Tíminn - 12.09.1986, Blaðsíða 5
Föstudagur 12. september 1986
Tíminn 5
Peres
Egyptaland - ísrael:
Daniloffmálið:
Reagan fær svar
- en vill ekki segja meira
Mubarak
Reagan Bandaríkjaforseti hefur
fengið svar frá Gorbachev leiðtoga
sovéska kommúnistaflokksins við
beiðni sinni um að Sovétmenn láti
lausan bandaríska blaðamanninn
Nicholas Daniloff, sem handtekinn
var í Moskvu um síðustu mánaða-
mót. Reagan greindi frá þessu í hópi
nokkurra blaðamanna í samkvæmi
sem haldið var í fyrrakvöld.
Reagan vildi ekkert frekar um
málið segja og kvaðst ekki vilja
þyrla upp moldviðri nú, þegar málið
væri á mjög viðkvæmu stigi.
Hingað til hafa Bandaríkjamenn
reynt að forðast beinar gagnaðgerðir
í Daniloff málinu og reynt að fara
bónleiðir að sovéskum stjórnvöldum
í gegnum diplómatískar Ieiðir. Pó
var talið líklegt að Reagan myndi
stöðva bandaríska embættismenn í
að taka þátt í almennum viðræðum
við Sovétmenn, sem fara áttu fram í
Riga í Lettlandi í næstu viku, en
ákvörðunin um að engir bandarískir
ríkisborgarar færu til þessa fundar
var tekin af óháðum bandarískum
samtökum sem stóðu fyrir þessum
viðræöum, og því þarf Reagan ekki
sjálfur að fyrirskipa neitt í því sam-
bandi.
Leiðtogafundur eftir
meira en fimm ára hlé
Tabadeilan leyst í bili
Simon Peres hefur nú farið til
Egyptalands til fundar við Mubarak
forseta í Alexandríu í Egyptalandi,
eftir að bráðabirgðasamkomulag
tókst á elleftu stundu um hertekna
landamærasvæðið við Taba á Sínai-
skaga í fyrrakvöld. Egyptar höfðu
sett það sem skilyrði fyrir því að
leiðtogar ríkjanna hittust, að sam-
komulag næðist um þetta smáa
landsvæði á Sínaiskaganum, sem
ísraelsmenn héldu eftir herteknu
þegar Egyptum var látin eftir restin
af skaganum árið 1982. í þessu
bráðabirgðasamkomulagi felst að
þremur sáttasemjurum verður falið
að ganga frá framtíðarskipan mála á
þessu svæði. Það sem samdist um í
fyrrakvöld var í fyrsta lagi að nefndir
voru tveir sáttasemjarar, sem síðan
munu sjálfir velja sér þriðja mann til
samstarfs og í öðru lagi að kortlagt
var hvar framtíðarlandamærin skulu
vera á svæðinu. Eftir að þetta bráða-
birgðasamkomulag var undirritað
sögðu fulltrúar allra aðila, en sendi-
fulltrúi frá Bandaríkjunum tók einn-
ig þátt í samningunum, að þctta
sýndi að deilumál fyrir botni Miðj-
arðarhafs væri hægt að leysa með
beinum samningaviðræðum milli
ríkja þar. í yfirlýsingunni var jafn-
framt sagt að önnurríki í nágrenninu
gætu ekki horft fram hjá þessari
staðreynd.
Aðalsamningamaður Egypta,
Nabil Al-Arabi, sagðist vonast til
þess að samkomulag þetta myndi
greiða fyrir lausn á vandamálunt
Palestínuaraba þar á meðal kröfu
þeirra um sjálfsákvörðunarrétt.
Síðasti fundur Mubaraks rneð
leiðtoga frá ísrael var í október
1981, þegar hann tók í hcndina á
Menachem Begin við útför Sadats
fyrrum Egyptalandsforseta scm
myrtur hafði verið. Síðasti viðræðu-
fundur leiðtoga þcssara tvcggja
landa scm cinhvcrja þýðingu hafði
var tveimur mánuðum áður en Sadat
var myrtur af múslömskum öfga-
mönnum, þegar Sadat og Begin
hittust í Alcxandríu og höfðu þá
nýlega ákveðið að taka upp viðræður
um sjálfræði Palestínumanna á her-
tcknum svæðum ísraelsmanna. Þær
viðræður féllu niður cftir dauða
Sadats.
