Tíminn - 22.08.1986, Síða 12
16 Tíminn
S.U.F.- þing
Sambandsþing SUF hið 21. verður haldið í Hrafnagils-
skóla í Eyjafirði 29.-30. ágúst 1986.
Dagskrá:
Föstudagur 29. ágúst.
1. kl. 16:00
2. kl. 17:00
3. kl. 17:15
4. kl. 17:20
5. kl. 17:45
6. kl. 18:00
7. kl. 19:00
8. kl. 20:00
9. kl. 20.30
10. kl. 22:30
Mæting
Þingsetning,
Finnur Ingólfsson formaður SUF.
Kosning starfsmanna þingsins:
a. Þingforsetar(2)
b. Þingritarar(2)
c. Kjörnefnd(8)
Skýrsla stjórnar
a. Formanns
b. Gjaldkera
Ávörpgesta
Framsóknarflokkurinn. Afl nýrratíma.
a. Staða Framsóknarflokksins í
íslenskum stjórnmálum.
b. Niðurstöður þjóðmálakönnunar SUF
c. Megináherslur Framsóknarflokksins
í stjórnmálum næstu árin.
Kvöldverður
Kynning á drögum að ályktunum.
a. Stjórnmálaályktun
b. Megináherslur Framsóknarflokksins
í íslenskum stjórnmálum næstu árin.
Almennarumræður
Kvöldvaka
Laugardagur 30. ágúst.
1. kl. 8:00 Morgunverður
2. kl. 8.30 Nefndarstörf
a. Stjórnmálanefnd
b. Flokksmálanefnd
3. kl. 12:00 Hádegisverður
4. kl. 13:00 Knattspyrna, sund
5. kl. 14:00 Kynning á álitum nefnda, umræður og
afgreiðslamála.
6. kl. 17:30 Kosningar
7. •kl. 18:00 Önnurmál
8. kl. 19:30 Þingslit
9. kl. 20:00 Kvöldskemmtun.
Sunnudagur 31. ágúst
1. kl. 10:00 Morgunverður
2. kl. 12:00 LagtafstaðfráHrafnagilsskóla.
Stjórnin
Nýr lífsstíll
Breytt þjóðfélag
Ráðstefna í Glóðinni í Keflavík laugardaginn 13.
septembernk. Allirvelkomnir. Nánarauglýstsíðar.
Landssamband framsóknarkvenna
Héraðsmót - Skagafirði
Héraðsmót framsóknarmanna í Skagafirði verður
haldið í Miðgarði laugardaginn 30. ágúst n.k. og
hefst kl. 21.00. Ávarp flytur Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi í Reykjavík, Ómar Ragnarsson
skemmtir. Sigurður Bragason syngur við undirleik
Þóru Fríðu Sæmundsdóttur, hljómsveitGeirmund-
ar leikur fyrir dansi.
Vesturland
Kjördæmisþing Framsóknarfélaganna í Vestur-
landskjördæmi verður haldið í Borgarnesi dagana
5. til 6. september nk.
Stjórnin
Vestfirðir
Kjördæmaþing framsóknarmanna á Vestfjörðum verður haldið á
Reykhólum 5.-6.september n.k.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
Fyrirlestur um alþjóðaflugmál
Föstudaginn 22. ágúst kl. 17.00 hcldur
Edward Hudson, framkvæmdastjóri
ECAC (European Civil Aviation Confer-
ence, Paris) fyrirlestur á vegum flugmála-
stjórnar íslands í ráðstefnusal Hótels
Loftleiða.
Fyrirlesturinn, sem haldinn verður á
ensku, fjallar um nýjustu viðhorf í loft-
flutningum, ekki síst leiguflugi, svo og
um fargjaldamál o.fl., en á þeim er að
vænta breytinga í Evrópu á næstu árum.
Að fyrirlestrinum loknum verður nokkr-
um tíma varið til fyrirspurna og umræðna
og er líklcgt að marga fýsi að leita
skýringa á einu og öðru um þessi mál.
í flugmálastjórn hafa um nokkurt skeið
verið uppi áform um að efna til slíks
fundar, enda eru breytingar örar á reglum
um bæði áætlunar- og leiguflug. Um
þessar mundir er minnst margfalds afmæl-
is íslenskra flugmála og er þcssi fyrirlestur
liður í dagskrá sem efnt er til í tilefni af
því.
Flugmálastjóri
Gítarleikur í Árbæjarsafni
Páll Eyjólfsson gítarleikari leikur fyrir
kaffigcsti í Dillonshúsi sunnudaginn 24.
