Tíminn - 22.08.1986, Qupperneq 3
Föstudagur 22. ágúst 1986
Tíminn 3
Islensku fyrirtæki boðið
að kaupa gullmedalíu!
- fyrir frábæra framleiðslu
Verðlaunabikarar fyrir stærsta laxinn, silunginn og flesta veidda flska sem
koma úr Meðalfellsvatni á laugardag. Okeypis veiðileyfi verða fyrir
almenning. Tímamynd: Pélur
Meðalfellsvatn:
Veiðidagur á
laugardaginn
f>að verður að teljast tvíeggjaður
heiður fyrir fyrirtæki að vera valið til
að fá spænska gullmedalíu fyrir
frábæra framleiðslu, eins og bent var
á í síðasta hefti „Viðskiptamála"*,
fréttabréfi Verslunarráðs fslands. í
fréttabréfinu er greint frá íslensku
fyrirtæki sem varð aðnjótandi þessa
mikla heiðurs og var sagt að valið
hafi verið byggt á upplýsingum frá
Ráðist á
aldraðan
mann
- á Lækjartorgi
Ráðist var á aldraðan mann sem
var á gangi á Lækjartorgi um kl. hálf
þrjú aðfaranótt miðvikudags. Var
maðurinn barinn í höfuðið og féll
hann í götuna, en árásarmaðurinn
hafði á brott með sér seðlaveski
mannsins. Farið var með gamla
manninn á slysadeild en meiðsl hans
voru ekki talin alvarlegs eðlis.
Sjónarvottar að árásinni gátu gef-
ið lýsingu á árásarmanninum sem
reyndist vera 25 ára gamall. Fannst
hann síðar um nóttina og var færður
í fangageymslur lögreglunnar.
ABS
verslunarráðum, fjölmiðlum, við-
skiptavinum og fleirum.
I tilkynningunni sem fyrirtækinu
var send um þetta og skjölunum sem
með fylgdu kom fram, að afhending
gullmedalíunnar ætti að fara fram
við hátíðlega athöfn að viðstöddum
stórmennum. Hins vegar fylgdi með
í skjölunum, á lítt áberandi stað, að
það reyndist kosta 80.000 ísl. krónur
að fá að taka þátt í veislunni, og að
greiðslan átti að vera fyrir hótelher-
bergi, kvöldverð, límmiða, ljós-
myndir og síðast en ekki síst var
innifalin í verðinu gullmedalían
sjálf! Ferðin til Spánar hcfur svo
væntanlega verið utan við þetta.
Verslunarráðið hvetur síðan í frétta-
bréfinu fyrirtæki til að skoða öll
gögn vel ef þau verða valin til að
kaupa sér gullmedalíur fyrir frábæra
framleiðslu! -BG
Sumarbústaðaeigendur við Með-
alfellsvatn ætla að hafa veiðidag á
Meðalfellsvatni laugardaginn 23.
ágúst. Bændur sem land eiga að
vatninu munu leyfa hverjum sem
það vill, að veiða ókeypis í vatninu
þennan dag, en þess í stað þarf fólk
að skrá sig í veiðina sem jafnframt
er kcppni um stærsta laxinn, stærsta
silunginn og flesta fiska. Skráning í
keppnina kostar kr. 50,-. Öllum er
heimil þátttaka sem hafa beðið um
leyfi til að veiða í vatninu og kepp-
endur mega hvort heldur sem þeir
vilja, veiða af landi eða frá bátum,
svo framarlega sem veitt er á stöng.
Ekki skiptir máli hvort notaður er
maðkur, l'luga eða spúnn sem beita.
Um kvöldið verður kveikt brenna
og þar getur fólk komið saman og
sagt hvert öðru veiðisögur og grillað
veiði dagsins á meðan löggiltur fisk-
matsmaður vigtar og telur veiði
keppenda. Að lokum verða veitt
verðlaun, bikarar fyrir stærsta
laxinn, stærsta silunginn og flesta
fiska en einnig silfurog bronspening-
ar fyrir þá sem eru í öðru og þriðja
sæti í hverjum flokki.
Skráning í keppnina fer fram á
milli kl. 7:00og 10:00um morguninn
og frá kl. 14:00 til 15:00 eftir hádegí
í tjaldinu sem reist vcrður norð-aust-
an við vatnið, en þeim sem ekki rata
þangað verður vísað til vegar frá
Meðalfelli. Meiningin er að svona
veiðidagur verði árviss viðburður
liéðan í frá, en þetta er í fyrsta sinn
sem liann er haldinn.
Veiði í Meðalfellsvatni hefur verið
mjög góð í sumar. Yfir 100 laxar eru
komnir á land úr vatninu í sumar og
cru þeir allt upp í 17 pund. Silungs-
veiði hefur einnig verið mjög góð,
einkum hefur veiðst mikið af stórum
urriða. ABS
Menntamálaráðuneytið:
Skólamálaráð
„í athugun“
Málefni skólamálaráðs eru nú
til athugunar hjá menntamála-
ráðuneytinu, en efasemdir hafa
verið uppi um það hvort stofnun
skólamálaráðs Reykjavíkur við
hlið Fræðsluráðs Reykjavíkur
samræmist ákvæðum grunnskóla-
laga.
„Jú, þetta er til athugunar hjá
okkur,“ sagði Sólrún B. Jensdótt-
ir í menntamálaráðuneytinu þeg-
ar hún var spurð hvort ráðuneytið
hefði kannað málefni skólamála-
ráðs. Sólrún sagði ekki tímabært
að greina frá þvf hvaða atriði væri
verið að skoða varðandi skóla-
málaráð. „Ég er ekki með málið
í athugun sjálf, það eru aðrir
aðilar og niðurstaðan verður að
koma í ljós á sínum tíma, við
höfum hana ekki strax,“ sagði
hún ennfremur.
-BG
IDEUUIITíIIJICIbjxj
Lentur
í Reykjavík
fann
Tæknisýninguna
í Borgarleikhusinu
REYKJAVK
1786-1986
adeild
■ Byggingadeild
endurbyggingu
tækniþiónustu
nybyggingu, viðhald og
veitir öðrum stofnunum
Byggino
við H’
Borr
aldraðra
fyrir
Þekkingargetraun
Fjarstýröir bátar
Borgarleikhúsiö
TÆKNISÝNING
REYKJAVÍKURBORGAR
OPIÐKL. 10-22 17.-31. ÁGÚST