Tíminn - 22.08.1986, Page 11
Föstudagur 22. ágúst 1986
Tíminn 15
Kvennaknattspyrna:
Tap gegn Sviss
- Heldur dapur leikur
og 1 -3 tap staðreynd
íslenska landsliðið í kvennaknatt-
spyrnu varð að sætta sig við 1-3 tap
gegn Svisslendingum á Valbjarnar-
velli í gærkveldi. Þær svissnesku
voru heldur smærri, sneggri og létt-
ari. íslenska liðið átti ágætis kafla í
. leiknum. Var betra í byrjun og lok
fyrri hálfleiks og í upphafi þess
síðari. Liðinu tókst þó ekki að
breyta góðum köflum í mörk. Þær
svissnesku komust í 2-0 eftir um 17
mínútna lfeik með mörkum úr víta-
spyrnu í 2-0 eftir um 17 mínútna leik
með mörkum úr vítaspyrnu og skoti
í vinkilinn. Fyrsta skoraði Poncioni og
síðan Spinner. Kristín Arnþórsdótt-
ir náði að minnka muninn með
marki eftir að hafa fylgt vel og stuttu
síðar komst Erla ein í gegn en renndi
framhjá aðþrengd. í síðari hálfleik
skoraði Poncioni aftur af stuttu færi
eftir sláarskot.
Heimsmet
Silvia Gerasch setti heimsmet í
100 m bringusundi á HM í sundi í
gær er hún fór á 1:08,11 mín. Ragn-
heiður Runólfsdóttir komst ekki í
úrslit í sundinu en fór á 1.15,52 mín.
—1^———Kristín Arnþórsdóttir skoraði eina
---------------------------------------------------- mark fslendinganna.
Frá íslandsmótinu sem lauk við Hótel Örk í Hveragerði.
íslandsmótiö í tennis:
Úlfur ósigrandi
- Vann þrenn gullverðlaun og var maður mótsins
Um síðustu helgi lauk íslandsmót-
inu í tennis, en úrslitaleikir mótsins
fóru fram á hinum nýju og glæsilegu
tennisvöllum við Hótel Örk í Hvera-
gerði. Metþátttaka var í mótinu, en
alls tóku 85 keppendur þátt í því og
voruleiknirrúmlega 100 leikir. Mjög
gott veður var til tennisiðkunar um
helgina þegar úrslitaleikirnir fóru
frarn og tókst öll framkvæmd móts-
ins mjög vel.
í karlaflokki reyndist hinn 18 ára
Úlfur Þorbjörnsson vera yfirburða-
maður, en hann vann í öllurn þeim
greinum, sem hann tók þátt í.
í einliðaleik karla sigraði hann
Kjartan Óskarsson auðveldlega í
úrslitum 6-0, 6-0 og átti Kjartan þó
góðan leik, en réði ekki við hin
firnaföstu skot Úlfs.
í tvíliðaleik keppti Úlfur með
Atla, 16 ára bróður sínum, og léku
þeir til úrslita gegn Jóni Páli Gests-
syni (18 ára) og Ragnari T. Árnasyni
(15 ára), en þessir ungu piltar eru
allir komnir í fremstu röð íslenskra
tennisleikara. Þeir bræður sigruðu
nokkuð auðveldlega í úrslitaleikn-
um, 6-1, 6-4 og lék Úlfur á ný
frábærlega vel. Úlfur fullkomnaði
þrennu sína í mótinu með sigri í
tvenndarleik, þar sem hann keppti
með móður sinni Margréti Svavars-
dóttur, en þau sigruðu Guðnýju
Eiríksdóttur ogÁrnaT. Ragnarsson
6-1, 6-4 í úrslitaleik.
Úlfur varð síðast íslandsmeistari
fyrir tveimur árum, en hann hafði þá
verið búsettur í Kenýa um margra
ára skeið og lært að leika tennis þar.
Undanfarin 2 ár hcfur hann verið við
nám í Bretlandi og leikið tennis þar
og staðið sig mjög vel í keppnum.
í kvennaflokki varð Margrét Svav-
arsdóttir móðir Úlfs sigursælust, en
hún sigraði í einliðaleik þar sem hún
lék til úrslita við Dröfn Guðmunds-
dóttur og sigraði auðveldlega 6-1,
6-0. Eins og fyrr var getið sigraði
Margrét einnig í tvenndarleik ásamt
Úlfi syni sínum, en hún varð að láta
í minni pokann í tvíliðaleik kvenna
þar sem hún lék með Steingerði
Einarsdóttur gegn Þórdísi Edwald
og Guðnýju Eiríksdóttur, sem sigr-
uðu í æsispennandi leik 6-4, 3-6, 6-4.
