Tíminn - 13.09.1986, Síða 2
2 Tíminn
Laugardagur 13. september 1986
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
Bréfbera
til starfa við Póst- og símstöðina
á Seltjarnarnesi.
Nánari upplýsingar veitir stöðvarstjóri Pósts og
síma á Seitjarnarnesi sími 26175.
^ Innkaupafulltrúi
óskast til starfa hjá Innkaupastofnun Reykjavíkur-
borgar. Æskileg menntun á viðskiptasviði. Góð
enskukunnátta nauðsynleg. Upplýsingar um starf-
ið veita forstjóri og skrifstofustjóri í síma 25800.
Umsóknir sem tilgreini aldur og fyrri störf sendist
til Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar sem
fyrst.
INNKAUPASTOFNUN reykjavíxurborgar
Frfkirkjuvagi 3 — Sími 25800
Kennara - Kennara
Kennara vantar að Grunnskólanum Stokkseyri.
Æskilegar kennslugreinar íslenska, raungreinar,
samfélagsgreinar.
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 99-3263 eða
99-6300 og formanni skólanefndar í síma 99-
3266.
Rafmagnsofnar til sölu
Til sölu plötu-rafmagnsofnar 12 stk. 600 til 1100
wött. Teg. jarnkonst. Ab. landkrosar. Seljast á
hálfvirði. Upplýsingar í síma 52743 eftir kl. 6
mánudag og þriðjudag
Meinatæknar
Meinatækna vantar til starfa við fisksjúkdómarann-
sóknir við Tilraunastöð Háskólans í meinafræði,
Keldum. Upplýsingar í síma 82811.
Aiglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
1 ..— ..■ ■ I ■■■■■■■■■■ !■■
Okeypis þjónusta
Iíminn 686300 Tíminn
UMFERÐARMENNING^H-
Ökum jafnan
á hægri rein
á akreinaskiptum
vegum.
UMFERÐAR
RÁO
Íbúðasmíði hætt
á landsbyggðinni
%
Á þessu súluriti má sjá hvernig íbúðir sem byrjað hefur verið smiði á á
árununi 1978-1985 hafa skipst milli kjördæma hvert ár. Efst á súlunum er
Vesturland og síðan talið norður og austurum og endað á Reykjanesi og
Reykjavík neðst. í grófum dráttum má segja að hlutur landsbyggðarinnar
hafi farið úr um 45% á fyrstu árunum niður undir 20% þau síðustu.
Vestfirðingar hafa nær ekkert byggt s.l. 3 ár og sömu sögu er að segja um
Austurland s.l. 2 ár. Á Norðurlandi vestra hefur byggingahugur manna
glæðst nokkuð á síðasta ári eftir um 4 ára stöðnun. Á Norðurlandi eystra
hafa byggingar undanfarin 3 ár verið um 5-6 sinnum færri en á bestu árunum,
þegar tekið er tillit til þess að færri íbúðir hafa verið í byggingu í heild síðari
hluta tímabilsins en þann fyrri.
Að íbúðabyggingar séu næstum
aflagðar á landsbyggðinni utan suð-
vesturhornsins síðustu árin eru ekki
svo grófar ýkjur, a.m.k. hvað varðar
svæði eins og Vestfirði og Austur-
land. Miðað við íbúöir sem byrjað
var á var hlutur landsbyggðakjör-
dæmanna 6 kominn niður í 21%
íbúða árið 1984 og 23% árið 1985. í
fyrra var byrjað á innan við 300
íbúðum í þessum 6 kjördæmum
meðan grunnur var lagður að um
700 íbúðum í Reykjavík einni, en þá
var hlutur „afmælisbarnsins“ kom-
inn upp í 55% af öllum íbúðabygg-
ingum í landinu.
Ef litið er á þróunina síðustu 4
árin var hlutur landsbyggðakjör-
dæmanna aðeins um 1.600 íbúðir,
eða aðeins um þriðjungur á við hátt
í 4.900 íbúðir í R-kjördæmunum. I
Reykjavík var á þessum 4 árum
lagður grunnur að um 2.900 íbúðum
og hátt í 2000 íbúðum í Rcykjanes-
kjördæmi.