ágúst á milli kl. 15.00 og 17.(M).
VIÐSKIPTA-&
Viðskipta- og tölvublaðið
Viðskipta- og tölvublaðið er nýkomið
út. fjórða tölublað ársins 1986. Meðal
efnis að þessu sinni er forsíðugrein, undir
yfirskriftinni „Töfrataskan opnuð", en
þar er að finna samtals fjörutíu og eina
hugmynd, scm blaðið varpar fram, og
allar gætu orðið upphafiö að nýjum
fyrirtækjum. Hugmyndir þcssar eru ó-
keypis fyrir þann sem les, en íyrirsögn
greinarinnar vísar til frétta, scm af og til
heyrast af erlcndum sölumönnum, sem
láta íslendinga oft greiða stórar fjárfúlgur
fyrir hugmyndir. sem að þcim eru réttar.
Þá er í hlaðinu stór og viðamikil grein
um kröfur flugfarþega á hendur þeim
flugfélögum, sem þeir ferðast með. og
rakið hvaö þeir meta mcst í sambandi við
verð. stundvísi. þjónustu og flcira. Jafn-
framt eru viðtöl við þá Sigfús Erlingsson
framkvæmdastjóra markaðssviös Flug-
Ieiða hf. og Magnús Oddsson markaðs-
stjóra Arnarflugs hf.
Enn má ncfna að í blaðinu er úttekt á
fslensku happdrættunum, undir fyrir-
sögninni „Ódýr, einföld og fjölfarin leif
til fjáröflunar". í greininni eru rakta,
ýmsar staðreyndir um happdrætti á Is
landi, rætt við Neytendasamtökin um
happdrættin, og talað við fólk, sem spilar
í happdrætti o.fl.
Margt annað efni cr í blaðinu. tengt
tölvum. tækni og viöskiptum. sagt er frá
nýjum fyrirtækjum í ýmsum greinum,
grein er um auglýsingafyrirtæki í Noregi
og fjölmargt annað efni er í blaðinu að
þessu sinni.
Viöskipta- og tölvublaðið er >0,8 blað-
síður að stærö, að mestu h. rentað.
Útgefandi cr Fjö'.nir hf Ritstjón er Leó
M. Jónsson.
Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Pósthólf 10180
Föstudagur 22. ágúst 1986
Akraneskirkja
Akraneskirkja 90 ára
Næstkomandi sunnudag, þann 24.
ágúst 1986, verður minnst 90 ára afmælis
Akraneskirkju, en hún var vfgð 23. ágúst
1896.
Hátíðarhald verður þríþætt þennan
dag. Kl. 11.00 verður komið saman í
kirkjugarðinum í Görðum. Þar mun
biskup fslands, herra Pétur Sigurgeirsson
afhjúpa minnisvarða, sem Akurnesingar
hafa reist sr. Jóni A. Sveinssyni prófasti
og konu hans, frú Halldóru Hallgríms-
dóttur. Kl. 13.30 hefst svo hátíðarguðs-
þjónusta í Akraneskirkju. Þar predikar
piskup, en sóknarpresturinn sr. Björn
Jónsson ásamt héraðsprófasti og prestum
úr prófastsdæminu annast altarisþjónustu
og kirkjukór Akraness syngur. Organisti
og söngstjóri kirkjunnar, Jón Ólafur
Sigurðsson og Haukur Guðlaugsson,
söngmálastjóri leika á orgel kirkjunnar
frá kl. 13.00.
Að messu lokinni verður svo gengið til
hins nýja og veglega safnaðarheimilis,
sem nú er risið gegnt kirkjunni. Þar fer
fram vígsluathöfn, sem biskup fram-
kvæmir. Á eftirbýður sóknarnefnd öllum
þátttakendum upp á kaffiveitingar, þar
mun Halldór Jörgensson. kirkjugarðs-
vörður flytja erindi í tilefni 90 ára afmælis
kirkjunnar.
Formaður byggingarnefndar safnaðar-
hcimilisins er Guðmundur Samúelsson
og formaður sóknarnefndar Akranes-
kirkju er frú Ragnheiður Guðbjartsdótt-
ir.
Fri hinum nýja pizzustað, Eldsmiðjunni
Nýr pizzustaður:
Eldsmiðjan
Eldsmiðjan nefnist nýr, lítill pizzustað-
ur í Reykjavík. Staðurinn er til húsa að
Bragagötu 38a, á horni Bragagötu og
Freyjugötu. Pizzurnar, sem boðið er
uppá, eru bakaðar að óskum viðskipta-
vinanna við opinn eld í ítölskum pizzu-
ofni. Pizzurnar eru afgreiddar í handhæg-
um umbúðum, sem auðvelda viðskipta-
vinunum að taka þær með sér heim, en
einnig er hægt að borða þær á staðnum.