99 tilnefningar:
Fær Bob Geldof Nóbelinn í ár?
- eða Reagan eð& skátarnir..
Samkvæmt upplýsingum frá
norska útvarpinu hafa verið tilnefnd-
ir 99 aðilar sem koma til greina til að
hljóta friðarverðlaun Nóbels í ár.
Meðal þeirra sem útnefndir hafa
verið má nefna Reagan Bandaríkja-
forseta, Winnie Mandela og mann
hennar Nelson Mandela, írska
poppsöngvarann Bob Geldof, for-
sætisráðherra Nýja-Sjálands, David
Lange, og nasistaveiðarinn Beata
Klarsfeld. Þá voru ýmis samtök
Pólland:
Öllum pólitísk-
um föngum sleppt
- 225 látnir
lausir fyrir mánudag
Innanríkisráðherra Póllands til-
kynnti í gær að 225 pólitískir
fangar yrðu látnir lausir á mánudag
vegna ákvæða náðarlaga, sem
pólska þingið samþykkti í júlí síð-
astliðnum. Ráðherrann sendi í gær
boð til saksóknara þar sem fyrir-
skipað er að þeim sem í haldi eru
ákærðir fyrir glæpi „gegn ríkinu og
almannaöryggi" verði sleppt. Pess-
ar ráðstafanir ná ekki til þeirra sem
ákærðir hafa verið fyrir hryðju-
verk, skemmdarverk, njósnir, eða
að uppljóstra um ríkisleyndarmál.
Samkvæmt opinberum tölum
hafa 115 pólitískir fangar þegar
verið látnir lausir vegna ákvæða
náðarlaganna. Þessar umfangs-
miklu aðgerðir eiga að leiða til þess
að allir pólitískir fangar í Póllandi
verði orðnir lausir í næstu viku, en
fréttaskýrendur telja að með þessu
vilji pólsk stjórnvöld reyna að
byggja upp landið eftir að þjóðin
hefur sundrast vegna pólitískra
fangelsana og einnig til þess að
reyna að ná fram bættum samskipt-
um við Bandaríkin sem beitt hafa
Pólland efnahagsþvingunum síðan
herlögum var komið á í desember
1981. Pá hafði kirkjan sett það sem
skilyrði bættra samskipta við ríkið
að pólitískum föngum yrði sleppt.
Meðal þeirra sem koma til með að
verða látnir lausir á mánudag eru
þekktir leiðtogar Samstöðu, sam-
taka óháðra verkalýðsfélaga, s.s.
Zbigniew Bujak, Tadeusz Jadynak
og Bogdan Borusewicz, en þeir
biðu allir réttarhalda.
meðal hugsanlegra verðlaunahafa og
má þar t.d. nefna Alþjóðleguólymp-
íunefndina og alþjóðlegu skáta-
hreyfinguna.
Þá mun fyrrverandi forsætisráð-
herra Svía, Olof Palmc, hafa verið
meðal þeirra sem tilnefndir voru, en
úthlutunarnefndin hefur sagt að
hann komi ekki til greina þar sem
reglur nefndarinnar leyfðu ekki að
látnir menn fengju verðlaunin. Að-
eins einn maður hefur fengið verð-
laun eftir að hann lést og það var
Dag Hammerskjöld aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, sem var einnig
Svíi, en síðan þá hefur úthlutunar-
reglunum verið breytt.
Bob Geldof, sem cr poppáhuga-
mönnum heimsins að góðu kunnur
fyrir að skipuleggja „Life Aid" tón-
leikana til styrktar hungruðum í
Afríku, er nú talinn meðal þeirra
sem sterklega koma til greina enda
nokkuð víðtæk samstaða um að
framtak hans hafi verið gagnmerkt
framlag til friðar í heiminum, en
fyrir það eru verðlaunin veitt.
