Tíminn - 13.09.1986, Síða 11
10 Tíminn
Laugardagur 13:september 1986
Laugardagur 13. september 1986
íTíminn 11
Okkur vantar
starfsfólk!
Vantar þig
vinnu?
FÓSTRU ....
vantar á barnaheimilið LITLAKOT. Börn á aldrinum
1-3 ára. Upplýsingar í síma 19600-297. Alla daga
milli kl. 8.00-16.00.
STARFSMANN......
vantar á skóladagheimilið BREKKUKOT.
Börn á aldrinum 6-9 ára.
Upplýsingar í síma 19600-260.
Alla daga milli kl. 8.00-16.00.
SJÚKRALIÐA....
vantar á allar deildir spítalans. Upplýsingar í síma
19600-220/300. Alla daga milli kl. 8.00-16.00.
Reykjavík 14.9.1986.
Útboð
VEGAGERÐIN
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í verkið:
Styrking í Mjóafirði 1986.
(Lengd 8,6 km, burðarlag 13.400m3, malarslitlag
3.440 m3).
Verki skal lokið 10. nóvember 1986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Isafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
16. september.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þann 29. september 1986.
Vegamálastjóri
Bókasafns-
fræðingur
óskast í heilt starf við bókasafn Alþingis frá og með
15. okt. nk. Starfið felst m.a. í því að annast
geymslusafn þingsins. Skriflegar umsóknir með
upplýsingum um fyrri störf ásamt Ijósriti af próf-
skírteini skulu berast Skrifstofu Alþingis fyrir 20.
sept. Upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður
bókasafnsins í síma 11560.
f STAÐAR NEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
algerlega áðuren y
að stöðvunarlínu
er komið.
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
íslandsmótið í knattspyrnu 1. deild:
Úrslitin ráðast í dag
Úrslit í 1. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu ráðast í dag. Fyrir síð-
ustu umferð hefur Fram tveggja
stiga forskot, 37 stig en Valur er með
35 stig. Fram og KR leika á Laugar-
dalsvelli í dag kl. 14.30 og Valsmenn
leika gegn ÍA á Akranesi. Fram
nægir jafntefli gegn KR þar sem þeir
hafa betra markahlutfall en Valur,
en róður Valsmanna verður erfíðari
því þeir þurfa að vinna íA og treysta
á að Fram tapi.
KR liðið lék mjög vel gegn Val
um síðustu helgi og eru Framarar
langt frá því að vera öruggir með
sigur í þeim leik. Hinsvegar hafa
Skagamenn ekki tapað leik síðan
Pétur Pétursson gekk til liðs við þá
og óvíst að þeir séu neitt á því að
breyta því. Það getur því allt gerst ef
svo má segja, tvö lið geta sigrað,
þrjú lið geta náð þriðja sæti og tvö
lið geta fallið auk Eyjamanna sem
þegar eru fallnir.
IA, KR og ÍBK berjast um þriðja
sætið og mæta Keflvíkingar léttustu
COOPCKT
Síur í
flestar vélar
á góðu verði
wwysmHF
Jámhálsi 2 Sími 83266 TIORvk.
Pósthólf 10180
ALDRAÐIR
þurfa að
ferðast eins
og aðrir.
Sýnum þeim
tillitssemi
mótherjunum ef hægt er að tala um
að einhver mótherji sé léttari en
annar. ÍBK leikur gegn Þór fyrir
norðan og skiptir sá leikur Þórsara
engu máli, það breytir í sjálfu sér
engu um stöðu þeirra í deildinni
hvernig hann fer nema því aðeins að
FH vinni Breiðablik.
í Garði leika Víðir og ÍBV. Það
er helst um þennan leik að segja að
hann skiptir litlu máli, Eyjamenn
fallnir og Víðismenn á lygna sjónum.
Það eina sem gæti hugsanlega breytt
einhverju væri það að Víðir tapaði
„Sigurðarmálinu" og Breiðablik
sigraði FH. Þá féllu Víðismenn. Það
er nokkuð langsótt en með því að
sigra í leiknum í dag tækju þeir af
allan vafa og væru öruggir hvernig
sem aðrir leikir og kærur þróuðust.
Fallbaráttuleikurinn verður á Kapla-
krikavelli þar sem FH og Breiðablik
eigast við. Breiðablik þarf að vinna
3-0 til að falla ekki þar sem þeir hafa
lakara markahlutfall.
Og að lokum er hér staðan í 1.
deild fyrir síðustu umferðina:
Fram ....
Valur ....
ÍA.......
KR ...........17
iBK...........17
Viðir.........17
Þór...........17
FH ...........17
UBK ..........17
ÍBV...........17
17 11
17 11
17 9
Markahlutf.
2 39-13 37 +26
4 28-9 35 +19
5 31-19 30 +12
3 21-10 28 +11
7 23-24 28 -1
8 20-23 19 -3
8 18-29 19 -11
9 22-34 18 -12
4 3 10 16-33 15 -17
2 3 12 18-42 9 -25
2. deild:
Spenna á toppi og botni
Staðan í 2. deild er nánast endur-
tekning á þeirri fyrstu, tvö lið geta
sigrað, þrjú geta orðið í öðru sæti og
tvö geta fallið auk þess neðsta sem
þegar er fallið.
