Tíminn - 22.08.1986, Blaðsíða 1
^ STOFNAÐUR1917
níiitiin
> SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
REYKJAVÍKURBORG hefur
fengiö högqmyndina Úr álögum eftir Einar
Jónsson að gjöf frá 58 fyrirtækjum og
stofnunum í Reykjavík. Þessi mynd var
gerö á árunum 1916-1927. Myndin, sem
aöeins er til í gifsi, er 3 metrar á hæö og
2,5 metrar á breidd. Hún veröur sett upp
viö tjörnina og verður tilbúin til uppsetn-
ingar næsta vor. Vinna við gerö myndar-
innar hófst í sumar og verkiö veröur
steypt í eir í Bretlandi. Árni Johnsen
alþingismaöur haföi forgöngu um söfnun
fyrir gjöfinni.
ÞÓRARINN ÞÓRARINS-
SON fyrrverandi ritstjóri mun klukkan 3 á
lauaardag flytja erindi á Kjarvalstöðum um
blöð og blaoamenn í Reykjavík. Þá mun
Geröur Magnúsdóttir kennari flytja erindi
klukkan 3 á sunnudag um lífiö i Skugga-
hverfi á 3. og 4. áratugnum.
SEX FISKIMENN frá Græn-
höfðaeyjum hafa látist eftir aö þeir drukku
tréspíritus úr tunnum sem þeir veiddu upp
úr Atlantshafinu. Þrjátíu menn til viöbótar
liggja á sjúkrahúsi eftir aö hafa drukkið úr
tunnunum. Útvarpið á staðnum segir að
mennirnir hafi haldið að í tunnunum væri
Aguardiente, en það er afbrigði af brandíi
sem framleitt er á eyjunum.
SKREIÐARFARMUR ernúá
leiðinni til Nígeríu meö erlendu leiguskipi,
en hér er um að ræöa 60 þúsund pakka
af skreið. Ekki hafa fengist greiðslutrygg-
ingar fyrir þessari skreiö en útfiytjendurnir
eiga von á að fá hana fljótlega. Innflutn-
ingsleyfi frá nígerískum stjórnvöldum fyrir
skreið renna út 1. september, og því lá á
að koma skreiðinni af stað þrátt fyrir að
ekki væri búið að ganga endanlega frá
greiðslutryggingum. Viðskiptabankarnir
sem eiga veð í skreiðinni vegna afurða-
lána hafa ítrekað við útflytjendurna að
þeir verði að standa í skilum með sín lán,
hvort sem þeir selja skreiðina eða ekki.
Verðmæti skreiðarinnar er áætlað 350
milljónir króna.
BÍLASTYRKUR ríkisstarfs-
manna hækkar frá og með 1. september
um 1-2%, en þegar kílómetragjaldi var
breyttsíðast, í marss.l., varþað lækkað um
12-13%. Helstu breytingar frá síðustu
ákvörðun eru að bensínverð hefur lækkað
um tæplega 14% en bílverð og varahlutir
hafa hækkað um 10-11% auk þess sem
viðgerðarkostnaður hefur hækkað í kjöl-
fár launahækkana.
JÓN A. SKÚLASON póst-og
símamálastjóri, tókfyrstu skóflustunguna
að nýju stöðvarhúsi í Keflavík. Húsiö mun
rísa á mörkum Keflavíkur og Njarðvíkur
og verða 851 m2 að stærð. Samið hefur
verið við lægstbjóðanda, Svein og Þórhall
sf. í Keflavík, um byggingu hússins, en
tilboð þeirra hljóðaði upp á 18 milljónir og
117 þúsund krónur.
KRUMMI
...ætli nafni hafi
haldið að hann ætti
að gera mynd um
Matthildi...
Verslunarmenn á landsbyggðinni stofna sérstakan hóp vegna óánægju með launamál:
Krefjast allt að 30%
launaleiðréttingar
Fylgjum þessum kröfum á leiðarenda, segir formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja
„Markmið þessa landsbyggða-
hóps er að fá leiðréttingu á þeim
gífurlega launamun sem nú er á
milli verslunarfólks á landsbyggð-
inni og höfuðborgarsvæðisins. All-
ar kannanir hafa sýnt að lands-
byggðafólkið er mun verr launað.
Yfirborganir eru það miklar á
höfuðborgarsvæðinu að nemur
a.m.k. 30% að meðaltali miðað
við þau gögn sem við höfum í
höndunum. Á þessu viljum við fá
leiðréttingu," sagði Magnús Gísla-
son, form. Verslunarmannafélags
Suðurnesja. En hann var spurður
hvort líta mætti svo á að fundur
sem verslunarmenn af landsbyggð-
inni héldu með sér nýlega þýddi að
þeir hefðu í huga að kljúfa Lands-
samband verslunarmanna.
