Tíminn - 19.08.1986, Side 5

Tíminn - 19.08.1986, Side 5
Tíminn 5 Þriðjudagur 19. ágúst 1986 UTLÖND Sovétríkin: Framlengja tilraunabanni með kjarnavopn til áramóta Gorbachev, leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins sagði í sjón- varpsávarpi í gær að ákveðið hafi verið að framlengja banni því sem ríkt hefur um eins árs skeið í Sovét- ríkjunum við tilraunum með kjarn- orkuvopn þar til 1. janúar 1987. Áður átti bannið að faíla úr gildi nú í ágústbyrjun. Sovétleiðtoginn sagð- ist sannfærður um að stórveldin gætu komist að samkomulagi um að banna tilraunir með kjarnorkuvopn á leiðtogafundi sem haldinn yrði á þessu ári, og að slíkt bann gæti orðið raunverulegur og áþreifanlegur árangur af slíkum fundi. Gorbachev sagði, að samþykkt hafi verið í stjórnarnefnd kommún- istaflokksins að framlengja þessu banni þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi gert 18 tilraunir með kjarnorku- vopn frá því að bannið gekk í gildi þann 6. ágúst sl. Bann Sovétmanna við tilraunum með kjarnorkuvopn var einhliða yfirlýsing af þeirra hálfu og hafa Bandaríkjamenn aldrei gefið neinar sambærilegar yfirlýsingar. Reagan og Gorbachev urðu ásáttir um það á leiðtogafundinum í Genf í nóvember í fyrra að halda fund í Bandaríkjunum einhvern tíma á þessu ári, en engin dagsetning hefur verið sett fyrir þann fund ennþá. I sjónvarpsávarpinu í gær sagði Gorbachev: „Ástandið verður sífellt meira óþolandi. Meiriháttar, raun- hæf skref verður að taka, sent gera það kleift að snúa þróuninni til betri vegar." Hann sagði Sovétríkin fram- lengja einhliða bann sitt við tilraun- um með kjarnorkuvopn í þeirri trú. að það væri þeirra æðsta skylda sent kjarnorkuveldis, að tryggja friðsam- lega framtíð plánetunnar. KARPOV FRESTAR NÍUNDU SKÁKINNI Níundu einvígisskák þeirra Karpovs og Kasparovs hefur ver- ið frestað fram á miðvikudag, samkvæmt ósk Karpovs. Hvor skákmeistaranna um sig á rétt á að fresta skák í þrjú skipti, og notfærði Kasparov sér þann rétt eftir fimmtu skákina, þannig að báðir hafa þeir fengið eina frestun. Kasparov vanrt átt- undu skákina á föstudaginn var og er staðan nú þannig að Kaspar- ov hefur 4 'h vinning en Karpov 3 'A Það virðist vera þíða í samskiptum leiðtoganna á fundi sínum í Genf í fyrra, hvað sem má um árangurinn segja. Chernobyl: Mannleg mistök - öryggisreglur brotnar Chernobyl slysið átti sér stað vegna mannlegra mistaka, er niður- staðan í sovéskri skýrslu sem skilað hefur verið inn til Alþjóða kjarn- orkumálastofnunarinnar og jap- anskir fjölmiðlar hafa undir höndum. Samkvæmt þeim upplýsingum sem japönsk blöð og útvarpsstöðvar hafa bir't úr skýrslunni átti slysið sér stað þegar sérfræðingar voru að gera | tilraun með rafhverfil í verinu. Til- gangur tilraunarinnar var að kanna hversu mikið rafmagn hverfillinn gat framleitt eftir að lokað hafði verið fyrir gufustreymi til hans frá einum kjarnofninum. í skýrslunni kemur jafnframt fram að þegar tilraunin var gerð hafi öryggisreglur verið þverbrotnar. Þannig voru hin ýmsu sjálfvirku varnarkerfi gerð óvirk vísvitandi og fóru því ekki í gang þegar ljóst var að slysið var orðið að veruleika. Til dæmis má nefna að