1 B flokki karla sigraði Einar Sig-
urðsson Garðar Jónsson í úrslitum
6-4, 7-6.
Á unglingameistaramótinu var
mjög góð þátttaka í flokkum pilta
11-13 ára og 14-16 ára. í yngri
flokknum báru þeir Stefán Pálsson
og Eiríkur Önundarson nokkuð af
öðrum og eru þeir mjög efnilegir
tennisleikarar. Þeir léku saman til
úrslita og sigraði Stefán eftir tvísýn-
an og mjög spennandi leik, 6-2, 2-6,
6-3. I tvíliðaleik pilta 11-13 ára
sigruðu þeir Eiríkur Önundarson og
Ólafur Eiríksson í úrslitum þá Jó-
hann Örn Þórarinsson og Ólaf
Sveinsson 6-2, 7-5.
í flokki pilta 14-16 ára hafði
Ragnar T. Árnason 15 ára talsverða
yfirburði og sigraði hann Atla Þor-
björnsson í úrslitum 6-1, 6-2. {
tvíliðaleik 14-16 ára pilta Sigruðu
þeir Ásgeir Baldursson og Ólafur
Sveinsson þá Árna G. Árnason og
Jónas P. Björnsson í úrslitum 6-4,
6-2. í tvíliðaleik stúlkna 14-16 ára
tóku aðeins tvö lið þátt og sigruðu
þær Áslaug Jónsdóttir og Aðalheið-
ur Pálsdóttir.
■ Nokkrir leikir voru í hollensku
knattspyrnunni í fyrrakvöld og
urðu úrsiit þá þessi:
Excelsior-Sparta..................0-2
FC Den Haag-GA Eagles.............0-1
Haarlem-SC Veendam................0-0
Roda JC- Sittard..................2-0
FC Twente-AZ *67..................1-0
PEC Zwolle-FC Utrecht.............2-4
Efstu lið:
FC Twente ............ 2 2 0 0 3-1 4
GAEagles.............. 2 2 0 0 2-0 4
Sparta ............... 2 110 3-2 3
■ Arne Larsen Okland skoraði
tvívegis í síðari hálfleik í landsleik
Norðmanna og Rúmena í Osló og
tryggði heiinamönnuin jafntefli.
Það blés ekki byrlega í hálfleik en
þá hafði Osvold gert sjálfsmark og
Hagi bætt marki við til að koma
Rúmenum í 2-0. Okland átti síðan
síðari hálfleikinn fyrir franian að-
eins um 3000 áhorfendur.
■ Frændur Norðmanna, Finnar,
gerðu betur því þeir unnu A-Þjóð-
verja í vináttulandsleik í knatt-
spyrnu sem fram fór í Lahti í
Finnlandi í gær. Finnar skoruðu
eina mark leiksins á 61. núnútu og
var Hjelm þar að verki. í Lahti
voru einnig um 3000 áhorfendur.
■ Það var viðeigandi að Grass-
hoppers frá Sviss sigraði á sínu
eigin afmælismóti sem fram fór í
Zurich í vikunni og iauk í gær. Þá
sigraði heimalið lið Roma frá Ítalíu
3-1 í úrslitaleiknum. Matthey skor-
aði tvívegis og Sutter einu sinni'
fyrir sigurvegarana. Þá sigraði Ba-
yern Munchen brasilíska liðið
Fluminense 1-0 í leik um þriöja
sætið. Dorfner gerði mark Bæjara.
■ í annarri vináttukeppni í knatt-
spyrnu sigraði heimaliöið Barcel-
ona hollensku meistarana PSV ■
úrslitaleik með einu marki gegn
engu. Það var útherjinn Carrasco
sem gerði markið um 40 sekúndum
fyrir leikslok úr vítaspyrnu. I leik
um þriðja sætið vann Tottenham
frá Englandi ítalska liðið Inter
Mílanó 2-1. Í þeim leik skoraði
Mabutt sigurmarkið fyrir enska
liðið á síðustu mínútu leiksins.
Áður hafði Falco náð forystu fyrir
Tottenham en Bonetti jafnaði.
■ Og úr því að minnst er á Faico
þá er rétt að geta þess að í gær var
hann dæmdur í tveggja leikja bann
með liði sínu fyrir að sýna heldur
óvirðulegt merki ineð flngrum sín-
um eftir að hafa skoraö í deildar-
leik gegn Aston Villa á síðasta
keppnistímabili. Það var lögreglu-
maður sem sá atvikið og hann
hafði samband við dómarann eftir
leikinn og úr því varð kæran til.
Þetta er þyngsta refsing sem
leikmaður hefur fengið fyrir „brot“
af þessu tagi.