„Við búumst alveg eins við því
að einhverjir líti svo á - en það er
alls ekki svo. En stjórn Lands-
sambandsins er máttlaus og það
hefur lítið þýtt fyrir okkur að leita
þangað - enda formaðurinn að
vissu leyti atvinnurekandi og ætti
því kannski betur heima í Garða-
strætinu. En hvernig sem hann eða
stjórn LÍV lítur á þennan fund
okkar, þá breytir það engu - við
munum fylgja þessunt kröfum okk-
ar á leiðarenda," sagði Magnús.
Hann sagði verslunarmenn á
landsbyggðinni líka fremur illa í
sveit setta hvað það snertir að bæta
sér upp hina lágu taxta. Ekkcrt sé
til sem heiti bónus eða slíkt og hjá
stærstum hluta þeirra séu mögu-
leikarnir á yfirvinnu eða slíku
hverfandi litlir og jafnvel engir.
Magnús kvað einnig hafa verið
rætt um það hvernig hlutfall launa
og fjármagnskostnaðar í verslun-
inni hafi snúist við. Áður hafi
launakostnaður verið algengur urn
20% en fjármagnskostnaðurinn
um 8%, nú hafi þessar tölur alveg
snúist við.
Ekki sagði hann landsbyggða-
hópinn enn hafa ákveðið fleiri
fundi. „Hins vegar var óskað eftir
því að félögin ræði þessi mál hvert
í sínu lagi og vonandi koma jákvæð
svör frá þeint öllum í þá veru að við
höldum saman í það minnsta fram
yfir áramótin."
Lávarðadeildin skoðar Suðurnes
Félagsskapur fyrrverandi þingmanna, eða Lávarðadeildin eins og sumir kalla hann, fór í ferð um Reykjanesið
í gær og skoðaði helstu framkvæmdir og merkisstaði. Þessi mynd var tekin þegar þingmennirnir fyrrverandi
ásamt mökum voru að leggja upp frá Umferðarmiðstöðinni og má þarna þekkja marga helstu stjórnmálaleiðtoga
fyrri ára og raunar standa margir þeirra enn í eldlínunni. (Tímamynd-Gísli i:Kiii)
Hafnir:
Utsala
áheyi
- þráttfyriróvenju
góð hey í sumar
Björgunarsveitir
boðaðar á vettvang
- af því að varnarliðið sveikst um að láta vita af heræfingum
Tilkynning um mikinn reyk út á
sjónum út af Höfnum á Reykjanesi
barst til lögreglunnar í Keflavík
um fimmleytið í gærdag og var
álitið í fyrstu að reykinn legði frá
bát út á sjónum þar. Lögreglan
kallaði í Slysavarnafélagið og lét
vita um reykinn og fór síðan sjálf
út í Hafnir.
Þegar lögreglan hafði kannað
svæðið, kom í Ijós að varnarlið
hersins á Keflavíkurflugvelli var
með æfingar á svæðinu. Hafði það
kastað reyksprengjum í sjóinn,
þannig að útlitið var all skuggalegt
ef um bát hefði verið að ræða. Sem
betur fór var svo ekki en varnarlið-
ið hafði svikist um að láta lögreglu
vita um æfinguna og setti því allt
lögreglulið og björgunarsveitir á
annan endann.
Að sögn lögreglunnar í Keflavík
er þetta alvarlegt mál, því ef ekki
er vitað um æfingar af svona tagi er
að sjálfsögðu álitið að um slys sé
að ræða og brugðist við samkvæmt
því. ABS
Heyskap er víðast lokið á land-
inu og hey hafa verkast með allra
besta móti víðast hvar.
Þeir sem ekki heyja sjálfir, en
þurfa að kaupa hey handa skepn-
um sínum eiga nú kost á mjög
næringarefnaríku heyi sem fæst á
verði sem er langt fyrir neðan
kostnaðarverð heyjanna. Kostn-
aður við framleiðslu á hverju
kílói af heyi er talinn vera um
6,40 krónur að meðaltali.
í smáauglýsingum dagblað-
anna má sjá auglýst hey til sölu á
Vesturlandi, Norðurlandi og úr
Árnessýslu og kílóverð er gefið
upp frá kr. 2,70 og upp í 5,50.
Eftir því sem flytja þarf heyið
lengri leið er það boðið á lægra
verði. Síðustu daga hefur verð á
heyi farið enn lækkandi, einkum
eftir að bændur náðu inn heyjum
eftir seinni slátt.
ABS