Það eru KA og Völsungur sem
berjast um sigurinn, KA hefur 37
stig en Völsungur 35. KA fær Víking
í heimsókn á morgun en Völsungur
Selfoss. Víkingur og Selfoss hafa
bæði 31 stig fyrir leikina á morgun
en markahlutfall Víkinga er betra.
Einherji er í 5. sæti með 29 stig og
keppir því við Víking og Selfoss um
3. sætið. Einherji keppir við KS á Siglu
firði á morgun.ÍBI og Njarðvík eru
í fallbaráttunni. ÍBl hefur eins stigs
forskot fyrir leikinn á morgun. Þeir
fá Skallagrímsmenn í heimsókn vest-
ur og verða sigurlíkur þeirra að
teljast góðar þar sem Borgnesing-
arnir hafa ekki fengið stig í sumar.
Njarðvíkingar keppa hinsvegar við
Þrótt á Laugardalsvelli.
Staðan fyrir síðustu umferð er
þannig:
ka .......
Völsungur
Víkingur .
Selfoss . . .
Einherji . .
KS........
Þróttur .. .
ÍBÍ ......
Njarðvik . .
Skallagr. .
17 11 4
17 11 2
17 9 4
17
17
17
17
17
17
17
9 4
9 2
7 4
7 2
3 6
4 2
0 0
2 53-13 37
4 36-14 35
4 45-19 31
4 32-14 31
6 24-21 29
6 29-31 25
8 35-28 23
8 27-35 15
11 27-48 14
17 4-99 0
Marka-
hlutf.
+40
+22
+26
+ 18
+ 3
- 2
+ 7
- 8
-21
-95
Áhorfendastúka við knatt-
spyrnuvöll portúgalska knatt-
spyrnuliðsins Porto hrundi að
nokkru leyti í vikunni. Ekki er
vitað hvemig á því stóð, en
stækkun á henni hafði staðið yfír.
Enginn var á leikvanginum þegar
þetta átti sér stað. Porto þarf að
færa fyrsta leik sinn í Evrópu-
keppni félagsliða á annan völl
sem er í næsta bæ. Hann tekur
helmingi færri áhorfendur og þar
er ekki flóðlýsing.
V.—5TT~"T^U'
& •- , m*
■
■■ ...
«» ?|| ■ p.
Island-Sovétríkin:
Sovéska liðið eins
ogí" '■'
Landslið íslands og Sovétríkjanna keppa í Evrópu-
keppni landsliða í knattspyrnu á Laugardalsvelli 24.
þessa mánaðar. Liðin hafa áður keppt fjórum sinnum,
tvisvar hér heima og tvisvar í Sovétríkjunum. Sovét-
menn hafa sigrað í öll skiptin og skorað alls 10 mörk
gegn einu marki íslendinga. Síðast kepptu liðin í
undankeppni Ólympíuleikanna 1976. Sovétmenn sigr-
uðu 2-0 í fyrri leiknum og 1-0 í þeim síðari.
Liðið sem kemur hingað til lands er skipað sömu
leikmönnum og kepptu á Heimsmeistaramótinu í
Mexíkó í sumar. Uppistaðan í liðinu eru leikmenn frá
Dinamo Kiev. Staða liðsins er mjög sterk, þeir eru að
vísu í 6. sæti með 27 stig, þrem stigum á eftir efsta
liðinu, en eiga 5 leiki til góða. Staðan í sovésku
knattspyrnunni er þannig:
Spartak Moskva............... 24 10 7 7 39-19 27
Zenit Leningrad............... 23 10 7 6 34-32 27
Shakhtyor Donetsk ........... 24 9 9 6 35-25 27
Dinamo Moskva................. 22 9 9 4 27-21 27
Dinamo Tbilisi................ 24 9 8 7 26-26 26
Dinamo Kiev................... 19 8 8 3 28-19 24
Eftir jafntefli íslenska landsliðsins við Frakka í
vikunni sögðust leikmenn íslenska liðsins ekki hræðast
sovéska liðið á heimavelli en þó gæti orðið erfiðara að
leika gegn þeim en Frökkum.
■ Guðmundur Torfason jafnaði
markamet Péturs Péturssonar í 1.
deild um síðustu helgi, skoraði tvö
mörk gegn Víði og hefur þá alls
skorað 19 mörk í sumar. Næst
markahæstur í 1. deild er annar
Framari, Guðmundur Steinsson
með 10 mörk. (Tímamynd-Pétur)
ÍÞRÓTTIR
UMSJÓN:
Enska knattspyrnan:
Mikið um meiðsli
yUjJFHKWt
Bryan Robson, fyrirliði enska landsliðsins
leikur með Manchester United á ný í dag, eftir
að hann hefur verið meiddur í 3 mánuði.
United veitir ekki af, því liðið hefur aðeins
fengið eitt stig í fyrstu fjórum leikjum sínum í
haust. Robson virðist vera kominn í ágætis
þjálfun því hann skoraði tvisvar í æfingaleik á
Norður frlandi á miðvikudag. Líklegt er að
Remi Moses sem einnig er nýstiginn upp ur
meiðslum leiki einnig með gegn Southampton.