kælibúnaður kjarnaofnsins var gerður óvirkur til þess að hann færi ekki sjálfkrafa af stað meðan á tilrauninni stóð. Utanríkisráðherrar Norðurlanda: ÞYRMID SHARPEVILLE SEXMENNINGUNUM segir í áskorun til Botha í S-Afríku Utanríkisráðherrar Norðurlanda hafa sent Botha, forseta Suður-Afr- íku áskorun um að hann þyrmi lífi sex þeldökkra ungmenna, Sharpevill sexmenninganna sem svo hafa verið kallaðir. Sexmenningar þessir voru á sínum tíma dæmdir til dauða fyrir að hafa drepið borgarstjórann í Sharpeville árið 1984. I áskorun ut- anríkisráðherranna segir meðal annars: „Utanríkisráðherrar Norðurlandanna skora á þig herra forseti, að hlutast til um málefni Sharpeville sexmenninganna og bjarga lífum þeirra. Þessi áskorun okkar byggir á mannúðarsjónarmið- um og tjáir grundvallarandstöðu Norðurlandanna við dauðarefsing- ar . I áskoruninni segir ennfremur: „Aftaka þessara sex ungmenna mun að dómi ríkisstjórna Norðurland- anna, einungis auka á stjórnmála- átökin í Suður-Afríku og gera enn erfiðari tilraunir til að ná fram friðsamlegri lausn deilumála í land- inu“. Á tímabilinu 1. mai til 30. sept. Á timabilinu 1. jum til 31. águst Manudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09 00 Fra Brjánslækkl 14.00 Til Stykkishólms kl. 18.00 fyrir brottför rútu til Rvk Þriðjudaga Fra Stykkishólmi kl. 14.00 eflir komu rutu. Fra Brjánslæk kl 18.00 Til Stykkishólms kl. 21 -30 Fimmtudaga Föstudaga: Samatimataflaog mánudaga. Frá Stykkishólmi kl 14,00. eftir komu rutu Laugardaga: Frá Stykkisholmi kl 09 00 Siglmg um suðureyjar Fra Brjánslæk kl. 15.00 Til Stykkishólms kl. 19.00 Viðkoma i mneyjum A timabilinu 1. juli til 31. áqúst Frá Brjánslæk kl. 19.30 Til Stykkishólms kl. 23.00 Miðvikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09 00 Frá Brjánslæk kl. 14.00 Til Stykkishólms kl. 18 00. fyrir brottför rútu Viðkoma er ávallt i Flatey a báðum leiðum Bilaflutninga er nauðsynlegt að panta með fyrirvara. Frá Stykkisholmi: Hjá afgreiðslu Baldurs Stykkishólmi, s.: 93-8120 Frá Brjanslæk: Hjá Ragnari Guftmundssynj- ’ Brjánslæk, s.: 94-2020. ísrael - Sovétríkin: Viðræðum lokið á 90 mínútum Viðræðum Israelsmanna og sov- étmanna, sem hófust í Helsinki í Finnlandi í gær, lauk eftir aðeins einn 90 mínútna fund. Þessi fundur er fyrsti formlegi fundur þjóðanna í 19 ár og að sögn talsmanna ísraelsku sendinefndarinnar verður viðræðum haldið áfram eftir venjulegum dipló- matískum leiðum. Á fréttamanna- fundi í gær sagði Ehud Gol, talsmað- ur ísraels, að viðræðurnar hefðu verið opinskáar og málefnalegar, og að báðir aðilar hafi orðið sammála um að einn fundur væri nóg til að koma af stað nauðsynlegum skoð- anaskiptum. Gol taldi að rætt hefði verið um að koma af stað gagnkvæm- urn heimsóknum sendinefnda frá löndunum, þó enn hafi ekki verið ákveðið hvenær af þeim yrði. Ljóst er að þjóðirnar gerðu sér mismunandi hugmyndir um um- ræðuefni fundarins, en fyrir fundin- um lá ekki fastmótuð dagskrá. ísra- elsmenn vildu ræða möguleika sov- éskra gyðinga til að flytja úr landi en Sovétmenn vildu einskorða um- ræðuna við stjórnmálasamband þjóðanna. Umboðsmenn Tímans: Nafn umboðsmanns Heimili Sími Hafnarfjörður