Tíminn - 13.09.1986, Qupperneq 13
Laugardagur 13. september 1986
Tíminn 13
BRIDGE
jlllllllfi
llllllllllllll
illlllllllll!
Bridgevetrarstarfiö aö hefjast:
Eigendaskipti hjá
Bridgeskólanum
- Guömundur Páll Arnarson tekur við
Nú eru bridgespilarar um allt land
að skríða út af sólbaðsbekkjunum
og huga að vetrarstarfinu. Fyrsta
stórmótinu, Bikarkeppninni, er lok-
ið með sigri sveitar Samvinnuferða
og nú eru félögin öll að hefja vetrar-
starfið. Svo er einnig með Bridge-
skólann sem nú er að byrja sitt 8.
starfsár með nýjum eiganda, Guð-
mundi Páli Arnarsyni.
Bridgeskólinn var stofnaður af
Páli Bergssyni sem keypti einkarétt
á amerísku kennsluefni og þýddi
það og staðfærði. Síðan hefur hann
hjálpað um eitt þúsund manns að
taka fyrstu skrefin á bridgebrautinni
og nokkrir nemenda hans eru orðnir
kunnir í keppnisbridge.
f bridgeskólanum eru námskeið
fyrir þá sem þekkja varla ás frá
Guðmundur Páll Arnarson, nýbak-
aður skólastjóri, Bridgeskólans.
kóngi, og einnig þá sem kunna
helstu undirstöðuatriði í bridge en
vantar þjálfun og öryggi í úrspilinu.
Hvort námskeið er 11 kvöld, þrjá
tíma í hvert skipti og fyrstu nám-
skeiðin standa frá 29. september til
8. desember á mánudagskvöldum
frá 8-11 fyrir byrjendur, og á þriðju-
dagskvöldum frá 30. september til 9.
desember fyrir lengra komna. Nám-
skeiðin verða bæði haldin í Sóknar-
húsinu Skipholti 50a.
Það er því kjörið tækifæri fyrir þá
sem vilja læra að spila þetta
skemmtilega spil að tala við Guð-
mund Pál í síma 27316 eða 27397 og
skrá sig í námskeið. Þetta er sérstak-
lega kjörið tækifæri fyrir hjónafólk
sem vantar tómstundagaman enda
verður sérstakur hjónaafsláttur
veittur.
Heimsmeistaramótið
í tvímenning:
Þegar þessi orð birtast í Tímanum
verður undirritaður ásamt á annan
tug íslenskra bridgespilara að búa
sig undir keppni í heimsmeistara-
mótinu í tvímenning og útsláttar-
keppni sveita f Miami í Bandaríkj-
unum. Keppni þar tekur tvær vikur
og vonandi geta bridgeáhugamenn
lesið um hvernig gengur í Tímanum
næstu tvær vikur.
Bridgedeild Skagfirðinga
Sumarbridge
A-riðill:
Hulda Hjálmarsd.-Þórarinn Andréss. . 222
Ármann Lárusson-Helgi Víborg........ 185
Gróa Guðnadóttir-Guðrún Jóhannesd. . 181
Ásthildur Sigurgíslad.-Lárus Arnórss. . 180
Meðalskor: .......................... 165
B-riðill:
Steingr. Jónass.-Vilhjálmur Einarss. . . 103
Erlendur Björgv.son-Guðm. Kr. Sigurðss. . 95
Amar Ingólfsson-Magnús Eymundsson . 86
Karen Vilhjálmsd.-Þorvaldur Óskarss. . . 83
Erna Sigþórs-Sveinn Sigurjónsson.......83
Meðalskor: ............................84
Staða heildarstiga er nú þessi:
Huida Hjálmarsdóttir 20
Þórarinn Andréwsson 20
Ármann Lárasson 15
Helgi Víborg 15
Spilað verður næsta þriðjudag í
Drangey Síðumúla 35.
(Heildarstig Framh.)
Arnar Ingólfsson 14,5
Magnús Eymundsson 14,5
Steingrímur Jónasson 14,5
Opna Hótel Akraness
mótið
Nú stendur yfir skráning í Opna
Hótel Akraness mótið sem haldið
verður 27. og 28. september n.k.
Gert er ráð fyrir 24-30 para móti og
hefst spilamennskan kl. 12.00 á Iaug-
ardaginum.
Spilað verður um silfurstig auk
veglegra peningaverðlauna. Þátt-
tökugjald er kr. 2.000 á par.
Keppnisstjóri verður Vigfús Pálsson
en um tölvuútreikning sér Baldur
Ólafsson. Þátttökutilkynningar
þurfa að hafa borist fyrir 20. sept. í
síma 93-1080 (Einar) á kvöldin og
um helgar.
Bridgedeild Breiðfirðinga
Vetrarstarf félagsins hefst fimmtu-
daginn 18.09. með eins kvölds tví-
menningi. Spilamennska hefst
stundvíslega kl. 19.30.
