Tíminn - 22.08.1986, Qupperneq 16

Tíminn - 22.08.1986, Qupperneq 16
Sykurlausar Ferðist meðVISA ÍSLENSKA KVENNALANDSLIÐ- IÐ í knattspyrnu varð að sætta sig við tap gegn því svissneska í landsleik í knattspyrnu sem fram fór á Valbjarnarvelli. Lokatölur urðu 1-3 og gerði Kristín Arnþórs- dóttir mark Islands af harðfylgi. Þær svissnesku voru léttari, sneggri og spiluðu meira. íslenska liðið átt sína kafla en færin vantaði. Ixminn ir 22. ágúst 1986 Hart deilt á Reykjavíkurmynd Hrafns Gunnlaugssonar: „llla unnin gloría um borgarstjórann“ segir Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Ýmsir borgarstjórnarfulltrúar minnihlutans eru mjög óánægðir með myndina „Reykjavík, Rcykja- vík“, sem Hrafni Gunnlaugssyni var falið að gera í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar. Myndin var síðan frumsýnd á þriðju- daginn í Háskólabíói og er hér um leikna heimildarmynd að ræða sem tekur um einn og hálfan klukkutíma í sýningu. „Mér fannst nafn myndarinnar ekki passa mjög vel við innihaldið," sagði Sigurjón Pétursson borgarfull- trúi Alþýðubandalagsins viðTímann í gær. „Ég hefði viljað kalla hana „Davíð í máli og myndum" eða þá „Grafarvogur, Grafarvogur“,“ sagði Sigurjón ennfremur. „Myndin er löng og illa unnin, og það má vera að úr þessu megi gera kvikmynd ef helmingurinn væri klipptur úr henni. Satt að segja hef ég engan hitt sem ekki sér það að þetta er illa unnin gloría um borgarstjórann, Sjálf- stæðisflokkinn og Grafarvoginn. Myndin getur varla talist merkileg heimild nema helst fyrir það hvcrnig hægt er að stunda sögufölsun í samtímanum,“ sagði Sigurjón Péturs- son. Kvennalistinn hélt í gærkvöldi fund þar sem m.a. átti að ræða mynd Hrafns. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði við Tímann að hún væri ntjög ósátt við myndina. „Mér finnst að það hefði verið í lagi að kalla myndina: „Reykjavík séð með aug- um íhaldsmanns," eða eitthvað í þá áttina. Ég geri mér grein fyrir að það er afskaplega erfitt að gera svona mynd, en borgin er nú búin að borga 10 milljónir fyrir hana. Hrafn Gunn- laugsson fékk frjálsar hendur til að gera hana og mér finnst hann hafa nokkuð brugðist trausti okkar,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Hún taldi að sem heimildarmynd væri myndin ekki góð og tók sem dæmi Skúla- götuskipulagið sem myndin fjallar dálítið um án þess að minnast á það einu orði að það hafi verið mjög umdeilt. „Miðað við það hversu Davíð hefur verið áberandi í borgarlífinu þau fjögur ár sem myndin fjallar um, þá kemur hann tiltölulega lítið fyrir í myndinni," sagði Hrafn Gunn- laugsson þegar Tíminn ræddi við hann í gær. Hrafn sagði að þegar byrjað var að vinna myndina hafi ekki verið Ijóst hver yrði borgarstjóri eða hverjir yrðu í meirihluta eftir kosningarnar. Ef vinstrimenn hefðu áfram verið við völd, hefði myndin trúlega vcrið tekin upp við Rauða- vatn og borgarstjóri þess meirihluta fengið samsvarandi umfjöllun í myndinni, svo framarlega sem hann væri jafn áberandi í borgarlífinu og Davíð hefur verið. „Ef þú ert að fjalla um líf Islendings, sem snýst að miklu leyti um að fjárfesta í stein- steypu, þá er Grafarvogurinn það svæði sem hafði mesta möguleika til breytinga meðan myndin var í vinnslu. Hann varósnertur í upphafi tökutímabilsins, en var tiltölulega Fólk er um þessar mundir að byrja að taka upp kartöflur sem það ræktar til heimilisnota. í kartöflu- görðum Reykjavfkur, að Korpúlfs- stöðum, voru Fjóla Kristmundsdótt- ir og Klemens Kristmannsson að „taka upp kartöflur í matinn“, en síðan verður beðið með að taka upp megnið af uppskerunni þangað til í haust, að kartöflugrös fara að falla. Þau sögðu að uppskeran væri mjög góð og betri heldur en í fyrra. Uppskeran hjá þeim þennan daginn var um 16 kg af ca 8 fermetrum en þau eru með tvo 100 fermetra garða á Korpúlfsstöðum. Klemens sagðist vera búinn að rækta kartöflur fyrir sig og fjölskyldu sína í mörg ár og uppskeran nægði yfirleitl yfir allt árið. Fjóla kvaðst vera nýflutt til Reykjavíkur og þetta væri því í fyrsta sinn sem hún ræktaði kartöflur þar. . 