úr álögum", höggmynd eftir Einar Jónsson, scm er eitt af höfuðverkum þessa mikla myndhöggv- ara. Vinna við myndina er þegar hafin og verður hún afhent vorið 1987. Ibúasarntök Vesturbæjar afhentu verð- launatillögu ásamt líkani af listaverki eftir Jón Gunnar Árnason. Listaverkið verður síðan stækkað og reist úr stáli í Vesturbænum. Blómamiðstöðin gefur borginni 200 rósir, auk þess sem blómabændur munu skreyta Austurstræti með blómum á afmælisdaginn og gefa hátíðargestum blóm. Áður höfðu m.a. eftirtaldir aðilar til- kynnt um gjafir: Þýsk-íslenska h.f. um veglcga úti- klukku, sem reist verður við Sundlauga- veg í grennd við Sundlaugina í Laugardal. Skógræktarfélag Reykjavíkur um myndarlegan trjálund, sem gróðursettur varí nágrenni nýju Þjóðarbókhlöðunnar. „Líf og land“ um að margir aðilar hafi gefið Reykjavíkurborg tré í afmælisgjöf, sem gróðursett voru í borgarlandinu. Reykjavíkurborg færir þessum aðilum og öðrum, sem stutt hafa borgina í sambandi við afmælið, bestu þakkir. inga sína. Sæfari, félag sportbáta- eigenda, var með hópsiglingu og gaf síðan bæjarbúum kost á skemmti- siglingu um spegilsléttan Pollinn. Skátar á staðnum voru með uppá- komu og tívolí fyrir krakkana og Byggingarsjóður Tónlistarskóla og Sunddeild Vestra önnuðust mark- aðstorg og veitingasölu. Kl. 17.00 sáu Kiwanismenn um geysimikla grillveislu á Silfurtórgi þar sem öllum var boðið upp á sneiðar af eldsteiktum lömbum og fleira góðgæti. Eftir áframhaldandi skemmtan Leikklúbbsins, MÍ-kvart- ettsins og fleiri skemmtikrafta söfnuðust bæjarbúar í hópgöngu niður í Neðstakaupstað um kvöldið. Þar var slegið upp dansleik að göml- um hætti - bekkir meðfram veggjum og harmoníkkuleikur - í Turnhús- inu, sem er eitt af elstu húsum landsins, og myndaðist mikil stemming. Hlé var gert á dansinum um miðnætti á meðan skátarnir efndu til mikillar flugeldasýningar og hópsöngs - „í faðmi fjalla blárra". Dansinn hélt síðan áfram út á afmælisdaginn. En merkilegasta þáttinn í að minnast þessara tímamóta telur Magnús Reynir þó útkomu Sögu ísafjarðar. En 2. bindi (af 5 væntan- legum) þess mikla verks eftir Jón Þ. Þór, sagnfræðing kom út nú um helgina. Annað bindið fjallar um árin 1867-1920. Það er Sögufélag Isafjarðar sem sér unt útgáfuna fyrir hönd bæjarstjórnar. jj£j t Faðir okkar, tengdafaðir og afi Hallgrímur Sveinn Sveinsson frá Hálsi í Eyrarsveit lést á sjúkradeild Hrafnistu 16. ágúst s.l. Sigurður Hallgrímsson Erla Eiríksdóttir Selma Hallgrímsdóttir Erastus Ruga Sveinn Hallgrímsson Gerður K. Guðnadóttir Ingibjörg Hallgrirnsdottir Kristinn Ólafsson Halldora Hallgrímsdóttir PéturLaszlo Guðni E. Hallgrímsson Bryndís Theódórsdóttir Hallgrímur Hallgrímsson Guðríður J. Guðnadóttir og barnabörn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.