Spilað er í húsi Hreyfils við
Grensásveg og er ísak Sigurðsson
keppnisstjóri.
Aðalfundur félagsins verður haldinn
annan sunnudag, 25.09., í Hreyfils-
húsinu kl. 16.00.
Bridgefélag Akraness
Aðalfundur Bridgefélags Akra-
ness 1986 verður haldinn í Kiwanis-
salnum við Vesturgötu fimmtudag-
inn 18. september n.k. kl. 19.45.
Að loknum venjulegum aðalfund-
arstörfum verður spilaður léttur tví-
menningur.
T.B.K.
Vetrarstarf Tafl- og Bridsklúbbsins,
hefst fimmtudaginn 18. sept. n.k.
með tvímenningskeppni. Spilað
verður í Domus Medica, eins og
undanfarin ár og hefst kl. 19.30.
Skráning í síma 34611 (Gísli)
Stjórnin
Auglýsing
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið auglýsir eftir ein-
býlishúsi á Húsavík til kaups.
í tilboðum skal tilgreina verð og greiðsluskilmála
auk upplýsinga um húsið, þar á meðal stærð þess
og gerð. Æskilegt er að útlits- og grunnteikning
fyigi-
Tilboð skulu hafa borist dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu fyrir kl. 16, 25. september 1985.
Áskilinn er réttur til þess að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 9. september
1986.
Mjólkurbússtjóri
Starf mjólkurbússtjóra hjá Mjólkursamlagi Kaup-
félags Austur-Skaftfellinga, Hornafirði er laust til
umsóknar. Allar nánari upplýsingar um starfið
veita Hermann Hansson, kaupfélagsstjóri eða
Eiríkur Sigurðsson, mjólkurbússtjóri. Umsóknar-
frestur er til 24. september nk.
Mjólkursamlag Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga,
Höfn, Hornafirði
Lagerstörf
Verslunardeild Sambandsins óskar eftir starfs-
mönnum til lagerstarfa.
Bónusvinna
Nánari upplýsingar hjá lagerstjóra
VERSLUNARDE3LD
SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM • SÍMI 681266
Lausar stöður
sérfræðinga við
Hollustuvernd ríkisins
Mengunarvarnir: Staða deildar (efna) verkfræð-
ings.
Starfssvið: Mengunarvarnir og eftirlit með meng-
un frá fiskimjölsverksmiðjum.
Rannsóknarstofa: Ein staða matvælafræðings,
líffræðings eða aðilja með háskólapróf í skyldum
greinum.
Starfssvið: Verkstjórn og umsjón með gerlarann-
sókn á neysluvörum.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist fyrir 1. október
næstkomandi til formanns stjórnar Hollustuvernd-
ar ríkisins, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu, Laugavegi 116, 105 R.
ÍMILAUSAR SfÖEXJR HJÁ
llvl REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg óskar eftir að ráða til starfa hjá
íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur.
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Forstöðumann fyrir æskulýðs- og tómstundastarf
í Seljahverfi. Starfið er laust nú þegar.
Menntun á sviði æskulýðs- og félagsmála æskileg
og jafnframt reynsla af stjórnunarstörfum.
Upplýsingar veitir æskulýðs- og tómstundarfulltrúi,
Fríkirkjuvegi 11, sími 622215.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á
sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást,
fyrir kl. 16.00 föstudaginn 19. sept. 1986.
m IAUSAR STÖÐUR HJÁ
'l; REYKJAVIKURBORG
Laus er til umsóknar staða fulltrúa í fjármála og
rekstrardeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur-
borgar. Starfið er fjölbreytt og gefur góða reynslu
í skrifstofustörfum. Æskilegt er að viðkomandi
hafi stúdentspróf, verslunarmenntun og eða
reynslu í skrifstofustörfum. Vinnustaður er Vonar-
stræti 4.
Upplýsingar gefur yfirmaður fjármála og rekstrar-
deildar í síma 25500.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Tíininn
óskar eftir að ráða blaðamenn í fullt starf, með
aðsetur á eftirtöldum stöðum:
Akureyri,
ísafirði,
Egilsstöðum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í
blaðamennsku, geti unnið sjálfstætt og sótt
námskeið varðandi starfið.
Nánari upplýsingar veitir:
Níels Árni Lund, ritstjori, í síma 91-686300.
Starf fjósameistara
Starf fjósameistara við tilraunabúið Stóra-Ármóti
er laust til umsóknar. Skriflegar umsóknir er
tilgreini menntun og fyrri störf sendist til Egils
Jónassonar Stóra-Ármóti Hraungerðishreppi fyrir
1. nóvember 1986.
Æskilegt að umsækjendur hafi búfræðimenntun.
Upplýsingar um starfið veittar í síma 99-1058.
Tilraunabúið Stóra-Ármóti