Alls hefur á síðustu 8 árum (1978-
1985) verið hafin smíði á um 14.100
íbúðum á landinu og hefur þeim
farið fremur fækkandi ár frá ári,
samkvæmt upplýsingum Húsnæðis-.
stofnunar ríkisins. Sú fækkun hefur
þó öll orðiö úti á landsbyggðinni og
meira en það því íbúðum sem byrjað
hefur verið á í Reykjavík hefur farið
fjölgandi ár frá ári á sama tímabili.
Á sama hátt hefur sífellt stærri og
stærri hlutur húsnæðislánanna runn-
ið til íbúðahúsabygginga á höfuð-
borgarsvæðinu.
Öðru sinni gengst landssamband
fatlaðra, Sjálfsbjörg, fyrir hjóla-
stólaralli til áhersluauka á þá kröfu
fatlaðra að þeim verði gert kleift í
skipulagningu og mannvirkjagerð að
komast leiðar sinnar.
Hjólastólarallið fer fram í Laugar-
dalshöll á sunnudag klukkan 14.00
og er það í formi firmakeppni og er
keppt í fjórum flokkum; flokki arki-
tekta, skemmtikrafta, sveitarstjórn-
armanna og hjólastólanotenda, sem
má segja að keppi á heimavelli. í
rallinu er gerð tilraun til að líkja eftir
helstu hindrunum sem verða á vegi
fatlaðra í hjólastól og hreyfihaml-
aðra.
Þess má geta, að á þessum 8 árum
sem grunnur hefur verið lagður að
nær 14.100 nýjum íbúðum hefur
landsmönnum fjölgað í kringum 17
Meðal keppenda verða Bergþóra
Árnadóttir, Felix Bergsson, Jón
Gauti Jónsson, Magnús L. Sveinsson
og Eiríkur Hauksson.
í ávarpi segir Theodór A.
Jónsson, sem á sæti í undirbúnings-
nefnd hjólastólarallsins: „í langflest-
um tilfellum hefur það engan auka-
kostnað í för með sér að skipuleggja
umhverfið þannig að auðvelt sé að
komast um það í hjólastól.
Ég vona að hjólastólarallið veki
menn til umhugsunar um það á
hvern hátt umhverfi okkar þarf að
vera til þess að allir komist um það
hindrunarlaust.“
Þj
þús., þannig að ekki vantar svo
mikið á að ný íbúð (c.a. 150 fer-
metra) hafi verið byggð fyrir hvern
nýjan íslending á þessum árum.
Rannsókn
Hafskips-
málsins
að Ijúka?
Lítið hefur heyrst af Hafskips-
málinu að undanförnu enda hafa
sumarfrí hægt þar á afgreiðslu
mála á undanförnum vikum. Að
sögn Þóris Oddssonar, sem gegn-
ir embætti rannsóknarlögreglu-
stjóra fram til 1. október, má þó
búast við fregnum af málinu um
20. þessa mánaðar. Sagðist hann
vonast til að þá færi að sjá fyrir
endann á rannsókn málsins af
hálfu rannsóknarlögreglunnar.
Um framhald málsins sagði
Þórir að gögn yrðu fyrst send
ríkissaksóknara. Ríkissaksóknari
þyrfti si'ðan að lesa skjölin yfir og
sagði Þórir að reikna yrði með
nokkrum tíma í það, þar sem
gögnin yrðu ekki hraðlesin.
Fræðilega hefði ríkissaksóknari
síðan nokkurra kosta völ varð-
andi áframhaldandi málsmeð-
ferð. Hann gæti óskað eftir fram-
haldsrannsókn og því endursent
málið í heild eða hluta til rann-
sóknarlögreglu, eða óskað eftir
tilteknum aðgerðum. Til að taka
alla möguleika með, þá getur
ríkissaksóknari fellt málið niður
eða höfðað mál með útgáfu
ákæruskjals. Ef hann ákveður að
höfða mál, þá er málið sent til
sakadóms og síðan er það dómara
að tiltaka dag sem að rannsókn
hefjist á.
Ekki gat Þórir sagt fyrir um
hversu langan tíma þetta muni
taka, en sagði að það væri ekki
hlaupið í það að kynna sér öll
gögn málsins, þau yrðu ekki lesin
sem reyfari. phh
Svavar Gestsson tók þátt í hjólastólarallinu í fyrra.
Sjálfsbjörg:
Hjólastólarall
gegn hindrunum