Sjúkralistinn hjá Southampton er enn lengri,
Mark Dennis og Gerry Forrest hafa verið frá
vegna meiðsla og veikinda, Nick Holmes fer í
uppskurð á nára í dag, og auk þess hefur Steve
Moran verið seldur til Leicester.
Efsta lið deildarinnar Wimbledon getur að
öllum líkindum ekki teflt fram sóknarmannin-
um John Fashanu í fyrsta stórleik liðsins í
sumar, gegn Everton. Hann fékk slæmt högg á
rifin á æfingu í vikunni.
Jeff Clarke varnarmaður með Newcastle
verður væntanlega með í dag gegn Coventry en
hann hefur ekki getað leikið síðustu þrjá leiki
vegna meiðsla í nára. Hins vegar er ljóst að
Peter Beardsley getur ekki leikið vegna meiðsla
á ökkla og vafasamt er með Glenn Roeder og
John Anderson. David Williams hjá Norwich
þarf að fara í rannsókn til að láta kanna meiðsli
sem hann varð fyrir í landsleik með Wales gegn
Finnum á miðvikudagskvöld.
ÖLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIDJAN
ldí
Cl H F.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KOPAVOGUR
SIMl45000
LA TTU
Tíinann
EKKI FLJÚGA FRÁ PÉR
ÁSKRIFTARSÍMI
686300
Mary Decker
byrjar aftur
að hlaupa
Mary Decker Slaney, heimsmet-
hafi í míluhlaupi kvenna byrjar aftur
að keppa í dag eftir barnseignarfrí
Hún tekur þátt í míluhlaupi sem
fram fer á 5. stræti í New York og er
haldið í 6. skipti í ár.
Decker segist aðeins ætla að hlaupa
sér til ánægju, en hún bætir því við
að hún hafi enga ánægju af því að
hlaupa nema hún verði framarlega í
röðinni.
Hún eignaðist dóttur í lok maí og
var farin að hlaupa 6 dögum síðar.
Mánuði síðar var hún farin að æfa-
Decker setti heimsmet sitt í mílu-
hlaupi (1609 m) í ágúst í fyrra, hljóp
á 4:16,71 mín.
Mary Decker Slaney
Reykjavíkurmót
i
körfuknattleik
Reykjavíkurmótið ■ körfu-
knattleik hefst á morgun með
tveimur leikjuin í meistaraflokki
karla. í R og ÍS leika kl. 14 og KR
og Fram kl. 15.30. Leikirnir fara
allir fram í Hagaskóla. Næstu
leikir verða næstkomandi
fíinmtudag, Valur og Fram leika
kl. 20 og IS og KR kl. 21.30.
Fyrstu kvennaleikirnir verða
næstkomandi laugardag.
Sérstakir verðlaunapeningar
verða veittir fyrir sigur í mótinu í
tilefni af 200 ára afmæli Reykja-
víkurborgar.
úsr0"'
AFMÆUSUTGAFA
vegna 70 ára afmælis Guðrúnar Guðvarðardóttur
FERÐA-
SÖGUR
FRÁ
VESTFJÖRÐUM
NIÐJATAL
ÞÓru
Gunnlaugsdóttur
frá Svarfhóli
Álftafirði
Guðrún Guðvarðardóttir
í tilefni af 70 ára afmæli Guðrúnar Guðvarðardóttur í vor s.l.
mun Starfsmannafélag Þjóðviljans gefa út ferðasögur hennar frá Vestfjörðum
og niðjatal Þóru Gunnlaugsdóttur frá Svarfhóli.
Bókin er væntanleg á markaðinn í október.
Þeir sem hug hafa á að tryggja sér eintak geta
hringt í síma 681333/73687 (Jóhannes) og 610398 (Jörundur)
eða fyllt út pöntunarseðil og sent Starfsmannafélagi Þjóðviljans.
Pósthólf 8020, 128 Reykjavík.
Nöfn áskrifenda munu birtast í bókinni sem heillakveðja.
Bókin kostar kr. 1.300.- til áskrifenda.
(Útsöluverð úr búð verður kr. 1.500.-).
Pöntunarseðill
Nafn
Heimili
Póstnúmer
Sími
I LAUGARDALSHOLL
Sunnudaginn 14. september efnir Sjálfsbjörg í annað
skipti til hjólastólaralls í Laugardalshöll.
Þar keppa þekktir skemmtikraftar, arkitektar,
sveitastjórnarmenn og hjólastólanotendur.
Keppninverðursettkl. 14:00.
Á milli umferða verða skemmtiatriði þar sem fram
koma hljómsveitin Þokkabót, Sigrún Hjálmtýsdóttir,
söngkona, Anna Guðný Guðmundsdóttir, undirleikari,
sýningahópurfrá Karatefélagi Reykjavíkur,
Bjössi Bollaog LEYNINÚMER.
Aðgangurókeypis.
Sjálfsbjörg
landssamband fatlaðra