Anna Jóna Ármannsdóttir Suðurbraut8 651141 Garðabær Anna Jóna Ármannsdóttir Suðurbraut8 651141 Keflavík GuðriðurWaage Austurbraut 1 92-2883 Keflavík Ingibjörg Eyjólfsdóttir Suðurgötu 37 92-4390 Sandgerði Guðbjörg Haraldsdóttir Holtsgötu35 92-7795’ Garður Benedikt Viggósson Eyjaholti 16 92-7217 Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-3826 Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-1261 Borgarnes RebekkaBenjamínsdóttir Borgarvik 18 93-7463 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 24 93-8410 Grundarfjörður Þórunn Kristinsdóttir Grundargötu43 Ólafsvík GuðnýH.Árnadóttir Gunnarsbraut 93-6131 Rif Ester Friðþjófsdóttir Háarifi49 93-6629 Búðardalur Sólveig Ingvadóttir Gunnarsbraut7 93-4142 Isafjörður EsterHallgrímsdóttir Seljalandsvegi 69 94-3510 Bolungarvík Kristrún Benediktstdóttir Hafnargötu 115 94-7366 Súðavík Heiðar Guðbrandsson Neðri-Grund 94-4954 Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi2 94-7673 Patreksfjörður NannaSörladóttir Aðalstræti 37 94-1234 Bildudalur HrafnhildurÞór Dalbraut24 94-2164 Þingeyri KaritasJónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131 Hólmavík Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut5 95-3132 Hvammstangi Baldur Jessen Kirkjuvegi 95-1368 Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581 Skagaströnd ÓlafurBernódusson Bogabraut27 95-4772 Sauðárkrókur Guttormur Óskarsson •Skagfirðingabr. 25 95-5200 Siglufjörður Friðfinna Símonardóttir Aðalgötu21 96-71208 Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940 Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson 96-25016 Dalvík Brynjar Friðleifsson Ásvegi 9 96-61214 Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308 Húsavík ÆvarÁkason Garðarsbraut 45 96-41853 Reykjahlíð Þuríður Snæbjarnardóttir Skútahrauni 13 96-44173 Kópasker Þóra Hjördis Pétursdóttir Duqquqerði9 96-52156 Raufarhöfn Ófeigurl. Gylfason Sólvöllum 96-51258 Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157 Vopnafjörður VeigurSveinsson Lónabraut21 97-3122 Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógum 13 97-1350 Seyðisfjörður SigríðurK. Júlíusdóttir Botnahlíð28 97-2365 Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiöarveqi 12 97-4119 Eskifjörður Harpa Rún Gunnarsdóttir Steinholtsveg 1 97-6316 Neskaupstaður Hlíf Kjartansdóttir Miðstræti 25 97-7229 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Eiriksdóttir Hliðargötu8 97-5239 Stöðvarfjörður Stefán Magnússon Undralandi 97-5839 Djúpivogur RúnarSigurðsson Garði 97-8820 Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-8255 Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 99-2317 Hveragerði ErnaValdimarsdóttir Heiðarbrún32 99-4194 Þorlákshöfn Guðrún Eggertsdóttir Básahrauni7 99-3961 Eyrarbakki Ragnheiður Marteinsdóttir Hvammi 99-3402 Stokkseyri HlynurGylfason Sæbakka 99-3320 Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir Sólheimum 99-8172 Vík Ólafur Ögmundsson MýrarbrautS 99-7226 Vestmannaeyjar ÁsdísGísladóttir Bústaðabraut7 98-2419 Á mölinni mætumst með bros á vör — ef bensíngjöfin ^ugaun er tempruð.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.