Eldsmiðjan er opin frá kl. 11.00 til kl.
22.00. Síminn er 14248. Eigendur Eld-
smiðjunnareru Elías H. Snorrason, kjöt-
iðnaðarmaður og Lilja B. Karlsdóttir.
Útivistarferðir
Laugardagsferð og
sunnudagsferð
Laugardag 23. ágúst ki. 09.00: Sveppa-
ferð í Skorradal. Farið verður um skóginn
og víðar og hugað að sveppategundum og
sveppatínslu. Leiðbeinandi: Hörður
Kristinsson grasafræðingur. Útivist minn-
ir jafnframt á grein Harðar um íslenska
sveppi í ársriti Útivistar 1984. Ritið er til
sölu á skrifstofunni Grófinni 1. Ath.
breytta dagsetningu á ferðinni.
Sunnudag 24. ágúst kl. 08.00: Þórs-
mörk - Goöaland. Léttar göngu- og
skoðunarferðir um Þórsmerkursvæðið.
Kl. 13.00: Bláfjallafólkvangur, útsýn-
isferð - Farið upp með stólalyftunni. Þeir
sem vilja ciga kost á gönguferð eftir
cndilöngum Bláfjöllum að Vffilsfeíli. Far-
ið í tilefni Reykjavíkurafmælis. Frítt er í
ferðirnar fyrir börn með fullorðnum.
Brottför frá BSÍ, bensínsölu.
Sunnudagsferðir F.í. 24. ágúst.
1. Kl. 08.00: Þórsmörk - dagsferð í
Þórsmörk en hægt er að hafa lengri dvöl
þar.
2. Kl. 09.00: Hlöðufell - Hlööuvellir -
Ekið um Þingvelli og síðan línuveginn að
afleggjaranum að Hlöðuvöllum. Gengið
á Hlöðufell (1188 m.)
3. Kl. 13.00: Grindaskörð - Hvirfill -
Vatnsskarð. Ekinn nýi Bláfjallavegurinn
sunnan Gvendarseldhæðar, í Dauðadali.
Gcngið þaðan í Grindaskörð og á Hvirfii,
meðfram Lönguhlíð í Vatnsskarð.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni aust-
anmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir
börn í fylgd fullorðinna.
Ferðafclag íslands.
Minningarkort
Minningarsjóðs Samtaka
um kvennaathvarf
Samtök um kvennaathvarf hafa nýlega
látið gera minningarkort og mun það fé,
sem þannig kemur inn, renna óskert til
reksturs Kvennaathvarfsins. Nokkrar
gjafir hafa þegar borist.
Kortin eru afgreidd á teimur stöðum.
Reykjavíkur Apóteki og á skrifstofu sam-
takanna í Hlaðvarpanum að Vesturgötu
3, 2. hæö, sem er opin alla virka daga
árdcgis kl. 10.00-12.00 (og stundum
lengur). Þeir sem þess óska geta hringt á
skrifstofuna og fengið senda gíróseðla
fyrir greiðslunni. Síminn er 23720
Rafmagn, vatn, hitaveita
Ef bilar rafmagn, hitaveita eða vatnsveita má
hringja i þessi símanúmer:
Rafmagn: I Reykjavík,1 Kópavogi og Seitjarn-
arnesi er simi 686230. Akureyri 24414, Keflavík
2039, Hafnarfjörður 51336, Vestmannaeyjar
1321.
Hitaveita: Reykjavík sími 82400, Seltjarnarnes
sími 621180, Kópavogur 41580, en eftir kl. 18.00
og um helgar i síma 41575, Akureyri 23206,
Keflavík 1515, en eftir lokun 1552. Vestmann-
aeyjarsími 1088 og 1533, Hafnarfjörður 53445.
Simi: Reykjavík, Kópavogi, Selljarnarnesi, Ak-
ureyri, Keflavík og Vestmannaeyjum tilkynnist í
síma 05
Bilanavakt hjá borgarstofnunum (vatn, hita-’
veita o.fl.) er í sima 27311 alla virka daga frá kl.
17.00 til kl. 08.00 og á helgum dögum er svarað'
allan sólarhringinn. Tekið er þar við tilkynningum
á veitukerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum,'
þar sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð
borgarstofnana.