Tíminn - 12.09.1986, Page 8

Tíminn - 12.09.1986, Page 8
8 Tíminm Föstudagur 12. september 1986 Sverrir Sveinsson verkstjóri og Árni Ingvarsson við nýjar setjaravélar. EDDAN FIMMTÍU ÁRA Góður tækjabúnaður í hentugum húsakynnum Prentsmiðjan Edda ht'. átti hálfr- ar aldar afmæli áþriðjudaginn var. Við það tækifæri var þess m.a. minnst að hún er nú orðin mjög vel tækjum búin og fær um að taka að sér nánast hvaða verkefni scm er á sviði prcntverka. Nokkur sýnis- horn af vélbúnaði prentsmiðjunnar má sjá á meðfylgjandi myndum sem teknar voru skömmu fyilr afmælið í húsakynnum hennar. Afmælisins var minnst á vcgleg- an hátt. Opið hús var við Skemmu- veginn fyrir starfsfölk og gcsti. Fjöldi viðskiptavina sótti þá Eddu- menn heim, gcngu um húsakynnin og skoðuðu vélar og aðbúnað. Pá barst prentsmiðjunni einnig fjöldi heillaskeyta og mikið af blómum í tilefni dagsins. -‘-“sig í skeytingu, frá vinstri: Sveinn Jóhannesson, Sigurður Eiríksson og Ingþór Kjartansson. Nokkrar af offsetprentvélununi. Vélasamstæða sem prcntar samhangandi tölvupappír. Við vélina er Rúdolf Nielsen. (Tímamyndir-Pctur) Laufásvegur (efri hluti) Bergstaðastræti (efri hluti) Fjólugata Smáragata Sóleyjargata Bárugata Öldugata Bræðraborgarstígur að hluta. Hafðu samband við Síðumúla 15 @ 68 63 00 DJÓÐVIUINN S.681333 er og borgar LAUS HVERFI NÚ ÞEGAR: Tíniiim S. 686300 Blaðburður S.681866 Ahrif lífrænna leysiefna á líkama og heilsu Vinnueftirlit ríkisins hefur nýlega gefið út leiðbeiningabækling og veggspjald um lífræn leysiefni. í bæklingnum er lögð áhersla á að útskýra varasöm áhrif lífrænna leysi- efna á líkama og heilsu og leiðbeina um hvernig hægt er að varast þau. Á veggspjaldinu er einnig lögð áhersla á aðvörun og varúðarráðstafanir. Helstu ástæður þess, að þetta efni er gefið út og dreift á vinnustaði, eru þær að skaðleg heilsufarsáhrif líf- rænna leysiefna eru nú viðurkennd og hafa verið rannsökuð og rædd um árabil erlendis. Efnin komast inn í líkamann við innöndun og snert- ingu. Sterk og langvarandi áhrif geta valdið skemmdum á heila, tauga- kerfi og fleiri líffærum. Slík áhrif birtast í þreytu. sleni og gleymsku - stundum í höfuðverk og erfiðleikum við að einbeita sér. Danska Vinnueftirlitið hefur síð- ustu ár fengið yfir 1000 tilkynningar árlega um meintar heilaskemmdir á fólki sem hefur unnið með lffræn leysiefni og þeir skipta hundruðum þar í landi senr fá staðfest á ári hverju að þeir hafi hlotið heilsutjón af að vinna með þau. Vitað er að cfnablöndur með lífrænum leysiefnum eru notaðar á mörgum vinnustöðum hér á landi, s.s. við málun, lökkun, límingu, litablöndun og við ýmiss konar hreinsun og efnaframleiðslu og yfir- borðsmeðferð á framleiðsluvörum. Hins vegar eru áhrif þeirra ekki nægilega kunn hér á landi og varúð- arráðstafanir víða í molum. Fyrir- tæki og félög iðnaðarnranna og verkafólks, sem efni bæklingsins og veggspjaldsins varðar, fá hvort tveggja sent næstu daga. Einnig öryggistrúnaðarmenn og örygg- isverðir í fyrirtækjum. Vinnueftirlit ríkisins veitir leið- beiningar um hvernig draga má úr mengun andrúmslofts á vinnustöð- um og hollustuháttadeild stofnunar- innar annast mengunarmælingar sé þess óskað.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.