Tíminn - 18.09.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn
SPEGILL
u\/r\T
▼ xji ▼
FATA
Á ströndinni og viö
ströndina. Mikiö úrval,
dýrt og ódýrt,
náttúruefni og gerviefni
- allt er til.
TISKA
kaupstefna í París
Kvenfatasýningin „Prét á Porter Féminin“ verður haldin
í París dagana 27. sept.-l. okt. nk. Þessi sýning er
kaupstefna, ætluð kaupmönnum eingöngu, og á hverju ári
koma 100.000 kaupendur til þess að skoða og kaupa vörur
frá 2.000 sýnendum frá 25 löndum. Áhugasömum íslensk-
um kaupmönnum um þessa kaupstefnu er bent á að hafa
samband við verslunarfulltrúann í franska sendiráðinu.
Á þessari sýningu, sem er sú 52. í röðinni, kennir margra
grasa og miðast hún við vor- og sumartískuna 1987. Þar er
að finna mikið úrval vörumerkja, bæði þeirra sem þegar
hafa unnið sér sess og þeirra sem eru á uppleið, og gefst
kaupendum því tækifæri til að bera saman fatnað af
ólíkasta tagi. Verðið er líka af öllum tegundum.
Kannski verða einhverjar af meðfylgjandi hugmyndum
allsráðandi í mannlífinu hér á landi næsta vor og sumar.
Fimmtudagur 18. september 1986
ÚTLÖND
Sumir eru djarfari en aðrir
í fatavali.
Franskur fatnaður
hefur alltaf notiö
einstakrar
virðingar, ogekkert
síöursásem hægt
er aö kaupa beint
af slánum í
stórverslununum.
Þar má líka finna
alþekkt vörumerki
sem svo margir
leggja upp úr.
Ekki má gleymá
alls kyns
fylgihlutum, sem
mörgum finnst
ómissandi. Og þeir
gera oft gamla flík
aö nýrri.
FRETTAYFIRLIT
EVANDER, Suður-Afríka
- Óttast er aö rúmlega 180
manns hafi látið lífið í náma-
slysinu í Suöur-Afríku í fyrra-
kvöld en þá brutust eldar út og
ollu eitrun í einni helstu gull-
námu landsins. Slysið varö viö
logsuðu er olli sprengingu í
gaskút. Flestir þeirra er létust
voru svertingjar.
MOSKVA — Ósamkomulag
og stjórnun á vopnakapp-
hlaupinu og mál bandaríska
blaöamannsins Nicholas Dani-
loff, sem stjórnin í Moskvu
ásakar um njósnir, gefa ekki
góö fyrirheit um árangur af
viðræöum þeirra George
Schultz utanríkisráðherra
Bandaríkjanna og Eduard
Shevardnadze. Viðræðurnar
hefjast á föstudaginn.
JURMALA, Sovétríkin -
Fólk úr röðum almennings frá
Sovétríkjunum og Bandaríkj-
unum héldu áfram aö skiptast
á skoðunum í gær. Flestir voru
sammála um hversu hættuleg-
ur ófriður á öllum svæöum
jarðarinnar væri. Hinsveaar
deildu aöilarnir um ástæour
nær allra hernaöaríhlutana,
frá Afganistan til Nicaragua.
PUNTA DEL ESTE, Ur-
uguay - Ráðherrar margra
þjóða á fundinum um alþjóöleg
viðskipti reyndu aö fá fulltrúa
frá löndum þeim sem hafa
hvaö ósveigjanlegustu af-
stöðuna til ao láta af stefnu
sinni í því skyni aö geta hafið
aö nýju ýtarlegar viðræður um
frjálsa verslun.
LUNDÚNjR — Hlutabréf á
mörkuðum í Lundúnum voru
nokkuð hærri í verði er opnað
var í gærmorgun. Að sögn
verðbréfasala var ástæðan að
hluta til hið mikla verðhrun í
fyrradag.
LUNDÚNIR — Breska sterl-
ingspundið var lægra gagnvart
evrópskum gjaldmiðlum en
nokkru sinni fyrr, pundið fékkst
t.d. fyrir tæp þrjú vestur-þýsk
mörk í fyrsta sinn. Olíuverð
virðist ætla að lækka að nýju
að sögn gjaldeyriskaupmanna.
AUSTUR-BERLÍN
Daniel Ortega forseti Nicarag-
ua ræddi við Erich Honecker
leiðtoga Austur-Þýskalands.
Viðræðurnar snerust að mestu
um efnahagsaðstoð til handa
stjórn Sandinista í Nicaragua.
BELFAST — Kaþólskur
maður var skotinn til bana fyrir
utan kirkju eina í Belfast að því
er virtist í hefndarskyni fyrir
morðið á þekktum mótmæl-
anda síðastliðinn sunnudag.