Úthlutunarnefndin birtir ekki all-
an listann með nöfnum þeirra sem til
greina koma, en verðlaunaveitingin
mun fara fram þanp 10. desember í
Osló.
Finnland:
Vilja
skjóta
svani
Finnskum skotveiðimönnum
annars vegar og umhverfisvcrnd-
armönnum hins vegar hcfur lent
saman vcgna hugmyndar um að
lcyft verði að skjóta svani í Norð-
ur-Finnlandi. Fyrr í vikunni sagði
talsmaður finnska skotvciðifé-
lagsins að farið hafi vcrið fram á
það við veiðieftirlitsmenn félags-
ins að þcir kónnuðu hvaða áhrif
svanir hcfðu á aðra villta
fugla, þar sem talið var að svanin-
um hcfði fjölgað svo að hann væri
farinn að hrckja aðra l'ugla burt
úr sínum eðlilegu hcimkynnum.
Sögðu skotfélagsmcnn að í þcss-
ari könnun mætti gjarna skjóta
svani cf það flýtti fyrir niðurstöð-
um.
Talsmaður náttúruverndar-
samtakanna sagði hins vegar að
þessi hugmynd um svanadráp
væri ógeðsleg og vciðimenn væru
einungis að leita eftir afsökun til
þcss að geta drepið fleiri fugla.
Fulltrúi í finnska landbúnaðar-
ráðuncytinu sagði að ekki yrði
lcyft að skjóta svanina, cnda
munu einungis vcra í Finnlandi
um 2000 pör að sögn fugla-
skoðara.
UTLOND
Birgir Guðmundsson
Noregur:
Brundtland gagnrýnir
breska mengunarstefnu
Margrét Thatcher forsætisráð-
herra Bretlands kom til Noregs í gær
til viðræðna viö Gro Harlem Brundt-
land forsætisráðherra Noregs um
aðgerðir gegn mengun og stefnu í
olíuframleiðslu. Thatcher kom fyrst
til Tromsö í Norður-Noregi þar sem
miklar herstöðvar eru staðsettar og
skoðaði hún þessar bækistöðvar til
að undirstrika mikilvægi þeirra í
vestrænu varnarsamstarfi.
Þegar Thatcher kom til Norcgs
biðu hennar nokkur hundruð mót-
mælendur, einkum ungt fólk. sem
var að mótmæla stefnu hennar gagn-
vart Suður-Afríku, Norður-írlandi
og verkalýðsfélögum í Bretlandi.
í hádegisverðarboði sem haldið
var Thatcher í gær sagði Gro Harlem
Brundtland ma. að ljóst væri að
Norðmenn og Bretar væru ekki
sammála á mörgum sviðum og eitt
þeirra væri aístaðan til Suður-Afr-
íku. Þá sagði Brundtland að Norð-
menn hcfðu miklar áhyggjur af
mengun. einkuni súru regni, sem
eru ýmis brennisteinssambönd sem
fara út í andrúmsloftið frá breskum
verksmiðjum og rignir síðan eða
snjóar niður í Noregi og víðar. „Það
er ef til vill vegna þess að Noregur
er svo fjöilótt land og býr yfir
miklunt víðáttum af óspilltri náttúru
að við verðum svo áþreifanlega vör
við þessa mengun,” sagði Brundt-
land ennfremur í ræðu sinni.
Bretar tilkynntu hins vegar um
það í gær, að því er virðist gagngert
til þcss að draga úr áhrifum hinnar
norsku gagnrýni, að þeir hygðust
setja í gang 600 milljóna sterlings-
punda verkefni, sem miðaði að því
að draga úr mengun með því að setja
sfur á kolakeyrð raforkuver. Hins
vegar var það liaft eftir breskum
embættismanni að Bretland myndi
ekki ganga til liðs við þau Evrópuríki
sem einsett hafa sér að minnka
brennisteinssambandamengun um
30% fyrir árið 1993.
Forsætisráðherrarnir flugu síðan
til Osló seinnipartinn í gær til að
hefja formlegar viðræður.