Umboðsmenn Tímans:
Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Hafnarfjörður Anna Jóna Ármannsdóttir Suðurbraut8 651141
Garðabær Anna Jóna Ármannsdóttir Suðurbrautú 651141
Keflavik GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-2883
Keflavík Ingibjörg Eyjólfsdóttir Suðurgötu 37 92-4390
Sandgerði Guðbjörg Haraldsdóttir Holtsgötu 35 92-7795
Garður Benedikt Viggósson Eyjaholti 16 92-7217
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-3826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-1261
Borgarnes Rebekka Benjaminsdóttir Borgarvík 18 93-7463
Stykkishólmur ErlaLárusdóttir Silfurgötu 24 93-8410
Grundarfjörður Þórunn Kristinsdóttir Grundargötu 43
Ólafsvík GuðnýH.Árnadóttir Gunnarsbraut 93-6131
Rif Ester Friðþjófsdóttir Háarifi49 93-6629
Búðardalur Sólveig Ingvadóttir Gunnarsbraut7 93-4142
ísafjörður Ester Hallgrímsdóttir Seljalandsvegi 69 94-3510
Bolungarvík Kristrún Benediktstdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Súðavík Heiðar Guðbrandsson Neðri-Grund 94-4954
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi 2 94-7673
Patreksfjörður NannaSörladóttir Aðalstræti 37 94-1234
Bíldudalur HrafnhildurÞór Dalbraut24 94-2164
Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Hólmavík ElisabetPálsdóttir Borgarbraut5 95-3132
Hvammstangi Baldur Jessen Kirkjuvegi 95-1368
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut27 95-4772
Sauðárkrókur Guttormur Óskarsson Skagfirðingabr. 25 95-5200
Siglufjörður Friðfinna Símonardóttir Aðalgötu 21 96-71208
Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940
Svalbarðseyri ÞrösturKolbeinsson 96-25016
Dalvík Brynjar Friðleifsson Ásvegi 9 96-61214
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308
Húsavík ÆvarÁkason Garðarsbraut45 96-41853
Reykjahlíð ÞuriðurSnæbjarnardóttir Skútahrauni 13 96-44173
Kópasker Þóra Hjördis Pétursdóttir Duaauaerði9 96-52156
Raufarhöfn Ófeigurl. Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður VeigurSveinsson Lónabraut21 97-3122
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógum 13 97-1350
Seyðisfjörður Sigríður K. Júliusdóttir • Botnahlið28 97-2365
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-4119
Eskifjörður Harpa Rún Gunnarsdóttir Steinholtsveg 1 97-6316
Neskaupstaður Hlif Kjartansdóttir Miðstræti 25 97-7229
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Eiríksdóttir Hlíðargötu8 97-5239
Stöðvarfjörður Stefán Magnússon Undralandi 97-5839
Djúpivogur RúnarSigurðsson Garðí 97-8820
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-8255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 99-2317
Hveragerði Erna Valdimarsdóttir Heiðarbrún32 99-4194
Þorlákshöfn Guðrún Eggertsdóttir Básahrauni 7 99-3961
Eyrarbakki Ragnheiður Marteinsdóttir Hvammi 99-3402
Stokkseyri HlynurGylfason Sæbakka 99-3320
Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir Sólheimum 99-8172
Vík ÓlafurÖgmundsson MýrarbrautS 99-7226
Vestmannaeyjar ÁsdísGísladóttir Bústaðabraut 7 98-2419
fAkureyringar
Forstöðumaður
öldrunarþjónustu
Laust er til umsóknar starf forstööumans öldrunar-
þjónustu á Akureyri. í starfinu felst að veita
forstöðu dvalarheimilunum Hlíð og Skjaldarvík og
þjónustu bæjarins við aldraða. Krafist er góðrar
menntunar og starfsreynslu á þessu sviði.
Umsóknir berist undirrituðum fyrir 4. september
n.k., veitir hann nánari upplýsingar um starfið.
Akureyri 21. ágúst 1986
Bæjarstjóri
Frá Holtaskóla Keflavík
Við Holtaskóla Keflavík er laus ein kennarastaða
í líffræði og eðlisfræði. Skólinn er emsetinn. Öll
vinnuaðstaða bæði fy ir kennara og nemendur er
mjög góð.
Upplýsingar gefa Sigurður E. Þorkelsson skóla-
stjóri í síma 92-2597 og Ingvar Guðmundsson
yfirkennari í síma 92-1602.
Skóiastjóri.
íþróttakennarar athugið!
íþróttakennara vantar að Grunnskóla Eskifjarðar.
Góð íbúð fyrir hendi á góðum kjörum, flutnings-
styrkur kemur til greina. Nánari upplýsingar gefur
Jón Ingi Einarsson, skólastjóri í síma 97-6182.
Skólanefnd.