100 fermetra garður á Korpúlfs- stöðum kostar um 500 krónur svo að þeir sem nenna að rækta kartöflur sínar sjálfir spara sér dágóðan • skilding. Ekki var að sjá að garðarnir væru allir notaðir í ár þrátt fyrir það. ABS langt kominn í lok þess, þannig að það var um einu myndrænu úrvinnsl- una að ræða á þessu séreinkenni íslensks borgarsamfélags,“ sagði Hrafn. „Ég get ekki látið einn þriðja af Þórði Breiðfjörð gjalda fyrir það að ég var einu einni einn þriðji af afgangnum og hann má heldur ekki njóta þess. Ég tel mig hafa farið þá einu leið sem ég gat farið og hef algerlega hreina samvisku í þessu máli,“ sagði hann ennfremur. Að- spurður um faglega vinnslu myndar- innar sagði Hrafn að hún væri fag- lega mjög vel gerð. „Um það tel ég mig færan að dæma, og væri vel tilbúinn til að viðurkenna ef svo væri ekki. Faglega er þetta 100% verk.“ -BG Fyrsta „Magn-húsið“ boðið út: Byggt með lykli og kíttisspaða í Borgarnesi er nú búið að bjóða út smíði á einingunum í fyrsta „Magn-húsið“, sem þar mun því væntanlega rísa af grunni áður en langt um líður. Magn-hús er ný gerð einingahúsa sem Magnús Thorvaldsson blikksmiður í Borg- arnesi hefur fundið upp og eiga m.a. að hafa það sér til ágætis að vera ákaflega einföld og fljótleg í uppsetningu. Grunnurinn undir húsið hefur löngu verið gerður, svo og límtrés- sperrurnar (burðargrindin) sem smtðaðar voru á Flúðum. „Ég er ekki í minnsta vafa um að þetta hús mun slá í gegn - og er viss um að það verða engin vandræði með að fá menn til að framleiða það, ekki síst að útlendingar eru spenntir fyrir því,“ sagði Magnús Thorvaldsson. „Ég mun m.a. taka þátt í sýningunni sem haldin verður fyrir „dellukarla" eins og mig (Hugvit 1986), sem opnar í tengsl- um við heimilissýninguna í Laugar- dalshöll nú 28. ágúst n.k. Þar kem ég til með að sýna ákaflega skemmtilegt model af húsinu, þar sem glöggt mun koma í Ijós hvernig það er. Við hliðina verður stjörnu- lykill, gúmíkjuði og kíttissprauta - þ.e. einu verkfærin sem þarf til að setja þessi hús upp,“ sagði Magnús. Hann kvaðst m.a. eiga von á mönnum erlendis frá á sýninguna til að kynna sér Magn- húsið. Klemens Kristmannsson og Fjóla Kristmundsdóttir með sýnishorn af kartöflunum. Sumar flokkast nú þegar undir að vera hökunarkartöflur, svo trúlegt er að mcð svipuðu áfrainhaldi verði uppskcran með besta nióti í haust. (Tímamynd-Sverrir) „Tekiðuppímatinn“ w Attu enn eftír að múra og mála? Hefur þú hugleitt verðmuninn á heföbundnum frágangi með pússningu og málningu og sléttri yfirborðsmeðhöndlun með Thoro efnum? Þeir hjá Hagvangi hf. sýndu fram á 40% verðmun Thoro í vil og til eru húsbyggjendur sem náð hafa 60% sparnaði með því að nota Thoro efni Að ganga frá útveggjum kostar frá kr. 140,- pr. m2 Ertu að byg£}a og cnn í vafa? Þeir sem önnuöust frágang, fegrun og vatnsþéttingu á Hagvúindihúsl Háskólass, Fjölbraataskóla Saöorlands Selfossi, Laagardalshöll og (Jölda einbýlishósa vissu að þeir völdu fljótlegasta og endingarbesta fráganginn. Þelr völda Thoro. Ættir þú ekki að slást í hópinn? Gerðu verðsamanburð steinprýfli Stórhöfða 16, Reykjavík - S. 83340/84780 Útsölustaðir: BYKO B.B. BYGGINGAVÖRUR HÚSASMIÐJAN

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.